Morgunblaðið - 28.10.2022, Side 29

Morgunblaðið - 28.10.2022, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ Indie wire 88% D wayne Johnson, jafnan kallaður The Rock eða Steinninn, nær nýjum lægðum í þessari nýjustu ofurhetjumynd DC. DC, eða Detect- ive Comics, hefur jafnan mátt láta í minni pokann fyrir risanum Marvel hvað vinsældir afurða varðar og ekki bætir Svarti Adam, nýjasta útspilið, þá stöðu. Steinninn hefur aldrei verið jafnsteinrunninn og í þessari mynd enda myndin gjör- sneydd öllum léttleika sem hefði bætt mjög kjánalega söguna. John- son er bara þarna, ýmist svífandi eða að berja einhvern og sjarm- inn sem svo oft hefur einkennt hann, vöðvatröllið með hnyttnar athugasemdir á vörum, er hvergi sjáanlegt. Ég veit varla hvar ég á að byrja þegar kemur að göllum myndarinn- ar. Strax í byrjun líst manni ekki á blikuna. Löng frásögn sögumanns sem heyrist illa í (reyndar var talið mjög lágt í allri myndinni, yfirgnæft af tónlistinni), ég veit ekki hvort þar talar barn eða kona, þar sem rakin er saga Kahndaq, ímyndaðs ríkis einhvers staðar í Mið-Austurlöndum fyrir fimm þúsund árum þar sem vondur konungur lætur þræla sína grafa eftir einhvers konar galdraefni sem kallað er eternium. Úr því ætlar kóngurinn að búa sér til mikla og illa kórónu. Einn þrælanna er Teth- Adam nokkur (Johnson) sem hlýtur galdramátt með hjálp galdrakarla, hinna sömu og komu við sögu í hinni skemmtilegu ofurhetjugrín- mynd Shazam! og þá einmitt með því að hrópa orðið Shazam! líkt og í þeirri mynd. Nema hvað hér er ekki gamanmynd á ferð heldur allt voðalega alvarlegt. Teth-Adam er haldið föngnum í grafhýsi en dag einn finnur ung kona kórónuna og les upphátt texta sem leysir Adam úr læð- ingi. Reynist hann hið ógurleg- asta ofurmenni, álíka öflugur og Súpermann og hópur ofurhetja er sendur á hann í von um að koma á hann böndum. Þessi hópur er eins og léleg eftirlíking af Avengers (þó hann hafi reyndar orðið til fyrr, ef rétt er skilið) og hlægilegastur af öllum er Haukmaðurinn, leikinn af Aldis Hodge, náungi með vængi og fáránlega grímu (sjá mynd). Pierce gamli Brosnan leikur Dr. Fate sem er einhvers konar sjáandi með kjánalegan gullhjálm og svo er þarna Atom Smasher, bræðingur af Antman og Deadpool úr Marvel. Í hópnum er líka ung kona, Cyclone eða Hvirfilbylur, leikin af Quintes- su Swindell og getur sú fram- kallað vind mikinn. Í stuttu máli er svo barist og flogið nánast alla myndina og henni nánast drekkt í tölvugrafík (CGI), alltof háværri og ágengri tónlist og nær endalaus- um hægagangs (e. slow motion) hasaratriðum sem minna á hina ofmetnu 300. Sama má segja um litapallettuna, þegar sögunni víkur að þrælum fyrir mörg þúsund árum verður allt gulbrúnt og virðist sem leikstjórinn haldi að þannig hafi allt verið í þá daga. Ekkert nema gulbrúnt, hvert sem litið er. Handrit myndarinnar er afar lélegt, nema ef ske kynni að öll góðu atriðin hafi verið klippt úr myndinni. Þau örfáu atriði sem innihalda samtöl og eru án slagsmál eru líka illa nýtt. Persónu- sköpunin er svo til engin, Adam er harðhaus sem hleypir brúnum og kastar mönnum á haf út og maður er litlu sem engu nær um nær allar persónur myndarinnar tveim- ur klukkustundum eftir að þær eru kynntar til leiks. Ef eitthvað jákvætt má segja þá eru einstaka hasaratriði ágætlega útfærð og þá sérstaklega atriði þar sem herbergi unglings er lagt í rúst. Það er nokkuð skondið því herbergið er fullt af varningi sem tengjast heimi DC. Dwayne „Steinninn“ Johnson á margar slakar myndir að baki en líka margar ágætar. Með Black Adam hefur hann sokkið á botninn en vonandi nær hann að synda aftur upp á yfirborðið. Steinninn sekkur til botns Kjánalegir Black Adam er einkar slök ofurhetjumynd frá DC. Hér sést Black Adam spjalla við Haukmanninn. KVIKMYNDIR HELGI SNÆR SIGURÐSSON Laugarásbíó, Smárabíó og Sambíóin Black Adam Leikstjórn: Jaume Collet-Serra. Handrit: Adam Sztykiel. Aðalleikarar: Dwayne Johnson, Aldis Hodge, Pierce Brosn- an, Sarah Shahi og Marwan Kenzari. Bandaríkin 2022. 124 mín. Fjölskylduhátíðin Rökkvan í Garðabæ Rökkvan nefn- ist hátíð sem haldin verður á Garðatorgi í Garðabæ í kvöld og sáu ungir lista- menn um skipulag henn- ar í samvinnu við menningar- fulltrúa bæj- arins, Ólöfu Breiðfjörð. Tónlist- armenn koma fram og hönnuðir og myndlistarmenn sýna verk sín. Tónlistardagskrá hefst kl. 19 með Stórsveit Tónlistarskóla Garðabæjar og í kjölfarið koma fram Spagló og Eik, Sigga Ósk og Rökkvubandið og loks Stuðmenn. Ólöf Breiðfjörð Rökkur þema haustsýningar Haustsýning Grósku verður opnuð í dag, föstudag, kl. 18.30 í Gróskusalnum á 2. hæð á Garðatorgi 1 í Garðabæ og einnig á torginu fyrir framan. Þema sýn- ingarinnar er rökkur og opnunin tengist listahátíðinni Rökkvunni. Sýnendur eru 23 og allir í Grósku sem er félag myndlistarmanna í Garðabæ en sýningarstjóri er Laufey Jensdóttir myndlistar- maður. Sýningin verður opin um helgina, 29.-30. október, og einnig 5.-6. nóvember. Gróska stendur fyrir all- nokkrum myndlistarsýningum á ári auk námskeiða og annarra viðburða og segir í tilkynningu að í félaginu sé fjölskrúðugur hópur fagmenntaðra og sjálfmenntaðra myndlistarmanna. Litríkt verk eftir Auði Björnsdóttur á haustsýningu félagsins Grósku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.