Morgunblaðið - 14.11.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.11.2022, Qupperneq 4
FRÉTTIR Innlent4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án f KANARÍ 6.DESEMBER Í 13NÆTUR fyr irv ar a. Sól fyrir jól 595 1000 www.heimsferdir.is 153.250 Flug & hótel frá 13 nætur Ætla má að meðlimir alþjóðlega vélhjólaklúbbsins Vítisengla og annarra vélhjólaklúbba sem þeim tengjast komi hingað til lands til þess að efla tengsl við aðila sem stunda skipulagða brotastarfsemi hér á landi. Þetta segir Runólfur Þórhallsson, að- stoðarlögregluþjónn hjá greiningar- deild ríkislögreglustjóra. 25 meðlim- um Vítisengla og undirklúbba þess var vísað úr landi á föstudagskvöld, á grundvelli ákvæða útlendingalaga sem heimila brottvísun einstaklinga sem talin er stafa hætta af. Komu þeir hingað frá Þýskalandi og Svíþjóð og hugðust sækja samkvæmi. Lögregla þurfti síðast að vísameðlimum alþjóð- lega vélhjólaklúbbsins Bandidos úr landi í september 2021. Spurður hvort meðlimir þessara klúbba séu almennt klæddir einkennisfatnaði þegar komið er í flugstöðina segir hann: „Bæði og. Síðastliðin ár hefur verið sjaldgæfara að þeir mæti í fullum skrúða í flug- stöðina en það er ekki alveg útilokað að þeir geri það. Fleiri gangi í brotasamtök Undanfarin 10 til 15 ár hefur þetta komið upp og Hæstiréttur hefur úr- skurðað þetta verklag lögmætt,“ segir Runólfur. Greiningardeild ríkislög- reglustjóra hafi bent á það árið 2017 að hún sæi aukin umsvif glæpahópa hér á landi og aftur árið 2021 í árs- skýrslu sinni. Þá er talið að meðlim- um samtaka sem stunda skipulagða brotastarfsemi sé að fjölga. Undir skipulagða brotastarfsemi falla fíkniefnabrot, mansal, tölvu- og net- glæpir og peningaþvætti svo fátt eitt sé nefnt. „Þetta er meiri fjöldi en venjulega hefur verið,“ segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á löggæslusviði lögreglustjórans á Suðurnesjum. Lögregla hafi átt von á meðlimum Vítisengla til landsins á föstudaginn var. Voru nokkrir hand- teknir á Reykjanesbraut og naut lög- regla aðstoðar ríkislöreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við þær aðgerðir. „Þetta uppgötvaðist í tæka tíð og þar af leiðandi gátum við gripið til ráðstafana. Veittu með- limirnir lögreglu engamótspyrnu við handtöku. Þeir komu hingað á eigin forsendum svo við höfum ekki upplýsingar um hverjir buðu þeim,“ segir Ásmundur aðspurður hvort lögregla hafi vit- neskju um slíkt. „En það fyrirfinnast vélhjólaklúbb- ar hér á landi eins og hefur komið fram í skýrslum greiningardeildar- innar.“ l25 meðlimumVítisengla og undirklúbba þess vísað úr landilSjaldan í einkennisbúningilLögregla varað við auknum umsvifum glæpahópa undanfarin árlEkki ljóst hverjir hafi boðið í samkvæmið Vítisenglar koma til að efla tengslin Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Leifsstöð Nokkrum meðlimum Vítisengla og undirklúbba þess var vísað úr landi á föstudaginn. Talið er að tilgangurinn hafi verið að efla tengsl. Miðstjórn Framsóknarflokksins hélt haustfund sinn í gær, en á fundin- um kom fram víðtæk ánægja með árangur flokksins í síðustu kosn- ingum, bæði til Alþingis og sveit- arstjórna. Sá árangur sýndi svo ekki yrði um villst að flokkurinn og stefnumál hans ættu ríka samleið með kjósendum. Ekki síður var lýst ánægju með hvernig úr hefði spilast í farsælu rík- isstjórnarsamstarfi, þar sem áherslur flokksins hefðu fengið góðan hljóm- grunn og brautargengi á ótal sviðum. Í ályktunmiðstjórnar Framsóknar- flokksins var innrás Rússlands í Úkraínu sérstaklega og harðlega fordæmd, áður en vikið var að öðrum stefnuatriðum; hún væri bæði ólögleg og óréttlætanleg. Miðstjórn áréttaði og „mikilvægi þess að Ísland ásamt bandalagsþjóðum sínum haldi áfram að styðja af fullum krafti við frjálsa og fullvalda Úkraínu og íbúa hennar“. Þá voru í ályktuninni dregin fram ýmis áherslumál Framsóknar, sem hlotið hefðu framgang í stjórnarsam- starfinu. Þar voru sérstaklega nefnd hækkun endurgreiðslna vegna kvik- myndagerðar, bygging þjóðarhallar, farsældarlög og barnaverndarlög, átak í fjölgun íbúða, Sundabraut, loftbrú í innanlandsflugi, áhersla á fæðuöryggi, lýðheilsu og jafnara að- gengi að heilbrigðisþjónustu. Minnt var á mikilvægi loftslags- skuldbindinga og endurnýjanlegrar grænnar orku, græna uppbyggingu og innviðafjárfestingar til orkuskipta. Miðstjórnin vill kanna betur fram- leiðslu og útflutning á rafeldsneyti, en leggst alfarið gegn raforkuút- flutningi um sæstreng. Þá vildi hún breyta fiskveiðistjórnarkerfinu og fá þjóðareign auðlinda í stjórnarskrá og eins koma á sátt um að stærri hluti af „ofurhagnaði einstakra fyrirtækja“ rynni til þjóðarinnar, án þess að það væri skýrt nánar við hvaða fyrirtæki væri átt. lVilja breytta fiskveiðistjórn og stærri skerf af „ofurhagnaði“ Miðstjórn Framsóknar ánægð með sitt fólk Framsókn Sigurður Ingi Jóhanns- son ávarpar miðstjórn flokks síns. Nýjar öryggismerkingar teknar í notkun við Reynisfjöru Nýjar merkingar sjást illa Nýjum merkingum var komið fyrir í Reynisfjöru um helgina. Óskar Magnússon, einn af eigendum Kersins í Grímsnesi, heimsótti Reynisfjöru á laugar- dag og tók myndir af aðstæðum. „Þetta er bara ekki í lagi,“ segir Óskar. Lítið letur er notað á nýja skiltinu, en á því er líka ljósakerfi sem táknar hættuna hverju sinni. Á laugardag var miðlungshætta og ljósið gult. Óskar segir ljósið ekki hafa sést almennilega því svo bjart var úti. Enn fremur hafi staðið að ekki mætti fara yfir gula línu í fjörunni á þeim tímapunkti. Það fyrirfannst þó engin gul lína á laugardag. „Þetta snýst ekki bara um öryggismál og merkingar. Þetta er svo subbulegt og ömurlegt og lítil von að nokkur maður beri virðingu fyrir því sem þarna er að gerast. Það verður að merkja þetta með afgerandi og form- legum hætti svo fólk taki mark á þessu,“ segir Óskar en á eldri skiltum er fjöldi límmiða sem ferðamenn hafa límt á þau í gegn- um tíðina. sonja@mbl.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.