Morgunblaðið - 14.11.2022, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022
Slæmur þriðji hring-
ur skemmdi fyrir
Slæmur þriðji hringur skemmdi
fyrir Guðmundi Ágústi Kristjáns-
syni á þriðja stigi úrtökumóts fyrir
Evrópumótaröðina í golfi í gær.
Hann hafði leikið fyrstu tvo hr-
ingina glimrandi vel og var á meðal
efstu manna.
Guðmundur lék annan hringinn á
laugardag á 64 höggum, sjö höggum
undir pari. Hann lék hins vegar
þriðja hringinn í gær á 73 höggum,
einu höggi yfir pari. Hann er í 17.
sæti ásamt nokkrum öðrum kylfing-
um, á átta höggum undir pari.
Bjarki Pétursson er úr leik í barátt-
unni um að fara á Evrópumótaröð-
ina, þar sem hann er á meðal neðstu
manna á 17 höggum yfir pari.
Alls verða leiknir sex hringir og
er skorið niður eftir fjóra. Kylfingar
keppa 36 holur á Lakes-vellinum
annars vegar og Hills-vellinum hins
vegar, á Infinitum-golfsvæðinu, sem
er skammt frá Tarragonga á Spáni.
Bjarki byrjaði á Lakes og Guðmund-
ur á Hills.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Pútt Guðmundur Ágúst Kristjánsson lék betur á fyrsta og öðrum hring en
hann gerði á þeim þriðja á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina á Spáni.
Noregur og Þórir
í góðummálum
Norska kvennalandsliðið í
handbolta, undir stjórn Þóris
Hergeirssonar, er í góðummálum
í milliriðli 1 á EM eftir 27:25-sigur
á Svíþjóð í Norðurlandaslag á
laugardaginn var. Staðan í hálf-
leik var 13:13, en norska liðið var
sterkara í seinni hálfleik.
Henny Reistad skoraði sjö mörk
fyrir Noreg og Vilde Instad gerði
sex. Með sigrinum fór Noregur
upp í sex stig í riðlinum, en Danir
eru einnig með sex stig, eftir að
hafa leikið einum leik meira. Tvö
efstu liðin fara í undanúrslit. Nor-
egur er ríkjandi Evrópumeistari,
eftir sigur á EM í Danmörku fyrir
tveimur árum. Noregur leikur
við Slóveníu klukkan 17 í dag og
tryggir sér sæti í undanúrslitum
með sigri.
Danmörk á ennmöguleika á að
fara í undanúrslit eftir sann-
færandi sigur á Króatíu, 26:17.
Kristina Jörgensen skoraði fimm
mörk fyrir danska liðið.
Frakkar með fullt hús
Frakkland er með fullt hús
stiga í milliriðli 2 eftir sannfær-
andi 27:19-sigur á Svartfjalla-
landi, en bæði lið höfðu unnið alla
sína leiki fyrir leik gærkvöldsins.
Með sigrinum fór Frakkland
langt með að tryggja sér sæti í
undanúrslitum. Pauletta Foppa
skoraði sex mörk fyrir Frakk-
land og Cléopatre Darleux varði
13 skot í markinu og var með 45
prósenta markvörslu.
Í hinum leik gærkvölds-
ins gerðu Spánn og Holland
29:29-jafntefli. Inger Smits og
Merel Freriks gerðu sex mörk
hvor fyrir Holland. Alexandrina
Barbosa og Paula Valdivia gerðu
fjögur hvor fyrir Spán.
Ljósmynd/EHF
Fagn Stine Oftedal skoraði fjögur
mörk fyrir Noreg gegn Svíþjóð.
Hamm í þýsku 1. deildinni í handbolta
í gærkvöldi. Viggó var markahæstur
allra á vellinummeð níu mörk og gerði
hann þau í níu skotum. Þá lagði hann
einnig upp fjögur mörk. Leipzig hefur
unnið báða leiki sína eftir að Rúnar
Sigtryggsson var ráðinn þjálfari
liðsins, eftir að hafa unnið einn af tíu
leikjum þar á undan.
Ýmir Örn Gíslason og félagar í
Rhein-Neckar Löwen eru áfram í öðru
sæti eftir 37:28-heimasigur á Lemgo.
Ýmir skoraði þrjú mörk í leiknum.
Nýliðar Gummersbach halda áfram að
safna stigum. Þeir gerðu 30:30-jafn-
tefli á útivelli gegn Bergischer.
Hákon Daði Styrmisson skoraði
fjögur mörk fyrir Gummersbach og
Elliði Snær Viðarsson eitt.Guðjón
Valur Sigurðsson
þjálfar liðið. Þá
skoraði Elvar Örn
Jónsson tvö mörk
og Arnar Freyr
Arnarsson eitt í
33:26-heimasigri
Melsungen á
Stuttgart.
Knattspyrnu-
þjálfarinn Freyr Alexandersson og
lærisveinar hans í danska úrvals-
deildarfélaginu Lyngby unnu loksins
sinn fyrsta deildarsigur á tímabilinu á
laugardag þegar liðið heimsótti Silke-
borg í Íslendingaslag. Leikurinn, sem
lauk með óvæntum 2:0-sigri Lyngby,
var hluti af sautjándu umferð deildar-
innar en það var orðið ljóst fyrir
leikinn að Lyngby myndi
í fallriðli deildarinnar þar
sex neðstu liðin berjast u
að halda sæti sínu í deild
Sævar Atli Magnússon lé
allan leikinn með Lyngby
Stefán Teitur Þórðarson
hjá Silkeborg. Lyngby er
sæti deildarinnar með át
en Silkeborg er með 24 s
sætinu. Þá skoraði Aron
fyrir Horsens í 3:3-jafnte
í Horsens. Hann lék allan
en Aron Elís Þrándarson
tímann á bekknum hjá O
Körfuknattleikskonan
bráðefnilega, Emma
Sóldís Svan Hjördísar-
dóttir, hefur samið
háskólalið
berty Flames,
sem leikur í
efstu deild
bandaríska
háskóla-
boltans.
Emma Sóldís
aðeins 18
gömul og
r undanfarna
uði leikið með
um eftir að
eikið með
í tvö tímabil
ndan, en
uppalin hjá
n var valin í
a A-landsliðið
a ári.
leika
sem
m
inni.
k
, líkt og
gerði
í neðsta
ta stig
tig í fjórða
Sigurðarson
fli gegn OB
leikinn,
var allan
B.
við
Li
er
ára
hefu
mán
Hauk
hafa l
Fjölni
þar á u
hún er
KR. Hú
íslensk
á síðast
Olísdeild karla
ÍBV – Grótta ............................................. 34:31
KA – FH .....................................................27:30
Hörður – Fram ......................................... 31:32
Selfoss – Stjarnan ...................................22:35
Staðan:
Valur 8 7 0 1 263:220 14
Fram 9 5 3 1 269:261 13
FH 9 5 2 2 258:255 12
Afturelding 8 5 1 2 232:213 11
Stjarnan 9 4 3 2 266:250 11
ÍBV 8 4 2 2 276:237 10
Selfoss 9 4 1 4 270:273 9
KA 9 2 2 5 252:267 6
Grótta 7 2 1 4 199:198 5
Haukar 7 2 1 4 196:197 5
ÍR 8 2 0 6 220:278 4
Hörður 9 0 0 9 262:314 0
Grill 66 deild karla
Kórdrengir – Valur U .............................29:38
Olísdeild kvenna
KA/Þór – Fram ........................................24:35
ÍBV – Selfoss ............................................32:27
HK – Valur ............................................... 20:28
Stjarnan – Haukar .................................. 36:31
Staðan:
Valur 6 6 0 0 175:131 12
Stjarnan 6 5 0 1 179:142 10
Fram 6 4 0 2 167:135 8
ÍBV 6 4 0 2 163:150 8
KA/Þór 6 2 0 4 144:167 4
Haukar 6 1 0 5 157:177 2
Selfoss 6 1 0 5 159:180 2
HK 6 1 0 5 131:193 2
Grill 66 deild kvenna
Fjölnir/Fylkir – FH ..................................29:22
Valur U – HK U ........................................20:23
Danmörk
Aalborg – Ribe-Esbjerg .......................29:28⚫Aron Pálmarsson var ekki í leikmannahópi
Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari
liðsins.⚫Elvar Ásgeirsson skoraði 4 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg en Arnar Birkir Hálfdánsson
ekkert. Ágúst Elí Björgvinsson varði 7 skot
í marki liðsins.
Bjerringbro/Silkeborg – Skjern .......32:25⚫Sveinn Jóhannsson skoraði 2 mörk fyrir
Skjern.
Fredericia – Kolding ............................28:25⚫Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði 1 mark
fyrir Fredericia. Guðmundur Þ. Guðmunds-
son þjálfar liðið.
GOG – Lemvig ........................................33:28⚫Daníel Freyr Ágústsson varði 9 skot í marki
Lemvig.
Frakkland
Nimes – Nantes ......................................29:32⚫Viktor Gísli Hallgrímsson varði 9 skot í
marki Nantes.
Noregur
Drammen – Kristiansund ..................35:26⚫Óskar Ólafsson skoraði 4 mörk fyrir
Drammen.
Elverum – Sandnes ..............................30:22⚫Orri Freyr Þorkelsson skoraði 3mörk fyrir
Elverum.
Kreuzlingen – Kadetten ......................28:30⚫Óðinn ÞórRíkharðsson skoraði 6mörk fyrir
Kadetten. Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar liðið.
St.Gallen – Amicitia Zürich ..............28:33⚫Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 3
mörk fyrir Amicitia.
1. deild karla
Fjölnir – Þór Ak. ......................................95:67
Staðan:
Álftanes 7 7 0 643:600 14
Sindri 8 6 2 733:645 12
Hamar 7 5 2 654:606 10
Selfoss 8 5 3 757:641 10
Hrunamenn 8 4 4 768:785 8
Ármann 7 4 3 640:622 8
Skallagrímur 8 3 5 730:707 6
ÍA 7 3 4 569:642 6
Fjölnir 8 1 7 682:735 2
Þór Ak. 8 0 8 575:768 0
Ítalía
Faenza – Virtus Bologna ....................65:79⚫Sara RúnHinriksdóttir skoraði 6 stig, tók 3
fráköst og gaf 2 stoðsendingar á 26mínútum
með Faenza.
Danmörk
Sisu – Falcon ..........................................56:63⚫Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði 7 stig, tók
2 fráköst og gaf 2 stoðsendingar fyrir Falcon
á 25 mínútum.
Belgía
Lummen – Namur .................................42:86⚫Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 2 stig,
tók 5 fráköst og gaf 2 stoðsendingar á 20mín-
útum hjá Namur.
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Ásvellir: Haukar – Valur ........................ 19.30
Skógarsel: ÍR – Afturelding .................. 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Álftanes: Álftanes – ÍA ............................ 19.15
ENSKI BOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Jólin verða rauð og hvít
lCitymissteig sig á heimavelli
lNewcastleætlar sér toppbaráttu
Arsenal náði á laugardag fimm
stiga forskoti á toppi ensku úrvals-
deildarinnar í fótbolta með 2:0-úti-
sigri á Wolves. Eftir markalausan
fyrri hálfleik sá norski fyrirliðinn
Martin Ødegaard um að gera bæði
mörk Arsenal í seinni hálfleik. Ljóst
er að Arsenal verður með fimm
stiga forskot til jóla hið minnsta,
þar sem hlé verður gert á deildinni
vegna HM í Katar, sem hefst eftir
tæpa viku.
Í 14 leikjum fyrir hléið hefur
Arsenal unnið tólf, gert eitt jafntefli
og tapað einum leik. Er árangurinn
hjá Mikel Arteta magnaður, eftir
fjölmörg ár þar sem Arsenal-liðið
hefur verið víðsfjarri því að berjast
um Englandsmeistaratitilinn.
Óvænt tap hjá City
Manchester City hefur fylgt
Arsenal eins og skugginn, nán-
ast allt tímabilið, en ríkjandi
Englandsmeistararnir töpuðu
gríðarlega óvænt á heimavelli fyrir
Brentford. Ivan Toney, sem var ekki
í landsliðshópi Gareths Southgates
fyrir HM, minnti heldur betur á sig,
því hann skoraði bæði mörk Brent-
ford. Seinna markið var dramatískt
sigurmark á áttundu mínútu upp-
bótartímans. City er gjörsamlega
óstöðvandi í flestum leikjum, en
hefur misstigið sig oftar en flestir
bjuggust við að yrði raunin. City
hefur m.a. gert jafntefli gegn Aston
Villa, tapað fyrir Liverpool, sem
á erfitt tímabil, og nú tapað fyrir
Brentford.
Fimm í röð hjá Newcastle
Góður árangur Newcastle hélt
áfram og er liðið nú í þriðja sæti,
aðeins tveimur stigum á eftir
Manchester City, eftir 1:0-heima-
sigur á Chelsea. Ekki er hægt að
segja að úrslitin hafi komið á óvart,
þrátt fyrir að Chelsea hafi verið
mun ofar en Newcastle í áraraðir.
Newcastle hefur spilað mun betur á
leiktíðinni og var sigurinn sá fimmti
í röð. Joe Willock gerði sigurmarkið
á 67. mínútu. Á meðan Newcastle
er á miklu flugi hefur Chelsea tapað
þremur leikjum í röð og fjórum af
síðustu fimm.
Manchester United vann nauman
2:1-útisigur á Fulham í gær. Hinn
18 ára gamli Argentínumaður Alej-
andro Garnacho skoraði sigurmark-
ið í uppbótartíma. United er því enn
fjórum stigum á undan Liverpool.
Nóvembergleði Liverpool
Nóvember hefur reynst Liverpool
afar góður mánuður, eftir erfiðleika
þar á undan. Lærisveinar Jürgens
Klopps hafa unnið alla fjóra leiki
sína í nóvember í þremur mismun-
andi keppnum. Liðið vann sann-
færandi 3:1-sigur á Southampton.
Roberto Firmino kom Liverpool á
bragðið og Darwin Núnez bætti við
öðru og þriðja markinu. Úrúgvæinn
hefur nú gert fimm mörk í deildinni,
í sjö byrjunarliðsleikjum.
Þá vann Tottenham 4:3-sigur á
Leeds í miklum markaleik. Rodrigo
Bentancur tryggði Tottenham
sigurinn með tveimur mörkum á
síðustu tíu mínútunum, eftir að
Leeds hafði komist yfir í þrígang.
NorskurNorðmaðurinnMartin Ødegaard sá til þess að Arsenal verður
með fimm stiga forskot í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um jólin
AFP