Morgunblaðið - 16.09.2022, Síða 27

Morgunblaðið - 16.09.2022, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022 _ Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þor- geir Kristjánsson fóru á kostum með Magdeburg þegar liðið vann 30:28- sigur gegn Dinamo Búkarest í A-riðli Meistaradeildarinnar í handknattleik í Rúmeníu í gær. Ómar Ingi var marka- hæstur hjá þýska liðinu með sjö mörk og Gísli Þorgeir var næstmarkahæstur með fimm mörk. Magdeburg er með 2 stig í þriðja sætinu. _ Unnur Dóra Bergsdóttir og Krist- rún Rut Antonsdóttir hafa framlengt samninga sína við knattspyrnudeild Selfoss, Unnur Dóra til tveggja ára og Kristrún Rut til eins árs. Báðar hafa þær verið lykilmenn í liði Selfoss síð- ustu misserin og Unnur Dóra hefur borið fyrirliðabandið í sumar. _ Kristján Örn Kristjánsson átti sannkallaðan stórleik fyrir Aix þegar liðið vann 35:26-sigur gegn Istres í efstu deild Frakklands í handknattleik í gær. Kristján Örn var markahæsti maður vallarins með sjö mörk úr ellefu skotum. Aix er með 2 stig í sjöunda sæti deildarinnar eftir tvo leiki. _ Hollenska landsliðskonan Jackie Groenen er orðin liðsfélagi Berglindar Bjargar Þorvaldsdóttur hjá franska stórliðinu París SG sem hefur gengið frá kaupum á henni frá Manchester United en hún samdi til ársins 2025. _ Cristiano Ronaldo skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu fyrir Man- chester United þegar liðið vann 2:0- útisigur gegn Sheriff Tiraspol í E-riðli Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í Moldóvu í gær. Eitt ogannað Olísdeild karla ÍR – Haukar.......................................... 33:29 Selfoss – Grótta .................................... 28:27 Stjarnan – Fram................................... 24:24 Staðan: Fram 2 1 1 0 57:50 3 Stjarnan 2 1 1 0 57:52 3 Grótta 2 1 0 1 58:48 2 Selfoss 2 1 0 1 54:60 2 ÍR 2 1 0 1 53:60 2 Valur 1 1 0 0 25:24 2 Haukar 2 1 0 1 56:54 2 Hörður 0 0 0 0 0:0 0 ÍBV 0 0 0 0 0:0 0 Afturelding 1 0 0 1 24:25 0 FH 1 0 0 1 28:33 0 KA 1 0 0 1 21:27 0 Olísdeild kvenna Stjarnan – Fram................................... 26:20 Meistaradeild karla Dinamo Búkarest – Magdeburg ........ 28:30 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 7 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 5. Aalborg – Celje Lasko ........................ 36:32 - Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. Veszprém – París SG .......................... 36:34 - Bjarki Már Elísson skoraði ekki fyrir Veszprém. Þýskaland Flensburg – Füchse Berlín................. 31:31 - Teitur Örn Einarsson skoraði ekki fyrir Flensburg. RN Löwen – Leipzig ........................... 30:24 - Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö- wen. - Viggó Kristjánsson skoraði ekki fyrir Leipzig. Bergischer – Lemgo ........................... 32:28 - Arnór Þór Gunnarsson skoraði ekki fyrir Bergischer. Frakkland Aix – Istres ........................................... 35:26 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 7 mörk fyrir Aix. .$0-!)49, Í LÚXEMBORG Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Öll fimm lið Íslands á Evr- ópumótinu í hópfimleikum keppa í úrslitum í dag og á morgun, eftir að karla- og kvennalið fullorðinna tryggðu sér sæti á meðal þeirra bestu í gær. Drengja- og stúlknalið Íslands höfðu þegar tryggt sér sæti í úrslitum, eins og blandað lið ung- menna. „Þetta fór nákvæmlega eins og við vildum að það myndi fara,“ sagði Ásta Kristinsdóttir, sem er mikil- vægur hlekkur í fullorðinsliði kvenna, í samtali við Morgunblaðið eftir að liðið tryggði sér þriðja sæti í undanúrslitum og sæti í úrslitum í leiðinni. Ísland var ekki aðeins með þriðja besta árangur allra í gær, heldur einnig næstflest stig í tveimur af þremur áhöldum. Aðeins Svíþjóð fékk fleiri stig á gólfæfingum og dýnu, en Ísland var með fjórða besta árangur allra á trampólíni. Eigum helling inni „Við eigum helling inni í öllum greinunum. Það er flott að fara í úr- slitin og eiga ýmislegt inni í öllum áhöldum. Við viljum toppa í úrslit- unum, en ekki undanúrslitum. Und- anúrslitin snúast um að prófa sig áfram í höllinni og með áhorfendum. Á laugardaginn (á morgun) gefum við allt í þetta,“ sagði Ásta, sem var í úrvalsliði EM í Portúgal á síðasta ári, þegar Ísland gerði sér lítið fyrir og varð Evrópumeistari. Eins og gefur að skilja sá Ásta margt jákvætt við frammistöðuna í gær, enda Ísland í öðru sæti á tveimur áhöldum af þremur. „Við komum mjög ákveðnar inn í öll áhöld og við gerðum okkar besta til að vera með sem mesta útgeislun og gera þetta vel,“ sagði Ásta. Íslenska liðið hefur þurft að glíma við áföll í aðdraganda mótsins því Kolbrún Þöll Þorradóttir, ein besta hópfimleikakona landsins, sleit há- sin nokkrum dögum fyrir brottför til Lúxemborgar. Þá getur fyrirlið- inn Andrea Sif Pétursdóttir ekki beitt sér að fullu, þar sem hún varð fyrir sömu meiðslum á EM á síðasta ári. „Það var auðvitað erfitt að missa Kolbrúnu úr liðinu korteri fyrir brottför. Við misstum bæði góðan liðsfélaga og manneskju sem við treystum vel. Við þurftum að takast á við þetta, rífa okkur í gang og gera það besta úr stöðunni. Andrea tók ekki þátt núna en hún verður eitt- hvað með í úrslitunum,“ sagði Ásta um liðsfélaga sína. Ísland er ríkjandi Evrópumeistari og þrátt fyrir áföll eru miklar vænt- ingar gerðar til liðsins, bæði hjá keppendum og stuðningsfólki. Stúkan algjörlega með okkur „Við gerum okkur vonir um fyrsta sætið og við stefnum á það. Við megum samt ekki gleyma því að njóta þess að vera hérna. Það er alltaf ótrúlega gaman að keppa á þessu móti og finna stúkuna al- gjörlega með okkur,“ sagði Ásta. Ísland gerði mjög vel í að svara með virkilega góðum æfingum á dýnu og á gólfi eftir að hafa átt erf- itt uppdráttar á trampólíni. Nái ís- lenska liðið að fækka litlu mistök- unum í dansi og á dýnu og hitta á góðan dag á trampólíni, ætti mögu- leikinn á verðlaunum svo sannarlega að vera til staðar. Það mun svo hjálpa liðinu að geta treyst á fyr- irliðann Andreu Sif. Björguðu sér á síðasta áhaldinu Íslenska karlaliðið var ekki í sér- lega góðri stöðu eftir að hafa gert þónokkur mistök á gólfæfingum og trampólíni í fyrstu tveimur umferð- unum. Þurfti liðið á glæsilegum ár- angri á dýnu að halda til að fara í úrslit og sú varð sannarlega raunin. Liðið framkvæmdi afar erfiðar æfingar nánast óaðfinnanlega og varð allt vitlaust í höllinni í Lúx- emborg þegar íslensku strákarnir höfðu lokið sér af. Niðurstaðan var glæsileg einkunn, 20,600, sem var þriðja hæsta einkunn allra í nokkru áhaldi í undanúrslitunum. Gladdi það íslenska liðið sérlega mikið að hafa fengið fleiri stig en Danir á dýnu, en danska liðið er þekkt fyrir glæsilegar dýnuæfingar. Rétt eins og kvennaliðið á karla- liðið nokkuð inni. Liðið sýndi alls ekki sínar bestu hliðar á gólfinu og gerði of mörg mistök á trampólíninu sömuleiðis. Íslenska liðið er betra en það sýndi í gær, en eins og konurnar ætla karlarnir sér líka að toppa á réttum tíma; í úrslitum. Það er alls ekki óraunhæft fyrir liðið að stefna á verðlaun annað árið í röð, en Ís- land hafnaði í öðru sæti í Portúgal á síðasta ári. Gjörsamlega rústuðum þessu „Okkur leið ótrúlega vel fyrir dýnuna, en á sama tíma vorum við pínulítið stressaðir því þetta eru undanúrslit,“ sagði Stefán Ísak Stefánsson, fyrirliði karlaliðsins, við Morgunblaðið. „Við fórum á dýnuna og gjör- samlega rústuðum þessu. Þetta voru sturluðustu dýnuæfingar sem við höfum gert. Þetta var ótrúlega gott hjá okkur eftir að hin áhöldin gengu ekki það vel. Andrúmsloftið var geggjað og við rifum okkur almenni- lega í gang. Við vissum að við þurft- um að rústa þessu á dýnunni til að fara áfram og við gerðum það. Við erum ótrúlega góðir þegar pressan er á okkur,“ bætti hann við. Stefán segir íslenska liðið geta bætt mikið fyrir úrslitin. „Við vorum ekki nógu samtaka í dansinum og á trampólíni vorum við að detta eftir að við lentum, sem á ekki að gerast hjá okkur,“ sagði fyrirliðinn. Frekari umfjöllun um mótið og viðtöl má sjá á mbl.is. Gerum okkur vonir um og stefnum á fyrsta sæti - Öll fimm íslensku liðin keppa í úrslitum - Karlaliðið bjargaði sér á dýnunni Ljósmynd/Stefán Þór Friðrikson Gleði Meðlimir íslenska karlalandsliðsins voru gríðarlega sáttir eftir afar vel heppnaðar æfingar á dýnu. Ljósmynd/Stefán Þór Friðriksson Háloft Tinna Ólafsdóttir sýnir mögnuð tilþrif á æfingum á dýnu í gær, en ís- lenska liðið var með næstflest stig allra á dýnunni og á gólfæfingum. Svisslendingurinn Roger Federer, einn af sigursælustu tennismönnum sögunnar, ætlar að hætta keppni að loknu Laver-mótinu í London í næstu viku. Hann tilkynnti þetta í gær. Federer er 41 árs og hefur unn- ið 20 risamót en aðeins Rafael Nadal (22) og Novak Djokovic (21) hafa unnið fleiri. Þar af hefur hann unnið Wimbledon-mótið átta sinnum og Opna ástralska mótið sex sinnum. Federer sagði í gær að meiðsli und- anfarinna ára hefðu tekið sinn toll og hann verði að sætta sig við að nú sé ferillinn á enda. Federer hættir í næstu viku AFP/William West Kveður Roger Federer er að hefja keppni á sínu síðasta móti. Isabella Sigurðardóttir, landsliðs- kona í körfuknattleik, er gengin til liðs við Breiðablik á nýjan leik en hún hefur leikið með South Ade- laide Panthers í Ástralíu undan- farna mánuði. Isabella er 25 ára miðherji og á átta A-landsleiki að baki. Hún hefur leikið með Breiða- bliki allan sinn feril. Á síðasta tíma- bili skoraði hún 14,4 stig og tók 13,8 fráköst að meðaltali í leik en Isabella var sá Íslendingur í deild- inni sem tók flest fráköst og var þriðja hæst af íslenskum leik- mönnum í stigaskori. Isabella aftur til Breiðabliks Morgunblaðið/Árni Sæberg Heimkoma Isabella Ósk Sigurðar- dóttir lék í Ástralíu í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.