Morgunblaðið - 28.10.2022, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022
Meistaradeild kvenna
C-riðill:
Juventus – Lyon....................................... 1:1
- Sara Björk Gunnarsdóttir lék fyrstu 69
mínúturnar með Juventus.
Arsenal – Zürich...................................... 3:1
_ Arsenal 6, Juventus 4, Lyon 1, Zürich 0.
D-riðill:
Rosengård – Barcelona .......................... 1:4
- Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Rosengård.
Benfica – Bayern München .................... 2:3
- Cloé Eyja Lacasse lék allan leikinn með
Benfica, skoraði mark og lagði upp annað.
- Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Bayern München, Cecilía Rán
Rúnarsdóttir var ekki í leikmannahópnum
og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er frá
vegna meiðsla.
_ Barcelona 6, Bayern München 6, Ro-
sengård 0, Benfica 0.
Evrópudeild karla
A-riðill:
Zürich – Bodö/Glimt............................... 2:1
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
PSV – Arsenal........................................... 2:0
_ Arsenal 12, PSV 10, Bodö 4, Zürich 3.
B-riðill:
AEK – Dinamo Kíev ................................ 3:3
Fenerbahce – Rennes .............................. 3:3
_ Fenerbahce 11, Rennes 11, AEK 4, Di-
namo Kíev 1.
C-riðill:
Ludogorets – Real Betis.......................... 0:1
HJK Helsinki – Roma.............................. 1:2
_ Real Betis 13, Ludogorets 7, Roma 7,
HJK 1.
D-riðill:
Union Berlín – Braga............................... 1:0
Malmö – Union SG ................................... 0:2
_ Union SG 13, Union Berlín 9, Braga 7,
Malmö 0.
E-riðill:
Manchester United – Sheriff .................. 3:0
Omonia – Real Sociedad .......................... 0:2
_ Sociedad 15, Man. Utd 12, Sheriff 3, Om-
onia 0.
F-riðill:
Lazio – Midtjylland.................................. 2:1
- Elías Rafn Ólafsson var allan tímann á
bekknum hjá Midtjylland.
Sturm Graz – Feyenoord......................... 1:0
_ Lazio 8, Sturm Graz 8, Feyenoord. 5,
Midtjylland 5.
G-riðill:
Freiburg – Olympiacos ........................... 1:1
- Ögmundur Kristinsson var ekki í leik-
mannahópi Olympiacos.
Nantes – Qarabag .................................... 2:1
_ Freiburg 13, Qarabag 7, Nantes 6, Olym-
piacos 2.
H-riðill:
Rauða stjarnan – Trabzonspor ............... 2:1
Ferencváros – Mónakó ............................ 1:1
_ Ferencváros 10, Mónakó 7, Trabzonspor
6, Rauða stjarnan 6.
Sambandsdeild karla
A-riðill:
Fiorentina – Basaksehir .......................... 2:1
Hearts – RFS............................................ 2:1
B-riðill:
West Ham – Silkeborg ............................ 1:0
- Stefán Teitur Þórðarson lék allan leikinn
með Silkeborg.
Anderlecht – FCSB.................................. 2:2
C-riðill:
Austria Vín – Lech Poznan ..................... 1:1
Villarreal – Hapoel Be’er Sheva ............. 2:2
D-riðill:
Nice – Partizan ......................................... 2:1
E-riðill:
Vaduz – AZ Alkmaar ............................... 1:2
Dnipro-1 – Apollon .................................. 1:0
F-riðill:
Molde – Djurgården................................ 2:3
- Björn Bergmann Sigurðarson lék ekki
með Molde vegna meiðsla.
Shamrock Rovers – Gent......................... 1:1
G-riðill:
Ballkani – Slavia Prag.............................. 0:1
Sivasspor – Cluj........................................ 3:0
H-riðill:
Basel – Zalgiris......................................... 2:2
Slovan Bratislava – Pyunik ..................... 2:1
4.$--3795.$
Subway-deild karla
Grindavík – ÍR ...................................... 84:79
Breiðablik – Keflavík ........................... 97:82
Höttur – Tindastóll............................... 73:69
Stjarnan – Njarðvík ............................. 67:88
Staðan:
Breiðablik 4 3 1 434:414 6
Njarðvík 4 3 1 347:304 6
Haukar 3 3 0 296:259 6
Keflavík 4 3 1 352:350 6
Stjarnan 4 2 2 329:336 4
Valur 3 2 1 243:241 4
Höttur 4 2 2 342:347 4
Grindavík 4 2 2 326:326 4
Tindastóll 4 1 3 302:316 2
ÍR 4 1 3 312:338 2
Þór Þ. 3 0 3 273:292 0
KR 3 0 3 299:332 0
Evrópubikar kvenna
Namur – Dudelange............................ 60:72
- Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 4
stig og tók 10 fráköst fyrir Namur á 23 mín-
útum.
4"5'*2)0-#
inn í þetta frekar óvænt þannig að
það er bara gaman,“ sagði hún.
Íslenska „fjölskyldan“ hjálpar
Hún gekk til liðs við Volda, sem er
nýliði í norsku úrvalsdeildinni, sum-
arið 2021 eftir að hafa leikið tvö ár
þar á undan með Stjörnunni, en
Katrín Tinna er uppalin hjá Fylki.
Auk þess að leika sem línumaður er
hún afar öflugur varnarmaður.
„Það er bara búið að ganga nokk-
uð vel hjá Volda. Þetta er krefjandi
en gaman. Það er mikil reynsla fólg-
in í því að taka svona áskorun.“
Volda, sem er staðsett í sam-
nefndum smábæ um 50 kílómetrum
sunnan við Álasund, er sannkallað
Íslendingalið, þar sem hægri horna-
maðurinn Rakel Sara Elvarsdóttir
og vinstri hornamaðurinn Dana
Björg Guðmundsdóttir eru einnig
leikmenn. Þá þjálfar Halldór Stefán
Haraldsson liðið og Hilmar Guð-
laugsson er aðstoðarþjálfari.
„Það hjálpar mjög mikið. Þetta er
svona ákveðin fjölskylda að hafa
þarna í kringum sig og mikill stuðn-
ingur í þeim. Maður er mjög örugg-
ur í því umhverfi þegar maður er
með aðra Íslendinga með sér,“ sagði
Katrín Tinna um það að hafa fjölda
Íslendinga í og í kringum liðið.
Þurfti að venjast hraðanum
Hún hjálpaði Volda að komast í
efstu deild í fyrsta sinn í sögu félags-
ins á síðasta tímabili og hefur und-
anfarna mánuði fengið að kynnast
því hvernig það er að spila í sterkri
norskri úrvalsdeild. Beðin um að
bera saman efstu deildir Íslands og
Noregs sagði Katrín Tinna:
„Norska deildin er töluvert hrað-
ari. Ég þurfti smá tíma til þess að
venjast þeim hraða. En svo er ótrú-
lega gaman að spila á þessu háa
tempói þegar maður er kominn al-
veg inn í það.
Leikmennirnir eru svolítið sterk-
ari líkamlega þannig að maður er
alltaf í slagsmálum, sérstaklega inni
á línunni. Maður þarf að berjast fyr-
ir öllum sínum stöðum og alltaf að
gefa 100 prósent í þetta, eins og alls
staðar auðvitað.“
Tuttugu viðtöl við þjálfarana
Hún sagði þá umgjörð og áhuga á
norsku deildinni vera með besta
móti.
„Áhuginn á deildinni er mikill.
Það er mikið fjallað um hana og mik-
ið umtal í kringum leiki. Þegar það
eru sjónvarpsleikir er þvílík umfjöll-
un, öllu tjaldað til allt í kring og tek-
in tuttugu viðtöl við þjálfarana eftir
leik!“ sagði Katrín Tinna í léttum
tón.
„Það er mikill áhugi í kringum
leikina og það eru margir áhorf-
endur. Þótt Volda sé lítill bær er
mikil stemning sem skapast í kring-
um leikina okkar og það er alltaf
gaman að fá sem flesta á völlinn, þá
skapast svo góð stemning,“ sagði
hún að lokum í samtali við Morg-
unblaðið.
Í stöðugum slagsmálum
í norsku úrvalsdeildinni
- Gengur vel hjá Íslendingaliði Volda - Vill nýta tækifærin með landsliðinu
Morgunblaðið / Kristinn Magnússon
Æfing Línumaðurinn efnilegi Katrín Tinna Jensdóttir á æfingu með ís-
lenska landsliðinu í TM-höllinni í Garðabæ á miðvikudagskvöld.
HANDBOLTINN
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Katrín Tinna Jensdóttir, línumaður
hjá norska úrvalsdeildarfélaginu
Volda, var í vikunni kölluð inn í A-
landsliðshóp kvenna í handknattleik
eftir að Lovísa Thompson og Berg-
lind Þorsteinsdóttir neyddust til að
draga sig úr honum vegna meiðsla.
Liðið undirbýr sig nú fyrir tvo vin-
áttulandsleiki gegn nágrönnum okk-
ar í Færeyjum.
Þessir tveir leikir, sem fara fram í
Færeyjum um helgina, eru liður í
undirbúningi fyrir tvo leiki í for-
keppni HM 2023 gegn Ísrael, sem
fara báðir fram á Ásvöllum 5. og 6.
nóvember.
„Þessir leikir leggjast mjög vel í
mig. Ég er mjög spennt og vonandi
fæ ég að spila þessa leiki,“ sagði
Katrín í samtali við Morgunblaðið,
spurð út í leikina gegn Færeyjum.
Þegar viðtalið fór fram, fyrir æf-
ingu liðsins í TM-höllinni í Garðabæ
á miðvikudagskvöld, var liðið ekki
búið að skoða andstæðinginn til hlít-
ar en Katrín sagði að það yrði vit-
anlega gert fyrir leikina.
„Við erum ekki búnar að funda um
færeyska liðið en það kemur að því.
Það er auðvitað hluti af undirbúningi
fyrir leikinn.“
Þvílíkur heiður
Hin tvítuga Katrín Tinna á þrjá A-
landsleiki að baki og lítur hún á vin-
áttuleikina gegn Færeyjum sem
kjörið tækifæri til þess að sýna sig
og sanna með landsliðinu.
„Að sjálfsögðu. Það er mikil
reynsla fyrir mig að fá að vera með í
þessu og bæta við fleiri lands-
leikjum. Að fá að taka þátt í þessu
verkefni er þvílíkur heiður. Ég kom
EVRÓPUBIKAR
Ólafur Pálsson
oap@mbl.is
KA leikur sína fyrstu leiki í 17 ár í
Evrópukeppni í handknattleik karla
í dag og á morgun. KA kemur inn í
2. umferð Evrópubikarsins og dróst
gegn austurríska liðinu Aon Fivers.
KA-liðið hélt út til Austurríkis í
gegnum Osló á miðvikudag. Jón-
atan Magnússon, þjálfari liðsins,
segir að það fari afskaplega vel um
hópinn í Vín.
„Við erum vel upplagðir eftir
nokkuð þægilegt ferðalag. Við er-
um á flottu hóteli og í toppmálum,“
sagði Jónatan í samtali við Morg-
unblaðið.
Engin spurning um þátttöku
Jónatan var sjálfur í KA-liðinu
sem lék gegn Mamuli Tbilisi frá
Georgíu og Steaua Búkarest árið
2005. Hann segir að síðan ljóst var
að KA hafi öðlast þátttökurétt í
keppninni hafi ekki neitt annað
komið til greina en að nýta hann,
þrátt fyrir að það kosti sitt.
„Þó það kosti aukið leikjaálag og
mikla vinnu leikmanna og þeirra
sem standa að liðinu þá teljum við
þá reynslu sem fylgir því að taka
þátt í Evrópukeppni vega þyngra.
Þetta verkefni held ég að geri hóp-
inn betur samstilltan. Það er okkar
von að við getum nýtt þessa
reynslu okkur til góðs í keppnunum
heima og að við komum út úr
þessu sem sterkari hópur. Við vor-
um óánægðir með leikinn gegn Sel-
fossi þar sem við vorum litlir í okk-
ur og nú fáum við tvo leiki til að
kvitta fyrir það.
Ætlum okkur áfram
Við gerum okkur ekki alveg
grein fyrir styrkleika andstæðings-
ins en við vitum að þeir hafa aðeins
tapað einum leik í austurrísku
deildinni á keppnistímabilinu og
sitja eins og er í þriðja sæti. Liðið
er bikarmeistari síðan í fyrra og er
eitt af fjórum sterkustu liðunum
þar í landi.
Þetta er lið sem spilar hraðan
handbolta og þeir vilja hlaupa mik-
ið, keyra bæði hraða miðju og
þriðja tempó. Þeir eru ekkert sér-
lega taktískir en byggja meira á
einstaklingsgæðum. Þeir eru sterk-
ir maður á mann og við þurfum að
standa vel á þá. Þeir eru með öfl-
ugan línumann, þrjár rétthentar
skyttur og frekar klóka miðju-
menn. Þá eru þeir með mjög góðan
gamlan landsliðsmarkmann, sem er
meira að segja eldri en Ragnar
Njálsson, svei mér þá!
Við þurfum að vera gríðarlega
agaðir í sóknarleik okkar því þeir
eru fljótir að refsa. Við höfum
heyrt af ákveðnu vanmati og ætlum
að reyna að notfæra okkur það.“
Jónatan segir flesta leikmenn
KA heila en að liðið sé enn án
Ólafs Gústafssonar. Hann vonast
þó til þess að Einar Birgir Stef-
ánsson, sem hefur verið frá und-
anfarið, geti tekið einhvern þátt.
Vill heimaleik í næstu umferð
Aðspurður sagði Jónatan það
hafa verið rætt að leika heimaleik-
inn í KA-heimilinu en það sé mikill
munur á kostnaði. Þannig hafi ver-
ið ákveðið að selja heimaleikinn.
„Við ætlum okkur bara áfram úr
þessari umferð og ef okkur tekst
það er það að minnsta kosti mín
von að við getum leikið heimaleik-
inn á okkar heimavelli í næstu um-
ferð,“ sagði Jónatan Magnússon,
þjálfari KA, að lokum í samtali við
Morgunblaðið.
- Jónatan þjálfari brattur fyrir leikina
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Austurríki Jónatan Magnússon er mættur með KA-liðið til Austurríkis.
Fyrstu Evrópuleikir KA í 17 ár