Morgunblaðið - 14.11.2022, Síða 2

Morgunblaðið - 14.11.2022, Síða 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022 ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 UU.IS TRYGGÐU ÞÉR GISTINGU Í TÍMA! SKÍÐAFRÍ TIL ÍTALÍU DINNA OG HELGI TAKA VEL Á MÓTI YKKUR Í ÍTÖLSKU ÖLPUNUM VERÐ FRÁ149.900 KR Á MANN M.V 3 FULLORÐNA 21. - 28. JANÚAR 2023 INNIFALIÐ ER FLUG, GISTING, FLUTNINGUR Á SKÍÐABÚNAÐI OG ÍSLENSK FARARSTJÓRN ERTU MEÐ HÓP? SENDU OKKUR FYRIRSPURN Á HOPAR@UU.IS Tíðar niðurfellingar á kynferðisbrota- málum og fá úrræði fyrir kvenkyns innflytjendur eru áhyggjuefni að mati nefndar Evrópuráðsins um of- beldi gegn konum og heimilisofbeldi (GREVIO), samkvæmt fyrstu skýrslu nefndarinnar um stöðumálaflokksins hér á landi. Þar sem Ísland er aðili að samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum telur nefndin Ísland skuldbundið til að bæta úrmálum sem fjallað var um. „Vakin er athygli á því að konur af erlendum uppruna, konur af lands- byggðinni og konur með fötlun eru í sérstökum áhættuhópi. Tryggja verð- ur að þau úrræði sem eru til staðar nái til þeirra án þess að staða þeirra komi í veg fyrir slíkt. Hlusta þarf á konur og taka verður mark á þeirra upplifun,“ segir í skýrslunni. Þó hrósar nefndin Útlendingastofnun fyrir að upplýsa kvenkyns innflytjendur um stöðu þeirra og réttindi á Íslandi. „All- ar konur og stúlkur undir 16 ára aldri fá að hitta lögfræðing sem upplýsir þær um rétt þeirra og aðgengi að þjón- ustu á Íslandi, án þess að fjölskyldan sé viðstödd,“ segir þar. Staðan sé ekki sú sama fyrir konur semkoma til þess að giftast á Íslandi. „Lýst er yfir von- brigðum yfir því að ekki sé boðið upp á sömu úrræði fyrir konur sem giftast íslenskum ríkisborgurum.“ Gögn skortir ummálafjölda, ákærur og sakfellingar í heimilisofbeldismál- um, semgerir rannsakendumerfiðara um vik að meta skilvirkni réttarkerf- isins í málaflokknum. Íslandi er aftur á móti hrósað fyrir að hafa almennt tekið vel á jafnréttis- málum í gegnum aðgerðaáætlanir og lagasetningu, þar á meðal aðgerðum gegn stafrænu kynferðisofbeldi, kyn- fræðslu ímenntakerfinu og aðgerðum gegn launamismun kynjanna. Íslensk stjórnvöld hafa ekki lagt nógu mikla áherslu á ofbeldi gegn konum af erlendum uppruna og kon- ummeð fíknivanda. Huga þurfi betur að fórnarlömbum eltihrella og koma í veg fyrir heiðursglæpi, þvinguð hjónabönd, þvingaðar ófrjósemisað- gerðir, þvinguð hjónabönd og umskurð kvenna. Ísland hafi þá verið brautryðjandi í kynfræðslu á grunn- og framhalds- skólastigi og í fararbroddi í því að útrýma launamismun kynjanna. „GREVIO hrósar íslenskum stjórn- völdum fyrir að hafa komið á fót skammtímaúrræðum fyrir börn, á borð við Barnahús, og stuðnings- úrræðum fyrir fullorðna á borð við Bjarkahlíð og Bjarmahlíð, hvar fórn- arlömb kynferðis- og heimilisofbeldis eru hýst undir einu og sama þakinu.“ Neyðarlínan ekki fullnægjandi úrræði Nefnd Evrópuráðsins lýsti sem áður segir þungum áhyggjum af því að engin hjálparlína fyrir konur sé opin allan sólarhringinn sem uppfylli skuldbindingar 24. gr. sáttmálans, sem kveður á um að öll aðildarríki samningsins bjóði upp á gjaldfrjálsan hjálparsíma þar sem hringjendur geta fengið ráð gegn fyllsta trúnaði allan sólarhringinn. Þetta myndi laga stöðuminnihlutahópa til muna. „Þótt fórnarlömb kynbundins ofbeldis geti haft samband við Neyðarlínuna, sem er gott úrræði fyrir fórnarlömb of- beldis, vini þeirra og fjölskyldur, er vakin athygli á því að Neyðarlínan er fyrst og fremst notuð til þess að hafa samband við lögreglu og aðrar skyldar neyðarþjónustur. Starfsmenn hennar eru ekki þjálfaðir ráðgjafar og hafa ekki hlotið þjálfun er varðar ráðgjöf til kvenna semþurfa að þola ofbeldi. Þeir eru einungis í stöðu til þess að vísa konum í uppnámi á aðra þjónustu,“ segir þar. Hjálparsími Píeta væri heldur ekki ásættanlegt úrræði vegna skorts á faglærðum einstaklingum. lGagnrýnt að Ísland sé ekki með hjálparsíma fyrir konur Skorturáhjálparúr- ræðumfyrirkonur Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Minnihlutahópar GREVIO segir íslensk stjórnvöld þurfa að huga betur að konum í minnihlutahópum, þar á meðal konum af erlendum uppruna. Ríkisendurskoðandi afhenti Alþingi í gær stjórnsýsluúttekt vegna sölu á hlut ríkisins í Ís- landsbanka 22. mars 2022, en hún verður kynnt á fundi stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar þingsins í dag og að líkindum gerð opinber að því loknu. Ljóst er þó að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur ekki haldið trúnað um skýrsluna, því þegar í gær tók að kvisast út um efni hennar, en a.m.k. þrír fjölmiðlar, Ríkisútvarpið, Vísir og Kjarninn, hafa greint frá hinu helsta í skýrslunni og höfðu hana undir höndum í gær. Morgunblaðið óskaði eftir því við Þórunni Sveinbjarnardóttur, formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að fá afrit af skýrslunni, þar sem trúnaði á henni hefði ljóslega verið aflétt, en þeirri málaleitan var hafnað. Af frásögnum annarra fjölmiðla að dæma er skýrslan ekki sá áfell- isdómur sem margir höfðu vænst. Þar eru „fjölþættir annmarkar“ á undirbúningi og framkvæmd sölunnar nefndir og sagt að bæði Bankasýslan, fjármálaráðuneytið og þingnefndir, sem um málið hafi fjallað, hafi vanmetið orðspors- áhættu við sölu opinberra eigna í aðdraganda hennar. Þá hafi ýmissi upplýsingagjöf verið ábótavant, sem til dæmis hafi valdið mismunandi skilningi á því hverjir væru hæfir fjárfest- ar í útboðinu. Ríkisendurskoðun dregur þó ekki í efa að fjárhagslegur af- rakstur söluferlisins hafi reynst ríkissjóði hagfelldur, þó sé ekki hægt að fullyrða að salan hafi verið ríkissjóði eins hagkvæm og mögulegt var. andres@mbl.is lEfni skýrslunnar tekið að kvisast út Bankasöluskýrsla kemur fram í dag Morgunblaðið/Eggert Íslandsbanki Skýrslu um söluna hefur verið vænst síðan í júní. Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Morgunblaðið/Eggert Strand Kjarasamningar sjómanna og skipstjóra hafa verið lausir í þrjú ár. Ekki sést í land hjá sjómönnum lSamningar sjómanna lausir í þrjú ár „Það er í sjálfu sér áhyggjuefni að okkur takist ekki að ná saman um nýjan kjarasamning þrátt fyrir að væntingar hafi staðið til þess að það tækist áður en fyrri samningur liði undir lok,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Samningar sjómanna og skipstjóra hafa verið lausir í þrjú ár í desem- ber og ekki sést enn í land. Samninganefnd kemur saman hjá ríkissáttasemjara í dag. Heiðrún segist ekki bjartsýn á að einhver niðurstaða fáist en vonast til þess að ná að þoka samtalinu áfram er varðar breytt landslag. „Sjávarútvegurinn stendur á ákveðnum tímamótum. Tækninni fleygir fram og orkuskipti eru fram undan. Skipin munu breytast og við erum aðeins að reyna að máta okkur inn í veruleika sem við þekkjum ekki í dag, þannig að kjarasamningar muni taka tillit til þeirra breytinga sem við væntum að verði,“ segir Heiðrún. Málið strandar einkum á kröfu sjómanna um 3,5% viðbótarframlag í lífeyris- sjóð auk nokkurra fleiri veigaminni krafna að sögn Valmundar Val- mundssonar, formanns Sjómanna- sambands Íslands. „Við erum búin að ítreka áherslur okkar og það tilboð sem við lögðum fram í maí stendur ennþá. Við ítrek- uðum það fyrir hálfum mánuði á fundi ríkissáttasemjara og búumst við að fá svör við því á morgun,“ segir Valmundur. Hann segist ekki útiloka verkföll. „Það er allt í boði ef það nást ekki samningar. Þá verður að gera eitthvað.“ Heiðrún Lind Marteinsdóttir Valmundur Valmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.