Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 10

Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 Dalvegur 30 www.ithaka.is • Lyngháls 4 • s: 595 7800 Verslunar- skrifstofu- og þjónustuhúsnæði í uppbyggingu Nokkur laus rými www.z.is 525 8200 Faxafeni 14, 108 Rvk GJAFAVARA FRÁ LAURA ASHLEY ER TILVALIN JÓLAGJÖF Malasía varð því niðurstaðan, segir Viktor. Formlega tekur Viktor við embætti heimsforseta um ára- mótin næstu af Argenis Angulo frá Venúsúela. Margt í forystu- starfinu verður kunnuglegt því árið 2017 var Viktor einn af 16 varaheimsforsetum. „Á heimsvísu skiptist JC upp í fern álfusamtök; það er Evrópa, Asía, Afríka ogMið-Austurlönd og Ameríka er í þeim fjórðu. Áhersl- ur JCI árið 2023 eru valdefling, nýsköpun og fjölbreytileiki. Með þennan boðskap heimsæki ég sam- tök og félög víða um heim á næstu mánuðum. Vegferðinni lýkur svo á heimsþingi í Sviss að ári. Sá tími verður efalaust fljótur að líða og ég hlakka til þeirra verkefna sem nú eru fram undan og veröldin öll er undir þar,“ segir Viktor Ómars- son að síðustu. „Ungt fólk þarf og verður að láta til sín taka í ákvörðunumum framtíðina. Til þess fæst þjálf- un í félagsstarfi okkar sem er fjölbreytt, áhugavert og stækkar veröld þeirra sem blanda sér í leikinn,“ segir Viktor Ómarsson sem á dögunum var kjörinn heims- forseti JC-hreyfingarinnar. Hann hefurmörg ár verið virkur í starfi JC-Íslands og valdist fjótt til trún- aðarstarfa þar, meðal annars sem landsforseti árið 2012. Í framhaldi af því komu verkefni og trúnaðar- störf á alþjóðlega vísu. „Eitt af því ánægjulegasta sem fylgir þessu starfi er að fá tæki- færi til ferðalaga og að kynnast fólki víða umheim. Fréttir frá einstaka löndum rifja upp að þar þekki maður fólk og viti hverjar aðstæður þess eru. Þetta finnst mérmjög dýrmætt,“ segir Viktor. JCI (Junior Chamber Inter- national) er, eins og segir í kynningum, alþjóðleg hreyfing fyrir ungt fólk á aldrinum 18-40 ára sem hefur áhuga ogmetnað til að efla hæfileika sína og hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt. Kjarni starfsins er að efla fólk með námskeiðum, verkefnum og nefndarstörfum til að takast á við við stjórnun og ábyrgð í athafna- lífi og félagsstarfi. Störf og reynsla Í dag starfar JC-hreyfingin í alls 110 löndumheimsins, aðildarfélög- in eru um 5.000 og félagsmenn um 160 þúsund. Höfuðstöðvarnar eru í Saint Louis íMissouri í Banda- ríkjunum og þar var hreyfingin stofnuð árið 1915. „Ungt fólk vildi komast til áhrifa; þurfti reynslu til að fá störf og aftur öfugt. Niður- staðan var sú að stofna félög þar sem fólk gæti eflt sig í félagslegri reynslu og fengið þjálfun í því að koma fram og láta til sín taka. Boltinn fór að rúlla og boðskapur- inn náði í gegn svo úr varð lands- hreyfing í Bandaríkjunum sem í fyllingu tímans náði til heimsins alls,“ segir Viktor Ómarsson. Við upphaf háskólanáms fyrir um fyrir um tuttugu árumhóf Viktor starf með JC Íslandi. „Ég fór að kynnamér hvað væri í boði. Mér fannst gaman að kynnast fundarsköpum og hvernig standa skuli að umræðum svo árangurs- ríkar verði. Formfesta ermik- ilvæg í öllum félagsstörfum og þegar skapa á vettvang til að koma af stað jákvæðum breytingum í veröldinni,“ segir Viktor. Fjölbreytileiki, bræðralag og að lög skuli ráða en ekki vilji einstakramanna. Þetta erumikil- væg gildi í starfi JC International semViktor telurmikilvægt að halda hátt á lofti nú. Öfgahyggja, umhverfisvá og Evrópustríð hafi gjörbreytt heimsmyndinni á síð- ustumánuðum. Eins sú staðreynd að tugirmilljóna í heiminum séu á flótta, en slíkt kalli á nýja nálgun á mörgum sviðum. Valdefling og nýsköpun „Eins og nú háttar í veröldinni þarf að bryggja brýr en ekki reisa veggi. Slíkur er boðskapur okkar í JC og að slíku viljum við stuðla. Skapa vettvang sem kemur góðu til leiðar, hvar viðminnum okkar fólk á að réttindi og skyldur hald- ast jafnan í hendur,” segir Viktor sem nú er floginn utan til verkefna og starfa. Verður næstu vikur á fundum og við námskeiðahald í Malasíu, en hreyfingin er einmitt mjög öflug þar. Raunar ætlar Vikt- or að dveljast alveg fram yfir nýár íMalasíu, þangað sem formenn landssamtaka JC víða úr heim- inum koma til fundar í janúar næstkomandi. Gjarnan hafa fund- ir hreyfingarinnar á heimsvísu verið haldnir í Bandaríkjunum, en nú eru þaumörgum lokuð þar sem vegabréfsáritanir fást ekki. Byggja brýr í veröldinni AFP/Mohd Rasfan AsíaMannsandinn er yfirleitt svipaður þótt aðstæður séu ólíkar. Viktor er nú í Malasíu þar semmyndin var tekin við kjörstað nú um helgina. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Veröld Skapa vettvang sem kemur góðu til leiðar, hvar við minnum okkar fólk á að réttindi og skyldur haldast jafnan í hendur,” segir Viktor Ómarsson um þau verkefni sem nú eru fram undan á vettvangi JC á heimsvísu. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ungt fólk í félagsstarfi mótar framtíðina, segir Viktor Ómarsson, nýr heimsforseti JC-hreyfingarinnar Hver er hann? #Viktor Ómarsson er fæddur árið 1983 og ólst upp í Borgar- nesi. Hann nam stjórnmálafræði og viðskiptafræði í Háskóla Íslands og aflaði sér síðan meistaragráðu í reikningshaldi og endurskoðun. Er fram- kvæmdastjóri Fylgis, sem býður upp á bókhaldsþjónustu og fjár- málastjórn. Starfar einnig sem leiðbeinandi og markþjálfi. #Á vettvangi JCI hefur Viktor gegnt mörgum embættum.Var formaður vaxtar- og þróunarráðs JCI Evrópu 2016, sem vinnur að stofnun nýrra landshreyfinga. #Starfaði síðan sem varaheims- forseti árið 2017, með umsjón með JCI Þýskalandi, Austurríki, Hollandi, Sviss og Belgíu. #Árið 2019 sinnti hann síðan hlutverki framkvæmda-vara heimsforseta (EVP) með umsjón með Evrópu. Margir voru viðstaddir opnun Svanhildarstofu Hælisins í gær á 108. afmælisdegi Svanhildar Ólafsdóttur Hjartar, móður Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands. Ólafur las upp úr bók sinni, Bréfin hennar mömmu, sem kom út nýverið. Ólafur las upp í Svanhildarstofu Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson Upplestur Ólafur Ragnar og afkom- endur hans í Svanhildarstofu í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.