Morgunblaðið - 28.10.2022, Page 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Danirnir eru mjög forvitnir um ís-
lenskan mat og spyrja oft hvort við
borðum ekki kindahausa og sitthvað
fleira. Við ákváðum því að slá til og
halda allsherjar veislu fyrir þá,“ segir
Tinna Óðinsdóttir, einn eigenda veit-
ingastaðarins Tre tjenere á Borgund-
arhólmi í Danmörku. Þar verður
haldin íslensk sviðaveisla í kvöld sem
vakið hefur mikla athygli á eyjunni og
reyndar víðar.
Tinna og maður hennar, Loftur
Loftsson, opnuðu veitingastaðinn fyr-
ir um þremur og hálfu ári síðan
ásamt móður Tinnu, Ásrúnu Gísla-
dóttur. Frá upphafi hefur verið lögð
áhersla á íslenskan mat og óhætt er
að segja að staðurinn hafi notið mik-
illa vinsælda. Tre tjenere er með
næsthæstu einkunnina á Tripadvisor
af veitingastöðum á eyjunni. Nafnið
er dregið af starfi þremenninganna
en öll störfuðu þau sem þjónar áður
en þau fluttust utan.
Tre tjenere er lítill veitingastaður
en það verður þétt setinn bekkurinn í
kvöld. „Við leggjum alla jafna áherslu
á að bjóða upp á íslenskt eldhús,
klassíska íslenska rétti. Við flytjum
inn íslenskt lamb frá Kaupfélagi
Skagfirðinga svo það lá beint við að
flytja sviðin inn frá Íslandi. Það koma
bæði Danir og Íslendingar til okkar í
kvöld sem og forvitnir matgæðingar
af eyjunni. Ég held að þetta verði
ansi góður hópur,“ segir Tinna.
Og gestum verður ekki í kot vísað.
Á boðstólum er fjögurra rétta mat-
seðill. Til að hita bragðlaukana upp fá
þeir kæstan hákarl og harðfisk með
smjöri. Í forrétt eru svo folaldabjúgu
með uppstúf og baunum. Aðalréttur-
inn eru svið að íslenskum sið með
hefðbundnu meðlæti. „Það var reynd-
ar ekkert auðvelt að redda gulrófum
til að hafa með sviðunum. Þær fást
bara ekki í Danmörku enda er fussað
yfir þeim í allri Evrópu og þær not-
aðar sem svínafóður. Ég veit nú ekki
hvað dönsku gestirnir okkar segja
þegar við förum að bjóða þeim svína-
fóður til hliðar við allt hitt,“ segir
Tinna og skellir upp úr. Að endingu
er gestum boðið upp á rabarbara-
köku í eftirrétt.
Þar með er þó ekki öll sagan sögð
því Tinna hefur sett saman sérlega
glæsilegan vínseðil sem passar með
réttunum. Ekki er ólíklegt að þetta sé
í fyrsta sinn sem ráðist er í vínpörun
með íslenskri sviðaveislu. „Ég er
lærður náttúruvínssommelier og mun
bjóða upp á sérstaka vínpörun með
náttúruvínum frá Georgíu. Ég held
ég geti fullyrt að það sé einsdæmi á
heimsvísu að boðið sé upp á nátt-
úruvín frá Georgíu með þjóðlegum ís-
lenskum mat. Það er eiginlega vand-
ræðalegt hvað vínið sem ég valdi með
hákarlinum parast vel við hann,“ seg-
ir hún.
Tinna segir að sviðaveislan hafi
vakið talsverða athygli á Borgundar-
hólmi og reyndar víðar í Danmörku.
„Við finnum fyrir mikilli athygli í
gegnum Facebook-síðuna okkar.
Fólk er að merkja hvert annað þar
inni og grínast með þetta. Við höfum
fengið alls konar athugasemdir og
ælukalla. Svo eru allir að tala um
þetta í bænum, þetta hefur skapað
mikið umtal á eyjunni,“ segir hún en
strax daginn eftir er önnur veisla hjá
íslensku veitingamönnunum. „Þá er
það hrekkjavökupartí. Það besta er
að ég get notað sviðahausana til að
skreyta í staðinn fyrir venjulegar
hauskúpur!“
Eftir það verður skellt í lás á veit-
ingastaðnum fyrir veturinn. „Þetta er
svakaleg túristaeyja og það hefur
verið lenskan að loka stöðum yfir vet-
urinn. Við höfum haft opið til þessa,
bæði til að vera til staðar fyrir heima-
menn en líka til að kynnast stemning-
unni hérna. Við höfum verið heppin
að geta komist í gegnum kórónu-
veirufaraldurinn en nú er komin raf-
magnskreppa. Við ætlum því að loka
og meta stöðuna í vetur en koma svo
fersk inn í ferðamannatímabilið á
næsta ári.“
Veisla Þessa mynd birti Tinna á Facebook-síðu Tre tjenere og hefur hún
vakið óskipta athygli. Gestir fá að gæða sér á herlegheitunum í kvöld.
Vertar Tinna Óðinsdóttir og Loftur Loftsson hafa rekið Tre tjenere síðustu þrjú ár á Borgundarhólmi. Veitinga-
staðurinn nýtur mikilla vinsælda en óvíst er hvað dönskum gestum á eftir að finnast um matseðilinn í kvöld.
Bjóða Dönum upp á svið og hákarl
- Íslensk sviðaveisla á Borgundarhólmi vekur athygli - Skagfirskt kjöt og náttúruvín frá Georgíu
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Kjaraviðræður við SGS (Starfs-
greinasambandið), LÍV (Landssam-
band íslenskra verzlunarmanna) og
VR eru komnar á fleygiferð. Sama á
við um samflot iðnaðarmanna. Það er
hafin alvöruatlaga að gerð kjara-
samnings,“ segir Halldór Benjamín
Þorbergsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins (SA). Innan
vébanda þessara viðsemjenda SA eru
yfir 100.000 launþegar. „Þetta eru
alvörufundir og hvorir um sig eru að
leggja fram tillögur og útfærslur.
Þetta eru samningafundir eins og
þeir eiga að vera.“
Kjarasamningar renna margir út
um næstu mánaðamót. Halldór
Benjamín segir að áformuð séu stíf
fundahöld alla næstu viku. SA
fundaði í gærmorgun með SGS, LÍV
og VR og með samfloti iðnaðarmanna
í fyrradag. „Markmið okkar er skýrt.
Það er að reyna að ná þessu saman
hratt og örugglega,“ segir Halldór
Benjamín. Engum af þessum við-
ræðum hefur verið vísað til ríkis-
sáttasemjara. Aðspurður kveðst
Halldór Benjamín ekki ætla að úti-
loka það að niðurstaða náist í nóv-
ember.
SA hefur ekki fundað með Eflingu
sem ekki hefur skilað kröfugerð.
Greiningar næst á dagskrá
„Við áttum fund með SA í morgun
þar sem við fórum yfir stöðuna og
settum niður nokkuð þétt fundaplan
fyrir næstu vikur,“ sagði Vilhjálmur
Birgisson, formaður SGS og Verka-
lýðsfélags Akraness, í gær. „Það fór
bara vel á með mönnum og við erum
að fara yfir stöðuna. Það er svo sem
ekkert byrjað að fara í launaliði. Á
næsta fundi verður farið yfir grein-
ingar á stöðunni. Það á að gera harða
atlögu að þessu, svo kemur bara í ljós
hvort menn ná saman.“
SGS fer með samningsumboð fyrir
17 félög. Efling og Stéttarfélag Vest-
urlands, sem eru í SGS, fara sjálf með
sitt samningsumboð. „Það er sjálf-
stæður samningsréttur hjá hverju
stéttarfélagi. Það er ekkert óalgengt
að félög sem standa fyrir utan komi
svo inn í þetta á seinni stigum. Tíminn
leiðir það í ljós,“ segir Vilhjálmur.
Spurður um hvernig honum lítist á
framhaldið sagði Vilhjálmur: „Þetta
verður bara að taka sinn tíma og við
gefum okkur þann tíma sem við þurf-
um.“ Hann segir markmiðið vera að
semja í nóvember.
Ekki í samfloti með SGS og LÍV
„Umboð okkar er hjá Samiðn fyrir
iðnsveinadeildina en umboð okkar
vegna verslunarmannadeildarinnar
og þeirra sem tilheyra Starfsgreina-
sambandshópnum er hjá félaginu,“
segir Signý Jóhannesdóttir, formað-
ur Stéttarfélags Vesturlands í Borg-
arnesi. Það á aðild að þremur lands-
samböndum, SGS, LÍV og Samiðn.
En hvers vegna eiga þau ekki samleið
með SGS eða LÍV?
„Við tókum um það ákvörðun í apr-
íl í vor að fela þessum landssambönd-
um ekki samningsumboð okkar
vegna þess að fólkið sem þar er í for-
svari stóð ekki með starfsmönnum
Eflingar og fordæmdi ekki uppsagnir
þeirra. Okkar félag er ákveðið í sínum
prinsippum. Það vinnur ekki með
fólki sem getur ekki staðið með fé-
lögum sínum,“ segir Signý.
Stéttarfélag Vesturlands birti SA
kröfur sínar 6. október og viðræðu-
áætlun. Signý segir að þau séu að
endurnýja kjarasamning sem var
gerður með SGS og LÍV.
Stéttarfélag Vesturlands sendi
samninganefnd ASÍ samningsumboð
snemma í vor varðandi kröfur á hend-
ur ríkinu. „Það er spurning hversu
vel Alþýðusambandið er fært um að
halda utan um þær kröfur,“ segir
Signý.
Alvöruatlaga að gerð samnings
- Þétt fundarhöld viðsemjenda áformuð - Efling hefur ekki skilað kröfugerð og ekki fundað með SA
- Markmiðið að semja í nóvember - Stéttarfélag Vesturlands ekki með SGS og LÍV í viðræðunum
Morgunblaðið/Hari
Lífskjarasamningurinn Undirritaður í apríl 2019 og rennur út um mánaðamótin. Viðræður eru hafnar vegna nýs
samnings á almennum markaði. Komið hefur fram að verðbólgan sé sameiginlegur óvinur samningsaðila.