Morgunblaðið - 21.11.2022, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
Innlent6
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
f KANARÍ
6.DESEMBER Í 13NÆTUR
fyr
irv
ar
a.
Sól fyrir jól
595 1000 www.heimsferdir.is
153.250
Flug & hótel frá
13 nætur
Einbeitingin skein úr hverju andliti í fugla-
smiðju sem efnt var til í garðskála Grasa-
garðsins í gær á alþjóðadegi barna. Þórey
Hannesdóttir listakona stýrði listasmiðjunni
og gátu fjölskyldur komið saman og spreytt
sig á að búa til fuglafóðrara. Fuglavernd,
Dýraþjónusta Reykjavíkur, Skógræktarfélag
Reykjavíkur og Grasagarðurinn stóðu að þess-
um viðburði og lögðu þátttakendum til efni
fyrir fuglafóðrarana. Krakkarnir skemmtu
sér hið besta en hin fullorðnu þurftu líka að
leggja sitt af mörkum eins og sést á myndinni.
Líf og fjör í Grasagarðinum í Reykjavík í gær
Fjölskyldur spreyttu sig í fuglasmiðju
Morgunblaðið/Óttar
Siglir frá
Þorláks-
höfn
l Ástæðan sögð
vont veður
Ferðir Herj-
ólfs til og frá
Vestmannaeyj-
um hafa verið
færri en ella
undanfarið þar
sem ekki hefur
verið hægt að
sigla skipinu til
Landeyjahafn-
ar. Í gær sigldi
Herjólfur aðeins
til Þorlákshafnar og var því siglt í
tvígang til og frá eyjunni; frá Vest-
mannaeyjum kl. sjö um morguninn
og fimm í eftirmiðdaginn og frá
Þorlákshöfn kl. korter í ellefu að
morgni og korter í níu að kvöldi.
Þurftu þeir farþegar sem áttu ferðir
utan þess tíma að hafa samband við
afgreiðslu Herjólfs til þess að gera
aðrar ráðstafanir.
Hörður Orri Grettisson, fram-
kvæmdastjóri Herjólfs, segir ástæð-
una einfalda: Veðrið. „Það er bara
vont veður, fyrst og fremst. Mikil
ölduhæð, þannig að það er ekki
hægt að sigla inn í Landeyjahöfn,“
segir Hörður. Spurður hvernig
staðan blasi við í þessari viku
segir hann að það stefni í „nokkur
leiðindi“ næstu daga en búast megi
við að öldurnar lægi þegar líði á
vikuna. ari@mbl.is
Hörður Orri
Grettisson
hennar. Framleiðsla er í höndum Tré-
sor Films en TrueNorth og Artémis
Productions eru meðframleiðendur.
Leifur er einn framleiðenda myndar-
innar sem stefnt er að því að frum-
sýna á kvikmyndahátíðinni í Cannes
á næsta ári.
Það er í mörg horn að líta hjá starfs-
fólki TrueNorth þessa dagana því eins
og komið hefur fram í Morgunblaðinu
standa nú yfir tökur á fjórðu þáttaröð
sjónvarpsþáttanna TrueDetective hér.
Tökulið verður hér í allan vetur og
reiknað er með að heildarkostnaður
við verkefnið verði um tíu milljarðar
króna. Þá hafa tökur fyrir erlendar
auglýsingar sem fyrirtækið aðstoðar
við staðið yfir að undanförnu, meðal
annars við Skógafoss.
„Þetta er mjög spennandi verkefni
enda er um að ræða einn fremsta
leikstjóra og handritshöfund Frakka.
Tökurnar hafa gengið mjög vel,“ segir
Leifur B. Dagfinnsson, framleiðandi
hjá TrueNorth.
Í síðustu viku lauk tökum á stórri
franskri kvikmynd hér á landi.
Myndin kallast Soudain, seuls og
leikstjóri og handritshöfundur er
Thomas Bidegain. Tökudagar hér
á landi voru vel yfir 30 samkvæmt
upplýsingum blaðsins og fóru meðal
annars fram við
Jökulsárlón.
Gerð kvik-
my n d a r i n n a r
hefur áður kom-
ist í fréttirnar því
henni var frestað
fyrir rúmu ári
þegar aðalleik-
arinn heltist úr
lestinni vegna
ósættis við leik-
stjórann. Þá átti Hollywood-stjarn-
an Jake Gyllenhaal að fara með aðal-
hlutverkið ásamt bresku leikkonunni
Vanessu Kirby en þeim Gyllenhaal
og Bidegain kom ekki saman. Áætl-
unum var í kjölfarið breytt og er
myndinni nú alfarið beint að frönsk-
um markaði. Með aðalhlutverkin
fara þau Gilles Lellouche og Mélanie
Thierry. Í myndinni, sem byggð er á
samnefndri bók eftir Autissier, segir
frá pari sem verður strandaglópar á
eyju í draumaferð sinni og verður að
berjast fyrir lífi sínu.
Þótt myndin sé ekki lengur með
Hollywood-stimpil á sér er um stóra
framleiðslu að ræða. Hermt er að
framleiðslukostnaður sé um 3,5 millj-
arðar króna og það er stórfyrirtækið
Studio Canal sem sér um dreifingu
lTrueNorth tekur þátt í framleiðslu stórrar franskrar kvikmyndarlYfir 30 tökudagar voru á Íslandi
lJake Gyllenhaal átti að leika aðalhlutverkið en heltist úr lestinni eftir ósætti við leikstjórann í fyrra
Frönsk stórmynd í tökum hér
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Tökur Frönsk mynd var meðal
annars tekin við Jökulsárlón.
Leifur B.
Dagfinnsson
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
félags- og vinnumarkaðsráðherra,
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og
Nichole Leigh Mosty, forstöðukona
Fjölmenningarseturs, undirrituðu á
laugardag samning um samræmda
móttöku flóttafólks í Reykjavík.
Samningurinn, sem undirritaður var í
Ráðhúsi Reykjavíkur, kveður á um að
Reykjavíkurborg taki, í samstarfi við
stjórnvöld, á móti allt að 1.500 flótta-
mönnum á tímabilinu 1. október 2022
til 31. desember 2023 og að flóttafólk
fái samfellda og jafna þjónustu.
Í samningnum er lögð áhersla á
nauðsynlega aðstoð við fólk til að
vinna úr áföllum og að það fái „tæki-
færi til virkrar þátttöku í samfé-
laginu“, svo sem með atvinnu, námi
á borð við íslenskukennslu og sam-
félagsfræðslu, að því er segir í til-
kynningu frá borginni en samræmda
móttakan nær til fólks sem fengið hef-
ur alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi
á grundvelli mannúðarsjónarmiða
hér á landi.
„Stórt skref hefur nú verið stig-
ið í móttöku flóttafólks hér á landi.
Samstarfið við Reykjavíkurborg
hefur verið einstaklega gott og vert
er að óska borginni til hamingju –
og sömuleiðis óska borgarbúum til
hamingju með þá góðu viðbót sem
mannlífið í borginni nú fær,“ var haft
eftir Guðmundi Inga í tilkynningunni
og tók Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri undir.
„Það er mjög jákvætt að samningar
um móttökuna séu nú í höfn og að
við stöndum saman um að bjóða
flóttafólk og flóttabörn velkomin og
vinnum að því að þau verði hratt og
vel hluti af samfélaginu okkar hér í
Reykjavík,“ sagði borgarstjóri.
Eldri samningur Reykjavíkur-
borgar við stjórnvöld um samræmda
móttöku flóttafólks hljóðaði upp á
móttöku 500 flóttamanna.
lUndirritað á laugardaglÁhersla á þátttöku í samfélaginu
Borg og ríki semja um mót-
töku á 1.500 flóttamönnum
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Morgunblaðið/Óttar
Samningur Dagur og Nichole takast í
hendur undir vökulu auga Guðmund-
ar í Ráðhúsinu á laugardaginn.