Morgunblaðið - 21.11.2022, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Nýir bílar
á lager
Sími 4 80 80 80
Litur: Onyx black/svartur að innan. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro
opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira.
Heithúðaður pallur með gúmmimottu,
sóllúga, toppljós.
2023 GMC Denali 2500HD
VERÐ
16.730.000 m.vsk
Án vsk. 13.492.000
Litur: Iconic Silver/svartur að innan. 475 hö, 1050 pund tog og 10 gíra sjálfskipting.
Innifalið í TREMOR-pakki. Topplúga, Quad Beam LED ljós, heithúðaður pallur, húdd-
hlíf. Lariat Sport útlitspakki með meðal annars samlitað grill. Ultimate pakki sem
innheldur meðal annars lyklalaust aðgengi, start og fjarstart og tröppu í hlera.
Heithúðaður pallur, quad beam LED aðalljós,
360 myndavélakerfi með back up assist.
2022 Ford F-350 Tremor Lariat Sport
VERÐ
18.490.000 m.vsk
Án vsk. 14.900.000
Fáðu meira út úr eigninni
Greenkey sjálfvirknivæðir og hagræðir
alla þætti í rekstri gististaða
• Hótel og gistiheimili
• Íbúðaklasar
• Íbúðir
• Sumarhús
• Síma- þjónustuver
og bakvakt
• Þrif og þvottur
Ármúli 21, Reykjavik • Sími 519 8989 • greenkey.is
Alhliða rekstrarþjónusta fyrir gististaði
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Einstök
minning
Fyrsti áfangi í upp-
byggingu nýrrar kyn-
slóðar byggðalínu er
hafinn með undirbún-
ingi og fram-
kvæmdum 220 kV há-
spennulínu sem liggja
mun á milli Hval-
fjarðar og Fljótsdals.
Um er að ræða
fimm línufram-
kvæmdir ásamt bygg-
ingu nokkurra tengivirkja. Kröf-
lulína 3 sem og Hólasandslína 3
hafa nú þegar verið spennusettar.
Beðið er álits Skipulagsstofnunar
á umhverfismatsskýrslu vegna
Blöndulínu 3. Verið er að vinna að
mati á umhverfisáhrifum á Holta-
vörðuheiðarlínu 1 sem liggur á
milli Hvalfjarðar og Holtavörðu-
heiðar og nú er hafinn undirbún-
ingur að línu á milli Holtavörðu-
heiðar og Blöndu og er þá komin
samfelld tenging á milli suðvest-
urhornsins og Austurlands.
Holtavörðuheiðarlína 3
Holtavörðuheiðarlína 3 mun
liggja frá nýju tengivirki á Holta-
vörðuheiði að Blöndu og fer línan í
gegnum tvö sveitarfélög, Húna-
þing vestra og Húnabyggð. Línu-
leiðin hefur ekki verið valin en
nokkrir kostir hafa verið skoðaðir
og eru tvenns konar. Annars veg-
ar eru valkostir meðfram núver-
andi línustæði frá Holtavörðuheiði
að Blöndu og hins vegar valkostir
yfir heiðarnar milli fyrirhugaðs
tengivirkis á Holta-
vörðuheiði og Blöndu.
Verkefnaráð og
opnir fundir með
landeigendum og
íbúum
Í ferlinu sem er
fram undan er lögð
áhersla á að eiga sam-
tal við hagsmunaaðila
og verður m.a. stofn-
að verkefnaráð Holta-
vörðuheiðarlínu 3 sem
í sitja fulltrúar frá
sveitarfélögum, atvinnuþróunar-
félögum, fræðasamfélaginu og
fleirum. Fyrsti fundur verkefna-
ráðs verður haldinn nú 22. nóvem-
ber. Samhliða er boðað til opinna
funda fyrir landeigendur og aðra
hagsmunaaðila. Í gegnum samráð,
samtal og rannsóknir verður farið
í gegnum greiningu á vali á línu-
leið og mat á umhverfisáhrifum.
Þannig fæst betri mynd á hvert
umfang verkefnisins er og hvað er
hægt að gera og m.a. hvar og
hvernig línuleiðinni verður háttað.
Mat á umhverfisáhrifum
Lagning Holtavörðuheiðarlínu 3
fellur í A-flokk framkvæmda, sem
háður er mati á umhverfisáhrifum
framkvæmda. Fyrsta skrefið í því
ferli er gerð tillögu að matsáætl-
un. Þar mun koma lýsing á fram-
kvæmdinni, hvernig fyrirhugað er
að meta umhverfisáhrif hennar og
kynntir verða kostir sem áætlað
er að taka til mats og rökstuðn-
ingur fyrir því vali.
Unnið verður með verkefnaráði,
landeigendum og öðrum hags-
munaaðilum á svæðinu í greiningu
á hugsanlegum valkostum áður en
þeir verða lagðir fram í endanlegri
tillögu að matsáætlun. Á heima-
síðu Landsnets er sérstakt svæði
helgað framkvæmdinni Holta-
vörðuheiði – Blanda og má nálgast
það frá tenglinum „Fram-
kvæmdir“ á heimasíðunni, lands-
net.is. Þar má finna allt um fundi
verkefnaráðs sem og upplýsingar
um fundi með landeigendum.
Þú getur haft áhrif
Við hvetjum íbúa á svæðinu,
sem og aðra sem áhuga hafa, til
að taka þátt, senda inn ábend-
ingar, mæta á opna fundi sem
haldnir verða og taka þátt í sam-
tali og samráði með okkur. Það
skiptir máli fyrir samfélagið að
sem best sátt náist um uppbygg-
ingu línunnar sem er ætlað að
vera hluti af nýrri kynslóð bygg-
ðalínu sem fleytir okkur inn í
framtíðina.
Samtal og samráð
um uppbyggingu
Holtavörðuheiðarlínu 3
Elín Sigríður
Óladóttir » Holtavörðuheiðar-
lína 3 mun liggja
frá nýju tengivirki á
Holtavörðuheiði að
Blöndu og fer línan í
gegnum tvö sveitar-
félög.
Elín Sigríður Óladóttir
Höfundur er samráðsstjóri
Landsnets.
elins@landsnet.is
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is