Morgunblaðið - 14.11.2022, Side 22
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Jafnvægisæfingar: Erum byrjuð að taka við
skráningum fyrir næsta námskeið sem hefst 21.11 - skráning í síma
4112701. Byrjum daginn á opnri vinnustofu - 10:30 er það svo Kraftur í
KR - 13:00 Félagsvist - hér vantar okkur leikmenn svo endilega komið
og prófið félagsvist á mánudögum - 13:15 Skák með leiðbeinanda -
opið öllum
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Boccia kl. 10. Heilsuda-
gar hefjast - Einfaldur æfingar kl. 11. Handavinna kl. 12.30-16.
Félagsvist kl. 12:45. Glervinnustofa kl. 13 - 16. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Boðinn Bingó kl. 13:00. Myndlist kl. 13:00. Sundlaugin opin til
kl. 16:00.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00.
Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9:45-10:00. Ganga kl. 10:00.
Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13:00-13:10.
Félagsvist kl. 13.Tálgað með Valdóri kl. 12:30-15:30.
Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30.
Garðabær 9.00 Pool-hópur í Jónshúsi 10.00 Ganga frá Jónshúsi
11.00 Stólajóga í Kirkjuhv. 12.30-15.40 Bridds-tvímenningur 12.40
Bónusrúta frá Jónsh. 13.00 Gönguhópur frá Smiðju 13.00-16.00
Glernámskeið í Smiðju 13.45-15.15 Kaffiveitingar í Jónsh. 15.00 /
15.40 / 16.20 Vatnsleikf. í Sjálandssk. 16.30 Zumba Gold í Kirkjuhv.
Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 15. nóvember verður opið hús fyrir
eldri borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsíð er kl. 13-15. Margt er til
gamans gert: Spilað og sungið. Að opna húsinu loknu er kaffi og
meðlæti. Umsjón hefur Kristín Kristjánsdóttir djákni. Kyrrðarstund er
kl. 12. Að kyrrðarstund lokinni eru léttar veitingar gegn vægu gjaldi.
Hraunsel Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9:00. Stóla yoga kl.
10. Félagsvist kl. 13:00. Gaflarakórinn: Kl. 11:00.
Korpúlfar Borgum Hugleiðsla og létt yoga kl. 8:30. Postulínsmálun
kl. 9:00. Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir styrkleika-
flokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10:00. Harmonikkuball
með afa og ömmu kl. 10:00. Dansleikfimi Auðar Hörpu kl. 11:00.
Félagsvist í Borgum kl. 12:30. Prjónað til góðs kl.13:00.Tréútskurður á
Korpúlfsstöðum kl. 13:00. Kóræfing Korpusystkina kl. 16:00.
Samfélagshúsið Vitatorgi Kaffispjall í setustofu 09:00-10:00 -
Gönguhópur 09:30 - 10:30 - Opin handverksstofa 09:00-12:00 -
Leirmótun í smiðju kl: 09:00-13:00 - Bókabíllinn Höfðingingi verður á
svæðinu frá kl: 13:10-13:30- Boccia í setustofu kl: 13:15-14:00 - Opin
handverksstofa kl: 13:00-15:00 & síðan er síðdegiskaffi frá kl.14:30-
15:30 - Allar nánari upplýsingar í síma 411-9450 -
Allir hjartanlega velkomnir til okkar.
Seltjarnarnes Skólabraut: Kaffikrókur frá kl. 9. Leir kl. 9. Jóga/leik-
fimi kl. 11. Handavinna, samvera og kaffi kl. 13. Billjard í Selinu kl. 10.
Leir á neðri hæð félagsh. kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 18.30. Minnum á
ferðina í Hafnarfjörð á morgun þriðjudag. Farið frá Skólabraut kl.
11.15 með viðkomu við kirkjuna og Eiðismýri. Enn eru einhver sæti
laus. Á morgun mætum í púttið á Austurströnd kl. 10.15.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
2022 ónotaður Jeep Wrangler
Rubicon 4XE Bensín / Rafmagn
Allur fáanlegur búnaður svo sem
leður sæti og fleira. Evrópubílar í
ábyrgð til afhendingar strax. Þessi
er með samlitu húsi og brettaköntum
og svona “Army” lúkki.
Okkar verð: 11.940.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 10–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
fyrir veturinn og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Sími 555 1947
Gsm 894 0217
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
- Meðmorgunkaffinu
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022
Ég kynntist Sig-
urði Halli fyrst að
marki þegar við urð-
um samstarfsmenn í
hópi 21 dómara við
Héraðsdóm Reykjavík seint á síð-
ustu öld, en dómstóllinn var stofn-
aður um mitt ár 1992. Ég hafði að
vísu haft svolítil kynni af Sigurði
þegar ég var kúrsusnemi við
embætti sýslumannsins í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu. Mér
fannst Sigurður ætíð vera lipur
og léttur í umgengni og oft með
spaugsyrði á vör. Það kom fljót-
lega í ljós að Sigurður var mús-
íkmaður, píanisti og þrælvanur
karlakórssöng. Hann kom á lagg-
irnar blönduðum sönghópi innan
dómstólsins sem varð þó ekki
ýkja stór. Þegar flest var sungu
18 manns, og má það samt gott
telja því að starfsmennirnir voru
ekki nema fimmtíu. Á móti kom
að í hópnum voru ýmsir góðir
söngmenn og sumir þeirra höfðu
eitthvað lært til söngs. Sigurður
var óþreytandi að efna til söng-
æfinga og þjálfa raddir og voru
æfingarnar yfirleitt í hádegis-
hléinu, nema eitthvað stæði sér-
Sigurður Hallur
Stefánsson
✝
Sigurður Hall-
ur Stefánsson
fæddist 29. apríl
1940. Hann lést 22.
október 2022. Útför
hans fór fram 11.
nóvember 2022.
staklega til, þá varð
að taka sérstaka
tíma til æfinga. Kór-
inn, eins og hann var
yfirleitt kallaður,
stundum þó Dóm-
húskórinn, söng að-
allega fyrir annað
starfsfólk dómstóls-
ins, á hátíðum s.s.
jólum og páskum,
svo og á árshátíðum
og í afmælum. Mig
minnir þó að kórinn syngi nokkr-
um sinnum utan dómhússins,
a.m.k. söng hann tvisvar fyrir
hæstaréttardómarana til þess að
létta þeim lundina í aðdraganda
jóla. Mér finnst þó líklegt að
mesta ánægju af söngnum hafi
söngfólkið sjálft haft og er allt
gott um það að segja. Nokkrum
árum seinna réðst til starfa á
dómstólnum starfsmaður sem var
lærður kirkjuorganisti og þótti
Sigurði þá sjálfgefið að fela henni
stjórn á kórnum. Sjálfur hélt
hann áfram að syngja, ýmist ten-
ór eða bassa eftir því sem þörf var
á.
Í hádegishléum var það svo að
margir starfsmannanna borðuðu
hádegisverð í kaffistofu dómstóls-
ins. Þá var hlustað á fréttir í út-
varpinu og sérstaklega var beðið
eftir síðasta lagi fyrir fréttir.
Ástæðan var sú að nokkrir dóm-
aranna gerðu sér það til gamans
að giska á hver hefði samið lagið
og textann, hver flytti það og hver
væri undirleikarinn, væri honum
til að dreifa. Sigurður var manna
drýgstur við þessa iðju.
Eftir að Sigurður lét af störf-
um sem dómari var gefin út bók
hans Lífsblóm árið 2019 þar sem
birt eru ljóð og ljóðaþýðingar í
bundnu máli eftir Sigurð auk
annars efnis. Er þar svo margt
góðra ljóða að Sigurður á fullan
rétt á því að mínum dómi að telj-
ast til ljóðskálda, þótt hann sjálf-
ur hafi örugglega ekki gert neina
kröfu til þess. Þessari iðju sinni
flíkaði hann aldrei svo ég heyrði
til, en þó hafði einhverju sinni
komið í ljós að hann væri ágæt-
lega rímfær.
Nú hefur þessi fjölhæfi góði
drengur kvatt okkur fyrir fullt og
fast. Megi það sem hans kann að
bíða verða honum til gleði og
ánægju og víst er ef einhverja er
að finna á hinum nýja stað að Sig-
urður getur látið þeim hið sama í
té.
Ég vil að endingu tjá Ingu
Maríu eiginkonu Sigurðar og allri
fjölskyldu hans innilega samúð
við fráfall Sigurðar og ég veit að
sama máli gegnir um þá er Sig-
urði voru samtíða í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Friðgeir Björnsson.
Kveðja frá Rótarýklúbbi
Hafnarfjarðar
Sigurður Hallur Stefánsson
gekk upphaflega í Rótarýklúbb
Hafnarfjarðar hinn 3. júní 1971.
Hann hætti tímabundið í júlí 1979
þar sem hann sinnti annasömu
starfi sem dómari og gat því ekki
sinnt skyldum sínum fyrir klúbb-
inn eins og hann vildi á meðan.
Sigurður Hallur gekk aftur í
klúbbinn í október 2019 þegar
hann hafði lokið farsælum dóm-
araferli sínum og sinnti starfinu
vel og af alúð frá þeim tíma. Þrátt
fyrir langa fjarveru var rótarý-
hugsjónin honum mikilvæg.
Segja má að kjarninn í þeirri hug-
sjón komi skýrast fram í fjórpróf-
inu svokallaða sem farið er með á
hverjum fundi í klúbbnum.
Er það satt og rétt?
Er það drengilegt?
Eykur það velvild og vinarhug?
Er það öllum til góðs?
Sigurður Hallur var auk þess
af miklum rótarýættum. Hann
var sonur Stefáns Jónsonar sem
var einn af stofnfélögum Rótarý-
klúbbs Hafnarfjarðar. Þá eru
bæði bróðir hans, Jón Gunnar, og
Gunnar mágur hans félagar.
Söngur hefur alltaf verið mikil-
vægur í klúbbnum okkar og hefj-
ast allir fundir á söng. Það átti vel
við Sigurð Hall enda var hann
söngmaður mikill og einnig góður
píanóleikari. Honum var margt
fleira til lista lagt og byrjaði að
yrkja snemma á lífsleiðinni og gaf
m.a. út bók fyrir nokkrum árum
með ljóðum og kjarnyrðum.
Við félagar í Rótarýklúbbi
Hafnarfjarðar kveðjum í dag góð-
an félaga okkar og vin og minn-
umst hans með hlýhug.
Við sendum eiginkonu hans,
Ingu Maríu Eyjólfsdóttur, fjöl-
skyldunni og öllum aðstandend-
um okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Kolbrún Benediktsdóttir,
forseti Rótarýklúbbs
Hafnarfjarðar.
Borinn er til
grafar föðurbróðir
minn og heiðurs-
maðurinn Gunnar
Larsson eftir snörp
veikindi. Ég fyllist þakklæti ofar
trega yfir því að hafa átt þess
kost að kynnast Gunnari. Um tíu
ár skildu okkur að og aðstæður
höguðu því að við bjuggum undir
sama þaki um tíma. Gunnar ólst
upp í Laugarnesinu við gott at-
Gunnar Larsson
✝
Gunnar Lars-
son fæddist 27.
desember 1953.
Hann lést 23. októ-
ber 2022.
Útförin fór fram
2. nóvember 2022.
læti og gekk þar í
skóla en þótti sér-
sinna og einkar við-
kvæmur og fljót-
lega fór að bera á
breytu í fari hans
sem skólakerfið réð
ekki við enda öll
umgjörð í þá daga
byggð á litbrigðum
sauðkindarinnar.
Skólaganga
Gunnars varð ekki
löng en hann sýndi snemma af
sér sérgáfur, einkum í öllu er
viðkom rafmagni og því er krafð-
ist nákvæmni. Ungur fór hann
að gera við og skrúfa sundur raf-
tæki og setja saman á ný og
fljótlega farinn að vinna fyrir sér
á verkstæði Pósts og síma.
Gunnar stríddi við röskun eða
með orðum rómverska skáldsins
Ovids úr Umbreytingunni, Puer
aeternus. Um ástæðu þess að
hann tók ekki hið hefðbundna
skref úr bernsku er ekki mitt að
meta enda viðsjárverður heimur
og ofurviðkvæmni erfið byrði.
Með hjarta barnsins vann
Gunnar sér sannarlega stóran
sess hjá okkur sem yngri vorum
enda bjó hann yfir miklum
mannkostum. Gunnar kvartaði
ekki yfir skertum hlut eða yfir
einhverju sem ekki varð heldur
sat sáttur með sinn dísæta kaffi-
bolla. Um miðjan aldur fór hann
þó að finna fyrir líkamlegri van-
líðan, hvarf af vinnumarkaði og
við tók margra ára leit að meini
sem aldrei fannst heldur þróað-
ist í óvirkni og hann dró sig að
mestu til hlés. Hann fann sér
skjól í endurtekningunni og regl-
unni en einangrunin varð þó ekki
alger því Gunnar var radíóama-
tör og ósjaldan mátti heyra hann
á tali við aðra er staddir voru
hinum megin á kringlunni. Við
fráfall ömmu og afa og erfiðleika
við aðlögun í nýju umhverfi
dvaldi Gunnar síðast á Fellsenda
í Dalasýslu og vissi maður hvað
tímanum leið er hann hringdi
þaðan og ávallt á sama tíma.
Gunnar ræddi aldrei tilfinningar,
spurði frekar frétta af ættingj-
um og var það skynjun mín að
honum liði vel.
Gunnar var mikill húmoristi
og hneigðist skopskyn hans að-
eins á ská og náðum við vel sam-
an þar og unaður að heyra ein-
stakan hlátur hans. Hann var
líka með eindæmum hrifnæmur
og átti uppáhaldskvikmyndir og
herbergi hans minnti einna helst
á mjólkurbarinn í Clockwork
Orange og bar vott um næmt
auga þar sem unnið var með
hvert smáatriði og ekki laust við
fullkomnunaráráttu. Var það
litaval og stílbrigði sjötta áratug-
arins sem heillaði og þar stóð
tíminn í stað.
Hann var afar tónelskur og
fjarrænir draumkenndir tónar í
uppáhaldi og kannski Mike Old-
field, Tubular Bells, hafi fengið
hvað mesta spilun. Gunnar var
eftirminnilegur öllum og oft var
ég spurður frétta af honum og
þá gjarnan rifjaðar upp sögur en
sú að Gunnar hafi búið til út-
varpstæki úr vindlakassa, gam-
alli rafmagnsrakvél, gúmmí-
teygju, hárnælum og einhverju
fleiru og hlustað á lög unga
fólksins er því miður aðeins færð
í stílinn því mér vitanlega náði
hann aðeins Radio Luxembourg
á það viðtæki.
Ég kveð þig minn ástkæri
frændi, takk fyrir allt Gunni.
Lars Emil Árnason.
Elsku besta fal-
lega Bryndís mín.
Ég vildi óska
þess að ég hefði
fengið að verja
fleiri stundum með
þér og að ég hefði haft tækifæri
til að vera oftar til staðar fyrir
þig.
Ég sakna þín meira en orð fá
Þóra Bryndís
Þórisdóttir
✝
Þóra Bryndís
Þórisdóttir 17.
apríl 1971. Hún lést
9. október 2022. Út-
för hennar fór fram
21. október 2022.
lýst og hjarta mitt
er svo brotið og ég
er svo ólýsanlega
sorgmædd yfir því
að þú sért farin frá
okkur, en á sama
tíma er ég alveg
óendanlega þakklát
fyrir okkar fallegu
djúpu vinkonu-
tengsl sem við átt-
um og eru mér svo
endalaust dýrmæt.
Við tókumst saman á við
marga mjög erfiða hluti og
hjálpuðumst að við að halda
áfram með lífið þrátt fyrir allan
sársaukann sem bjó í sálinni.
Ég upplifði svo sterkt að við
skildum hvor aðra svo vel án
þess að þurfa að útskýra hlut-
ina hvor fyrir annarri.
Ég er svo þakklát fyrir allar
fallegu minningarnar og stund-
irnar sem við áttum saman. Við
vorum alltaf að bralla eitthvað,
fórum í útilegur, gönguferðir,
sungum og dönsuðum, fórum á
teikninámskeið og svo í
skemmtilegu stelpuferðirnar
með dætrum mínum þar sem þú
keyptir þér meðal annars dopp-
ótta ferðatösku sem við allar
hlógum endalaust að. Þá má
ekki gleyma kósí útileguferð-
inni þegar við keyrðum Katrínu
mína í skólann til Akureyrar
sem var alveg einstök. Eins eru
jólin og áramótin sem við eydd-
um saman mér mjög svo kær.
Þú varst alltaf tilbúin að gera
allt fyrir alla aðra, til að mynda
komst þú með mér á spítalann
og varst stuðningur við mig
þegar ég þurfti mest á að halda
og ég vildi óska að ég hefði ver-
ið með þér daginn/dagana sem
þú þurftir mest á hjálp að
halda.
Ég kveiki á kerti og hugsa til
þín alla daga með þakklæti í
hjartanu fyrir þig og fallega
Sindra þinn og smá minn finnst
eins og hann sé líka strákurinn
minn.
Ég er harðákveðin í að lifa
mínu lífi á eins fallegan hátt og
ég get og búa til minningar með
mínu fólki til að heiðra þig og
þitt líf.
Ég elska þig elsku besta vin-
kona mín og ég sendi þér enda-
laus knús og kossa.
Þín vinkona,
Birna Hrönn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar