Morgunblaðið - 14.11.2022, Qupperneq 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022
STAKSTEINAR
Naumt og villandi
hlutleysi Rúv.
Stjórnmálamenn hafa stundum
á orði að það sé nauðsynlegt
að ríkisvaldið
haldi úti ákaflega
kostnaðarsömum
fjölmiðli til þess
m.a. að tryggja
fjölbreyttan og
hlutlausan frétta-
flutning í landinu. Það er nú samt
eins og það er.
Áfjölmennum landsamráðs-
fundi um aðgerðir gegn
ofbeldi í liðinni viku, þar sem
Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra var meðal annarra í
pallborðsumræðu, reyndu 5-6
aðgerðasinnar gegn brottvísun-
um hælisleitenda að hleypa upp
fundinum með því að strengja
borða fyrir sviðið og halda uppi
háreysti með gjallarhornum.
Dregið var fram í frétt Rúv. að
Katrín hefði brugðist stutt-
lega við, en síðan sýnt þar sem
hún gekk úr salnum af miðjum
fundi og sagt að hún hefði þurft
frá að hverfa, rétt eins og hún
hefði bugast undir mótmælunum.
Þeir sem voru á fundinum vissu
vel að Katrín var tímabund-
in og það var kynnt í upphafi
pallborðsumræðnanna. Samt
greindi Hafdís Helga Helgadóttir
fréttamaður Rúv. svo naumlega
frá brottför forsætisráðherra, að
það var beinlínis villandi.
Þetta er ekki einsdæmi. Örn
Arnarson fjölmiðlarýnir Við-
skiptablaðsins benti á það í fyrri
viku að í fréttum af Alþingi hefði
verið sagt að þingmenn allra
flokka nema Miðflokksins hefðu
lýst yfir stuðningi við konur í
Íran. Í það lásu flestir áhorfendur
eitthvað, af því að þeir vissu ekki
– öfugt við fréttamann Rúv. – að
báðir þingmenn flokksins lágu
heima í umgangspest.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Veislutertur
fyrir öll tilefni
Ríkið selur fimm hús á gjafvirði
lFimm byggingar til sölu á Staðarfelli í
BúðardallHýstu áður starfsemi SÁÁ
Ríkiseignir hafa auglýst til sölu
fimm byggingar á Staðarfelli 2 í
Búðardal. Ásett verð fyrir allar
byggingarnar er 60 milljónir króna
en húsin eru samtals 1.293 fermetr-
ar að stærð, þar af skólabygging frá
1912 sem telur 751 fermetra og tvö
íbúðarhús frá 1969 og 1971 sem telja
291 fermetra og 135 fermetra.
Staðarfell á sér langa sögu og var
áður höfðingjasetur og stórbýli, en
býlisins var fyrst getið í Landnámu.
Hallgerður langbrók er frægust
fyrri ábúenda, en hún bjó þar
sín fyrstu búskaparár. Árið 1927
stofnaði Sigurborg Kristjánsdóttir
einkaskóla þar og hélt húsmæðra-
námskeið í sex ár. Síðar var þar
stofnaður Kvennaskóli Herdísar
og Ingileifar, sem í daglegu tali
var kallaður Húsmæðraskólinn á
Staðarfelli. Frá 1980 var endur-
hæfingarstöð SÁÁ á Staðarfelli
en látið var af starfseminni fyrir
nokkru. Eignin þarfnast töluverðra
endurbóta að því er fram kemur í
auglýsingu Ríkiskaupa.
Erfitt er að finna jafn stóra eign
fyrir sömu upphæð annars staðar
á landinu. Í Garðabæ er íbúð sem
telur 69 fermetra til sölu á 59,9
milljónir króna og í Hafnarfirði
er til sölu 69 fermetra íbúð á 59,5
milljónir króna. Staðarfell er í um
30 mínútna akstursfjarlægð frá
Búðardal og í um 2,5 klukkustunda
akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Ljósmynd/Ríkiskaup
Staðarfell Fimm byggingar eru til
sölu á 60 milljónir króna.
Ellefu vildarbörn
fengu ferðastyrk
Ellefu börnum og fjölskyldum þeirra,
samtals sextíu manns, var afhentur
ferðastyrkur úr sjóði Vildarbarna
Icelandair í gær. Þetta var í 34. sinn
sem úthlutað var úr sjóðnum, og hafa
alls 717 fjölskyldur notið stuðnings úr
sjóðnum frá því að hann var stofnaður
fyrir 19 árum.
Markmið sjóðsins er að gefa
langveikum börnum eða börnum
sem búa við erfið skilyrði og fjölskyld-
um þeirra tækifæri til þess að fara
í draumaferð sem þau ættu annars
ekki kost á. Fengu börnin einnig
bíómiða frá Sambíóunum.
Í fréttatilkynningu frá Icelanda-
ir segir að starfsemi Vildarbarna
Icelandair byggist á hugmyndum
og starfi Peggy Helgason, eiginkonu
Sigurðar Helgasonar sem lengi var
forstjóri Flugleiða og stjórnarformað-
ur Icelandair Group, en Peggy hefur
um árabil unnið sem sjálfboðaliði á
barnadeildum sjúkrahúsa í Reykja-
vík og stutt fjölskyldur fjölda veikra
barna með ýmsum hætti. Hún situr
í stjórn Vildarbarna Icelandair og er
Sigurður formaður stjórnarinnar.
Vigdís Finnbogadóttir er verndari
sjóðsins.
Ljósmynd/Icelandair
Vildarbörn Hér sjást styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við
úthlutunina í gærmorgun, en sjóðurinn hefur nú starfað í 19 ár.