Morgunblaðið - 14.11.2022, Side 20

Morgunblaðið - 14.11.2022, Side 20
✝ Sigurbjörg Vil- hjálmsdóttir fæddist á Búðum á Fáskrúðsfirði 29. janúar 1928. Hún lést á Vífilsstöðum Garðabæ 29. októ- ber 2022. Foreldrar henn- ar voru hjónin Vil- hjálmur Valdimar Björnsson, f. 27. desember 1899, d. 3. júní 1967, og Helga Kristrún Guðmundsdóttir, f. 5 ágúst 1896, d. 2. nóvember 1979. Systkini hennar eru Haukur, f. 1926, látinn, Stefán, f. 1931, lát- inn, Guðmundur, f. 1933, og Gréta Auðbjörg, f. 1937. Sigurbjörg giftist Gunnari Bjarna Hákonarsyni 22. júní 1957. Foreldrar hans voru Há- kon Jón Jónsson og Ingibjörn Bjarnadóttir frá Dýrafirði. Börn Sigurbjargar og Gunnars eru: 1) Hákon, f. 21. janúar 1958, raf- virkjameistari, maki Guðný Helgadóttir, f. 16. febrúar, 1961 sölumaður. Börn þeirra eru Gunnar Bjarni, f. 16. september 1981, sambýliskona Ásdís Reyn- isdóttir, og Sigurbjörg Karen, f. 12. október 1990, sambýlis- maður Rúnar Gestsson, börn þeirra Gunnar Leó, Embla Guðný og Hákon Þór. 2) Vil- hjálmur, f. 27. september 1959, d. 26. júní 1962. 3) Helga, f. 19. október 1960, innanhússarkitekt. 4) Guðrún, f. 4. júlí 1963, leikskóla- kennari, maki Unn- ar Reynisson, f. 30. desember 1959, rafeindavirki. Börn þeirra eru Helga Kristrún, f. 27. október 1987, maki Jónína Sigríður Grímsdóttir, barn þeirra Björgvin Unnar. Sara Rut, f. 6. ferbrúar 1990, sam- býlismaður Ágúst Guðnason, börn Björk Sigríður Garð- arsdóttir og Daníel Helgi Garð- arsson. Gréta Björg, f. 21. febr- úar 1994, sambýlismaður Ómar Svan Ómarsson. 5) Hrefna, f. 10. september 1965, leikskólakenn- ari. Sigurbjörg lauk gagnfræða- prófi frá Ingimarsskólanum í Reykjavík vorið 1946. Hún flutt- ist til Reykjavíkur haustið 1946 gegndi ýmsum skrifstofustörf- um fram til 1957. Árið 1970 hóf hún svo störf hjá versluninni KRON við Hlíðarveg og vann þar til 1976 er hún hóf störf hjá Ísarn hf. og vann þar fram í maí 1996. Útför Sigurbjargar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 14. nóvember 2022, og hefst athöfn- in klukkan 13. Elsku amma. Þú varst besta amma sem hægt var að hugsa sér. Eins og stóð á kaffibollanum sem ég gaf þér og þú drakkst allt- af úr; „besta amma í heimi“, hverju orði sannara. Þú tókst alltaf svo vel á móti manni. Ég á margar góðar minningar frá Digranesveginum með þér og afa þar sem ég var svo oft. Við spil- uðum, tíndum rifsber í garðinum, tókum upp kartöflur, fægðum silfrið fyrir jólin og svo margt fleira. Þegar ég lít til baka snýst þetta ekki allt um hvað er gert heldur að njóta samverunnar og það gerðum við. Eftir að afi dó áttum við góðan tíma saman sem mér þykir afar vænt um. Ég er svo þakklát fyrir það að Björk og Daníel hafi fengið að kynnast þér og þau sakna þín mikið. Elsku amma, núna ertu komin til afa sem hefur tekið vel á móti þér. Ég mun sakna þín en ætla að leyfa mér að njóta minninganna sem við áttum saman. Sara Rut. Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir 20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022 Á kyrru kvöldi, eins og þau gerast fallegust á Vest- fjörðum, þar sem ljósin í bænum spegluðust í haf- inu að kvöldi 26. október, lauk Magnús Kr. Guðmundsson tengdafaðir minn ævidegi sínum á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Patreksfirði. Í gegnum hugann þjóta minn- ingar um þennan einstaka mann en fáein orð á blaði fanga engan veginn lífshlaup hans né afrek. En hvað dettur mér fyrst í hug? Vinna göfgar manninn og Tálknafjörður besti staður á landinu. Sívinnandi einstaklingur sem elskaði æskuslóðirnar sínar, kom ótrúlegustu hlutum í verk og frí ekki til í orðabókinni hans. Það má segja að Tálknfirðing- ar hafi notið framsýni hans og dugnaðar. Aflasæll skipstjóri til fimmtíu ára, atvinnurekandi og frum- kvöðull í sjávarútvegi. Hann var af þeirri kynslóð þar sem konur voru verkstjórar heimilisins og karlmenn útivinn- andi fyrirvinnur. Breyttir tímar hafa kallað fram breytt viðhorf hvað þetta varðar en það breytti ekki viðhorfi Magnúsar. Skólaganga var ekki hans te- bolli, hann lá ekki á þeirri skoðun sinni að vinna og reynsla af henni væri hinn eini sanni skóli lífsins. Honum varð gjarnan að orði að allt of fáar hendur væru í dag til að vinna í undirstöðunni og allt of margir einstaklingar á skóla- bekk. Hann mátti þó kyngja því að verða að fara í Stýrimanna- skólann og sækja sér réttindi sem skipstjóri. Magnús fór til Reykjavíkur með fjölskylduna, konu og sjö börn, leigði húsnæði, settist á skólabekk og kláraði námið með sóma eins og allt ann- Magnús Kr. Guðmundsson ✝ Magnús Kr. Guðmundsson fæddist 16. mars 1930. Hann lést 26. október 2022. Útför hans fór fram 5. nóvember 2022. að sem hann tók sér fyrir hendur. Ég held að tengdaföður mínum sé best líkt sem kletti við sjávarsíð- una, óhagganlegur og alltaf til staðar. Rétt eins og klettur stóð hann af sér storm og ágjöf, tókst á við verkefni sín af æðruleysi, lét ekki aðra hafa áhrif á verk sín og skoðanir. Hann var sterkur per- sónuleiki, hafði mjög ákveðnar skoðanir og fylgdi hugsjónum sínum eftir sama hvað. Hann og eiginkona hans Sig- ríður Jóna Sigurðardóttir, ástin í lífi hans, eignuðust saman átta börn, fimm stúlkur og þrjá drengi, þau bjuggu þeim fallegt heimili þar sem öryggi og reglu- semi var í fyrirrúmi. Afkomend- ur þeirra í dag eru 90 talsins, börn, barnabörn og barnabarna- börn. Það besta í lífi hverrar fjöl- skyldu er barnalán, það hlotnað- ist þeim svo sannarlega, allt dug- miklir vel gerðir einstaklingar til hugar og handa og hafa erft gen foreldranna sem voru þeim mikl- ar og sterkar fyrirmyndir. Einhverjum varð að orði: „Þegar maður kemur til Tálkna- fjarðar þá er það jafnvíst að Magnús í Tungu er í appelsínu- gulum gúmmíbuxunum inn með firði að stússa í silungseldinu rétt eins og Tungufellið stendur fyrir ofan bæinn.“ Þeir sem til þekkja vita að í þessum orðum felst sannleikur. Þegar árin líða sverfur að og þegar á leið gaf líkami Magnúsar eftir, enda vinnuævi hans orðin löng og ströng en hugurinn skýr fram á síðustu stundu. Það er ákveðin fegurð falin í því að kveðja lífið eftir að hafa átt viðburðaríka og farsæla ævi, komið afkomendum sínum upp með stolti og lagt til samfélags- ins. Ég kveð þig, kæri tengdafaðir minn, ég mun minnast þín með virðingu og þökk. Ingibjörg Inga. Þó að leiðin virðist vönd vertu aldrei hryggur; það er eins og hulin hönd hjálpi er mest á liggur. (Jón S. Bergmann) Munda átti einu sinni sem oft- ar leið um Miðfjörð, í þetta skipti á covid-tímum, á leið sinni úr sælunni á Norðurlandi þar sem hún dvaldi oft hjá fjölskyldu sinni. Hún ákvað að stoppa frek- ar úti í náttúrunni í stað þess að stoppa á mannmörgum stað í þjóðvegasjoppu. Þar var minnis- varði um Jón S. Bergmann skáld og á hann letraðar nokkrar vísur eftir hann. Þær hittu Mundu beint í hjartastað og gáfu henni styrk í baráttunni. Það var oft eins og hulin hönd hjálpaði Mundu þegar mest á lá í lífi hennar. Hún líkti baráttu sinni við krabbameinið við fjallgöngu enda vön útivist og naut sín hvað best á skíðum hér heima og er- lendis og eins í gönguferðum í stærri eða smærri hópum og oft ein á ferð. Hún sótti kraft í nátt- úruna og hreyfinguna. Munda var mögnuð kona, sterkleg, kraftmikil, rauðhærð og fylgin sér, það gustaði oft af henni. Hún hafði skoðanir á flestu, yfirsýn og yfirgripsmikla þekkingu sem nýttust vel í störf- um hennar sem sjúkraþjálfari á stofu og hjá ÍSÍ, SKÍ og BLÍ. Reynsla hennar og innsæi nýttist mörgum sem og henni sjálfri. Hún var næm á fólk og aðstæður og margur á henni ýmislegt að þakka hvað varðar m.a. heilsu, menntun og andlegan og fé- lagslegan stuðning í lífinu. Hún ýtti fólki áfram, hvatti sitt fólk til dáða af ákveðni og festu. Munda var eftirsóttur félagi og fagmað- ur í sínu stóra baklandi. Mundína Ásdís Kristinsdóttir ✝ Mundína Ásdís Kristinsdóttir fæddist 30. nóv- ember 1972. Hún lést 31. október 2022. Útför hennar fór fram 7. nóvember 2022. Leiðir okkar Mundu lágu saman í um 25 ár. Fyrstu kynni urðu á Reykjalundi, þar sem við störfuðum saman í um 10 ár. Hún lét fljótt að sér kveða á Lundinum. Var snögg að átta sig á hlutum, ávann sér virðingu og efldi sitt tengslanet á öll- um vígstöðvum vinnustaðarins og víðar. Var ein af þremur svo- kölluðum Rassblómum sem skip- uðu undirbúningsnefnd fyrir haustgöngur sem hafa staðið yfir í hartnær 20 ár. Munda fór í þær allar, þá síðustu í byrjun sept- ember 2019 á Ströndum norður. Hún ætlaði að taka á móti hópn- um um miðjan ágúst sl. á Kleif- umí Ólafsfirði, ættaróðali fjöl- skyldu sinnar, en heilsan leyfði það ekki. Tilfinningaþrungin ganga fyrir mörg okkar, ekki síst þegar við komum niður úr Rauð- skörðum og þaðan niður að Kleif- um. Það var svo magnað hvað henni entist þrekið eftir tæpa þriggja ára krefjandi lyfjameð- ferð eftir að krabbinn tók sig upp aftur í nóvember 2019. Baráttu- gleðin, húmorinn og þrautseigjan verða í minnum höfð. Hún naut sín vel í Ljósinu þar sem hún eignaðist góða vini. „Lífið er núna“ var mantran hennar. Munda mætti örlögum sínum af auðmýkt og æðruleysi. Blak- félagar minntust hennar sl. mið- vikudag með einnar mínútu þögn í upphafi leiks Aftureldingar og KA, liðanna hennar Mundu. Stund sem gleymist seint. Ég votta fjölskyldu Mundu innilega samúð, missir ykkar er mikill. Sömuleiðis Herdísi bestu vinkonu Mundu, sem stóð þétt við bakið á henni. Okkar kona verður væntanlega fljót að koma sér upp tengslaneti, skíða- og fjallgönguhópi, prjónaklúbbi, já og blakneti – jafnvel silunganeti – í Sumarlandinu ef ég þekki hana rétt. Kristín B. Reynisdóttir. Fallinn er nú frá vinnufélagi okkar og vinur Sigur- steinn Jósefsson. Við minnumst Sig- ursteins eða Steina okkar með sorg í hjarta en þó einnig með mikilli gleði því stundirnar sem við áttum með honum í og utan vinnu voru undantekningalaust Sigursteinn Jósefsson ✝ Sigursteinn Jósefsson fæddist 11. apríl 1946. Hann lést 30. september 2022. Útförin fór fram 12. október 2022. skemmtilegar. Sig- ursteinn hafði þjónustulund sem er sjaldséð í versl- unarbransanum þessa dagana. Ef menn voru í ein- hverjum vandræð- um eða í skítamixi eins og oft kom fyrir, þá var Steini oftast með ein- hverja lausn í huga. Ef hann gat ekki reddað málunum á staðnum þá var hann ekki lengi að hringja út um allan bæ og jafnvel allt land til að leita lausna á vanda- málinu. Sigursteinn virtist þekkja alla sem komu inn í búð- ina og ef hann þekkti þá ekki, þá þekkti hann þá allavega eftir afgreiðsluna því hann spurði menn oftast spjörunum úr og leitaði sameiginlegra tenginga sem hann fann oftast. Mikið var líka spurt um hann af viðskipta- vinum sem vildu gramsa í hans fróðleiksbrunni, fá góðar sögur eða bara láta skamma sig. Sig- ursteinn gat nefnilega verið hvass ef honum fannst lausn vandamálsins liggja í augum uppi og gat sagt: „Notaðu höf- uðið drengur.“ Aldrei var það þó illa meint og oftast fylgdi á eftir: „Ekki láta mig skamma þig.“ Oftast enduðu þessar af- greiðslur í hlátrasköllum og menn komu fljótt aftur til að láta Steina skamma sig. Sigursteinn var alltaf góður við nýja starfsmenn og leið- beindi þeim með mikilli þolin- mæði og jós yfir þá úr sínum viskubrunni eins og hann gat. Hann stóð líka þétt við bakið á þeim þegar þeir áttu í einhverj- um vandræðum í afgreiðslunni og róaði óþolinmóða viðskipta- vini með því að minna þá á að þeir hefðu nú einu sinni verið byrjendur líka. Eitt sinn kom hann að einum sem hafði nýver- ið hafið störf hjá Barka og leið- beindi honum við eitthvert verkið. Þegar sá nýi var kom- inn á rétta braut sagði Sig- ursteinn: „Þú ert góður dreng- ur.“ Sá nýi varð heldur uppi með sér við þessi orð en þá bætti Steini við: „En það eru margir betri en þú.“ Steina var annt um okkur sem með honum unnum. Eftir að hann hætti lét hann sig aldrei vanta í fimmtu- dagskaffi þar sem hann hitti gömlu félagana hvort sem það voru fyrrverandi starfsmenn eða viðskiptavinir. Þess á milli hringdi hann oft til að athuga hvernig gengi með hitt og þetta bara til þess að spjalla. Hann var alltaf með skemmtilegar sögur um hinn og þennan og ef maður þekkti ekki viðkomandi þá kom oftast: „Jú jú, þú þekkir hann.“ Í einhverri sögustund- inni á kaffistofunni hóf Steini mál sitt á orðunum: „Ef ég dey …“ Þetta þótti okkur vinnu- félögum hans afar skemmtilegt og ræddum við oft um þessa ódauðleikaspá hans og erum sannfærðari nú en áður um að hann hafi haft rétt fyrir sér. Því þó að Steini hafi kvatt okk- ar jarðlíf þá mun hann lifa með- al okkar í sögunum, setning- unum og stundunum sem við áttum með honum og alltaf er hlegið og brosað þegar hann ber á góma. Við þökkum fyrir þann tíma sem við þó fengum að njóta með Sigursteini og sendum fjöl- skyldu hans og vinum okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Með þökk og söknuði, Fyrir hönd samstarfsfólks í Barka, Kristinn Valdemarsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SVEINBJARNARDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 29. október. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 16. nóvember klukkan 13. Soffía Árnadóttir Sigurður K. Karlsson Árni Kjartansson Þór Sigurðsson María Sigurðardóttir Kjartan Hrafn Kjartansson Ómar K. Sigurðsson Svanhvít Arnardóttir barnabarnabörn STEINAR HALLGRÍMSSON, Álfhólsvegi 19, Kópavogi, lést á heimili sínu 5. nóvember síðastliðinn. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 22. nóvember kl. 13.00. Guðbjörg Steinarsdóttir og fjölskylda Reynir Steinarsson og fjölskylda Valdís Steinarsdóttir og fjölskylda og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.