Morgunblaðið - 28.10.2022, Síða 8

Morgunblaðið - 28.10.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022 Sigurður Már Jónsson blaða- maður fjallar um nýjan stjórnarsáttmála hægri blokk- arinnar í Svíþjóð í pistli á mbl.is. Í sáttmálanum er tekið á ýmsum málum en inn- flytjendamál taka um þriðj- ung sáttmál- ans, enda voru þau fyrirferð- armikil í kosn- ingunum. Sig- urður Már segir nýjan ráðherra fólksflutninga hafa sagt í viðtali að til að „koma skikki á aðlögun verðum við að draga úr fjölda innflytjenda. Með nýjum umbót- um mun ríkisstjórnin knýja fram viðhorfsbreytingu í sænskri inn- flytjendastefnu.“ Þá segir hann frá því að í Sví- þjóð sé ætlunin að bæta landa- mæraeftirlit og athuga með að nota DNA-próf við útlendingaeft- irlit innanlands. Ætlunin sé að vísa útlendingum úr landi séu þeir í gengjum, í vændi, öfga- samtökum eða teljist á annan hátt óæskilegir í landinu. - - - Ennfremur sé ætlunin að taka við mun færri kvóta- flóttamönnum en áður, 900 í stað 6.500 á ári, og gera kröfur um að í þeim hópi verði einungis fólk sem sé líklegt til að aðlagast líf- inu í Svíþjóð. Sænsk stjórnvöld ætli einnig að draga úr rétti þeirra sem nýkomnir séu til landsins til að fara strax á bætur hjá ríkinu og gera auknar kröfur til þeirra sem sækja um ríkisborgararétt. - - - Þetta er aðeins hluti þeirra að- gerða sem sænsk stjórnvöld eru nú að grípa til vegna vandans sem safnast hefur upp á liðnum árum í landinu. Óhætt er að segja að þó að þetta séu eðlilegar að- gerðir þá séu þær mun ákveðnari en það sem nú er rætt um á Al- þingi. Og samt er þrefað þar. Hertar aðgerðir nýrrar stjórnar STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Fulltrúaráð Sameykis óttast að einkavæðing Strætó bs. muni koma illa niður á starfsfólki, almennu launafólki, efnalitlu fólki og náms- fólki. Fulltrúaráðið krefst þess að öllum áformum um einkavæðingu Strætó bs. verði tafarlaust hætt og gangsett verði áætlun samfélags- legrar velferðar sem styrki Strætó bs. til framtíðar.“ Þetta segir í álykt- un sem fulltrúaráð Sameykis, stærsta stéttarfélags opinberra starfsmanna, samþykkti í gær. Þar segir ennfremur að Strætó bs. hafi í hyggju að útvista öllum leiðum í leiðakerfi strætisvagna fé- lagsins til einkaaðila. Magnús Örn Guðmundsson, formaður stjórnar Strætó, hafi sagt að við blasi að bjóða út reksturinn og undir það taki stjórnin öll og framkvæmda- stjóri Strætó bs. Í annarri ályktun fulltrúaráðsins er harðlega mótmælt einkavæðing- arstefnu ríkisstjórnarinnar í heil- brigðiskerfinu og vísað til þess að forsvarsmenn spítalans hafi greint frá því að samið hafi verið um yfir- töku Heilsuverndar, sem er einka- rekið fyrirtæki, á rekstri Vífilsstaða. Þá segir að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafi sagt að stofnunin yrði ekki einkavædd en síðan gengið á bak orða sinna. Vara við einkavæðingu Strætó - Saka ríkisstjórnina um að ganga á bak orða sinna um rekstur Vífilsstaða Ljósmynd/Sameyki Fulltrúaráð Sameyki gagnrýnir harðlega áform um einakvæðingu. Unnur Þorsteinsdóttir, nýr forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Ís- lands og framkvæmdastjóri hjá Ís- lenskri erfðagreiningu, er áhrifa- mesta vísindakona Evrópu og sú fimmta áhrifamesta í heiminum sam- kvæmt nýjum lista sem vefurinn Research.com hefur tekið saman og byggist á greiningu á rannsókna- framlagi yfir 160 þúsund vísinda- kvenna. Research.com er vettvangur miðl- unar um rannsóknir, vísindaráð- stefnur og vísindamenn. Fjallað er um vísindi á breiðum grunni og jafn- framt birtir vefurinn reglulega ýmsa lista yfir framúrskarandi tímarit, vís- indamenn og ráðstefnur á ólíkum fræðasviðum, segir á vef HÍ. „Vefurinn birtir nú í fyrsta sinn lista yfir fremstu vísindakonur heims en með því vilja forsvarsmenn vefs- ins draga fram afrek kvenna í geira þar sem karlmenn hafa um langt skeið verið í miklum meirihluta. Markmiðið með listanum er einnig að hvetja vísindakonur áfram í sínum störfum og ungar konur til þess að helga sig vísindum,“ segir enn frem- ur á vef HÍ. Að því er fram kemur á research.com eru konur aðeins þriðj- ungur starfsfólks í vísindum en rann- sóknir sýna að síður er vísað í vís- indakonur en -karla og framlag þeirra síður metið að verðleikum. Unnur tók við starfi forseta Heil- brigðisvísindasviðs nú í sumar en hefur starfað hjá Íslenskri erfða- greiningu frá síðustu aldamótum. Fram kemur á Research.com að tilvitnanir í rannsóknir sem Unnur hefur komið að eru hátt í 190 þúsund og birtingar hennar rúmlega 460 á því tímabili sem liggur til grundvall- ar listanum. Áhrifamesta vís- indakona Evrópu - Unnur Þorsteins- dóttir fimmta áhrifa- mesta á heimsvísu Vísindi Unnur Þorsteinsdóttir er með áhrifamestu vísindamönnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.