Morgunblaðið - 28.10.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.10.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022 ✝ Helga Sigríður Elimarsdóttir Kinsky fæddist á Kanastöðum í Aust- ur-Landeyjum 1. maí 1932. Hún lést á Víf- ilsstöðum þann 13. október 2022. Foreldrar hennar voru Stefanía Sigríð- ur Pálsdóttir frá Ytri- Sólheimum í Mýrdal, f. 1. apríl 1908, d. 9. október 1938, og Elimar Tóm- asson frá Skammadal í Mýrdal, f. 30. ágúst 1900, d. 19. febrúar 1988. Seinni kona Elimars var Guðbjörg J. Pálsdóttir frá Álfhóla- hjáleigu í Vestur-Landeyjum, f. 3. mars 1915, d. 28. maí 2005. Alsystir Helgu var Gerður Stefanía, f. 1937, d. 2020. Systkin Helgu samfeðra eru: Heiðar, f. 1940, Halla, f. 1945, Auður, f. 1947, d. 2007, og Margrét, f. 1949. Barnsfaðir Helgu var Jón Þórðarson, þá forstöðumaður í er Ösp, b) Hekla Rut. 4) Klara, f. 1990. Sambýlismaður hennar er Pétur Rafnsson. Helga ólst upp í Landeyjunum fyrstu æviárin. Árið 1945 fluttist fjölskyldan vestur í Grundarfjörð sem þá hét Grafarnes. Helga hóf skólagöngu í Landeyjunum og lauk skyldunámi í Barnaskóla Eyrarsveitar í Grafarnesi. Hún nam einnig hússtjórn tvo vetur við Húsmæðraskólann á Varma- landi í Borgarfirði. Helga fór snemma að vinna, vann í frystihúsinu í Grafarnesi, var ráðskona hjá vegavinnu- flokkum, fór sem kaupakona að Hólavatni í Austur-Landeyjum og var hjálparhella föður síns og Guðbjargar við heimilishaldið. Rúmlega tvítug hleypti hún heimdraganum og fór suður til Reykjavíkur þar sem stöðugri vinnu var að fá. Þar vann hún ýmis störf, t.d. í Öskjum og prenti og Iðnó en lengst af í eld- húsum heilbrigðisstofnana, á Hvítabandinu við Skólavörðu- stíg, hinni nýju Heilsuverndar- stöð við Barónsstíg og á Fæðing- arheimili Reykjavíkur við Eiríksgötu frá stofnun þess. Helga verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 28. október 2022, og hefst athöfnin klukkan 10. Jarðsett verður frá Fossvogs- kirkjugarði. Reykjavík, f. 1915, d. 1973. Dóttir þeirra er Rut, f. 30. ágúst 1957, hjúkrunar- og upplýsingafræð- ingur. Systkin hennar samfeðra eru: Agn- ar, f. 1939, d. 2022, Erla, f. 1944, d. 2012, Jónína, f. 1952, d. 2017, Þór- ný, f. 1948, og Magnús Þór, f. 1962. Eiginmaður Rutar er Guð- mundur Ósvaldsson, fram- kvæmdastjóri, f. 1954. Börn þeirra eru: 1) Eyvindur, f. 1980. Kona hans er Vilhelmína Jónsdóttir. Þeirra börn eru a) Guðbjörg, b) Ari. 2) Kolbeinn, f. 1983. Kona hans er Borghildur Gunnarsdóttir. Dóttir þeirra er a) Vaka Hild. 3) Tómas, f. 1984. Kona hans er Hrafnhildur Harð- ardóttir. Þeirra dætur eru a) Est- Tilvera móður minnar var friðsæl og örugg fyrstu æviárin austur í Landeyjum. Faðir hennar var farkennari sveitar- innar og móðir hennar sá um heimilishald. Það öryggi tók snöggan endi þegar móðir hennar lést eftir skammvinn veikindi, aðeins þrítug að aldri, og faðirinn stóð uppi einn með tvær litlar dætur. Honum var nauðugur einn kostur að gefa aðra þeirra frá sér í fóstur og Gerður litla fór til sæmdarhjóna sem reyndust henni vel. Mamma missti því sex ára göm- ul móður sína og daglegt sam- band við systur sína og sá miss- ir hafði djúpstæð, varanleg áhrif. Friðsæld sveitarinnar var svo rofin þegar seinni heimsstyrjöld- in teygði anga sína þangað. Mamma minntist þess þegar þýskar herflugvélar flugu lágt yfir Landeyjasand og sveitina með miklum drunum – svo lágt að hún gat greint andlit flug- mannanna. Þetta hefur verið óhugnanleg lífsreynsla. Faðir hennar giftist aftur, Guðbjörgu J. Pálsdóttur frá Álfhólahjáleigu, og það reyndist gæfuspor fyrir litlu fjölskyld- una. Þau hófu búskap í Land- eyjum en árið 1945 flutti fjöl- skyldan vestur í Grafarnes, sem nú heitir Grundarfjörður. Faðir hennar fékk fasta vinnu sem skólastjóri og fyrir mömmu reyndist afar gott að skipta um umhverfi. Vinna í Grafarnesi var stopul á sjötta áratugnum og mamma fór ung suður til að vinna fyrir sér. Þar kynntist hún föður mínum. Hann var yfirmaður hennar á vinnustað, giftur mað- ur, sautján árum eldri en hún. Þau urðu ástfangin og áttu í löngu sambandi sem mamma reyndi þó ítrekað að slíta. Henni tókst það að lokum og taldi það vera rétta ákvörðun. Engu að síður tregaði hún föð- ur minn og þeirra samband alla tíð. Síðustu 25 ár bjó mamma í nágrenni við mig og mína fjöl- skyldu í eigin íbúð á „Sólvangs- torfunni“. Þar var hún hluti af góðu samfélagi. Íbúarnir ferð- uðust saman um landið og hitt- ust reglulega í leikfimi og öðru frístundastarfi. Á Sólvangsveg- inum eignaðist hún góða vini sem reyndust henni afar vel síð- ustu árin. Hún átti dýrmætt vináttu- samband við vini úr Landeyj- um og Grundarfirði, samstarfs- konur af vinnustöðum og skólasystur frá Varmalandi. Síðasta áratug var hún í dagd- völ á Hrafnistu í Hafnarfirði og átti þar glaðar stundir í sund- leikfimi, líkamsrækt og handa- vinnu og naut umönnunar þess hjartahlýja starfsfólks sem þar er. Mamma hafði gaman af ferðalögum og ferðaðist m.a. með eldri borgurum úr Hafn- arfirði og Grundarfirði, svo og okkur Guðmundi og fjölskyld- um okkar um landið, um meg- inland Evrópu og víðar meðan heilsa hennar entist. Mamma var trúuð og sótti styrk í sína barnatrú. Hún var hrifnæm, bókelsk, hafði gaman af ljóðum og naut þess að hlusta á góða tónlist. Hún var starfsöm, skyldurækin, glað- sinna og dugleg og ævistarfið var þjónusta við aðra. Flest af samferðafólki mömmu er nú gengið fyrir ætt- ernisstapa en þeim sem þessar línur lesa þakka ég innilega hlý- hug þeirra og vináttu í hennar garð. Mamma lætur eftir sig tíu af- komendur á lífi sem bera arf- leifð hennar gott og fagurt vitni. Fyrir það ber að þakka. Blessuð sé minning Helgu Elimarsdóttur, móður minnar. Rut Jónsdóttir. Ég kynntist Helgu fyrir rúm- lega 20 árum þegar ég kom inn í fjölskylduna. Hún kom mér fyrir sjónir sem hlédræg mann- eskja. Hún kallaði ekki til sín athygli, krafðist hennar ekki, en tók þátt í lífi sinna nánustu af hógværð. Einhverjir kynnu að segja að þessi netta og lítilláta kona hafi ekki skilið eftir sig djúp spor hér á jörðinni en ég er því ekki sammála. Hún átti vel gerða dóttur og fjögur fram- bærileg barnabörn, fallega og heilsteypta fjölskyldu sem var hennar gæfa. Hún hafði einlæg- an áhuga á að fylgjast með fjöl- skyldu sinni, barnabörnum og langömmubörnum. Helga hafði unun af bókum, las mjög mikið og gaf börnum mínum oft og tíðum bók í sum- argjöf. Hún lagði sig fram um að gleðja börnin mín, með góð- um og skemmtilegum afmælis- og jólagjöfum, hlýjum ullar- sokkum sem hún prjónaði af mikilli vandvirkni og átti kandís til að stelast í þegar við komum í heimsókn. Helga bauð ávallt upp á gæðakaffi úr nýmöluðum baunum og það var notalegt að spjalla yfir kaffibolla. Helga fylgdist alla tíð vel með fréttum og dægurmálaumræðu, hafði skoðanir á mönnum og málefn- um, sem hún flíkaði þó ekki nema væri hún spurð. Oft ræddum við skáldskap og stundum hjartans mál en það var best að gera í næði og gefa Helgu rými og tíma til að segja frá. Með þakklæti minnist ég góðra stunda, yfir kaffibolla, í páskamatnum á heimili mínu og úr boðum á jóladag sem Helga hélt fjölskyldu sinni af miklum myndarskap. Síðasta árið eða svo hrakaði heilsu Helgu. Nú í vor hélt Helga upp á níræðisafmæli sitt af mikilli reisn. Hún hlakkaði til afmælisins og átti góðan dag með fjölskyldu sinni. Fljótlega dró þó ský fyrir sólu. Helga átti ekki auðvelt líf. Sorgin fylgdi henni frá fyrstu tíð en hún missti móður sína ung að árum, aðeins sex ára. Hún sagði mér frá því að hún myndi enn sárs- aukahljóðin frá móður sinni. Aðrar sorgir var of sárt að færa í orð. Þó byltingar samtímans hafi hjálpað mörgum við að bera kennsl á og færa í orð ým- islegt sem gengnar kynslóðir báru ekki á torg þá fannst mér að í veikindum sínum hafi Helgu skort orð. Hún gat ekki komið orðum að atburðum fyrri tíma og líðan sinni og fyrir vikið tók sársauki yfir. Á slíkum stundum máttu huggunarorð mín sín lítils. Nú skilja leiðir, kallið er komið og Helga hefur fengið hvíldina. Þó skuggi hafi hvílt yf- ir síðustu misserum kýs ég á þessum tímamótum að muna með þakklæti þá birtu og góð- vild sem Helga sýndi ávallt okk- ur Eyvindi og börnum okkar. Ég geymi hlýjar minningar um kæra samferðakonu og börnin mín um ástkæra langömmu. Hvíl í friði, elsku vinkona. Vilhelmína Jónsdóttir. Á okkar yngri árum flutti amma Helga til Hafnarfjarðar á Sólvangsveginn. Bjó hún þá í göngufjarlægð frá æskuheimili okkar og við það urðu til marg- ar góðar samverustundir. Fyrri part dags gekk amma oft í Burknabergið og var keyrð heim eftir kvöldmatinn. Þegar hún var hjá okkur vildi hún hafa eitthvað fyrir stafni og sinnti heimilisstörfum af mikl- um myndarskap. Þá daga nut- um við nærveru hennar og ekki síst matargerðar. Amma eldaði yfirleitt kjarn- góðan íslenskan mat handa okk- ur; nætursaltaður fiskur og kartöflur, lifur, togarasteik og kjöt i karrý voru meðal rétta. Amma var á heimavelli í eldhús- inu, enda húsmæðraskólagengin, og við börnin lærðum ýmislegt af henni varðandi eldamennsku og heimilishald. Þegar strák- arnir stefndu á vetrarfjallaferðir var amma beðin um að sjóða slátur vikuna áður og var þá oft hugsað hlýlega til ömmu í miklu frosti og vindi þegar bitið var í dásamlega lifrarpylsu. Á jóladag vorum við alltaf í mat hjá ömmu. Þá var hangikjöt og ísterta á boðstólum og heitt súkkulaði með. Árin á Sólvangsveginum voru góð og lengst af var leikfimin þar fastur punktur hjá ömmu. Hún fór í ýmis ferðalög með íbúum hússins og reglulega með skipulögðum rútuferðum í mat- vöruverslun. Fyrir ömmu var mikilvægt að bjarga sér sjálf og þrátt fyrir að vera ekki með bíl- próf lét hún ekkert aftra sér, fór sinna ferða fótgangandi eða tók strætó. Eins og eðlilegt er styttust gönguferðirnar með ár- unum og strætónum var skipt út fyrir leigubíl. Amma var iðin við handa- vinnu og prjónaði á okkur fjöldamarga lopasokka. Sokk- anna munum við njóta löngu eftir hennar dag en þeir eru ómissandi á ferðalögum og jafnvel heima við á köldum dög- um. Þótt þrekið til verka hafi dvínað kom það oft á óvart hvað minni ömmu var einstak- lega gott. Hún hafði mikinn áhuga á því sem við höfðum fyrir stafni og var gott að heyra í ömmu sem gat miðlað fréttum af fjölskyldunni. Við áttum mörg góð samtöl í áranna rás, oftar en ekki um andleg mál- efni sem voru ömmu hugleikin og þá oft um drauma og merk- ingu þeirra. Amma hafði í fyrstu ekki mikinn áhuga á að fara í dagvist á Hrafnistu. Hún féllst þó á að fara þangað og líkaði henni síð- an einstaklega vel. Bæði var fé- lagsskapurinn góður og starfs- fólkið og fékk hún mikið út úr því að stunda leikfimi og viku- lega dansleiki við lifandi tónlist. Við minnumst ömmu með hlýju og við vitum að henni líð- ur vel hjá fólkinu sínu. Kolbeinn, Tómas og Klara. Í dag kveð ég ömmu Helgu í hinsta sinn. Amma mótaðist af áfalli í æsku en hún missti móð- ur sína ung að árum. Þá var amma ekki alltaf lánsöm í einkalífinu og hvarf því úr lífi okkar um tíma. Þegar ég var á unglingsaldri náðum við aftur sambandi og er ég nú ákaflega þakklátur fyrir það. Á þessum tíma flutti amma til okkar og varð ómissandi hjálparhella á stóru heimili með þrjá tánings- pilta og Klöru og allt það um- stang sem okkur fylgdi. Amma fékk svo fljótlega íbúð á Sól- vangsveginum og hélt áfram að styðja við okkur í Burknaberg- inu. Á Sólvangsveginum held ég að amma hafi hreinlega átt sín bestu ár, hún gat búið ein og ráðið sér sjálf og verið í nálægð við fjölskylduna. Amma fylgdist vel með fjöl- skyldunni nær og fjær og gætti þess að hvorki vantaði ullar- sokka né bækur. Hún vissi ein- hvern veginn meira um mann en maður áttaði sig á, hlustaði og fylgdist vel með því sem gert var. Minni hennar var nánast óbrigðult fram á síðasta dag þó heilsunni hafi verið farið að hraka. Hún hafði mikla ánægju af því að fylgjast með börnum mínum, Guðbjörgu og Ara, og var sannfærð um að barnabarnabörnin væru alveg einstök og gætu aldrei gert neitt rangt. Amma hafði gengið í hús- mæðraskóla á Varmalandi og var því full af fróðleik um mat- argerð og heimilishald og vann meðal annars á Fæðingarheim- ilinu við matseld. Það er mér minnisstætt þegar hún gaf okk- ur uppskrift af uppstúf sem var margfalt of stór því allar upp- skriftir af Fæðingarheimilinu miðuðust við eldamennsku fyrir fjölda sængurkvenna. Amma hafði gaman af að koma þegar við buðum henni í mat og hrós- aði matnum, sama hvernig til tókst. Hún var ávallt tilbúin að gefa góð ráð ef leitað var eftir því. Óþrjótandi þolinmæði hennar við að kenna mér að strauja skyrtur er eftirminnileg en kennslan skilaði takmörkuð- um árangri þó amma hefði gefið sig alla í hana. Kröfurnar í hús- mæðraskólanum voru víst held- ur stífari en til þurfti á mennta- skólaböll. Svo var bara einhvern veginn þægilegra að keyra með skyrturnar á Sól- vangsveginn og biðja ömmu um að strauja þær. Það er ekki laust við að mótað hafi fyrir brosi hjá ömmu þegar maður birtist korter í ball með krump- aða skyrtu á herðatré eins og ekkert væri sjálfsagðara. Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir fyrir ömmu og hefur ver- ið þyngra en tárum taki að þurfa að styðja ömmu meira en hún kærði sig um eða vildi. Þó líkamlegur styrkur væri í góðu lagi var andlegur máttur á þrot- um. Nú hefur amma Helga fengið hvíldina og er komin til foreldra sinna og systra. Bless- uð sé minning hennar. Eyvindur Guðmundsson. Helga Sigríður Elimarsdóttir Kinsky Elsku afi okkar. Það var alltaf gott að koma til ykkar ömmu í Tjarnarkotið þar sem okkar helstu minningar eru. Það var alltaf nóg að gera Stefán Þór Guðmundsson ✝ Stefán Þór Guðmundsson fæddist 30. sept- ember 1939. Hann lést 8. október 2022. Stefán var jarð- sunginn 21. októ- ber 2022. þegar við komum hvort sem það var að fara á skauta á tjörninni, veiða síli eða bara vesenast með ykkur ömmu. Garðurinn ykkar var alltaf svo fal- legur og ræktuðuð þið ýmislegt græn- meti sem við feng- um svo að borða. Oftast tæmdum við vasa þína af brjóstsykri þar sem við vissum að þú ættir allt- af poka. Það voru ófá skiptin sem við fórum rúnt út á Stafnes sem þér þótti svo vænt um, þar varst þú að dytta að Stafnesinu eða vinna í skemmunni. Stebbi labbaði oft með þér á rekann og það er minnisstætt þegar þú fórst einn með riffilinn og lentir í hershöndum. Þú lést þér ekki segjast og settist niður og beiðst eftir íslensku lögreglunni og í kjölfarið kom frétt þar sem stóð „með rekavið að vopni“. Þó það hafi verið mikið að gera hjá þér tengt sjónum gafstu þér alltaf tíma fyrir okkur systkinin þegar þú varst í landi. Við tengdum þig mikið við sjóinn og minnumst þess þegar þú sast uppi á lofti með kíkinn í Tjarnarkoti að horfa á bátana koma inn, sagðir okkur svo hvað bátarnir hétu sem voru að koma í land. Fannar leit mjög upp til þín, þú varst stór ástæða fyrir því að hann lang- aði að komast á sjóinn og það var alltaf draumur að komast á sjóinn með þér. Oft var mikil öfund út í Stebba bróður að hann fengi að búa hjá ykkur. Hann á margar kærar og skemmtilegar minningar, ein þeirra er þegar hann fór með þér og Gunna í veiði þar sem borga þurfti fyrir aflann en þar sem Stebbi var þegar orðinn blautur í fæturna þá tróðuð þið aflanum í stígvélin hans. Alltaf fundum við hlýju og kærleik frá þér, elsku afi okkar, takk fyrir allar yndislegu stundirnar. Við munum sakna þín. Þín barnabörn, Stefán, Fannar, Ása og Hjördís. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi, REYNIR VALTÝSSON frá Hítarneskoti, Kolbeinsstaðahreppi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 22. október. Útför fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 1. nóvember klukkan 13. Berglind Jónína Gestsdóttir Ingi Björgvin Reynisson Jónína G. Kristbergsdóttir Vala Kolbrún Reynisdóttir Óli Pétur Pedersen Gestur Már Reynisson Sandra Sif Gunnarsdóttir Gunnlaugur R. Reynisson Karlotta Helgadóttir Bjarni Valur Valtýsson Margrét Þorsteinsdóttir og afabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR Sólvangi Hafnarfirði, áður til heimilis í Breiðuvik 6, Reykjavík, lést á Sólvangi miðvikudaginn 26. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ása Árnadóttir Sigurdór Friðjónsson Guðrún Árnadóttir Ásgeir Óskarsson Ásgeir Þ. Árnason Karlotta J. Finnsdóttir Hallgrímur Árnason Sonja Cagatin Sigurður Árnason Kari Anne Østby Dagný Árnadóttir Hafsteinn H. Hafsteinsson Hannes B. Friðsteinsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.