Morgunblaðið - 28.10.2022, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.10.2022, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022 Elskaður eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og stjúpfaðir okkar, ÞÓRARINN GUÐMUNDSSON, fyrrverandi starfsmaður Flugmálastjórnar, lést mánudaginn 24. október á Mörk hjúkrunarheimili. Útför verður auglýst síðar. Hulda Petersen Inga Þórarinsdóttir Baldur Bragason Birna E. Benediktsdóttir afabörn, langafabörn og stjúpbörn Yndislega systir okkar, mágkona og frænka, LÍNEY BJÖRGVINSDÓTTIR, Lautarvegi 18, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 18. október. Útför hennar fer fram í Garðakirkju Álftanesi fimmtudaginn 3. nóvember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ás styrktarfélag. Árni Björgvinsson Jenný B. Sigmundsdóttir Ragnhildur Björgvinsdóttir Guðný Björgvinsdóttir Anton Örn Guðmundsson Páll Björgvinsson Áslaug Þormóðsdóttir Björn Thomsen og frændsystkini Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGUNN HOFDÍS BJARNADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Móbergi, Selfossi, 24. október. Útförin fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn 2. nóvember klukkan 13. Ólafur Ólason Eileen Rice Ólason Sigurður Árni Ólason Fanney Snorradóttir Gunnar Ólason Rakel F. Jóhannesdóttir Gunnar Franz, Arna Kristín, Benedikt Óli, Agnes, Auður Hofdís og Styrmir Goði Ástkær unnusta mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma SVANHILDUR AUÐUR DIEGO lést sunnudaginn 23. október. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 1. nóvember klukkan 13. Brynjar H. Jóhannesson Ísleifur Gauti Diego Kókó Diego Diogo Xavier M. Alexandre Yuri Diego Alexandre Ástkær eiginkona mín, INGIBJÖRG ERNA SVEINSSON er látin. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Helgi Ólafur Ólafsson. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT BJÖRGVINSDÓTTIR BESSASON bókmenntafræðingur, lést í Toronto í Kanada 25. október. Útför á Íslandi verður auglýst síðar. Guðrún Ólafsdóttir Gregory Chapman Brandur Ólafsson Judith Philips Sigrún Stella Bessason Michael DiLauro Brynjar Björgvin Chapman Eli Bellawood Freyja Stella Chapman Valdimar Brandsson Guðni Rúnar var fæddur í Reykjavík 1. júní 1955. Hann var sonur hjónanna Þóris Guðnasonar, múrara, og Guðrúnar Bjarnadóttur. Sjálfur starfaði Guðni allt sitt líf sem Guðni Rúnar Þórisson ✝ Guðni Rúnar Þórisson fædd- ist 1. júní 1955. Hann varð bráð- kvaddur 23. sept- ember 2022. Útförin fór fram 5. október 2022. múrari enda var hann mjög handlag- inn og voru öll hans verk gerð með mikl- um metnaði og prýði. Einnig tók hann að sér fleiri störf, þar á meðal sem forstöðumaður Verndar meðferðar- heimilis. Hjálpaði hann mörgum í gegnum erfiða tíma og notaði sína eigin reynslu til þess, þar sem hann sigraðist á fíkninni. En Guðni var ekki aðeins múrari heldur var hann afar stoltur Valsari. Hann mætti á óteljandi leiki hjá félaginu og oft snerist umræðan hjá okkur í kaffi hjá ömmu um nýjasta sigur Vals. En þó að hann hafi verið stolt- ur Valsari þá var hans helsta stolt sonur hans, Rikki, sem hann dáði út í eitt. Annað áhuga- mál stóð þó upp úr og það var stangveiði. Sérstaklega þegar hann fór að eldast, þá var mikið um veiðiferðirnar. Við frændurn- ir fórum saman í nokkrar ferðir að vatni sem við fjölskyldan höf- um haft til afnota í nokkur ár. Þar fór Guðni sína eigin leið, fann fallega vík sem við höfðum ekki farið í áður. Þetta varð svo hans veiðistaður og alltaf kom hann heim með eitthvað í soðið fyrir sig og ömmu. Síðan þá hef- ur þessi fallega vík verið kölluð Guðnavík. Guðni var og verður alltaf stór partur af litlu fjöl- skyldunni okkar og munum við sakna hans sárt. Hægt er að hlýja sér við þá hugsun að vel hefur verið tekið á móti Guðna af mömmu og afa. Að leiðarlokum þökkum við fyrir allar samverustundir sem við fjölskyldan vorum svo heppin að eiga með Guðna frænda. Vin- átta hans mun eiga stað í hjarta okkar til æviloka. Amma, Rikki og fjölskylda. Megi guð styrkja ykkur á þess- um erfiðu og þungu tímum. Hvíl í friði, ást og umhyggja Þórir Ingþórsson, Jóhanna Kristín Björnsdóttir, Þór- unn Jóhanna Þórisdóttir og Elísabet Hildur Þórisdóttir. Elsku Anna okk- ar. Það er þyngra en tárum taki að skrifa þessi kveðjuorð til þín og ég bara trúi því ekki ennþá að þú sért farin, svona ótrúlega snögglega. Síðan leiðir okkar lágu saman árið 2007 hafið þið fjölskyldan ver- ið mjög stór partur af lífi okkar og alltaf átt risastóran stað í hjörtum okkar allra. Anna var fyrirmyndin Anna Kristín Magnúsdóttir ✝ Anna Kristín Magnúsdóttir fæddist 14. ágúst 1972. Hún lést 4. október 2022. Útför fór fram í Danmörku 14. október 2022. Minningarathöfn var haldin 27. októ- ber 2022. mín í svo mörgu, ég hef dáðst að því hvernig foreldri, eig- inkona, vinur og bara yfirhöfuð hvernig manneskja hún var. Við krakk- arnir eigum svo margar fallegar og góðar minningar um Önnu, Smára, Freyju, Goða og Magna, bæði frá Danmörku og Íslandi. Upp í hugann koma t.d. sushi- kvöldin, lummurnar hans Smára á morgnana, björgun frosksins Andra og síðan en ekki síst allt notalega spjallið við eldhúsborðið og þá var kaffibollinn aldrei langt undan því þeir sem þekktu Önnu vita að hún var mikil kaffikona. Þegar við tölum um Önnu og fjöl- skylduna hennar kemur setningin „þau eru fallegasta fjölskylda sem ég hef kynnst“ iðulega í kjölfarið. Virðingin, samskiptin, kærleikur- inn og góðmennskan sem þau gefa hvert öðru og fólkinu í kring- um sig er einstakt upp á að horfa. Við erum svo óendanlega þakk- lát fyrir að hafa fengið að spjalla og knúsa í fermingunni hans Goða um daginn, engan grunaði þá hvað væri í vændum, sem betur fer … eða ekki, ég get bara með engu móti svarað þeirri spurn- ingu. Það er líklega engin tilviljun að þessi lokaorð séu skrifuð á hót- elherbergi í Chicago því Chicago var í sérstöku uppáhaldi hjá þér. Takk fyrir allt sem þú gafst okkur elsku besta Anna, þín er og verður svo sárt saknað. Hugur okkar er hjá fallegu fjölskyldunni þinni núna og við munum gera okkar allra besta til að vera til staðar fyrir þau … alltaf. Hvíldu í friði. Eir, Elísa og Bjarki. Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birting- ar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar ✝ Lára Erlings- dóttir fæddist 17. febrúar 1954. Hún lést á heimili sínu í Árósum í Danmörku 26. sept- ember 2022. For- eldrar hennar voru Ingibjörg Magn- úsdóttir, f. 1932, d. 2009, og Erling S. Tómasson, f. 1933, d. 2017. Lára var elst sex systkina en þau eru; Ólöf, f. 1956, maki Þorsteinn Jóhann- esson, f. 1952. Björn, f. 1957, maki Bergþóra Valsdóttir, f. 1958, Magnús Ingi, f. 1965, d. 2020, Már, f. 1969, maki Halla Gunnarsdóttir, f. 1970, og Heiða, f. 1971, maki Rúnar Sigtryggs- son, f. 1972. Lára giftist Þorsteini Á. Hen- rýssyni 1974, sonur Láru og Þor- steins er Henrý Ásgeir viðskipta- fræðingur búsettur í Árósum Danmörku. Konan hans er Vero- nica Thorsteinsson. Börn þeirra eru Amy Elizabet, f. 2003, Laura Sophia, f. 2005, Lui Alex- ander, f. 2007, og Theo Vilhelm, f. 2010. Lára ólst upp í Reykjavík, bjó lengst í Ljósheimum og Fossvogi. Hún stundaði grunn- skólanám í Vogaskóla en 1974 lauk hún stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina. Lára vann hja Ellingsen og Part- ner og Laugarásbíó. Árið 1982 fluttu Lára og Þorsteinn til Dan- merkur og bjuggu lengst af í Ár- ósum. Í Danmörku starfaði Lára sem skrifstofumaður hjá bæjar- félaginu í Árósum þar til hún fór á eftirlaun. Útför Láru fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag, 28. október 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. Ótímabært fráfall elsku Láru fær hugann til að leita aftur til ár- anna í Danmörku í lok síðustu ald- ar. Þar kynntist ég Láru og eig- inmanni hennar Þorsteini vel og naut þeirra góðvildar og gestrisni. Fyrrverandi eiginmaður minn, Magnús Ingi, bróðir Láru, nam þá framhaldsnám í lögfræði og bjuggum við þar ásamt sonum okkar Magnúsi Orra, Emil Má og Daníel Mána í tvö ár. Heimili Láru og Þorsteins stóð okkur ávallt opið og leituðum við litla fjölskyldan mikið á þeirra náðir. Regluleg matarboð í notalega kotinu þeirra hjóna í Hjortshoj varð fastur punktur í tilveru okkar. Það fylgdi því öryggi fyrir unga og óharðn- aða foreldra að hafa Láru og Þor- stein sem okkar bandamenn í nýju og ókunnugu landi. Samtímis okk- ur Magnúsi og sonum okkar voru einnig búsett í Danmörku á þess- um tíma frænka Þorsteins, Henri- etta, maður hennar Guðjón og frumburður þeirra Gísli Tómas. Lára og Þorsteinn voru dugleg að hóa saman unga fólkinu og úr varð mikill og kær vinskapur. Í minn- ingabankanum er þetta sannar- lega dýrmætur fjársjóður. Lára heimsótti mig yfirleitt þegar hún kom til Íslands sem mér þótti sérlega vænt um. Í síð- ustu heimsókn Láru til landsins áttum við notalega stund á heimili mínu. Hún þreyttist seint á að segja mér frá syni sínum Henrý og afrekum barnabarnanna sem Lára var óendanlega stolt af, öll- um sem einu og máli sínu til stuðn- ings kom hún með nokkur mynda- albúm af fjölskyldu Henrýs sem hún hreykin sýndi mér. Stolt hennar af afkomendunum var tak- markalaust. Elsku Henrý og fjölskylda, eft- irlifandi systkini Láru; Ólöf, Björn, Már og Heiða, ég sendi ykkur kær- leiksljósið og megi góður guð verða ykkar styrkur. Minningin um elsku Láru mun alltaf lifa. Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt. Sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt. Hverju orði fylgir þögn og þögnin hverfur alltof fljótt. En þó að augnablikið aldrei fylli stund skaltu eiga við það mikilvægan fund því að tár sem þerrað burt aldrei nær að græða grund Líttu sérhvert sólarlag sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. Þú veist að tímans köldu fjötra enginn flýr. Enginn frá hans löngu glímu aftur snýr. Því skaltu fanga þessa stund því fegurðin í henni býr. (Bragi Valdimar Skúlason) Sunna Ólafsdóttir. Árið 1970 hóf hópur sprækra stúlkna nám í 1-B, stelpnabekk í Menntaskólanum við Tjörnina. Átta okkar hafa haldið hópinn allt til þessa dags og sex okkar, þar á meðal Lára, hafa verið samferða allt frá því í sjö ára bekk í Voga- skóla. Kynni okkar hafa þannig spannað meira en hálfa öld. Við vorum samferða í gegnum öll menntaskólaárin og útskrifuð- umst sem stúdentar 1974. Margt var brallað, sumt ef til vill miður gáfulegt en flest þó uppbyggilegt, þroskandi og umfram allt skemmtilegt. Mikið rætt og skraf- að og ýmsar skoðanir á mönnum og málefnum lagðar í púkkið. Það var enda tíðarandinn – og við héld- um hópinn í gleði og sorgum þess- ara ára. Ævintýrin voru mörg. Þrjár úr hópnum ákváðu til dæmis að hleypa heimdraganum sumarið 1973 til að taka til hendi í hótel- bransanum, gerðust gengilbeinur á Hótel Eddu á Eiðum. Þar var Lára mikill drifkraftur. Sumarið var viðburðaríkt og átti þar stór- brotin náttúra Austfjarða stóran hlut. Sérhver frístund frá anna- sömu hótelstarfinu var nýtt til landkönnunar. Í lok sumars var svo farið á puttanum til Reykja- víkur, sem þá var ekki einfalt ferðalag þar sem brúun Skeiðarár var ekki lokið. Þegar menntaskólaárunum lauk stofnuðum við saumó til að halda utan um samband okkar – ekki til að prjóna eða sauma þó sumar ættu til að sýna góð tilþrif í því, en alltaf var um margt að ræða. Einn- ig var það regla að ekki skyldu vera fleiri en þrír réttir með kaffinu. Skoðanaskiptin héldu þar áfram og stundum gekk líklega nokkuð mik- ið á og komust þá oft færri að en vildu. Lára svo ljúf, hæglát og hlát- urmild sem hún var náði þó oft at- hyglinni á sinn hátt. Um það leyti sem við útskrif- uðumst úr MT rugluðu Lára og Steini saman reytum sínum og fluttu svo nokkrum árum síðar til Danmerkur. Lára var því ekki með okkur með reglubundnum hætti í saumaklúbbnum, en strengurinn slitnaði ekki og það brást ekki að þegar hún kom í sín- ar tíðu heimsóknir til Íslands að efnt var til hittings í saumó. Mjög er minnisstætt þegar hún bauð okkur í sumarbústað tengdafjöl- skyldunnar í Heiðmörk sumarið 2016. Þetta var fallegur sumar- dagur og áttum við innihaldsríkan og góðan tíma allar saman, þar sem rifjaðar voru upp gamlar minningar og nýjar urðu til. Við kveðjum Láru með sorg í hjarta og þökkum fyrir góð kynni í meira en 50 ár. Við sendum Henry og fjöl- skyldu hans, sem og öðrum ætt- ingjum og vinum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Ásta, Eygló, Guðrún Eyjólfs, Guðrún Jóns, Helena, Ingveldur (Inga) og Sigríður ( Sigga Lillý). Lára Erlingsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.