Morgunblaðið - 16.09.2022, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
empire moviefreak.com
“ALADDIN FOR ADULTS” “A DIFFERENT KIND OF BLOCKBUSTER”
“A GLORIOUS ONE-OF-A-KIND CREATION”
EKKI MISSA AF ÞESSARI Í BÍÓ
Indie wire
FRÁBÆR GAMANMYND
Meistari Jón
Hólm nefnist
ljósmyndasýning
Tómasar Jóns-
sonar sem opn-
uð var í fyrra-
dag á kaffi-
húsinu Mokka
við Skólavörðu-
stíg. Um sýn-
inguna segir
Tómas m.a: „Að vera sér-vitur er
aðdáunarvert. Því miður líta for-
dómafullir menn á slíkt sem nei-
kvæðan eiginleika. Vinur minn,
Jón Hólm, er vissulega sérvitur
og þess vegna stórkostlegur
karakter. Sérviska hans er Land-
Rover-sérviska. Hann veit ALLT
um Land Rover-bíla. Hann hefur
safnað að sér Land Rover-bílum
frá því hann var táningur og á
hátt á þriðja hundrað bíla. Einn
Land Rover-bíllinn í safni hans er
reyndar algjörlega hannaður og
smíðaður af honum sjálfum frá
upphafi til enda – hann gat
reyndar sótt hluti í bílinn að vild í
aðra bíla sem hann átti. Þessi
staðreynd er vitnisburður um
stórkostlega sérvisku hans, færni
og snilld. Land Rover-eigendur –
þ. á m. mín fjölskylda – sækja til
hans viðhald og viðgerðir á bílum
sínum. Í kvikmyndabransanum er
Jón Hólm eftirsóttur og fenginn
til að skaffa gamla bíla og halda
öllu sem snýr að bílum gangandi.
Það sem meira er: Hann þekkir
sögu allra sinna bíla. Hann á
fyrsta Land Rover-bílinn sem
fluttur var til landsins fyrir kær-
leiksríka ljósmóður í Skagafirði.
Hann á sinn uppáhalds-Land
Rover-bíl – en vill ekki láta uppi
hvaða bíll það er.“
Jón Hólm veit allt um Land Rover
Tómas Jónsson
Björk Hrafns-
dóttir og Árni
Hrafn Krist-
mundsson hlutu í
gær verðlaun
NOMEX fyrir
framlag sitt til
tónlistargeirans á
Íslandi.
NOMEX er s
samstarfsverk-
efni Útflutnings-
miðstöðvar íslenskrar tónlistar og
systurskrifstofa hennar á Norður-
löndunum. Stofnað var til verð-
launanna til að auka sýnileika og
samvinnu innan norræna tónlistar-
iðnaðarins, að því er fram kemur í
tilkynningu. Norðurlöndin eru sjötti
stærsti tónlistarmarkaður í heimi.
Verðlaunin nefnast Top 20 Under 30
– Nordic Music Biz. Þau eru veitt 20
einstaklingum undir þrítugu sem
þykja hafa skarað fram úr í tónlist-
argeiranum. Verðlaunaafhending
fór fram á By:Larm tónlistarhátíð-
inni í Osló í gær.
Björk Hrafnsdóttir er listfræð-
ingur, með MA-gráðu í sýningar-
stjórnun og hefur unnið að ýmsum
verkefnum þar sem hún hefur lagt
áherslu á náið og þverfaglegt sam-
starf í myndlist, tónlist og hönnun.
Sem sýningarstjóri vinnur hún bæði
með tónlistarmönnum og mynd-
listarmönnum og
leggur áherslu á
að byggja upp
samfélag þar sem
fólk getur stutt
hvert annað og
veitt gagn-
kvæman inn-
blástur, að því er
fram kemur í til-
kynningu.
Á árunum 2018
til 2020 starfaði Björk fyrir írska
tónlistarmanninn Damien og hóf
störf hjá íslenska útgefandanum
INNI árið 2020. Hún hefur tekið þátt
í kvikmynda- og sjónvarpsverk-
efnum hjá Apple, Netflix, HBO og
stýrir kvikmyndaverunum í Reykja-
vík.
Árni stundaði nám við BIMM Berl-
ín og stofnaði Klapp Management
ásamt Henný Frímannsdóttur árið
2018. Hann hefur stýrt fjölda virtra
íslenskra tónlistarmanna og hljóm-
sveita á borð við Warmland, Moses
Hightower, Valdimar og Daða Frey.
Í dag starfar Árni sem fram-
kvæmdastjóri Daða Freys og hefur
einnig verið framleiðandi á fjölda
stórra tónlistarviðburða á Íslandi
auk þess að hafa umsjón með tónlist-
arútgáfu, gerð tónlistarmyndbanda
og markaðssetningu fyrir ýmsa
listamenn.
Björk og Árni verðlaunuð á By:Larm
Björk
Hrafnsdóttir
Árni Hrafn
Kristmundsson
Kynningarfundur vegna Alþjóðlegr-
ar kvikmyndahátíðar í Reykjavík,
RIFF, sem fram fer 29. september
til 9. október, var haldinn í gær.
Þar var stiklað á stóru í umfangs-
mikilli dagskránni. Hátíðin hefst að
venju með sýningu opnunarmynd-
ar. Að þessu sinni er það myndin
Vera í leikstjórn Tizza Covi og
Rainer Frimmel sem frumsýnd var
á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum
fyrr í mánuðinum. RIFF lýkur svo
með frumsýningu á Sumarljós og
svo kemur nóttin eftir leikstjórann
Elvar Aðalsteinsson. Að venju
verður ýmislegt kvikmyndatengt í
boði fyrir fólk á öllum aldri og fara
sýningar fram í Háskólabíói.
70 myndir frá 59 löndum
Sýndar verða 70 kvikmyndir í
fullri lengd frá 59 löndum. Norður-
landafrumsýningar eru 31 talsins,
þrjár Evrópufrumsýningar og tvær
heimsfrumsýningar. 56% kvik-
myndanna er leikstýrt af konum og
því eru þær þar í meirihluta. Ýms-
ar verðlaunamyndir verða á dag-
skrá, m.a. fyrrnefnd Vera sem
hlaut verðlaun fyrir bestu leik-
stjórn og bestu leikkonu á Alþjóð-
legu kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum. Einnig má nefna aðra
verðlaunamynd frá hátíðinni í Fen-
eyjum, No Bears. Hún er ekki síð-
ur merkileg en hún er eftir íranska
kvikmyndagerðarmanninn Jafar
Panahi sem situr nú í fangelsi fyrir
gagnrýni á stjórnvöld í heimalandi
sínu. Af heimildarmyndum RIFF
má nefna hina finnsku Karókí para-
dís í leikstjórn Einari Paakkanen.
Hún fjallar um mikilvægi karókí-
söngs fyrir geðheilsu Finna. Sú er
tilnefnd til Evrópsku kvikmynda-
verðlaunanna líkt og Girl Gang
eftir Susönu Meures sem fjallar um
fjórtán ára stúlku sem er áhrifa-
valdur.
Kvikmyndaframleiðandinn Sigur-
jón Sighvatsson hefur nú sest í stól
leikstjóra og verður fyrsta
heimildarmynd hans og Scott Har-
dei, Exxtinction Emergency, sýnd
2. október. Í myndinni er fjallað um
alþjóðlega hreyfingu sem berst
gegn loftslagsbreytingum með
borgaralegri óhlýðni. Einnig má
nefna heimildarmyndina King of
the Butterflies eftir Olaf de Fleur.
Hún fjallar um ungling sem er sak-
laus dæmdur í fangelsi í Bandaríkj-
unum.
Heiðursgestur hátíðarinnar er
ekki af verri endanum; spænska
leikkonan Rossy de Palma sem
þekktust er fyrir leik sinn í mynd-
um Pedrós Almodóvars.
Heiðursverðlaunahafar RIFF í ár
eru spænski leikstjórinn Albert
Serra og kvikmyndagerðarmaður
kvikmyndagerðarmannanna svo-
nefndur, hinn svissneski Alexandre
O. Philippe. Sérstök áhersla verður
lögð á spænska kvikmyndagerð á
RIFF og fjöldi spænskra leikstjóra
sækir hátíðina.
Hvað í f.... er í gangi?
Að venju nefnist aðalkeppnis-
flokkur hátíðarinnar Vitranir. Í
honum verða sýndar átta kvik-
myndir eftir upprennandi höfunda
sem eru ýmist fyrsta eða annað
verk viðkomandi leikstjóra. Þær
keppa um aðalverðlaun hátíðar-
innar, Gullna lundann. Af öðrum
flokkum má nefna Aðra framtíð
sem inniheldur heimildarmyndir
um samfélagslega mikilvæg mál-
efni.
Í tilkynningu frá RIFF segir að
hátíðin dragi þema sitt í ár saman í
eina spurningu: „Bakslag. Hvað í
f******** er í gangi?“ og vinni í
auknum mæli með ólíkum sam-
félagshópum í því skyni að nýta
áhrif kvikmyndagerðar til að skapa
umræðu um málefni samtímans.
Málþing, sem dregur saman ólík
umfjöllunarefni mynda í flokknum
Önnur framtíð, verður haldið. Þar
verður unnið út frá framlagi kvik-
myndagerðar til mannréttinda-
þróunar í breiðum skilningi, segir í
tilkynningu. Bogi Ágústsson frétta-
maður mun stýra pallborðs-
umræðum og meðal þeirra sem
taka þátt í þeim er fyrrverandi for-
seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son.
Stjórnendum RIFF er
umhverfisvernd ofarlega í huga og
verður því dregið úr notkun prent-
aðs efnis í ár og þess í stað stuðst
við vefsíðuna riff.is og nýtt app.
helgisnaer@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Hátíðarstund Skipuleggjendur RIFF kynntu það helsta á fundi í gær.
56% kvikmynda í
leikstjórn kvenna
- Spænskar kvikmyndir og heiðursgestur á RIFF í ár