Morgunblaðið - 21.11.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 21.11.2022, Qupperneq 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 ✝ Ingiríður Árnadóttir, alltaf kölluð Inga, fæddist í Reykja- vík 5. mars 1932. Hún lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 7. nóvember 2022. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Solveig Ein- arsdóttir, f. 1899, d. 1995, og Árni J. Árnason, f. 1896, d. 1949, húsgagnasmíða- meistari í Reykjavík. Systkini Ingu eru Steinunn, f. 1929, d. 2021, Guðrún Lilja, f. 1934, Árni Jón, f. 1939, d. 2022, og Brynhildur Erna, f. 1943. Hinn 25. ágúst 1951 gekk Inga í hjónaband með Sigurði Markússyni, f. 1929, d. 2011. Foreldrar hans voru Ása Guð- brandsdóttir, f. 1903, d. 1972, og Vilhjálmur Björgvin Guð- mundsson, f. 1907, d. 1963. Ingu og Sigurði varð fjögurra barna auðið: 1) Hrafnhildur verslunarkona, f. 1952, d. 2002. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Antoníus Þ. Svavarsson, fv. flugvélstjóri, f. 1949, og eru börn þeirra: a) Inga Rós, f. 1978. Maður hennar er Hjörtur Smárason og eru börn þeirra: Antoníus Smári, f. 1994, Saga kennara, f. 1964, eru: a) Sig- urður Ingi, f. 1991, kvæntur Ingibjörgu Fríðu Helgadóttur og eru þeirra synir Valgeir Hugi, f. 2019, og Heiðar Högni, f. 2022. b) Valgeir Daði, f. 1993, í sambúð með Álfheiði Erlu Guðmundsdóttur, og eiga þau soninn Unnstein Emil, f. 2022. c) Birkir Atli, f. 1999. Inga og Sigurður hófu bú- skap á Mánagötu 24 en réðust fljótlega í að byggja hús með vinafólki sínu á Rauðalæk 44. Árið 1959 urðu miklar breyt- ingar á högum þeirra þegar Sigurður var ráðinn til starfa erlendis um átta ára skeið á vegum Sambands íslenskra samvinnufélaga, fyrst í Ed- inborg, svo í London og að lok- um í Hamborg. Inga helgaði starfskrafta sína heimilinu og fjölskyldunni. Hún studdi alla tíð við bakið á Sigurði og þóttu þau einstaklega samhent hjón. Þegar Inga var komin yfir miðjan aldur helgaði hún krafta sína verslunarrekstri dóttur sinnar, hjá Hrafnhildi. Inga naut sín í afgreiðslu og næmt auga hennar fyrir tísku og góðum fatnaði nýttist vel í innkaupaferðum erlendis fyrir verslunina. Inga starfaði í versluninni til 83 ára aldurs og fór í sína síðustu innkaupaferð 85 ára gömul. Jarðarför Ingu fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 21. nóv- ember 2022, klukkan 13. Ýrr, f. 1996, Hrafnhildur María, f. 2002, Katla Katrín, f. 2005, og Jökull Logi, f. 2008. b) Ása Björk, f. 1980. Börn henn- ar með fyrrverandi sambýlismanni sín- um, Sigurði T. Val- geirssyni, eru Hrafnhildur, f. 2009, Arnar Ingi, f. 2011, og Sigurður Markús, f. 2014. c) Bragi Þór, f. 1985, kvæntur Dagnýju Fjólu Jó- hannsdóttur og eru synir þeirra: Hlynur Hugi, f. 2013, Logi Hrafn, f. 2016, og Haukur Leó, f. 2021. 2) Guðríður Stein- unn píanóleikari, f. 1956; dóttir hennar er Valdís Guðrún Greg- ory, f. 1985, faðir: William D. Gregory, tónlistarmaður, f. 1955. 3) Guðbrandur fram- kvæmdastjóri, f. 1961, kvæntur Rannveigu Pálsdóttur lækni, f. 1961, og eru börn þeirra: a) Anna Katrín, f. 1986, sambýlis- maður: Rasmus Kristensen b) Ragna Kristín, f. 2000, unnusti: Tómas Jökull Thoroddsen c) Ingi Hrafn, f. 2003. 4) Einar, tónlistar- og hljóðupptöku- maður, f. 1963. Synir hans með fyrrverandi eiginkonu sinni, Elfu Lilju Gísladóttur tónlistar- Elsku Inga mín er flogin með englum. Eftir sitjum við, sem vorum í hennar innsta hring og áttum hana að, og hjartað er fullt af þakklæti fyrir gjafirnar og liðnu stundirnar. Hún var einstök og dásamleg tengdamóðir, amma og langamma drengjanna minna og ekki síst vinkona okkar allra. Þakklætið lifir og minningin um alltumvefjandi, ástríka og áhugasama manneskju sem var alltaf til staðar fyrir fólkið sitt. Ég veit að hún var sátt og ró- leg þegar hún kvaddi. Hún sagði okkur það og ég fann það svo sterkt þegar ég faðmaði hana í hinsta sinn. Orð hennar óma svo hlý í hugskotinu. Mér líður vel, sagði hún. Ég er róleg, allt er gott og mér þykir svo vænt um þig. Það voru okkar síðustu sam- skipti þegar dró að kveðjustund og fyrir þessa stund er ég ævin- lega þakklát. Ég minnist hennar sem glæsi- legu, brosmildu og góðu Ingu sem elskaði fólkið sitt svo ofur- heitt. Hvíl í friði. Elfa Lilja Gísladóttir. Elsku yndislega Inga amma mín er nú látin eftir langa og góða ævi. Hún var í senn hjartahlý, glæsileg og skemmti- leg kona sem gerði allt fyrir fjöl- skylduna sína og mátti ekkert aumt sjá. En amma var líka hörkudugleg og það lýsir því vel hvað hún var mikið hörkutól að hún vann í búðinni Hjá Hrafn- hildi langt inn á níræðisaldurinn og var þar alltaf vinsælasti starfsmaðurinn. Það var alltaf gott að tala við hana og hún gaf mér mörg góð ráð í gegnum tíð- ina, til dæmis um ástina og vin- áttu en amma var með einstakt jafnaðargeð og sagði hún mér að passa mig að fara aldrei ósátt að sofa og vera ekki langrækin. Við amma áttum líka sameiginlegt áhugamál í fatakaupum og tísku og við elskuðum báðar glimmer, bleikan og allt gulllitað. Amma var mikil tískudrós og þótti mér alltaf gaman að koma í nýjum fötum, sem vöktu mismikla lukku heima hjá mér, til hennar því henni fannst alltaf gaman að sjá það sem ég hafði keypt mér nýtt og ræða um nýjustu tísku. Amma var líka mikill „royalisti“ og vissi allt um konungsfjölskyldur Evr- ópu og voru þær bresku og dönsku í uppáhaldi. Það var fátt skemmtilegra en að ræða við ömmu um þessi mál og eyddum við mörgum eftirminnilegum stundum í það. Amma mín, ég mun sakna þess að hitta þig ekki í bakarísmat og möndluköku hverja helgi og spjalla við þig um daginn og veg- inn. Ég veit að Siggi afi tekur vel á móti þér hvar sem þú ert og hver veit nema þú hittir Elísa- betu drottningu líka! Takk fyrir alla hlýjuna sem þú hefur sýnt mér síðustu 22 árin. „Love you“ amma mín, þangað til næst. Ragna Kristín Guðbrandsdóttir. Í dag kveðjum við ömmu mína sem var samt svo miklu meira en bara amma mín. Það er erfitt að setja saman texta sem lýsir okk- ar sambandi. Heimili ömmu og afa var alltaf eins og mitt annað heimili og bjuggum við mæðg- urnar hjá þeim í Kjalarlandi fyrstu mánuði ævi minnar. Heimili ömmu var einstaklega fallegt og lagði hún mikið upp úr því að hafa fínt í kringum sig. Hún var einnig alltaf snyrtileg til fara og tók það ekki í mál að fara út úr húsi án þess að hafa sett á sig varalit, jafnvel þó hún væri bara að skreppa út í bílskúr. Amma var með glæsilegri konum og hafði næmt auga fyrir tísku. Ég held að það séu ekki margir sem geta farið í fataskápinn hjá ömmu sinni þegar þá vantar að fá eitthvað lánað. Þegar ég var yngri var amma iðulega að baka. Mér fannst svo spennandi að fá að hjálpa henni með smákökubaksturinn fyrir jólin. Á aðventunni var ég oft vakin með heitu kakói og smá- kökum. Ég er þakklát fyrir að hafa erft áhugann á bakstri frá ömmu og við áttum það sömuleið- is sameiginlegt að njóta þess að skreyta um jólin. Margt af mínu jólaskrauti hef ég fengið að gjöf frá ömmu í gegnum árin. Það var síðan alltaf hápunkturinn í des- ember að skreyta jólatréð heima hjá ömmu og afa inni á Kjalar- landi. Jólin verða öðruvísi núna í ár þar sem ég hef alltaf verið með ömmu á aðfangadagskvöld nema tvisvar þegar ég var erlendis. Þau voru mörg stóru matar- boðin sem amma sá um, hvort sem það var fyrir fjölskylduna eða vegna vinnunnar hans afa. Það var aðdáunarvert hversu auðvelt það var fyrir hana að taka á móti stórum hópum. Gest- ir hvaðanæva úr heiminum dá- sömuðu lambalærið hennar ömmu og sérrí-ísinn. Það eru ekki margir sem myndu trúa því en amma mín var mikill aðdáandi íslenska karla- landsliðsins í handbolta. Frá því ég var lítil horfðum við saman á flesta landsleiki í sjónvarpinu og amma hvatti sína stráka áfram af miklum krafti. Þegar ég var rúmlega tveggja ára, fór ég í mína fyrstu utan- landsferð með ömmu og afa, fyrstu ferðina af fjölmörgum. Ég á minningar með þeim frá mörg- um ferðum í Þýskalandi og frá Skotlandi, Englandi og Dan- mörku. Ég átti líka yndislegan tíma þegar amma heimsótti mig til Bandaríkjanna og mér þykir svo vænt um hvað við áttum skemmtilegar stundir í Wash- ington, Hartford og Boston. Síð- asta utanlandsferð ömmu var innkaupaferð fyrir verslunina Hjá Hrafnhildi sumarið 2017. Ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa verið boðið að hitta ömmu og Ásu Björk og vera með þeim á sýningunni í Düsseldorf. Ég á ömmu minni svo ofboðs- lega mikið að þakka, allt frá því að hún var viðstödd fæðingu mína. Elsku amma. Stelpan þín, eins og þú kynntir mig alltaf fyrir fólki, á eftir að sakna þín. Valdís. Allt frá því ég man eftir mér var amma númer eitt í mínu lífi og þannig var það alla tíð. Á milli okkar var sérstakur strengur og það leið varla sá dagur sem við hittumst ekki eða töluðum saman í síma. Þegar ég var lítil stelpa vissi ég ekkert betra en að fá að kúra á milli hjá ömmu og afa. Þegar ég stækkaði var notalegt að sitja með ömmu við eldhús- borðið í Kjalarlandi og fá kakó- súpu eða kvöldkaffi og spila rommí, en amma kunni svo sann- arlega að dekra við fólkið sitt. Kjalarlandið var alltaf fasti punkturinn í tilverunni og ég er þakklát fyrir að hafa fengið tæki- færi að búa mér og börnum mín- um heimili þar eftir að amma og afi fluttu í fallegu íbúðina sína á Sléttuvegi. Á Kjalarlandinu eru góðar minningar í hverju horni og var það mér hjartans mál að halda í sál hússins þegar ég fór í endurbætur. Þó amma hafi verið komin hátt á níræðisaldur, var hún minn helsti ráðgjafi þegar kom að því að velja gólfefni, inn- réttingar og húsgögn enda mikil smekkkona. Amma var dama alla leið og var alltaf glæsileg til fara svo eftir var tekið. Ekki síður hafði hún fallega útgeislun og hlýja nærveru sem gerðu það að verkum að hún laðaði fólk að sér. Þessir miklu persónutöfrar og smekkvísi nýttust ömmu vel í starfi verslunarkonu hjá Hrafn- hildi en þar starfaði hún í yfir 20 ár. Amma brann fyrir starfið og var afburðasölukona. Ég er þakklát að hafa fengið að starfa við hlið ömmu og hafa notið þess að fara með henni á vörusýningar erlendis tvisvar á ári, alveg þar til amma varð 85 ára. Þeir sem hafa farið á slíkar sýningar vita að þær krefjast mikillar orku og úthalds en amma var alltaf hress- ust í lok dags og vippaði sér í mis- munandi dress við komuna upp á hótel, til að velja föt morgun- dagsins. Þannig var amma; hún var alltaf að og henni féll aldrei verk úr hendi. Ég dáðist að þess- ari óþrjótandi orku sem hún bjó yfir. Amma var líka töffari og vissi nákvæmlega hvernig hún vildi hafa hlutina og gaf ekki af- slátt af því. Hún var með létta lund og það var gaman að vera í kringum ömmu enda heimilið hennar ávallt gestkvæmt. Amma hugsaði vel um fjölskylduna sína og hafði óbilandi trú á sínu fólki. Hún hafði metnað fyrir okkar hönd og hvatti okkur áfram í þeim verkefnum sem við tókum okkur fyrir hendur. Ég get ekki talað um ömmu án þess að minn- ast á afa því þau voru órjúfanleg heild alla tíð. Þau áttu svo fallegt samband þar sem virðing og væntumþykja skein í gegn alla daga, ég hefði ekki getað átt betri fyrirmyndir í lífinu. Börnin mín fóru á mis við mikið að fá ekki að kynnast ömmu Hrafn- hildi en amma Inga sá til þess að þau ættu dásamlega ömmu. Fyr- ir það verð ég ævinlega þakklát því ég veit hvað það er mikil gjöf að eiga góða ömmu. Að lokum vil ég þakka Gurrýju fyrir að hafa hlúð vel að ömmu undanfarin ár og gert henni kleift að búa heima. Elsku amma, þú verður alltaf í hjarta mér. Hvíl í friði. Þín Ása Björk. Elsku amma. Við erum sorg- mædd yfir því að hitta þig ekki aftur en við eigum svo margar fallegar minningar sem við geymum í hjörtum okkar. Öll skiptin sem þú bauðst okkur að koma í lambalæri og brúnaðar kartöflur á Sléttuveginn og feng- um svo ís í eftirrétt og jafnvel nokkra ef þú fékkst að ráða. Það var alltaf veisla hjá þér enda margir sem komu að heimsækja þig. Það var gaman að fá að koma ein til þín og spila Memory eða Lúdó og þú gerðir svo góðar pönnukökur og gafst bestu knús- in. Það verður skrítið að halda ekki jól með þér en það var alltaf ævintýralegt að fá að skreyta jólatréð þitt á aðventunni. Þú átt- ir heimsins fallegasta jólaskraut- ið og við nutum þess að heyra sögurnar á bak við hverja og eina kúlu sem við hengdum á tréð. Við erum þakklát fyrir að hafa átt þig sem ömmu en þú varst engin venjuleg amma. Þú varst alltaf svo hress, í flottum fötum og vild- ir gera allt fyrir börnin þín eins og þú kallaðir okkur. Við vitum að núna ertu komin til afa Sigga og ömmu Hrafnhildar sem þú saknaðir svo mikið. Við elskum þig og þökkum þér fyrir allt. Hrafnhildur, Arnar Ingi og Sigurður Markús. Þakklæti er mér efst í huga þegar ég minnist elsku Ingu ömmu. Þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta kærleika hennar og sam- fylgdar svona lengi og fyrir það fallega líf sem hún og afi áttu saman. Sem barn bjó ég lengi í Kúveit og Þýskalandi og báru samskipti okkar og samvera þess skýr merki. Í stað þess að fara í læri til ömmu og afa á sunnudögum skiptumst við á kassettum sem við töluðum inn á og sendum okk- ar á milli. Þar sögðum við frá því sem á daga okkar hafði drifið síð- an síðast og eftirvæntingin var mikil þegar nýtt bréf og spóla barst frá Íslandi. Í fríum áttum við fastan samastað hjá ömmu og afa í Kjalarlandinu og var það mér alla tíð sem annað heimili. Það var einstakt að fá að verja svona löngum tíma í einu með þeim, vakna og sofna saman og eiga hlutdeild í hversdagsleika hvor annarar. Það er nánast ógerningur að minnast ömmu án þess að afa sé minnst í sömu andrá. Heimili þeirra var gestkvæmt og þau höfðingjar heim að sækja. Hvort sem gestirnir voru viðskipta- félagar afa frá öllum heimshorn- um, eða bara við barnabörnin, var öllu tjaldað til og amma töfr- aði fram stórveislur við öll tæki- færi. Lítil skotta fékk þar stund- um að skemmta gestum með söng og dansi, oftar en ekki í sparikjólum frá ömmu. Samband mitt við ömmu var eitt það dýrmætasta sem ég átti og eftir að ég flutti út til Dan- merkur með mína fjölskyldu þá var hún ávallt sú fyrsta sem ég fór til þegar ég lenti á Íslandi og sú síðasta sem ég kvaddi áður en ég hélt aftur út. Hlutverk hennar í lífi barnanna minna var einnig stórt og mikilvægt, ekki hvað síst eftir að mamma lést óvænt og langt fyrir aldur fram fyrir 20 árum. Fráfall mömmu var þungt högg fyrir fjölskylduna alla og varð heimsmynd ömmu og afa líklega aldrei söm eftir það. Það var unun að sjá ömmu eignast starfsframa í versluninni hjá Hrafnhildi sem mamma stofnaði fyrir 30 árum. Þar sýndi hún og sannaði að það er aldrei of seint að byrja á einhverju nýju og hún naut þessa nýja hlut- verks, sem hún tileinkaði sér eft- ir að öll hennar börn voru flogin úr hreiðrinu, til hins ýtrasta. Það eru forréttindi að hafa fengið að ferðast með ömmu allt frá því að þau afi heimsóttu okk- ur þegar ég var barn í Frankfurt, sem fullorðin með mína fjöl- skyldu á þeirra gömlu heimaslóð- um í bæði Edinborg og Hamborg og sem viðskiptafélagi á sölusýn- ingum fyrir búðina. Mér er sér- staklega kær minningin um ferð- ina til Hamborgar, sem fara átti með mömmu en var farin stuttu eftir að hún lést. Þar lýsti Hrafn- hildur María, nafna hennar, upp tilveru okkar allra með nærveru sinni og brosum á eins árs afmæl- inu sínu og veit ég að amma sótti styrk í það. Ég kveð elsku Ingu ömmu með söknuði og hjartað fullt af fallegum minningum. Hún var best. Inga Rós Antoníusdóttir. Það er með sorg í hjarta sem ég kveð elskulega mágkonu mína og vinkonu Ingu Árnadóttur. Minningarnar hrannast upp. Ég var um sjö ára þegar ég sá hana fyrst og fannst hún bæði góð og falleg og við náðum strax vel saman. Eins var góður tíminn þegar ég var au-pair hjá Ingu og Sigga í Edinborg, þá var oft glatt á hjalla. Bróðir minn var heppinn að eignast svo góðan lífsförunaut og þau urðu gæfa og hamingja hvors annars. Allar góðu samverustundirnar yfir rjúkandi kaffibolla og kökum í eldhúskróknum á Sléttuveginum koma upp í hugann, en þar áttum við okkar bestu stundir, fórum yf- ir liðna daga og fólkið okkar. Inga hafði svo góða nærveru og ég fór alltaf létt í spori frá henni. Það var eitt sinn hjá okkur lifandi ljós en lífið er hverfult í mannanna heimum. Ef fellum við tár yfir fölnaðri rós við fegurstu minningar um hana geymum. (BS) Það er ótrúlega stutt síðan þú tókst brosandi á móti mér á þínu glæsilega heimili og umvafðir mig hlýju og kærleika og þannig vil ég muna þig elsku Inga. Takk fyrir umhyggjuna sem þú sýndir alltaf mér og dóttur minni Ásu Valgerði. Þú skipaðir stóran sess í lífi okkar. Elsku Gurrý, Guðbrandur, Einar og fjölskyldur. Hjartans samúðarkveðjur til ykkar allra. Minningin er ljós í lífi okkar. Margrét Hjálmarsdóttir. Inga frænka mín er látin og mig langar til að minnast hennar með nokkrum orðum. Við erum bæði af Hróðnýjarstaðaætt í Döl- um vestur, systrabörn. Hún var dóttir Guðrúnar, d. 1995, og ég sonur Hróðnýjar, sem lést 2009. Foreldrar þeirra voru Einar Þor- kelsson og Ingiríður Hansdóttir sem bjuggu allan sinn búskap á Hróðnýjarstöðum, en börn þeirra voru níu talsins. Systurnar giftust báðar Dalamönnum. Fað- ir Ingu var Árni J. Árnason hús- gagnasmíðameistari frá Köldu- kinn og Hróðný móðir mín átti Jóhannes skáld úr Kötlum, sem ólst upp í Ljárskógarseli og var seinna kennari víða í Dölum. Fjölskyldurnar fluttust báðar snemma til Reykjavíkur um og upp úr 1930 og það var síðan mik- ill samgangur á milli þeirra upp frá því. Heimsóknir til Gunnu og Árna voru tíðar, fyrst á Bjarn- arstíg 11 og síðan á Sjafnargötu 2, sem var rétt hjá heimili okkar á Njálsgötu og síðar á Laugavegi 46 og þetta var eins og ein fjöl- skylda að sumu leyti því tengslin voru afar sterk á milli þeirra systra. Ég minnist margra skemmtilegra samverustunda við þær systur allar: Steinunni, Ingu og Guðrúnu Lilju (Lillý) á þess- um árum. Seinna bættust svo við tvö systkini um það leyti sem við fluttum til Hveragerðis, Árni og Brynhildur Erna. Steinunn lést 2021 og Árni á þessu ári. Það var alltaf gaman að koma á Mána- götu 24 eftir að fjölskyldan flutt- ist þangað og oft var komið þar við og jafnvel gist ef þess var þörf. Ég fór oft í sveit á Ölvalds- stöðum í Borgarfirði á þessum árum og minnist sérstaklega eins atviks þegar ég var sendur á næsta bæ sem heitir Eskiholt. Ég fór ríðandi um holt og hæðir í átt að bænum, en þegar ég kom að þjóðveginum sá ég bíl koma eftir veginum á miklum hraða, þá fór ég af baki og ætlaði að teyma hestinn yfir veginn, en þá skeður það óvænta, að bíllinn stansar og það er hrópað úr bílnum: er þetta ekki hann Svanur! Þar voru þá komin Árni og Gunna á Mánagöt- unni með alla fjölskylduna á leið vestur í Dali og varð nú fagn- aðarfundur. Þetta tilviljunar- kennda atvik var mér ógleyman- legt alla ævi og með dýrmætustu mínútum sem ég hef lifað, þegar ég fór yfir veginn við Eskiholt sem tók varla eina mínútu. Eftir að Inga stofnaði heimili þegar hún komst á fullorðinsár og gift- ist Sigurði Markússyni fram- kvæmdastjóra hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga urðu samveru- stundirnar færri, en það var sama hvar maður hitti Ingu frænku, alltaf geislaði af henni og hún var full af lífskrafti og góð- semi við alla sem hún umgekkst eins og algengt er meðal Hróð- nýjarstaðaættarinnar. Ég vil að lokum þakka Ingu fyrir sam- fylgdina og við hjónin sendum börnum hennar og öðrum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. Svanur Jóhannesson. Inga Árnadóttir - Fleiri minningargreinar um Ingu Árnadóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.