Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 7
FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022
7
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Opnir fundir fyrir
landeigendur og aðra hagaðila 22. nóvember
Hótel
Laugarbakka,
Miðfirði
20:00–21:30
23. nóvember
Félagsheimilinu
Blönduósi
16:30–18:00
Holtavörðuheiðarlína 3
Línulegt samtal
Landsnet hefur hafið undirbúning að mati á umhverfisáhrifum
Holtavörðuheiðarlínu 3 milli Holtavörðuheiðar og Blöndu.
Lagning línunnar er mikilvægur hlekkur í nýrri kynslóð
byggðalína.
Meginmarkmiðið er að auka afhendingaröryggi og
afhendingargetu á landinu og tryggja að flutningskerfið
standi ekki í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu og eðlilegri
þróun byggða á landinu.
Með samráði og samtali við landeigendur og hagaðila,
rannsóknum og greiningum verður farið í gegnum mat
á umhverfisáhrifum til að fá betri mynd af verkefninu,
möguleikunum og hvernig línuleiðum verður háttað.
Anna Sigga, Elín Sigríður, Erla, Magni, Steinunn og Sverrir
bjóða ykkur hjartanlega velkomin á opna fundi um
Holtavörðuheiðarlínu 3.
Morgunblaðið/Óttar
Minningardagur Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ogWillum Þór
Þórsson, heilbrigðisráðherra, fluttu erindi og þökkuðu viðbragðsaðilum.
Minntust fórnarlambanna
lBanaslys á laugardag setti svip sinn á athöfnina
Hópur fólks kom saman við þyrlu-
pall Landspítalans í Fossvogi í gær, í
tilefni alþjóðlegs minningardags um
fórnarlömb umferðarslysa. Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands,
og Willum Þór Þórsson, heilbrigð-
isráðherra, fluttu erindi. Þökkuðu
þeir meðal annars viðbragðsaðilum
sem veita hjálp og björgun.
Að því loknu hélt Jónína Snorra-
dóttir ræðu, þar sem hún sagði
frá banaslysi sem hún varð völd
að í Vestmannaeyjum fyrir 30
árum síðan. Er dagurinn helgaður
minningu þeirra sem látist hafa í
umferðarslysum auk þess sem ætl-
unin var einnig að leiða hugann að
þeim ökumönnum sem verða sjálfir
valdir að banaslysum eða öðrum
alvarlegum slysum.
„Margir þessara ökumanna er
sjálfir bein fórnarlömb þessara
slysa með þeim hætti að þeir
létust eða slösuðust sjálfir. En þótt
einhverjir þeirra hafi sloppið frá
líkamstjóni eða dauða þá eru þeir
einnig fórnarlömb.
Það að verða þess valdur vegna
misgánings, skorts á athygli eða
einhvers annars að einhver slasast
eða lætur lífið kallar yfir viðkom-
andi ævarandi sorg, sjálfsásökun
og vanlíðan sem markar framtíð
þeirra. Þessu fólki má ekki gleyma,“
segir í tilkynningu frá Samgöngu-
stofu. Boðið var upp á kaffi og kakó
að loknum ræðum.
Banaslys við Barónsstíg setti
bersýnilega svip á athöfnina en
fyrr um daginn hafði verið greint
frá því að karlmaður á þrítugsaldri
hefði látist þegar hann varð fyrir
hópferðabíl á laugardagskvöldið.
Alls hafa átta banaslys orðið í um-
ferðinni það sem af er ári.
Hagamýs í Eyjum
Hin íslenska
hagamús hefur
numið land í
Vestmanna-
eyjum en fram
til þessa hafði
húsamúsin
ein ráðið þar
ríkjum. Nátt-
úrufræðistofn-
un Íslands
tilkynnti þetta
á vef sínum stuttu fyrir helgi,
en grunur hefur leikið á því að
hagamúsin væri komin til Eyja
síðan stofnuninni bárust myndir
af músum er veiddust þar í
heimahúsi. Þótti þetta heyra til
tíðinda þar sem bæði húsa- og
hagamýs voru á myndunum.
Stuttu síðar bárust aðrar fréttir
af meintri hagamús í heimahúsi
í Heimaey þann 26. október
sl. Var hræið sent til Nátt-
úrufræðistofnunar til greiningar
og var grunurinn staðfestur; um
fullorðna karlkyns hagamús var
að ræða sem nú er varðveitt á
vísindasafni stofnunarinnar.
Líklegast er að hagamúsin hafi
þó verið til staðar í Vestmanna-
eyjum í nokkur ár. Ásmundur
Ásmundsson meindýraeyðir
í Eyjum heldur skrá utan um
veidd nagdýr í Heimaey. Sam-
kvæmt honum veiddist fyrsta
hagamúsin árið 2020 á suður-
hluta eyjarinnar og líklegt er að
önnur hafi veiðst árið 2019. Er
talið að hagamýs séu nú út-
breiddar um alla eyjuna.
Húsamýs hafa lifað í Eyjum
frá landnámi án samkeppni við
hagamýs í um þúsund ár. Er því
komið upp einstakt tækifæri til
að rannsaka samskipti tegund-
anna tveggja. ari@mbl.is
Hagamús hefur
numið land í Eyjum.
Niðurlag í grein
um Biden féll niður
Þau leiðu mistök voru gerð í grein
um Joe Biden áttræðan í Sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins að
síðasta línan féll brott og lesandinn
skilinn eftir í fullkominni óvissu um
niðurlagið. Beðist er velvirðingar á
því, en rétt átti síðasta málsgreinin
að vera svo:
„Það verður ekki auðvelt fyrir
Biden að fást við slíkar niðurstöður
skoðanakannana ofan á glímuna við
Elli kerlingu, sem aldrei fer nema á
einn veg.“
Rangfærsla varðandi banaslys
Ranghermt var í Morgunblaðinu á
laugardag, í viðtali við Einar Magn-
ús Magnússon hjá Samgöngustofu,
þar sem vitnað var til erindis sem
Jónína Snorradóttir flutti í gær á
minningardegi fórnarlamba um-
ferðarslysa, að í slysi í Vestmanna-
eyjum fyrir 30 árum, að barn hefði
hlaupið í veg fyrir bíl sem hún ók og
það verið orsök banaslyss.
Rétt er að ekið var á barnið og
móður þess þar sem þau gengu
saman út á gangbraut en ökumaður
tók ekki eftir þeim. Sökin var ekki
barnsins. Beðist er velvirðingar á
þessari rangfærslu, sem byggðist á
misskilningi talsmanns Samgöngu-
stofu.
LEIÐRÉTT