Morgunblaðið - 14.11.2022, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
Indie wire
RALPH
FIENNES
NICHOLAS
HOULT
ANYA
TAYLOR-JOY
Painstakingly Prepared.
Brilliantly Executed.
KOMIN Í BÍÓ - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA
USA TODAY ENTERTAINMENT
WEEKLY
EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post
KEMUR Í BÍÓ Á FÖSTUDAGINN
SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD
REPORTER
87%
89%
„Mér fannst ég vera í mjög góðum
hópi tilnefndra höfunda og því kom
það mér einlæglega á óvart þegar
nafn mitt sem sigurvegara var
lesið upp,“ segir Nora Dåsnes sem
fyrr í þessum mánuði hlaut Barna-
og unglingabókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 2022 þegar þau
voru afhent í 10. sinn í Tónlistar-
húsinu í Helsinki í tengslum við
74. þing Norðurlandaráðs. Dåsnes
var tilnefnd fyrir hönd Norðmanna
fyrir myndasöguna Ubesvart anrop
eða Ósvarað kall þar sem hún á
áhrifamikinn og blæbrigðaríkan hátt
fjallar um þau áhrif sem hryðju-
verkaárásin 22. júlí 2011 á Útey og
stjórnarhverfið í Ósló hafði á norsku
þjóðina, en þann dag týndu 77
einstaklingar lífi.
Ubesvart anrop er önnur mynda-
saga Dåsnes, sem nam við Kingston
University í London. Frumraun
hennar sem höfundar var mynda-
sagan Ti kniver i hjertet (Tíu hnífar í
hjartað) sem kom út 2020 og fjallar
um þrjár vinkonur í sjöunda bekk.
Fyrir þá bók hlaut Dåsnes bæði
Pondus-verðlaunin og verðlaun
norska menningarmálaráðuneytis-
ins fyrir bestu myndasögu ársins.
Skýr stíleinkenni
Í rökstuðningi dómnefndar um
Ubesvart anrop segir að Dåsnes
„hefur skrifað bók sem vekur áhuga
lesenda, hreyfir við þeim og hvetur
þá til að hugleiða pólitísk samfélags-
mál sem varða okkur öll, svo og
einstaklingsbundnar tilvistarspurn-
ingar. Myndirnar í bókinni eru lág-
stemmdar, sjálfum sér samkvæmar
og bera skýr persónuleg stíleinkenni.
Gegnum myndir og texta dregur
höfundur upp blæbrigðaríka mynd
af innra og ytra lífi aðalpersónunnar,
lausa við tilfinningasemi.“
Hvers vegna fannst þér mikilvægt að
skrifa um þetta erfiða efni?
„Ég skal alveg viðurkenna að mig
langaði í raun ekki til að fást við
þetta viðfangsefni þegar forlagið
mitt fór þess á leit við mig,“ segir
Dåsnes, sem sjálf var 16 ára þegar
hryðjuverkin voru framin. „Ég hafði
eins og Rebekka í bókinni lesið mér
töluvert til um öfgahægristefnu,
en þurfti þegar ég fór að vinna að
bókinni að lesa mér mjög mikið til
um atburðina til þess m.a. að hafa
tímalínuna rétta,“ segir Dåsnes og
bendir á að bók Åsne Seierstad,
Einn af okkur, hafi verið sér góð
heimild. „Ein helsta ástæða þess
að mér fannst mikilvægt að skrifa
þessa bók er að ungt fólk í dag man
lítið sem ekkert eftir þessum hryðju-
verkum. Ég fer iðulega í heimsóknir
í grunnskóla til að ræða myndasögur
og þau sem núna eru í 10. bekk voru
aðeins fjögurra ára þegar voðaverkin
voru framin og muna ekki eftir þess-
um degi. Við megum ekki gleyma
fortíðinni því þá getum við ekkert
lært af henni.“
Mikilvægt klapp á bakið
Þú vinnur markvisst með liti í vinn-
ingsbókinni. Viltu segja mér aðeins frá
nálgun þinni þar?
„Ég vissi strax að mig langaði að
brjóta tímalínuna upp í bókinni, en
verkið hverfist um unglingsstúlkuna
Rebekku sem er ófær um að horfa
til framtíðar og halda lífi sínu áfram
eftir hryðjuverkin vegna þess hversu
sterkt þau sækja á hana. Samtímis
vildi ég hjálpa lesendum að staðsetja
sig á tímaás verksins og þá komu
litirnir í góðar þarfir. Rauði liturinn,
sem geymir minningabrotin, er
sterkur litur sem virkar truflandi
í samhengi við bláa hversdaginn.
Sparsöm litanotkunin í bókinni
endurspeglar hvernig Rebekka
heldur aftur af tilfinningum sínum.
Litríkt blómahaf seint í bókinni, sem
endurspeglar blómin sem skilin voru
eftir við dómkirkjuna í Osló til minn-
ingar um þau sem létust, myndar
kröftugt mótvægi við þessi höft, en í
mínum huga eru myndirnar nánast
yfirþyrmandi í litadýrð sinni,“ segir
Dåsnes og bendir á að á þessum stað
í bókinni verði ákveðin skil í tilfinn-
ingalífi Rebekku þar sem hún byrjar
loks að opna sig.
Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að
fá verðlaun Norðurlandaráðs?
„Þessi verðlaun hafa mikla
þýðingu fyrir mig persónulega. Sam-
tímis finnst mér einstaklega gaman
að bókin skuli hafa náð hljómgrunni
hjá norrænu valnefndinni, bæði
vegna þess að þetta er vandasamt
umfjöllunarefni en ekki síst vegna
þess að þetta er myndasaga eða
grafísk skáldsaga. Síðast en ekki síst
er þetta mikilvægt klapp á bakið og
staðfesting á vel unnu verki, sem
veitir mér mikinn innblástur til að
halda áfram á sömu braut,“ segir
Dåsnes og bendir á að hún sé nýbúin
að senda frá sér myndabókina La
skogen leve! (Þyrmið skóginum!) sem
er sjálfstætt framhald á Ti kniver i
hjertet en hún sér fyrir sér þríleik
um vinkonurnar.
„Því til viðbótar er ég með nokkr-
ar hugmyndir að fleiri bókum sem
mig langar að skrifa. Mér finnst
mjög gaman að skrifa bækur fyrir
börn og ungmenni á aldrinum níu
til þrettán ára, en ég er líka með
nokkrar hugmyndir að bókum fyrir
fullorðna,“ segir Dåsnes og bendir
á að myndasagan sem listform sé
frábær miðlunaraðferð.
Miðlun tilfinninga án texta
„Myndasagan býður upp á miðlun
tilfinninga og framvindu án texta.
Sem dæmi eru margar opnur í
Ubesvart anrop nánast textalausar,
en það væri ekki hægt í venjulegri
skáldsögu,“ segir Dåsnes og tekur
fram að hún fái mjög góðar viðtökur
frá lesendum á aldrinum 13-18 ára
sem eiga erfitt með að lesa mikinn
texta. „Hvort heldur er vegna les-
blindu eða vegna þess að viðkom-
andi lærði ekki norsku frá blautu
barnsbeini og hefur því kannski
ekki enn náð nógu sterkum tökum
á tungumálinu. Það er mikilvægt að
þessir hópar hafi lesefni við sitt hæfi
og séu ekki neyddir til að lesa bara
myndabækur fyrir unga krakka.“
Aðspurð segir Dåsnes verðlaunin
veita vinningsbókinni aukinn með-
byr. „Það er nú þegar búið að prenta
nýtt upplag af bókinni hér í Noregi.
Þetta mun vonandi einnig hjálpa
bókinni erlendis, en hún er senn
væntanleg í Danmörku, Frakklandi
og Spáni. Ég vona að hún verði líka
þýdd á sænsku fljótlega,“ segir Dås-
nes og bendir á að Ti kniver i hjertet
hafi nýverið komið út á færeysku,
sem henni þykir afar vænt um.
l NoraDåsnes verðlaunuð fyrirmyndabókinaUbesvart anropumhryðjuverkin íNoregi 2011
l „Myndasagan býður upp ámiðlun tilfinninga og framvindu án texta,“ segirNoraDåsnes
„Kommér einlæglega á óvart“
Ljósmynd/Magnus Fröderberg, norden.org
HöfundurNora Dåsnes segist njóta þess að skrifa bækur fyrir börn og ungmenni á aldrinum níu til þrettán ára.
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is