Morgunblaðið - 28.10.2022, Page 2

Morgunblaðið - 28.10.2022, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Logi Sigurðarson logis@mbl.is Ferðafélag Íslands hélt sinn fyrsta félagsfund í gærkvöldi frá því að fyrrverandi forseti félagsins sagði af sér, um 300 manns sóttu fundinn sem lauk um kl. 22 í gærkvöldi. Sig- urbjörg Sigurgeirsdóttir bar fram vantrauststillögu á stjórn félagsins og lagði til að stjórn félagsins myndi segja af sér. Ólafur Haraldsson, fyrrverandi forseti félagsins, lagði til að tillögunni yrði vísað frá sem var samþykkt. Væringar innan félagsins Gustað hefur um félagið frá því að Anna Dóra Sæþórsdóttir, fyrrver- andi forseti félagsins, sagði af sér og sagði sig úr félaginu. Hún gaf þá skýringu að hún vildi ekki starfa í fé- lagi þar sem stjórnarhættir og sið- ferðisleg gildi, sem gengju þvert á móti hennar eigin gildum, réðu ríkj- um. Þar vísaði hún meðal annars til þess að ekki hefði verið tekið á alvar- legum málum innan félagsins sem vörðuðu meinta kynferðislega áreitni af hálfu fararstjóra og stjórn- armanns, og einnig eineltistilburði innan stjórnarinnar. Kristín I. Pálsdóttir sótti fundinn og hugðist leggja fram vantrausts- tillögu en eftir að frávísunartillaga Ólafs var samþykkt var hún ekki tekin fyrir. Sagði að málunum væri lokið Hún segist í samtali við Morgun- blaðið eftir fundinn hafa orðið fyrir vonbrigðum þar sem stjórn félagsins svaraði ekki spurningum um ýmis mál sem tengjast þeim ásökunum sem voru bornar á stjórnina. „Þau halda sig við að það hafi verið gengið frá málunum. Ég hef sjálf tal- að við konur sem eru ekki sáttar við málalokin,“ segir Kristín. Hún bætir því við að það hafi verið rætt að ekki væri hægt að fella stjórnina þar sem hún þyrfti þá að sitja fram að aðal- fundi félagsins sem fer fram í mars. Kristín segist hafa fengið álit lög- fræðings og það hafi verið möguleiki að fella stjórnina, en hún hafi ekki fengið að viðra skoðun sína eftir að fyrsta vantrauststillagan var felld. Bandamenn stjórnarinnar Spurð hvort stjórnin njóti trausts félagsmanna segir Kristín að það þurfi tíminn að leiða í ljós. „Mín til- finning var sú að bandamenn stjórn- arinnar hefðu mætt vel á þennan fund.“ Sigrún Valbergsdóttir, forseti Ferðafélags Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið fyrir fundinn að reynt hefði verið að beita öllum brögðum til þess að taka yfir félagið og koma nýju fólki að í stjórn. Hún segir að auki miklar rangfærslur hafa farið á flug um rekstur félags- ins sem hafi aldrei staðið betur, að hennar sögn. Stjórn félagsins hefur vísað ásökunum Önnu Dóru á bug og lýsti í kjölfar afsagnar hennar yfir vonbrigðum og furðu á því hvernig Anna Dóra hefði kosið að skilja við félagið. Vantrauststillaga felld á fundi FÍ - Fyrsti fundur Ferðafélags Íslands frá því að fyrrverandi forseti sagði af sér - Mörg hundruð manns sóttu fundinn - Kristín I. Pálsdóttir segir mörgum spurningum ósvarað - Stjórnin með fullt traust Morgunblaðið/Kristinn Magnússon FÍ Um 300 manns sóttu félagsfund Ferðafélags Íslands sem hófst klukkan 20 í gær. Niðurstaðan var sú að stjórnin hefði fullt traust félagsmanna. Starfsmenn Lava show hella bráðnu hrauni yfir ís fyrir fram- an hóp af blaðamönnum og áhrifavöldum sem boðið var á Ís- áfram í dag og á morgun. Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferða- málaráðherra er stödd á sýningunni og flutti ávarp. landskynningu á vegum íslenskra ferðaþjónustu- og hönn- unarfyrirtækja í Lundúnum í gærkvöldi. Dagskráin heldur Undur Íslands kynnt blaðamönnum og áhrifavöldum Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverf- is-, orku- og loftslagsráðherra, veltir nú fyrir sér að bjóða sig fram til for- mennsku í Sjálfstæðisflokknum á landsfundi um aðra helgi. Hann seg- ist meðvitaður um stærð ákvörðun- arinnar og að hann væri eflaust löngu búinn að taka ákvörðun ef hún væri ekki þetta stór. „Ég er algjörlega meðvitaður um það hversu stór ákvörðun þetta er, ef hún væri ekki svona stór þá væri ég örugglega löngu búinn að taka hana,“ segir Guðlaugur. Aðspurður hvort hann hafi gefið sér tímaramma segir hann svo ekki vera þar sem ákvörðunin um fram- boð til formanns varði fleiri en sjálf- an sig. Mögulegt mótframboð gegn Bjarna Benediktssyni, núverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, eru stór tíðindi en Guðlaugur segir ástæðu þess að hann íhugi framboð til formanns vera afar einfalda. Hann hafi fengið fjölda áskorana og hvatningu frá fólki. Aðspurður hvaðan stuðningurinn komi helst og þá hvort stuðningur komi innan úr þingflokknum sjálf- um, segir Guðlaugur að hann komi víða að og ekki síst eftir að frétt birt- ist í Morgunblaðinu þess efnis að hann íhugaði framboð til formanns. „Stuðningurinn hefur komið víða að og ekki síst eftir að umræðan fór fyrst af stað eftir frétt í Morgun- blaðinu. Þetta er tilkomið vegna þess að fólk hefur sett sig í samband við mig og hefur áhyggjur af stöðu flokksins af ástæðum sem við þekkj- um,“ segir Guðlaugur. aglamaria@mbl.is Formannsframboð stór ákvörðun fyrir Guðlaug Þór - Ákvörðunin um formannsframboð varði fleiri en sjálfan sig Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Framboð Guðlaugur ræddi við sjálf- stæðismenn í gærkvöldi. Eldurinn sem logaði í gær á gáma- svæði við Akranes kom upp þegar starfsmenn endurvinnslu á svæðinu voru að skera hvarfakút undan bílhræi sem var á leið til endurvinnslu erlendis. Hörður Auðunsson, fram- kvæmdastjóri Málmu endurvinnslu, segir í samtali við Morgunblaðið að ekki hafi verið fylgt verkreglum sem sögðu til um að það þyrfti að færa bílhræin af bílastæðinu áður en skera mætti hvarfakút úr. Spurður um stærð tjónsins segir Högni að aðallega sé rusl á svæðinu og því lítið um eiginleg verðmæti. Bú- ið var slökkva eldinn um fimmleytið í gær, en slökkvistarf dróst fram á kvöld. Í gærkvöldi var haugurinn rif- inn í sundur og kældur til þess að koma í veg fyrir að eldurinn kviknaði aftur. Gríðarlegt vatnsmagn þurfti til þess að slökkva eldinn og voru tveir tankbílar sendir á vettvang. Slökkvistarfi lauk í gærkvöldi - Stórbruni á gámasvæði á Akranesi Morgunblaðið/Eggert Eldsvoði Gríðarlegur reykur steig upp frá eldinum sem sást víða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.