Morgunblaðið - 16.09.2022, Síða 28

Morgunblaðið - 16.09.2022, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022 S: 555 0800 · Fornubúðum 12 · Hafnarfirði · sign@sign.is · facebook.com/signskart WWW. S I G N . I S Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Þetta er mikilvæg saga með ríkt erindi. Saga um það hvernig listin getur kallað fram tilgang og gleði innra með okkur og hvað tenging við aðrar manneskjur getur verið gef- andi,“ segir leikstjórinn Unnur Ösp Stefánsdóttir um söngleikinn Sem á himni sem frumsýndur verð- ur í Þjóðleikhús- inu í kvöld. Söngleikurinn er gerður eftir sænskri kvik- mynd frá 2004, Så som i himmel- en, sem vakti mikla lukku og var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna. Höfundar myndarinnar og leik- stjóri gerðu úr myndinni söngleik stuttu fyrir Covid-faraldurinn. Hann var frumsýndur í Svíþjóð og sló að sögn Unnar gjörsamlega í gegn. Kveikir með þeim lífsneistann „Þessi mynd heillaði mig upp úr skónum á sínum tíma þótt hún sé svolítið barn síns tíma. Þetta er alveg hrikalega sterk og sjarmer- andi saga af samfélagi og fólki sem tendrast allt upp þegar heims- frægur hljómsveitarstjóri flytur í bæinn og setur eiginlega allt á ann- an endann. Hann kveikir með þeim öllum lífsneistann í gegnum kóræf- ingar. Þau uppgötva sjálf sig, hvert af öðru, fara að setja mörk og stíga út úr þægindarammanum. Þessi maður er á tímamótum. Hann hefur notið gríðarlegrar vel- gengni í tónlist en er að berjast fyrir lífi sínu og á ekki langt eftir. Hann ákveður að fara aftur á æskuslóð- irnar þótt hann hafi upplifað alvar- leg áföll þar sem barn.“ Kvikmyndin er að sögn Unnar ekki söngvamynd heldur raunsæis- legt samfélagsdrama. „Ég er sjálf í kór og hef alltaf haft mikinn áhuga á samfélagslegum málum. Í sögunni er tekið á alvöru- málum: heimilisofbeldi, eineltis- málum og öllu sem grasserar í sam- félögum og sérstaklega litlum samfélögum. Þess vegna fannst mér þetta strax tala svolítið til okkar Íslendinga. Svo er þetta líka hin klassíska saga um leitina að ástinni, að þora að taka stökkið og elska. Það nær einna mest til hjartans í sögunni.“ Söngleikurinn í uppfærslu Unnar gerist á óræðum skandinavískum stað sem hún ákvað, í samstarfi við þýðandann, að kalla Ljósavík. „Ég fékk fyrstan um borð í skipið Þór- arin Eldjárn. Hann er alveg ótrú- lega fær í að færa texta, sérstaklega söngtexta, að hjartanu,“ segir hún. „Ég sá strax tækifæri til þess að segja mjög mikilvæga og hjartnæma sögu sem er uppfull af ótrúlega fal- legri tónlist sem við erum í raun að kynna fyrir Íslendingum. Það er eitt lag sem fólk þekkir mögulega, „Söngur Gabríelu“, sem var í kvik- myndinni en annars er þetta allt ný tónlist.“ Af fullum þunga í dramað Unnur segir að ólíkt því sem oft á við um söngleiki, að þeir geri út á tónlistina og sjónarspilið frekar en söguna, þá sé þarna á ferðinni efni- viður með mikla dýpt. Hana hafi því ekki langað að fara hina hefðbundu söngleikjaleið þótt tónlistin sé auð- vitað í stóru hlutverki. „Mig langaði að setja þetta á jörðina og fara af fullum þunga inn í tilfinningalega dramað í þessu. Og færa þetta í raun nær því að vera leikrit með söngv- um.“ Tónlistin segir hún að sé einhvers staðar mitt á milli þess að vera söng- leikjatónlist og popp- eða þjóðlaga- tónlist. „Þetta er mjög aðgengileg, gríp- andi og ótrúlega falleg tónlist. En tónlistin er mjög krefjandi. Hljóm- sveitarstjórinn syngur alveg gríðar- lega krefjandi lög og þarf líka að hafa yfir sér ákveðna dulúð og sjarma. Ég sá engan annan fyrir mér en Elmar Gilbertsson og mér fannst verkið eiginlega standa og falla með því að við fengjum hann með. Hann er svolítið utan við leik- húsið. Hann er úr óperuheiminum og með fágaðri bakgrunn en allir leikararnir og hann er líka búinn að starfa mikið erlendis. Mér fannst mikilvægt að þetta væri listamaður sem kæmi með alveg nýja orku inn í leikhúsið og væri með annan bak- grunn,“ segir Unnur og bætir við að Elmar hafi reynt að hafna þessu til- boði af því hann var fastur í mörgum verkefnum erlendis, þar sem hann er fastráðinn. „Við hlæjum að því í dag að ég leyfði honum eiginlega ekki að komast upp með það. Svo fékk ég Sölku Sól, sem er alþýðu- hetja sem allir elska. Hún er mjög gefandi listakona, yndisleg og sjarmerandi. Það er svolítið djarft en ég tefli þeim þarna saman sem andstæðunum sem fella svo hugi saman.“ Unnur segist síðan hafa fengið til liðs við sig „hverja kanónuna á fætur annarri“ og nefnir sem dæmi Val- gerði Guðnadóttur, Katrínu Hall- dóru Sigurðardóttur og Guðjón Davíð Karlsson. „Svo lagði ég líka mjög mikið upp úr því að þetta væri kærleiksríkur, hugrakkur og gal- opinn leikhópur sem þyrði að taka skrefið með mér og gera þetta að alvöru, krassandi leikhúsi.“ Uppfullt af ást á listinni Leikarahópurinn er stór og þar af eru þó nokkur börn og ungir leik- arar í bland við reynslumikla. „Sigurður Sigurjónsson, Edda Björgvinsdóttir, Örn Árnason og Ragnheiður Steindórsdóttir eru þarna í hlutverkum en þau eiga öll stað í hjarta Íslendinga. Stór hluti af starfi leikstjórans er að leiða saman réttu hestana til að skapa réttu orkuna og tilfinninguna á sviðinu. Að sýningunni kemur stórt list- rænt teymi, meðal annars leik- myndahönnuðurinn Ilmur Stefáns- dóttir, búningahönnuðurinn Filippía I. Elísdóttir, danshöfundurinn Lee Proud, tónlistarstjórinn Jón Ólafs- son og ljósahönnuðurinn Björn Bergsteinn Guðmundsson. Þá tekur tólf manna hljómsveit einnig þátt. „Þegar maður gerir söngleik er maður alltaf að reyna að finna þenn- an rétta sannfærandi tón, því þetta er í eðli sínu krefjandi form. Við brestum sjaldnast í söng í lífinu sjálfu en áhorfandinn þarf að sann- færast um það og falla fyrir því. Ég vona að það hafi tekist með þessum hópi. Æfingaferlið hefur í það minnsta verið uppfullt af ást á list- inni og sköpunarkraftinum, sem er kjarni verksins. Þannig að okkur hefur svolítið liðið eins og kórnum í Sem á himni.“ Ljósmynd/Jorri Samfélag „Þetta er alveg hrikalega sterk og sjarmerandi saga af samfélagi og fólki sem tendrast allt upp þegar heimsfrægur hljómsveitarstjóri flytur í bæinn og setur eiginlega allt á annan endann,“ segir Unnur Ösp. Hjartnæm saga af samfélagi - Söngleikurinn Sem á himni frumsýndur í Þjóðleikhúsinu - Byggt á sænskri kvikmynd frá 2004 - Leikstjórinn Unnur Ösp Stefánsdóttir segir mikilvæga og sjarmerandi sögu sagða í verkinu Unnur Ösp Stefánsdóttir Margrét Jónsdóttir opnar í dag kl. 16 sýninguna Útópía/ Staðleysa í Grafíksalnum í Hafnarhúsinu, hafnarmegin. Margrét sýnir þar verk sem hún hefur unnið að síðast- liðin þrjú ár og málað með náttúru- legum efnum, að því er fram kemur í tilkynningu. Margrét starfar við myndlist á Íslandi og í Frakklandi og nam fagið við Myndlistar- og handíðaskóla Íslands. Hún hlaut diplómu í frjálsri myndlist og síðar diplómu í grafískri hönnun. Þá stundaði hún meistaranám við Central Saint Martins College of Art í London og hlaut einnig dip- lómu frá Kennaraháskólanum. Hún hefur haldið yfir 50 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga á Íslandi og erlendis. Verk eftir Mar- gréti eru í eigu helstu listasafna landsins og hefur hún hlotið ferða- styrki og starfslaun listamanna. Sýningin stendur yfir til 2. októ- ber og er opið í Grafíksalnum alla daga frá kl. 14 til 18. Litir Margrét við listsköpun í náttúrunni. Málar verk sín með náttúrulegum efnum Spunasveitin og tríóið Stavros Papadopulos frá Slóvakíu treður upp í Mengi í kvöld kl. 21. Er sveitin sögð miðla tónlistarlegum könn- unarferðum Önnu Èonková og leggja megináherslu á mannsrödd- ina í öllum sínum fjölbreytileika. Kannar sveitin mörk tónlistar, sam- kvæmt tilkynningu. Hún hefur komið fram á mörgun tilraunatón- listarhátíðum í Slóvakíu. Hún kem- ur nú fram í fyrsta sinn hér á landi og verður sungið, leikið á trommur, ýmsa hluti og rafhljóðfæri. Tilraunir Stavros Papadopulos á sviði. Stavros Papadopulos í Mengi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.