Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 13
FRÉTTIR
Erlent 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022
krokur.is
522 4600
Taktu Krók á leiðarenda
Krókur er fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í flutningum og björgun
ökutækja. Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki
þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og
annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina.
á þinni leið
Vesturhraun 5, 210 Garðabær
Mörg þúsund manns tóku
þátt í mótmælum í höfuðborg
Svartfjallalands fyrir helgi og
kölluðu eftir þingkosningum og
afturköllun á umdeildum lögum
semminnkuðu völd forsetans í
miðri stjórnarkreppu í landinu.
Mótmælin voru skipulögð af
baráttuhópnum „Ima nas“, sem
væri hægt að þýða á íslensku
sem „Við erummörg“. Mótmæl-
endurnir hópuðust saman fyrir
framan þinghúsið og kröfðust
kosninga. Þetta eru önnur slík
mótmælin í þessummánuði.
Pólítískur órói hefur ríkt í
Svartfjallalandi um nokkurn
tíma og í ár hafa tvær ríkis-
stjórnir fallið í landinu. Íbúar
Svartfjallalands eru um 620
þúsund en landið lýsti yfir
sjálfstæði árið 2006 frá Serbíu.
Um þriðjungur íbúa telja sig
serbneska og telja sumir að
Svartfjallaland ætti ekki að vera
sjálfstætt ríki.
Órói í Svartfjallalandi og íbúar kalla eftir þingkosningum
AFP/Savo Prelevic
Þúsundir
mótmæltu
Fimm látnir eftir
skotárás í BNA
lHatursglæpur gegnhinsegin fólki
Hið minnsta fimm eru látnir og 18
til viðbótar særðir eftir skotárás
á næturklúbbi hinsegin fólks
aðfaranótt sunnudags í borginni
Colorado Springs í Bandaríkjun-
um.
Árásin átti sér stað er gestir
staðarins fögnuðu alþjóðlegum
minningardegi trans fólks, sem er
haldinn ár hvert, 20. nóvember, til
þess að minnast trans fólks sem
hefur látið lífið í hatursglæpum
gegn trans fólki.
Þessi skotárás er ekki einsdæmi,
en síðasta áratug hefur fjöldi skot-
árása í Bandaríkjunum beinst gegn
hinsegin fólki. Sú mannskæðasta
átti sér stað í Orlando 2016 þegar
53 létu lífið í skotárás á Pulse, næt-
urklúbbi fyrir hinsegin fólk.
Yfirbuguðu árásarmanninn
Lögreglunni var tilkynnt, laust
fyrir miðnætti, um skotárás á næt-
urklúbbnum Club Q. Anderson Lee
Aldrich, 22 ára karlmaður, situr í
varðhaldi grunaður um voðaverk-
ið. Í tilkynningu frá næturklúbbn-
um segir að samfélagið sé harmi
slegið yfir þessari árás á hinsegin
fólk og þakkar klúbburinn gestum
sem yfirbuguðu árásarmanninn.
Að sögn vitna hóf Aldrich
skothríð um leið og hann komst
inn á staðinn. Að minnsta kosti
tvær manneskjur áttu í átökum við
hann og yfirbuguðu hann að lokum
inni á staðnum. Talið er að Aldrich
hafi verið vopnaður riffli.
Gríðarlegur viðbúnaður var
við staðinn í kjölfar árásarinnar
en 34 slökkviliðsmenn og ellefu
sjúkrabílar voru kallaðir til auk
lögreglu.
Skotárásir í Bandaríkjunum eru
stórt vandamál, en í ár hafa þar í
landi átt sér stað 600 skotárásir
þar sem fleiri en fjórir hafa látið
lífið. logis@mbl.is
AFP/Jason Connolly
Árás Samfélagið í Colorado Springs
er harmi slegið eftir árásina í gær.
magnslínu sem sér hluta af ver-
inu fyrir rafmagni. Bygging sem
inniheldur kjarnorkueldsneyti var
meðal þeirra sem rafmagnsleysið
náði til.
Stuttu eftir yfirlýsingu Rússa gaf
úkraínska kjarnorkustofnunin út þá
yfirlýsingu að Rússar stæðu á bak
við sprengjuárásirnar. Samkvæmt
stofnuninni hæfðu tólf sprengjur
svæðið sem kjarnorkuverið stendur
á og sökuðu talsmenn stofnunar-
innar Rússa um það enn og aftur
að stofna heimsbyggðinni í hættu
með sprengjuárásum sínum á verið.
Rafael Grossi, yfirmaður hjá kjarn-
orkustofnun Sameinuðu þjóðanna,
segir fréttirnar af sprengjuárásum
á verið valda sér miklum áhyggjum
og að árásirnar séu óásættanlegar.
Hann bætir þó við að skemmdir á
kjarnorkuverinu séu ekki miklar.
Sprengjuárásirnar um helgina
marka endalok á nokkuð friðsælu
tímabili í kringum kjarnorkuverið.
Sameinuðu þjóðinnar hafa kallað
eftir aðgerðum til þess að koma í
veg fyrir kjarnorkuslys.
Mikil spenna ríkir í Rússlandi
eftir að myndbönd af úkraínskum
hermönnum að drepa rússneska
stríðsfanga fóru sem eldur um sinu
á samfélagsmiðlum þar í landi. Yfir-
völd í Úkraínu þvertaka fyrir þetta
og segja að í myndbrotinu megi sjá
rússneska hermenn þykjast gefast
upp og svo hefja skothríð þegar
Úkraínuher hafði lagt niður vopnin.
Vegna þessa sé ekki hægt að tala um
aftökur stríðsfanga.
Yfirvöld í Úkraínu og Rússlandi
skiptust á að kenna hvor öðrum
um sprengjuárásir á kjarnorkuver-
ið Saporisjía, stærsta kjarnorkuver
Evrópu, um helgina. Kjarnorkuver-
ið er undir stjórn Rússa en það er
staðsett í suðurhluta Úkraínu. Sér-
fræðingar frá Sameinuðu þjóðunum,
sem staddir eru í verinu, segja að
kröftugar sprengjur hafi hæft verið.
Í yfirlýsingu Rússa er Úkraínu-
her sakaður um að ögra Rússum og
auka líkurnar á stórslysi af manna-
völdum. Þrátt fyrir sprengjuregnið
er geislavirkni á svæðinu ekki yfir
hættumörkum. Sprengjurnar eru
sagðar hafa hæft og eyðilagt raf-
Sprengjumrigndi yfir Saporisjía
lRússar og Úkraínumenn kenna hvorir öðrum umlYfirmaður hjá SÞ segir sprengjuárásirnar á
kjarnorkuverið óásættanlegarlSegja Rússa stofna heimsbyggðinni í hættul12 sprengjur hæfðu verið
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
AFP/Stringer
Innrás Rússa í ÚkraínuKjarnorkuverið Saporisjía er það stærsta í Evrópu.
Það er á valdi Rússa en kjarnorkuverið er staðsett í suðurhluta Úkraínu.