Morgunblaðið - 28.10.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 28.10.2022, Qupperneq 28
MENNING28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022 Örþing um Skírnarfjall Dante ugardag 29. okt. kl. 16-18 Veröld húsi Vigdísar étur Gunnarsson, Þórarinn Eldjárn, Elín Hansdóttir, Eiríkur Jónsson, Einar Thoroddsen og fleiri ræða ljóðaþýðingar Einars á Skírnar- fjalli (Purgatorio) Dante Alighieri, í ritstjórn Jóns Thoroddsen. La í P Svart tungl dvínar í Harbinger Myndlistarkonan Patty Spyrakos opnar sýninguna Svart tungl dvínar í Harbinger, Freyjugötu 1, í dag kl. 18 og mun tónlistarkonan Mr. Silla koma fram kl. 18.30. Í tilkynningu segir m.a. að óttinn við nornina hafi verið árhundruð í mótun. „Nornin er ein af sárafáum ímyndum okkar um sjálfstæðar konur með völd; galdrar voru í miklummetum í Egyptalandi til forna og ekki litið á þá sem aðskilda trúarbrögðum, en síðar voru þeir fordæmdir í flestum siðmenningum sem hverfðust um skipulögð trúar- brögð,“ segir meðal annars í tilkynningu og að sýningin beini einnig athygli að fegurð og mikil- fengleika sands. Listakona Patty Spyrakos opnar einkasýningu í dag í Harbinger. Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð hefst á morgun, laugardag, í Bíó Paradís og stendur yfir í viku, til 6. nóvember, með fjölda bíósýn- inga og viðburða. Hátíðin er nú haldin í níunda sinn og sem fyrr er Vigdís Finn- bogadóttir, fyrr- um forseti Ís- lands, verndari hátíðarinnar. Lísa Attens- perger, verk- efnastjóri hátíðarinnar, setti saman dagskrána að þessu sinni og skipulagði hana með Ásu Baldursdóttur, dagskrárstjóra í Bíó Paradís. Lísa segir hrekkjuvöku vera þema hátíðarinnar og því verði hrekkja- vökustemning og –blær yfir myndunum. „Opnunarmyndin í ár er danska fjölskyldumyndin Horfin á hrekkjavöku, eða Forsvundet til Halloween, og hún verður sýnd á opnuninni með lifandi talsetn- ingu leikara og á hrekkjavöku, 31. október,“ segir Lísa. Því verða leikarar viðstaddir sýninguna og talsetja í beinni, svo að segja. Segist Lísa eiga von á miklu fjöri á þeim sýningum. Ættleidd af górillu Af öðrum myndum nefnir hún fyrst nokkrar sígildar. Til dæmis Hocus Pocus, Addamsfjölskylduna og Labyrinth. Apastjarnan nefnist talsett teiknimynd sem verður frumsýnd á hátíðinni og segir hún af munaðarlausri stelpu sem er ættleidd af górillu. Lísa segir myndina fjalla um hvernig það sé að tilheyra ekki samfélaginu. „Þetta er rosalega falleg teikni- mynd og hjartnæm sem hefur ver- ið talsett á íslensku og Bíó Paradís gefur út,“ segir Lísa. Þá verði ný teiknimynd sýnd um Önnu Frank sem byggð er á dagbókum hennar og pólsk barna- og fjölskyldumynd er líka á dagskrá, Detektyw Bruno eða Bruno leynilögreglumaður, sem fjallar um strák sem heldur í leiðangur til að finna foreldra sína og fær í lið með sér Bruno sem er kvikmyndastjarna. Góðvinur íslenskra barna, Einar Áskell, á fimmtugsafmæli í ár. Af því tilefni verða sýndar stuttmyndir sem byggðar eru á bókunum um hann. Mun Þór- unn Lárusdóttir sjá um lifandi talsetningu á þeim 5. nóvember. Íslenskar myndir verða einnig sýndar, söngvamyndirnar Regína og Abbababb! og einnig stuttar heimildarmyndir eftir nemend- ur í 5. til 7. bekk á Patreksfirði, Seyðisfirði og Reykjavík sem sóttu námskeið í heimildarmyndagerð í haust. Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er norski kvikmyndaleikstjórinn Christian Lo. Tvær myndir eftir hann verða sýndar, Los Bando og Mini-Zlatan og Uncle darling eða Mini-Zlatan og elsku frændi. Segir í henni af Tommy sem er uppá- haldsfrændi Ellu. Þegar Tommy eignast kærustu óttast Ella að missa hann og tekur til sinna ráða í þeim tilgangi að eyðileggja sambandið. Los Bando fjallar um krakka sem ætla sér að taka þátt í alþjóðlegri rokkkeppni. Af viðburðum öðrum á hátíðinni má nefna Dótamarkað Apastjörn- unnar sem fram fer á morgun, 30. október, og geta börn sótt um að vera með sölubás í bíóinu með því að senda póst á lisa@bioparadis. is. Einnig verður boðið upp á leik- listarnámskeið fyrir stelpur, Stelp- ur leika!, sem Þórunn Lárusdóttir sér um ásamt því sem Christian Lo verður sérstakur gestur. Þá verður haldið örnámskeið í heim- ildarmyndagerð þar sem krakkar kynnast hugtakinu heimildarmynd og fá innblástur til þess að skapa sínar eigin heimildarmyndir. Verðlaun fyrir besta búninginn Börn á öllum aldri ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni. Þau allra yngstu geta horft á stuttmyndir með engu tali og þau elstu á unglingamyndina Comedy Queen sem fjallar um hina 13 ára Söshu sem missir móður sína og er staðráðin í að fá pabba sinn til að brosa aftur. Hún gerist því gríndrottning. Opnunarviðburður hátíðarinnar fer fram á morgun kl. 14 með sýn- ingu á Horfin á Hrekkjavöku og er aðgangur ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir boðsmiðum á tix.is. Eru öll börn hvött til að mæta í hrekkjavökubúningum. Verðlaun verða veitt fyrir besta búninginn og verður boðið upp á léttar veitingar. lAlþjóðlega barnakvikmyndahátíðin hefst ámorgun og er núhaldin í níunda sinn í Bíó Paradís lStuttar, langar, leiknar og teiknaðarmyndir á dagskrá næstu vikuna auk annarra viðburða Hrekkjavaka þema hátíðarinnar OpnunarmyndÚr Horfin á hrekkjavöku sem er opnunarmynd Alþjóðlegrar barnakvikmyndahátíðar. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Lísa Attensperger Örþing á morgun um Danteþýðingar Bræðurnir Einar og Jón Thor- oddsen hafa hafa í meira en áratug unnið að fyrstu heildar- þýðingunni á íslensku í bundnu máli á hinum 700 ára gamla Guð- dómlega gleðileik Dantes. Víti (Inferno) kom út 2020 og Skírnar- fjallið (Purgatorio) fyrir nokkru síðan. Ámorgun, laugardag, verð- ur haldið um klukkustundarlangt örþing um þessar ljóðaþýðingar í Veröld, húsi Vigdísar. Einblínt verður á Skírnarfjall. Þingið stendur frá kl. 16 til 18 en seinni hlutinn verður með léttum veit- ingum og spjalli. Á örþinginu taka til máls rit- höfundarnir Pétur Gunnarsson og Þórarinn Eldjárn, myndlistar- konan Elín Hansdóttir, sem er höfundur myndverka í útgáfunni, og læknarnir og ástríðumennirn- ir um Dante, Eiríkur Jónsson og Einar Thoroddsen. Í tilkynningu segir að enn frem- ur flytji nokkrir góðvinir Dantes sömu ljóðlínurnar úr Skírnar- fjallinu á ítölsku, hollensku, sænsku, ensku og íslensku. Útgáfufélagið Guðrún gefur Skírnarfjall út með stuðningi Viljanda styrktarsjóðs. Dante Jón og Einar Thoroddsen hafa þýtt tvo hluta Gleðileiks skáldsins. Nýtt tónleikhúsverk eftir Elínu í Hörpu Skemmtilegt er myrkrið er heiti fjörugs tónleikhúsverks eftir tón- skáldið Elínu Gunnlaugsdóttur sem verður flutt fjórum sinnum í Kaldalóni í Hörpu um helgina, á laugardag klukkan 13 og 15 og á sama tíma á sunnudag. Verkið er sett upp af tónleikhúshópnum Töfrum, með tónskáldið Elínu í forsvari, og er sagt vera fyrir „börn á aldrinum 4-99 ára“. Á sýningunni koma fram Ásta Sigríður Arnardóttir sópran, tónskáldið Elín Gunnlaugsdóttir, Frank Aarnink slagverksleikari, Jón Svavar Jósefsson barítón, Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari og Sigurður Hall- dórsson sellóleikari. Leikstjóri er Bergdís Júlía Jóhannsdóttir. Í Skemmtilegt er myrkrið segir af Ásu Signýju sem kemur oft við hjá Jóni Árna frænda sínum á leið heim úr skólanum. Einn daginn kemur hún hlaupandi inn og segir Jóni Árna að hún hafi séð loftanda. Jón Árni og hún fara í framhaldi af því að velta því fyrir sér hvort loftandinn geti verið til í raun og veru. Ása Signý er trúir ekki alveg á yfirnáttúrulega hluti, þó hún trúi á loftanda. Fljótlega fara þó ýmsir kynlegir hlutir að gerast. Draugar sveima um og nykur hleypur yfir sviðið. Þetta fær Ásu Signýju til að efast enn meira um hvað er til í raun og veru. Tónlistin er viðamikil í verkinu og heyra má leikið á nokkur hljóðfæri sem sjaldan heyrist í á sviði, eins og langspil, dótapíanó, sleifar, potta, köku- dósir og skeiðar. Textar sönglag- anna eru gamlar íslenskar vísur og kvæði. Texti lokalagsins er eftir Þórarin Eldjárn og sérstak- lega saminn fyrir verkið. Tónskáldið Elín Gunnlaugsdóttir, höfundur Skemmtilegt er myrkrið. Verk Halldórs sýnd í Listvali á Granda Sýning á verkumHalldórs Ragnarssonar, „Hérna, núna og kannski á eftir“, verður opnuð í Listvali á Granda á Hólmaslóð 6 á morgun, laugardag, kl. 15. Í verkunum á sýningunni veltir Halldór fyrir sér ei- lífri hringrás tilfinninga í tengslum við merkingu og heimspeki tungumáls. Hann skoðar hvernig endur- tekning getur mögulega dregið úr merkingu orða og leikur sér með reglur tungumálsins og óvenjuleg orðasambönd. Halldór (f. 1981) lauk B.A.-gráðu (2007) og M.A.- gráðu (2014) frá myndlistardeild LHÍ eftir að hafa numið heimspeki áður. Halldór á 13 einkasýningar að baki. Halldór Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.