Morgunblaðið - 28.10.2022, Síða 17
UMRÆÐAN 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022
E60
Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960
Mikið úrval lita bæði á
áklæði og grind.
Sérsmíðum allt eftir
pöntunum.
Stóll E60 orginal kr. 44.100
Retro borð 90 cm kr. 156.200
(eins og á mynd)
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
SÁÁ hefur starfað öt-
ullega síðustu 45 árin að
því að draga úr for-
dómum og vanþekkingu
á fíknivandanum með
því að hafa áhrif á al-
menningsálitið með
fræðslu um eðli fíkn-
sjúkdómsins. En af
hverju stafa fordómar
gagnvart þessum sjúk-
dómi frekar en öðrum?
Þegar við hugsum um
fólk með fíknsjúkdóm, þá sjáum við
fyrir okkur hegðun sem er oft óskilj-
anleg. Við sjáum fólk sem veldur sjálfu
sér, ástvinum og öðrum skaða; fólk
sem hefur misst vinnu og lífsviðurværi
vegna sjúkdómsins og hefur almennt
misst tökin á lífinu. Við sjáum fólk sem
getur ekki hætt að drekka eða nota
vímuefni þrátt fyrir þessar alvarlegu
afleiðingar. Okkur er það hulin ráð-
gáta hvers vegna svo sé. Fordómar
myndast af því við sjáum bara ytri af-
leiðingar sjúkdómsins.
En það er enginn sem viljandi vill
valda sér skaða, missa vinnuna eða
særa fjölskyldu og ástvini. Það sem
liggur að baki þessari hegðun er fíkn-
sjúkdómurinn og það er auðvelt að
gleyma því. Meira að segja meðal fag-
fólks er oft erfitt að leiða hjá sér
þessa ytri hegðun sem veldur okkur
reiði og er óviðunandi. Ef einhver
sem er undir áhrifum veldur þér eða
þínum skaða er skiljanlegt að þú eigir
ekki auðvelt með að fyrirgefa. Það er
eðlilegt. Þetta er kannski kjarni máls-
ins; það sem við eigum við að glíma
með fíknsjúkdóminn, ólíkt öðrum
sjúkdómum, er skaðinn sem hann
getur valdið, skömmin, sektar-
kenndin og niðurlægingin sem verður
í kjölfarið. Þess vegna
er flókið að vinna gegn
fordómum, því það
krefst þess að við dæm-
um hegðunina en ekki
manneskjuna. Þetta er
kannski það mikilvæg-
asta í baráttunni gegn
fordómum; að muna að
flestir sem glíma við
fíknivanda eru bara eins
og ég og þú, fólk sem á
skilið athygli okkar og
hjálp og að fá annað
tækifæri.
Við sem störfum að meðferð fólks
með fíknsjúkdóm sjáum árlega mörg
hundruð dæmi um einstaklinga sem
fá annað tækifæri til að lifa betra lífi
og ná bata. Þetta eru einstaklingar
sem af heilum hug og einurð leggja
sig fram við að vinna gegn illvígum
sjúkdómi með aðstoð fagfólks og að-
standenda. Fólk í þessari stöðu verð-
skuldar virðingu og viðurkenningu.
Það er að fást við sjúkdóm og afleið-
ingar hans og þarf á skilningi okkar
og hjálp að halda. Leggjum því lið!
Fordómar eru
okkar mesti óvinur
Ingunn Hansdóttir
» Það sem við eigum
við að glíma með
fíknsjúkdóminn, ólíkt
öðrum sjúkdómum,
er skaðinn sem hann
getur valdið, skömmin,
sektarkenndin og
niðurlægingin sem
verður í kjölfarið.
Ingunn Hansdóttir
Höfundur er yfirsálfræðingur
hjá SÁÁ.
ingunnh@saa.is
Fátt ef nokkuð er
mikilvægara og dýr-
mætara en hlý og um-
vefjandi, umhyggju-
söm og nærandi
nærvera þar sem við
fáum að njóta skiln-
ings og erum umföð-
muð í öllum aðstæð-
um. Hvar sem við
komum og hvar sem
við erum hverju sinni.
Jafnvel þegar við erum bara ein
með sjálfum okkur.
Mér finnst svo óendanlega
þakkarvert og gott að trúa því og
vita til þess, skynja og meðtaka að
maður sé umfaðmaður af Guði sem
skapaði þennan heim. Guði kærleik-
ans og vonarinnar, upprisunnar,
lífsins og friðarins. Af höfundi og
fullkomnara lífsins.
Ég er líka þeirrar trúar og er
reyndar alveg viss um að okkur liði
mun betur ef við temdum okkur
hugarfar auðmýktar gagnvart Guði.
Og einnig fólkinu sem við umgöng-
umst og mætum, núinu og náttúr-
unni, loftslaginu og framtíðinni,
himninum og eilífðinni. Lifðum í
bæn og þakklæti. Værum upp-
byggileg og jákvæð í framkomu og
samskiptum og ættum gagnleg
samtöl og samskipti með gagnrýnu
og spyrjandi hugarfari.
Með það að leiðarljósi
að sammælast um að
reyna að sýna skilning
og samstöðu okkur öll-
um til heilla og bless-
unar. Finna þannig út
úr líðan okkar og ann-
arra, saman. Leitast
við að byggja upp en
ekki brjóta niður og
sundra.
Ég er þess fullviss
að ævinnar sælustu og
bestu stundir, ljúfustu
draumar og fegurstu þrár séu að-
eins sem forrétturinn sem lífið
raunverulega er og eilífðin hefur
upp á að bjóða.
Njótum því stundarinnar í ljósi
eilífðarinnar og lifum saman í kær-
leika, friði og sátt við Guð, okkur
sjálf og allar manneskjur. Með því
að þakka í auðmýkt fyrir hina raun-
verulegu fegurð og dýrmæti lífsins.
Jesús er Guð þinn,
því aldrei skalt gleyma.
Hann gengur við hlið þér
og leiða þig vill.
Þú eilífa lífið
átt honum að þakka.
Hann sigraði dauðann
og lífið gaf þér.
Guðs son á himni
nú vakir þér yfir.
Hann gleymir ei bæn þinni
hver sem hún er.
Líf mitt sé falið þér,
eilífi faðir.
Faðminum þínum ég hvíla vil í.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Með kærleiks- og friðarkveðju.
– Lifi lífið!
Umvefjandi nærvera
Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
»Mér finnst svo
óendanlega þakkar-
vert og gott að trúa því
og vita til þess, skynja
og meðtaka að maður sé
umfaðmaður af Guði
sem skapaði þennan
heim.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Skömm íslensku
þjóðarinnar! Skömm
okkar Íslendinga!
Ráðamenn taka oft
til máls og reyna að
sannfæra okkur hin
um að við eigum eitt
besta heilbrigðiskerfi í
heiminum, flotta lífeyr-
issjóði, allir landsmenn
hafi það bara gott og
hér sé svo mikil vinna
að flytja þurfi fólk til Íslands til að
fylla í störfin. Allir horfi hingað öf-
undaraugum því allt sé hér í himna-
lagi!
Drottinn minn dýri, það er svo
mikil skömm hvernig hugsað er um
eldri borgara, öryrkja og þá sem
minna mega sín.
Ég hef þurft að horfa upp á með-
ferð á móður minni eftir að hún fékk
blóðtappa í Covid og var drifin á
Landakot í endurhæfingu. Þetta allt
tók sex mánuði og árangurinn svo
sem góður miðað við að móðir mín er
orðin 88 ára gömul, en samt var hún
ekki nægilega góð eftir endurhæf-
inguna til þess að búa
ein og er ekkert að því.
Það sem hins vegar á
eftir kom er skömmin!
Okkur var tjáð að ef við
vildum að móðir okkar
kæmist í forgang fyrir
pláss á hjúkrunarheim-
ili þyrfti hún að fara á
biðstofuna, sem í okkar
tilfelli var Vífilsstaðir,
sem var eini staðurinn
sem í boði var.
Ég ók móður minni á
Vífilsstaði og ekki var
þar um glæsilegar eða hentugar
vistarverur að ræða. Herbergi sem
samanstóð einungis af rúmi, skáp,
litlum stól og vaski!
Þessu sagði okkur enginn frá.
Vífilsstaðir eru í raun biðstofa með
lélegu neti (mamma kann á tölvu).
Sjúkrahús er þetta hins vegar ekki,
hjúkrunarheimili er þetta heldur
ekki og á heimasíðu Landspítalans
er þetta skilgreint sem biðstofa.
Læknar eru ekki á staðnum, hjúkr-
un er mjög takmörkuð og þjálfun af
skornum skammti. Þó vil ég taka
fram að mikið af því ágæta fólki sem
þar vinnur er að reyna sitt besta
þrátt fyrir að vinnuaðstaðan sé ekki
boðleg.
Það er ekkert að frétta nú þremur
mánuðum síðar af plássi á hjúkr-
unarheimili og móðir mín búin að
missa alla færni sem verið var að
þjálfa á Landakoti. Því spyr ég: Til
hvers var endurhæfingin? Kannski á
spurningin frekar að vera: Hvers
vegna leyfum við ekki veiku fólki
bara að deyja? Það er mannúðlegra.
Ráðamönnum hlýtur að vera ljóst
að það er fullt af eldri borgurum sem
eiga betra skilið og sárnar mér mjög
að allt og allir séu í forgangi en
gamla fólkið álitið byrði.
Skömm íslensku þjóðarinnar
Matthildur
Skúladóttir »Ráðamenn taka oft
til máls og reyna að
sannfæra okkur hin um
að við eigum eitt besta
heilbrigðiskerfi í heim-
inum og flotta lífeyris-
sjóði.
Matthildur Skúladóttir
Höfundur er aðstandandi og
fv. atvinnurekandi.
matta@internet.ist
Það byrjaði með sameiningarbylgju
sjúkrahúsanna í Reykjavík, sem ekki
gekk þrautalaust fyrir sig og var ekki
sérstakt gæfuspor að virðist.
Síðan kom röðin að landsbyggðinni,
héraðslæknisdæmin færð undir lands-
hlutasjúkrahús og miðstýring aukin.
Þá lentu dreifbýlingar á jaðrinum
og þjónustan þar dróst saman. Helg-
arþjónusta lagðist af, einmitt þegar
flestir eru á svæðinu og umferð mest.
Læknisdæmi sem höfðu tvö stöðugildi
læknis hanga í einu og biðtími lengist.
Þannig minnka umsvifin um helm-
ing og apótekum tengdum læknamið-
stöðvunum lokað vegna lítillar veltu.
Hægt er að komast í apótek og
bráðaþjónustu en það getur kostað
100 km akstur fram og til baka og
hærri komugjöld. Þetta kallast aftur-
för.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Enn dregst heilbrigðisþjónusta saman