Morgunblaðið - 16.09.2022, Page 32

Morgunblaðið - 16.09.2022, Page 32
STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU WWW.SVEFNOGHEILSA.IS Svefn heilsa& PANDORA STILLANLEGUR HÆGINDASTÓLL VANDAÐAR SÆNGUROG KODDAR Í ÚRVALI EITT MESTA ÚRVAL AF HEILSUDÝNUM Á LANDINU ÚRVALAF VÖNDUÐUM HEILSURÚMUM GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ Raftónlistarhópurinn Skúlagata blæs til hátíðar á skemmtistaðnum Húrra í kvöld kl. 21 í tilefni af útgáfu tveggja hljómplatna á vegum hópsins. Það eru plöt- urnar Margrét með in3dee og Kúlomb með Kraftgalla sem báðar komu út í gær. Tónlistarmennirnir fagna út- gáfunni með tónleikum í slagtogi við tónlistarkonuna Heklu. Kvöldið er liður í hljómleikaröð Skúlagötu sem ber nafnið Lævi blandið. Fyrsta kvöldið var haldið í vor með útgáfu fyrstu safnplötu tónlistarhópsins með blöndu tónleika og skífuþeytinga. Skúlagata fagnar útgáfu á Húrra FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 259. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Leó Snær Pétursson reyndist hetja Stjörnunnar þegar liðið tók á móti Fram í 2. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik, Olísdeildarinnar, í TM-höllinni í Garða- bæ í gær. Leiknum lauk með 24:24-jafntefli en Leó Snær jafnaði metin fyrir Garðbæinga á lokasekúndum leiksins. »26 Dramatískt jafntefli í Garðabænum ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Úrsmíðameistarinn Björn Árni Ágústsson, formaður Úrsmíðafélags Íslands, hefur starfað við fagið í um 54 ár. Á sama tíma hefur hann látið til sín taka í félagsstörfum eins og til dæmis hjá Knattspyrnudeild Fylkis og ýmsum góðgerðarsamtökum. Hjónin Björn og Þuríður Magnús- dóttir hafa verið saman frá því þau voru unglingar. Þegar Björn var í Kennaraskólanum vann hann með skólanum hjá föður hennar, Magn- úsi E. Baldvinssyni úrsmiði, á sam- nefndu úrsmíðaverkstæði og skart- gripaverslun á Laugavegi. „„Af hverju lærir þú ekki bara úrsmíði,“ spurði hann mig eftir fyrsta vet- urinn og svaraði eiginlega sjálfur: „Það er ekkert upp úr kennslunni að hafa.“ Ég tók hann á orðinu og eftir eitt ár í Iðnskólanum var úrsmíða- nám þar lagt niður, ég fór í danska skólann og lærði þar fagið.“ Ungu hjónin gerðust meðeig- endur í fyrirtækinu 1976 og síðan hefur það heitið Meba, Magnús E. Baldvinsson ehf., en það er bæði í Kringlunni og Smáralind. „Núna eru ríflega 20 á launaskrá, þar af tveir úrsmiðir og tveir gullsmiðir fyrir utan dætur okkar Evu Hrönn og Unni Eiri,“ segir Björn. Framtíðin björt Um 10 starfandi úrsmiðir af um 20 á Íslandi eru 70 ára og eldri. Björn segir hæga endurnýjun ákveðið vandamál, en hann sé bjart- sýnn á framhaldið enda standi unga fólkið sig vel í Danska úrsmíðaskól- anum. Tveir íslenskir nemendur, Bárður Bjarki Lárusson, sem hafi unnið hjá sér í Meba á námstím- anum og sé úrsmiður í fyrirtækinu, og Guðrún Inga Guðbrandsdóttir, úrsmiður hjá Frank Michelsen, hafi til dæmis fengið æðstu verðlaun Úr- smíðafélags Danmerkur fyrir frammistöðuna á sveinsprófinu fyrir skömmu. „Úr hafa verið órjúfan- legur hluti manna um allan heim í árhundruð og verða áfram,“ segir Björn. „Þess vegna verður alltaf þörf fyrir úrsmiði og Danir hafa tek- ið mjög vel á móti okkur, bjóða nem- endum fría skólavist og niðurgreiða gistingu og fæði. Hins vegar hefur íslenska ríkið ekki séð ástæðu til þess að styðja við bakið á úrsmíða- nemum í áratugi en við gefumst ekki upp.“ Í formannstíð sinni hjá Knatt- spyrnudeild Fylkis kom Björn á unglingaráði í hverjum flokki með góðra manna hjálp og segir hann það hafa skipt sköpun í rekstri yngri flokkanna. Eins hafi félagaskipti Baldurs Bjarnasonar úr Fylki í Fram markað ákveðin tímamót. „Ég vildi að Fylkir fengi uppeldisbætur, Halldór B. Jónsson, þáverandi for- maður Knattspyrnudeildar Fram, féllst á það og samningur okkar markaði ákveðin tímamót.“ Stöðugur straumur viðskiptavina er í Meba en svo eru líka margir sem kíkja við til að taka stöðuna með Birni. Ekki síst í fótboltanum. „Hingað koma menn úr mörgum fé- lögum og ég samgleðst þeim þegar vel gengur og græt með þeim í mót- lætinu.“ Hann mætir reglulega á völlinn, segir alltaf jafngaman að fagna sigri og ánægjulegt sé að Fylkir verði í Bestu deildinni næsta ár eftir að hafa tryggt sér efsta sæt- ið í Lengjudeild karla á líðandi tíma- bili. „Sigrarnir eru alltaf sætir en það tekur sólarhring að jafna sig eft- ir tap. Að morgni segir maður bara það gengur betur næst. Það sama á við í hverju því sem maður tekur sér fyrir hendur. Við reynum alltaf að gera okkar besta.“ Klukkan slær rétt í vinnu og félagsstörfum - Björn í Meba tók úrsmíði fram yfir kennararéttindi Morgunblaðið/Árni Sæberg Í vinnunni Björn Ágústsson úrsmiður og Unnur Eir í Meba í Kringlunni. Á vellinum Björn hlær með Smára Björgvinssyni á Fjölnisvelli. Tómas Kristinsson situr á milli þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.