Morgunblaðið - 14.11.2022, Síða 19

Morgunblaðið - 14.11.2022, Síða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022 ✝ Kristmann Jónsson fædd- ist á Hjaltastað í Hjaltastaðaþinghá 14. maí 1929. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Dyngju á Egils- stöðum 4. nóv- ember 2022. Foreldrar hans voru Jón Ísleifsson, f. 7.7. 1893, d. 23.11. 1964, og Guðný Þórólfs- dóttir, f. 26.7. 1889, d. 3.4. 1979. Systkini hans eru Þórólfur, f. 1914, d. 2004, Guðgeir, f. 1923, d. 2009, Lukka, f. 1924, d. 2005, Snorri, f. 1926, d. 2012, Egill, f. 1927, d. 2015, og Sæbjörg, f. 1932. Hinn 1. janúar 1952 giftist hann Sigurlaugu Stefánsdóttur frá Ártúni í Hjaltastaðaþinghá, f. 13.7. 1930, d. 23.5. 2018. Börn f. 1964, maki Finnbogi Rögn- valdsson, börn þeirra eru: Ída og Rögnvaldur. 8) Guttormur Bergmann, f. 1967, maki Ingi- björg Sóley Guðmundsdóttir, börn þeirra eru: Guðmundur Andri, Jón Otti, Guðný Sól, Fjalar Tandri og Alexandra Björt. Einnig ólst upp hjá þeim barnabarnið Viðar Jónsson. Langafabörnin eru 28 og langalangafabörnin þrjú. Kristmann ólst upp í Grænu- hlíð ásamt foreldrum sínum og systkinum. Hann gekk í far- skóla á ýmsum bæjum í Hjalta- staðaþinghá. Haustið 1946 fór hann í Héraðsskólann á Laug- arvatni og var þar tvo vetur. Árið 1952 hófu þau hjónin bú- skap í Grænuhlíð en þar starf- aði hann einnig við bygging- arvinnu. Árið 1971 fluttu þau í Eiða þar sem Kristmann starf- aði sem bóndi og bílstjóri. Árið 1997 fluttu Kristmann og Sig- urlaug til Egilsstaða. Síðustu árin dvaldi hann á Hjúkrunar- heimilinu Dyngju. Útför Kristmanns fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag, 14. nóvember 2022, kl. 14. þeirra eru: 1) Pálmi, f. 1952, maki Þuríður Ing- ólfsdóttir, börn hans eru: Guðlaug- ur Jón (fóstur- sonur), Kristmann Þór og Guðný Björk. 2) Stefán, f. 1953, synir hans eru: Ingi Þór og Stefán Andri. 3) Þórný, f. 1954, börn hennar eru: Sigurlaug Gréta og Jón Hilmar. 4) Jóna Hrafnborg, f. 1955, maki Einar Jónsson, börn hennar eru: Ind- riði, Ísleifur Egill og Gyða Dröfn. 5) Jón Þór, f. 1957, maki Guðný Sigurjónsdóttir, börn hans eru: Viðar, Kristmann og Malen Björg. 6) Gróa Ingileif, f. 1958, maki Ármann Halldórs- son, börn þeirra eru: Nanna, Halldór og Guðjón. 7) Sæbjörg, Það var vor þegar ég hitti verðandi tengdaforeldra mína fyrst austur á Eiðum fyrir þrjá- tíu og sex árum. Þeim brá nokk- uð við að sjá gripinn en jöfnuðu sig fljótt, létu allavega ekki á neinu bera! Kannski finnst manni alltaf að gamalt fólk hafi fæðst inn í annan heim en þann sem nú er uppi. Kristmann Jónsson fæddist árið 1929 og ólst upp við mikla fátækt á þess tíma mælikvarða. Faðir hans hafði misst heilsuna í blóma lífsins og gat illa séð fyrir börn- um sínum. Þetta mótaði Krist- mann, hann var næstyngstur og tók við búinu í Grænuhlíð í Út- mannasveit þegar þar kom og vann langan vinnudag. Þegar ég kom til sögu voru þau Lauga flutt í Eiðar og hagur þeirra orðinn góður að efnislegum gæðum. Kristmann var þá kominn aðeins yfir miðjan aldur, tæplega sex- tugur. Mér varð fljótlega ljóst að þessi grannholda maður, tæplega meðalmaður á hæð hafði reynt sitt af hverju, hann var ham- hleypa til vinnu og gekk eigin- lega fram af mér stráklingnum, hljóp við fót og varð oft heitt í hamsi þegar atið varð sem mest og mikið lá á að eitthvað yrði klárað. Og hann kláraði alltaf það sem þurfti að klára. Ég spurði hann að því þegar hann var orð- inn gamall hvort hann hefði reynt það á eigin skinni að vera atvinnulaus; nei, sagði hann, það vildu alltaf einhverjir hafa mig í vinnu. Ungur sveinn naut hann þess að á heimilinu var orgel sem Jón faðir hans hafði keypt, trúlega hefur það þó verið meira móð- urfylgja, tónlistargáfan. Hann spilaði á harmóniku og naut þess þegar stritinu sleppti að spila á nikkuna auk þess að þykja óskaplega gaman að spila á spil, fjölskyldan sameinaðist við spila- borðið öllum stundum. Á unglingsárunum hljóp hann af Héraði yfir á Borgarfjörð með hljóðfærið á bakinu og spilaði á böllum. Og hann var hestamaður, það var úr föðurættinni. Jón var hestamaður. Árið 1956 eignaðist hann svo rússajeppa. Nýir tímar gengu í garð og bíllinn og trakt- orarnir tóku við af hrossunum. Búið stækkaði og hagurinn vænkaðist. Kristmann varð framsóknar- maður; það voru allir framsókn- armenn á þessum árum eins og hann sagði! Seinna ók hann skólakrökkum í Eiðaskóla og ferðamönnum um héraðið. Sjálf- ur var hann í farskóla í fjóra vet- ur á bæjum í Hjaltastaðaþinghá en hleypti svo heimdraganum og fór í Héraðsskólann á Laugar- vatni eftir stríð. Það varð honum dýrmætt veganesti og oft bar skólaárin þar á góma á elliárun- um. Það varð gæfa Kristmanns að eignast sveitunga sinn og ná- granna Sigurlaugu Stefánsdóttur að lífsförunaut. Barnalán þeirra varð meira en flestra og þegar átta börn voru flogin úr hreiðrinu varð sonarsonurinn Viðar auga- steinn afa síns og ömmu og ólst að mestu upp hjá þeim. Nú er komið að kveðjustund. Lengur varð ekki þráast við að gegna kallinu. Góðar minningar geyma þeir sem eftir lifa. Finnbogi Rögnvaldsson. Kristmann Jónsson ✝ Sigurður Gunnar Jóns- son fæddist á Má- naskál 9. febrúar 1934. Hann and- aðist á heimili sínu 24. október 2022. Hann ólst þar upp hjá móður sinni Margréti Sig- urðardóttur og móðurafa Sigurði Jónssyni bónda þar. Árið 1958 flutti Sigurður ásamt móður sinni til Skaga- strandar og bjó þar til dauðadags. Sigurður var smið- ur og jafnvígur á tré og járn. Sig- urður lærði smíðar hjá Bjarna Run- ólfssyni í Land- broti á Suðurlandi. Hann vann m.a. að viðgerðum og við- haldi fyrir bændur í héraðinu. Útför fór fram 11. nóvember 2022. Nú er fallinn frá kær vinur fjölskyldunnar, elsku Siggi okk- ar, eða Siggi Möngu eins og hann var alltaf kallaður. Mikið sem við eigum góðar og fallegar minningar um hann. Bjargvætt- ur, svo sannarlega, þegar á þurfti að halda, bæði þegar stutt var að fara en einnig þegar ferðast þurfti um langan veg. Það skipti engu máli, hann leit á okkur sem fjölskyldu sína og milli okkar var alla tíð kær vin- átta og gagnkvæm virðing. Oft- ast var hann að gera við bíla eða vélar hjá okkur eða að aðstoða við framkvæmdir á húsakosti. Það er skemmtilegt að segja frá því og lýsir Sigga svo vel að krakkarnir í Hvammi voru aldrei fyrir honum. Þau fengu að fylgj- ast með honum vinna og spyrja óteljandi spurninga um fram- gang hvers verkefnis. Þolinmæði hans gagnvart þeim og væntum- þykja var aðdáunarverð. Minn- isstæðast er þegar við bjuggum í Sólvangi og Siggi var að aðstoða við að setja upp eldhúsinnrétt- ingu. Þá sat Brynjar, rétt um þriggja ára eða svo, fyrir ofan hann á innréttingunni að fylgjast með því hvað hann væri að bauka. Stína ætlaði að taka barn- ið svo Siggi fengi frið en Siggi vísaði henni á brott, Brynjar væri sko ekki fyrir – hann væri bara að fylgjast með. Þarna sást strax að hann Siggi var svo sannarlega vinur okkar allra, enda var alltaf hlaupið niður eft- ir öllum afleggjaranum frá Hvammi og tekið á móti Sigga þegar bíllinn hans sást koma. Honum var alltaf tekið fagnandi og ekki var verra að hann kom alltaf með súkkulaði handa börn- unum. Siggi kom oft sérstaklega í Hvamm til að baða sig. Hann fékk þá hrein föt og var allur strokinn og fínn eftir baðferð- irnar. Við vitum að honum fannst það notalegt. Eitt sinn tókum við baðferðina upp á næsta stig og gengum öll saman upp í hlíðina fyrir ofan Hvamm þar sem laut var með lítilli tjörn. Við ætluðum að skella okkur öll í sund í tjörn- inni. Hann fór fyrstur ofan í og kallaði á hópinn að þetta væri kalt en hressandi og svo svaml- aði hann um tjörnina líkt og um sundlaug væri að ræða. Flestir aðrir létu sér nægja að vaða eða rétt dýfa sér út í. Siggi var svo sannarlega naglinn í hópnum þennan dag og hafði gaman af því. Sigga fannst aldrei leiðinlegt þegar kom að matmálstímum í Hvammi, þar var líka alltaf vel borið fram fyrir hrausta karl- menn og konur, krakka, ná- granna og dýr. Toppurinn var þegar kolagrillinu var skellt saman og grillaðar kótelettur með öllu tilheyrandi. Þá var sko veisla. Þegar við fluttum suður hélt hann áfram að heimsækja okkur og leggja fram krafta sína ef á þyrfti að halda. Hann kom eitt sinn sérstaklega til þess að fara með okkur í skemmtiferð til Þingvalla og eiga góða helgi saman á Flúðum. Á Þingvöllum var allt hið helsta skoðað og þá sérstaklega notið þess að ganga saman niður Almannagjá, þar sem saga okkar Íslendinga á þessum fallega og forna þingstað var rifjuð upp. Siggi naut sín svo sannarlega í botn í þessari ferð. Minningin um góðan mann lif- ir í hjörtum okkar. Takk elsku Siggi fyrir alla hjálpina í gegnum tíðina, vinskapinn og væntum- þykjuna. Megir þú hvíla í friði. Þin fjölskylda, Einar, Þórfríður Kristín (Stína), Brynjar, Guðni og Fjóla. Sigurður Gunnar Jónsson Kveðja frá Kven- félagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu Í dag kveðjum við heiðurs- félaga og fyrrverandi formann KSGK, Sigríði Finnbjörnsdóttur. Sigríður tók að sér formennsku sambandsins árið 2007 til ársins 2013, alls í sex ár. Hún var góður Sigríður Finnbjörnsdóttir ✝ Sigríður Finn- björnsdóttir fæddist 7. desem- ber 1954. Hún lést 23. október 2022. Útför hennar fór fram 4. nóvember 2022. félagi og sinnti starfi sínu af heil- indum og fag- mennsku, og var ráðagóð kona og alltaf var hægt að leita til hennar þeg- ar á þurfti að halda. Sigríður var kos- in heiðursfélagi KSGK á 90 ára af- mæli sambandsins árið 2019 og var hún vel að þeirri nafnbót komin. Sigríður eða Sigga eins og hún var alltaf kölluð var kærleiksrík, jákvæð og skemmtileg kona, kvenfélagskona með sönnu, og tók virkan þátt í samræðum og viðburðum sem KSGK og aðild- arfélög þess stóðu fyrir. Sigga var glæsileg og eftirminnileg kona sem vildi öllum vel. Minningin um kæra vinkonu lifir í hjörtum okkar. Þegar einhver fellur frá fyllist hjartað tómi en margur síðan mikið á í minninganna hljómi. Á meðan hjörtun mild og góð minning örmum vefur þá fær að hljóma lífsins ljóð og lag sem tilgang hefur. Ef minning geymir ást og yl hún yfir sorgum gnæfir því alltaf verða tónar til sem tíminn ekki svæfir. (Kristján Hreinsson) Hafðu kæra þökk fyrir allt. Við sendum innilegar samúð- arkveðjur til fjölskyldu Sigríðar og aðstandenda. Með kærleikskveðju, Ágústa Magnúsdóttir, formaður KSGK. Elsku frænka okkar Ragnheiður Bjarnadóttir hefur nú kvatt okkur aðeins 55 ára gömul. Við frænkurnar í Tungu- ættinni áttum sömu ömmu og afa, þau Geirþrúði Geirmundsdóttur og Guðjón Kristin Guðjónsson, sem bjuggu í Ytri-Knarrartungu í Breiðuvík. Við stofnuðum frænkuklúbb sem gerði margt skemmtilegt og bjó til margar dýrmætar og fal- legar minningar. Við vorum með frænkukvöld tvisvar til þrisvar á ári með kökum, kaffi, spjalli og gleði. Það var mikið hlegið þegar við lékum og dásömuðum persón- urnar í ættinni okkar. Einnig sáum við nokkrum sinnum um ættarmót Tunguættarinnar og oftar en ekki var Ragnheiður frænka aðaldriffjöðrin. Þá sá hún um alls konar leikþætti og söngva með börnum okkar og frændfólki sem hún stjórnaði af mikilli rögg- semi. Þeir voru oft frumsamdir og leiknir af fingrum fram. Hún var einstaklega fær í að Ragnheiður Bjarnadóttir ✝ Ragnheiður Bjarnadóttir fæddist 14. sept- ember 1967. Hún lést 29. október 2022. Útför Ragnheið- ar fór fram 9. nóv- ember 2022. koma fram í söng og leik. Hún var gull- falleg, gædd mikl- um mannkostum og hafði bæði skýra og fallega tal- og söng- rödd. Það hefur verið erfitt að geta ekki hitt Ragnheiði í veikindum hennar og á tímum Covid. Útför hennar var af- ar falleg en um leið mjög sorgleg. Við munum sakna elsku fal- legu og skemmtilegu frænku okkar og minnast hennar þegar við komum saman í frænku- klúbbnum góða. Við vottum fjölskyldu hennar og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúð. Guð geymi yndislegu Ragn- heiði. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Úr furutré, sem fann ég út við sjó, ég fugla skar og líka úr smiðjumó. Í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir synt á læk og tjörn, og sumir verða alltaf lítil börn. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri í fjarska villtan vængjaþyt Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína, himinborna dís, og hlustið, englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson) F.h. frænkuklúbbsins, Ragnheiður S. Helgadóttir. Elsku stúlku- barnið mitt, „Astin- ína“ eins og þú svaraðir, þá ung að árum er þú varst spurð að nafni. Stelpuskottan mín. Það að fá þær fréttir að þú værir alvarlega veik og síðan numin á brott frá okkur er erfitt að sætta sig við. Hver er tilgangurinn að kalla burt konu í blóma lífsins frá eig- inmanni og börnum? Anna Kristín Magnúsdóttir ✝ Anna Kristín Magnúsdóttir fæddist 14. ágúst 1972. Hún lést 4. október 2022. Útför fór fram í Danmörku 14. októ- ber 2022. Minning- arathöfn var haldin 27. október 2022. Það er mjög erfitt að koma orðum á blað um barnið sitt, slíkt ætti ekki að gerast, en við fáum víst litlu ráðið um það. Minningar hrannast upp, eins og þegar skólanum á Patró var slitið að vori og þið vinkon- urnar genguð glað- ar út í vorið, þá sagðist þú hlakka til að byrja aftur í skóla, varst strax farin að sakna þess að læra. Vinkonur þínar skildu þig ekki, voru fegnar að skólanum var lok- ið, þetta voru barnaskólaárin. Þú varst sjálfstæð, dugleg og skipulögð í öllu sem þú gerðir, hafðir sterkar skoðanir þegar rætt var um ákveðna hluti og mál. Elskaðir tónlist, mikill mann- og dýravinur. Oft var sungið og lesið fyrir þig er þú varst háttuð upp í rúm. Elsku hjartans Anna Stína, ástin mín og okkar allra, takk fyr- ir að vera stúlkubarnið mitt. Ég varð og er ríkur að hafa átt þig. Elsku Smári, Freyja, Goði, Magni, ástvinir og frændfólk, megi minning Önnu Stínu lifa. Dáðrík gæðakona í dagsins stóru önnum, dýrust var þín gleði í fórn og móðurást. Þú varst ein af ættjarðar óskadætrum sönnum, er aldrei köllun sinni í lífi og starfi brást. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér, og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum, á brautir okkar stráðir þú,yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Pabbi. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.