Morgunblaðið - 14.11.2022, Síða 24
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022
DÆGRADVÖL24
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Frækex
frábært í veisluna
Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur í Seltjarnarneskirkju – 60 ára
Safnaðarstarfið er gefandi
B
jarni Þór Bjarnason
fæddist í Reykjavík 14.
nóvember árið 1962 og
ólst upp í Hlíðunum. „Ég
fór snemma að vinna,
seldi merki og bar út Tímann til
þekktra Íslendinga eins og Þorvaldar
í Síld og fisk og Hannibals Valdimars-
sonar. Ég seldi Vikuna á sumrin og
bónaði líka bíla. Ég hafði gaman af
bókum. Ég man hvað mér fannst hinn
árlegi bókamarkaður vera spennandi,
algjör ævintýraheimur. Bókabíllinn
kom á þessum árum í Stakkahlíðina
á miðvikudögum. Þangað fór ég að
sækja bækur og stóð í röð við staur-
inn á meðan beðið var eftir bílnum.“
Bjarni vann á sumrin frá 14 ára
aldri og sumarið sem hann var 16 ára
vann hann í byggingavinnu norður í
landi. „Ég þénaði vel um sumarið og
keypti mér nýjan Trabant og fékk
bílprófið fjórummánuðum síðar.
Hann var sex volta og hafði engan
bensínmæli. Ég sinnti alls konar
sumarvinnu á þessum árum og bar
út jólapóstinn, en í þá daga voru
jólakortin geysilega mörg.“
Bjarni gekk í Hlíðaskóla, fór í
MH og varð stúdent vorið 1982 af
fornmálabraut. „Ég lærði þar meðal
annars latínu í þrjá vetur hjá Teiti
Benediktssyni. Grískutíma sótti
ég í MR og lauk þaðan prófum.
Um haustið 1982 hóf ég nám við
guðfræðideild Háskóla Íslands og
lauk embættisprófi (Cand. theol.)
fimm árum síðar, eða vorið 1987.
Lokaritgerðin mín var í kirkjusögu
og fjallaði um sr. Jón Steingrímsson
og móðuharðindin.“
Eftir að Bjarni lauk námi var hr-
ingt í hann frá tveimur stöðum utan
af landi og hann beðinn að koma til
að þjóna sem prestur. „Mér fannst
ég ekki vera tilbúinn til þess, 24 ára
gamall. Ég fór að kenna um haustið
í Foldaskóla þar sem ég varð
umsjónarkennari 7. bekkjar. Eftir
hádegið kenndi ég í FB. Ég kenndi
þar íslensku og tjáningu næstu árin,
bæði í dagskóla og kvöldskóla. Ég
starfaði líka í Félagsmiðstöðinni
Tónabæ árið 1988 en þá var skatt-
laust ár. Á sumrin var ég verkstjóri
hjá Vinnuskólanum í Heiðmörk
og við Elliðavatn. Árið 1989 fór ég
í nám með vinnu, í uppeldis- og
kennslufræði til kennsluréttinda við
Kennaraháskóla Íslands. Ég útskrif-
aðist vorið 1991 og skrifaði lokarit-
gerð um kennslu í stafsetningu.“
Hinn 12. maí 1991 var Bjarni vígð-
ur til héraðsprestsþjónustu í Kjal-
arnessprófastsdæmi. „Ég starfaði
sem héraðsprestur næstu árin og
hafði aðstöðu á skrifstofu prófasts
í Garðabæ. Sem slíkur átti ég að
aðstoða prófastinn, sinna sérverk-
efnum og afleysingarþjónustu. Ég
var önnum kafinn á þessum tíma,
sá um æskulýðsfélagið í Garðabæ
ásamt fleirum og sunnudagaskól-
ann í Vogum á Vatnsleysuströnd
og sinnti prestsþjónustu á Vífils-
staðaspítala og kenndi kristinfræði
í afleysingum í Garðaskóla og var
ritari á fundum héraðsnefndar
prófastsdæmisins. Ég fór fimm til
sjö sinnum á ári til Vestmannaeyja
til þess að leysa af prestana um sex
ára skeið. Þá var ég líka trúnað-
armaður fatlaðra í Reykjanes-
umdæmi. Um svipað leyti var ég
forseti félagsins Ísland-Ungverja-
land og fór til Debrecen í Ungverja-
landi í sumarháskóla 1993 til að
læra ungversku enda hef ég alltaf
haft áhuga á tungumálum.“
Vorið 1997 varð Bjarni prestur í
Garðabæ, á Álftanesi og í Vogum
á Vatnsleysuströnd og gegndi því
starfi uns hann fór til Englands til
að þjóna í ensku biskupakirkjunni í
bænum Scunthorpe næstu þrjú árin
og starfaði þar með fjórum öðrum
prestum. „Það var mögulegt vegna
sérstaks samnings sem þjóðkirkjan
hefur gert við ensku biskupakirkj-
una og er kenndur við finnsku
borgina Porvoo.
Bjarni kom heim árið 2001 og
varð prestur í Grafarvogskirkju.
„Ég sinnti því starfi næstu tíu árin.
Auk þess fór ég að standa fyrir
mánaðarlegum enskum messum
í Hallgrímskirkju. Og það geri ég
enn, 21 ári síðar. Ég undirbjó og
skipulagði minningarstund um
Elísabetu drottningu 18. septem-
ber síðastliðinn. Í gær var ég í
Fossvogskirkjugarði og leiddi þar
minnngarstund um látna hermenn
sem ég hef gert árum saman.
Ég hef lengi verið prestur ensku
biskupakirkjunnar á Íslandi vegna
fyrrnefnds samnings.“
Frá árinu 2011 hefur Bjarni
verið sóknarprestur í Seltjarnarnes-
prestakalli. „Þar er gott að vera og
sóknanefndin áhugasöm ummálefni
kirkju og kristni. Safnaðarstarfið er
fjölbreytt og gefandi. Mætti þar nefna
karlakaffi sem er tvisvar sinnum í
viku. Þangað koma karlar sem eru
67 ára og eldri, fá sér kaffi og spjalla.
Einnig erum við með fræðslumorgna
á undan guðsþjónustum aukmargs
konar annars starfs.
Mér þykir vænt um þjóðkirkjuna.
Ég hef setið í ýmsum nefndum
innan hennar á liðnum áratugum.
Nú sit ég í héraðsnefnd Reykja-
víkurprófastsdæmis vestra og
ellimálanefnd þjóðkirkjunnar og er
varamaður á kirkjuþingi.
Bjarni fór að stunda nám með
vinnu árið 2007. Hann lauk diplómu
í öldrunarfélagsráðgjöf við HÍ,
MSc-prófi í mannauðsstjórnun frá
viðskiptafræðideild HÍ og einnig
diplómu í atvinnulífsfræði frá
félags- og mannvísindadeild HÍ. „Ég
lærði líka markþjálfun eftir að hafa
skrifað meistararitgerð í viðskipta-
fræðideildinni sem var tilviksrann-
sókn á notkun markþjálfunar hjá
Skiptum ehf.“
Frá fermingu hefur Bjarni haft
áhuga á ljósmyndun, en þá eignaðist
hann fyrstu myndavélina. „Tómas
Í Kjós Eiginkonan María og dæturnar Nína Björg,
Guðný Lára og Guðrún María við Þórufoss í Laxá í Kjós.
Sóknarpresturinn Bjarni í safnaðarheimili Seltjarnar-
neskirkju með styttu af Lúther í baksýn.
Til hamingju með daginn
Stjörnuspá
Jóhannes Helgason
50 ÁRA Jóhannes ólst upp að mestu á
Akranesi og býr þar. Hann er með B.Sc.-
gráðu í líffræði, M.Sc. í heilbrigðisvísind-
um og með MBA, allt frá frá HÍ. Hann
er sérfræðingur hjá lyfjafyrirtækinu
Coripharma. Hann er í stjórn Akidofélags
Reykjavíkur og var í mörg ár í stjórn og
formaður Körfuknattleiksfélags ÍA.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Jóhannesar er
Sigríður Helga Gunnarsdóttir, f. 1973,
íþróttakennari í Brekkubæjarskóla. Synir
þeirra eru Gunnar, f. 2000, og Fjalar, f.
2005. Foreldrar Jóhannesar eru Guðrún
Jóhannesdóttir, f. 1952, fv. framhalds-
skólakennari, búsett í Reykjavík, og Helgi
Helgason, f. 1952, fv. grunnskólakennari,
búsettur í Kópavogi.
Nýr borgari
Hafnarfjörður Valgerður Rán
Jakobsdóttir fæddist 27. desem-
ber 2021 kl. 19.19. Hún vó 3.620
g og var 51 cm löng. Foreldrar
hennar eru Jakob Lárusson og
Ragnhildur Reynisdóttir.
21. mars - 19. apríl A
Hrútur Peningar eru yfirleitt ekki svar-
ið í þínu tilfelli. Reyndu að ná áttum í
ástamálunum.
20. apríl - 20. maí B
Naut Þú verður að standast allar
freistingar um að segja frá leyndarmáli.
Þolinmæði er dyggð sem gott er að
æfa.
21. maí - 20. júní C
Tvíburar Nú verður ekki lengur undan
því vikist að koma skikki á peningamál-
in. Þú átt nóg af öllu og þarft ekki að
kaupa þér neitt á næstunni.
21. júní - 22. júlí D
Krabbi Þú ert góð/ur í að hlusta á aðra
og vera öxlin sem vinir geta grátið við.
Njóttu þess að líta yfir vel heppnaðar
breytingar heima.
23. júlí - 22. ágúst E
Ljón Þér mun hugsanlega finnast
einhver í fjölskyldunni vera að reyna
að draga úr þér kjarkinn í dag. Láttu
allar óþarfa áhyggjur lönd og leið og
einbeittu þér að augnablikinu.
23. ágúst - 22. september F
Meyja Nú er þín stund komin því eftir
því er beðið að þú segir hug þinn og
fylkir fólki á bak við þig. Þú býrð við
barnalán.
23. september - 22. október G
Vog Farðu þér hægt þegar ný viðskipti
eru annars vegar. Veraldleg velgengi
er ágæt en andlegur auður er öðru
dýrmætari.
23. október - 21. nóvember H
Sporðdreki Þér finnst þú þurfa að gera
eitthvað en getur ekki nákvæmlega
fest fingur á hvað það er. Nýttu þér alla
afslætti sem bjóðast.
22. nóvember - 21. desember I
Bogmaður Forðastu að láta smámuni
valda þér áhyggjum heldur reyndu
að einbeita þér að þeim atriðum sem
skipta einhverju máli. Þú þarft að taka
ákvörðun í vissu máli fljótlega.
22. desember - 19. janúar J
Steingeit Þú ert á réttri leið en þarft
þó að vera ákveðin/n til að hlutirnir
gangi hraðar fyrir sig. Ekki láta með-
virknina hlaupa með þig í gönur.
20. janúar - 18. Febrúar K
Vatnsberi Það getur verið erfitt að
komast að niðurstöðu þegar málin eru
fjölbreytt og flókin. Svaraðu skilaboð-
um strax.
19. febrúar - 20. mars L
Fiskar Fjármálin eiga eftir að batna
verulega. Reyndu að lifa eins rólegu lífi
og þú getur.