Morgunblaðið - 28.10.2022, Page 1

Morgunblaðið - 28.10.2022, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 8. O K T Ó B E R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 252. tölublað . 110. árgangur . DANIR FOR- VITNIR UM SVIÐ OG HÁKARL LEIKNAR OG TEIKNAÐAR VILL NÝTA TÆKI- FÆRIN VEL MEÐ LANDSLIÐINU BARNAKVIKMYNDAHÁTÍÐ 28 KATRÍN TINNA 26SVIÐAVEISLA 4 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Kjaraviðræður við SGS, LÍV og VR eru komnar á fleygiferð. Sama á við um samflot iðnaðarmanna. Það er hafin alvöruatlaga að gerð kjara- samnings,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA). Innan vébanda þessara viðsemjenda SA eru yfir 100.000 launþegar. „Þetta eru alvörufundir og hvor aðili um sig er að leggja fram tillögur og út- færslur. Þetta eru samningafundir eins og þeir eiga að vera.“ SA hafa ekki fundað með Eflingu sem ekki hefur skilað kröfugerð. „Við áttum fund með SA í morgun þar sem við fórum yfir stöðuna og settum niður nokkuð þétt fundaplan fyrir næstu vikur,“ sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS og Verka- lýðsfélags Akraness, í gær. „Það fór bara vel á með mönnum og við erum að fara yfir stöðuna. Það er svo sem ekkert byrjað að fara í launaliði. Á næsta fundi verður farið yfir grein- ingar á stöðunni. Það á að gera harða atlögu að þessu, svo kemur bara í ljós hvort menn ná saman.“ Stéttarfélag Vesturlands á aðild að SGS, LÍV og Samiðn sem fer með samningsumboð fyrir iðnsveinadeild félagsins. Í vor var ákveðið að fela hvorki SGS né LÍV samningsumboð fyrir verslunarmannadeildina eða þá sem tilheyra SGS-hópnum í félaginu. Signý Jóhannesdóttir, formaður stéttarfélagsins, segir þetta hafa verið ákveðið vegna þess að þeir sem eru í forsvari í SGS og LÍV hafi ekki staðið með starfsmönnum Eflingar og fordæmt uppsagnir þeirra. „Okk- ar félag er ákveðið í sínum prinsipp- um. Það vinnur ekki með fólki sem getur ekki staðið með félögum sín- um,“ segir Signý. Halldór Benjamín hjá SA útilokar ekki að niðurstaða í kjaraviðræðun- um á almennum markaði náist í nóv- ember og Vilhjálmur Birgisson hjá SGS segir að markmiðið sé að semja í nóvember. Kjaraviðræður eru komnar á fleygiferð - Tíðir fundir fram undan - Markmið að semja í nóvember Morgunblaðið/Hari Undirritun Kjarasamningurinn frá í apríl 2019 rennur út 31. október. MAlvöruatlaga að gerð … »4 Stóru viðskiptabankarnir þrír högn- uðust um 52 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og dróst hagn- aðurinn saman um 6,6 milljarða frá sama tímabili í fyrra. Virðist sam- drátturinn í hagnaði þeirra koma harðast fram á nýliðnum ársfjórð- ungi en þá högnuðust bankarnir samanlagt um 18,2 milljarða, sam- anborið við 23,3 milljarða yfir sama tímabil í fyrra. Það sem af er ári hefur Arion banki hagnast mest allra bankanna eða um 22,1 milljað, samanborið við 20,4 milljarða í fyrra, þá hefur Ís- landsbanki hagnast um 18,6 millj- arða, samanborið við 16,6 milljarða fyrstu níu mánuði síðasta árs. Lest- ina rekur Landsbankinn með 11,3 milljarða en hagnaður hans dregst saman um 10,3 milljarða frá fyrra ári. Það sem dregur hagnað Lands- bankans mest saman er sú stað- reynd að það sem af er ári nemur tap bankans af fjáreignum og fjár- skuldum á gangverði 7,6 milljörðum en hagnaður var af þeim lið rekstr- arreikningsins á síðasta ári, sem nam 5,5 milljörðum króna. Dregur Landsbankann niður Hinar miklu sviptingar í þessu má án efa rekja til óbeinnar eignar Landsbankans í stórfyrirtækinu Marel í gegnum eignarhlut bankans í Eyri Invest. Marel hefur lækkað um 44% það sem af er ári en gengi félagsins hefur vænkast nokkuð eftir að komið var inn á lokafjórðung árs- ins. Athygli vekur að hreinar vaxta- tekjur bankanna hafa stóraukist á árinu og námu 94,2 milljörðum króna en voru 77,3 milljarðar yfir sama tímabil í fyrra. »12 Vaxtatekjurnar aukast um 22% - Hagnaður bankanna 52 milljarðar Íbúi á Akranesi fékk fyrirspurn frá kunningja í Reykjavík í gær um hvað væri að brenna. Svo víða sást kolsvartur mökkurinn frá „gömlu ösku- haugunum“ sem margir Skagamenn kalla enn, þótt þar sé nú rekin allt önnur starfsemi. Við frá- gang bílhræja kom upp eldur sem áður en við var litið hafði læst sig í um hundrað hræ og þurfti nokkurra klukkustunda orrahríð alls til- tæks slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar til að knýja logana til kyrrðar sem að lokum hafðist. Einnig kom tankbíll slökkviliðs Borgar- byggðar á vettvang öðru liði til fulltingis. » 2 Háreistur reykjarmökkur lék við himin í kjölfar óhapps við frágang bílhræja á Akranesi Morgunblaðið/Eggert Allt tiltækt slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar Landsnet hefur ákveðið að fresta lagningu nýrra lína fjær byggð á höfuðborgarsvæðinu. Ástæðan er sú að óvissa hefur skapast vegna auk- innar eldvirkni á Reykjanesskaga og hættu á að hraun renni fljótlega yfir fyrirhugaðar línuleiðir Lyklafells- línu ef eldgos verður í nágrenninu. Í staðinn verður ráðist í viðhald Hamraneslína og þær lagðar að hluta í jörðu og Ísallínur færðar. Það er gert til að línurnar hamli ekki þróun byggðar í Hafnarfirði, sam- kvæmt upplýsingum Landsnets. Hamraneslínur og Ísallínur liggja um byggð í Hafnarfirði. Ákveðið hef- ur verið að leggja þær í jörð á fimm kílómetra kafla vegna þróunar byggðar í Hafnarfirði. Ráðist verður í verkefnið á árinu 2024. Í kjölfar þess verða Ísallínur, sem liggja frá Hamranesi að álverinu, færðar fjær íbúðabyggð og hluti af Suðurnesja- línu 1 verður settur í jörð við tengi- virkið. »6 Morgunblaðið /Hari Rafmagn Nýjar línur fjær byggð- inni verða ekki lagðar að sinni. Hamranes- línur í jörð - Landsnet setur Lyklafellslínu á ís vegna óvissu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.