Morgunblaðið - 28.10.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 28.10.2022, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022 HVAÐ ER Í MATINN? FÖSTUDAGA Ungnautalund Í trufflusveppa marineringu Ungnautafillet Í black garlic marineringu tilboð alla vikuna Grensásvegur 48, 108 Reykjavík | Sunnukriki 2, 270 Mosfellsbær Á MORGUN LAUGARDAG -20% -20% SKÁK Helgi Ólafsson helol@simnet.is Úsbekinn Nodirbek Abdusattarov gerði sér lítið fyrir í gærkvöldi og vann sigurvegara tveggja síðustu áskorendamóta, Rússann Jan Ne- pomniachtchi, 4:0 í einvígi þeirra á heimsmeistaramótinu í Fischer- random eða slembiskák, eins og nafn greinarinnar hefur verið þýtt á íslensku. Þessi 18 ára gamli piltur hafði tryggt sig áfram í útsláttarkeppni fjögurra efstu skákmanna áður en lokadagur undankeppninnar rann upp. Með því að vinna báðar skák- irnar gegn Nepo í gær var hann kominn með 9 ½ vinning af 10 mögulegum sem er fáheyrð frammi- staða í móti af þessum styrkleika. Hann slakaði örlítið á í seinna ein- víginu við Wesley So og tapaði, ½:1½. Filippseyingurinn, sem er nú- verandi heimsmeistari í greininni, verður að láta sér lynda að tefla um 5. sætið við Rússann Fedoseev. Nepo fylgir Abdusattarov í úr- slitakeppnina og mætir Magnúsi Carlsen á morgun, laugardag, en keppendur fá frí í dag. Magnús Carlsen og Nepo tefldu einvígi um heimsmeistaratitilinn í Dúbaí í fyrra en því lauk með yfir- burðasigri Magnúsar, 7½ : 3½, en Rússinn gerði sér lítið fyrir og vann svo áskorunarréttinn aftur í sumar. Eins og komið hefur fram í fréttum hefur Magnús ákveðið að afsala sér heimsmeistaratigninni og mun Nepo mæta Kínverjanum Liren Ding í næsta einvígi um titilinn. Undankeppni heimsmeistara- mótsins fór fram með býsna flóknu kerfi þar sem skipt var í tvo riðla og tefldu allir við alla í hvorum riðli, alls fjórar skákir sem aftur skiptust upp í tvö einvígi og gaf sigur 2 stig en jafntefli eitt sig. Í A-riðli urðu úrslit þessi: 1. Abdusattarov 10 stig ( 10 v. ) 2. Nepomniachtchi 7 stig (7 v. ) 2. So 6 stig (5 ½ v.) 4. Hjörvar Steinn Grétarsson (1 stig) 1 ½ v. Í B-riðli urðu úrslitin: 1. Magnús Carlsen 9 stig (8 v.) 2. Nakamura 9 stig (7½ v.) 3. Fedoseev 4 stig (5½ v.) 4. Bluebaum 1 stig (3 v.) Vinningatala réð því að Magnús telst sigurvegari riðilsins. Í fjögurra manna úrslitum á morgun, laugardag, tefla Magnús Carlsen og Jan Nepomniachtchi og Hikaru Nakamura fær það verkefni að eiga við við Nodirbel Abdusatt- arov. Þótt Magnús hafi marið sigur í sínum riðli tapaði hann þó saman- lagt fyrir Nakamura, 1½ : 2½, og var taflmennska hans í slöku með- allagi að þessu sinni. Hann spillti unnum stöðum bæði á móti Nakam- ura og Fedoseev í gær. Fulltrúi Íslands á mótinu, Hjörv- ar Steinn Grétarsson, vann góðan sigur í gær í fyrri skákinni við Wes- ley So. Hann var í góðum færum í seinni skákinni en missti þráðinn og tapaði. Átti síðan rakið jafntefli í skákinni gegn Nepo en virtist leita að vinningsfærum er hann gat knúið fram jafntefli. Hjörvar mun á sunnudaginn tefla við Þjóðverjann Bluebaum um 7. sætið. Ljósmynd/FIDE/Lausanne Skák Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lék fyrsta leikinn fyrir heimsmeistarann Magnús Carlsen í gær. Carlsen og Abdusattarov unnu undankeppnina - Heimsmeistarinn mætir Nepo í fjögurra manna úrslitum Morgunblaðið/Hákon Spenna Hjörvar Steinn Grétarsson vann Wesley So í hörkuspennandi skák. Plastpokar, pappakassar og fleira rusl fauk af vörubíl sem var að flytja rusl á Hringveginum um Hörgárdal í vikunni. Bíllinn var fullhlaðinn. Net var strengt yfir farminn en það virðist ekki hafa dugað til því pappi og plast fauk aftur af pallinum og til hliðar og endaði á veginum og úti í móa án þess að ökumaðurinn stöðvaði bílinn til að bæta umbúnaðinn. Pappi og plast fauk af ruslabíl á Hringveginum Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson Fok Ógnvekjandi er að keyra á eftir ruslabílnum og mæta honum. Lenka Ptacnikova hefur enn for- ystu á Íslandsmóti kvenna sem fram fer samhiða Fischer-random- mótinu. Hún gerði jafntefli við norsku skákkonuna Olgu Dolzhikovu og hefur 3½ vinning eftir fjórar um- ferðir. Mótið er opið erlendum keppendum og mótherji Lenku frá því í gær er í 2. sæti með 3 vinn- inga. Lenka efst á Íslands- móti kvenna Ljósmynd/Ellen Frederica Nielssen Forysta Lenka Ptacnikova, stigahæsta skákkona Íslands, er efst keppenda. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.