Morgunblaðið - 21.11.2022, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 21.11.2022, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 ✝ Þórhallur Að- alsteinsson fæddist í Reykjavík 16. febrúar 1944. Hann lést 31. októ- ber 2022. Foreldrar hans voru Sigurleif Þór- hallsdóttir bóka- vörður, f. 11. des- ember 1917, d. 7. janúar 1984, og Aðalsteinn Sig- urðsson bókbandsmeistari, f. 26. febrúar 1910, d. 19. ágúst 1969. Þórhallur átti tvö systkini: 1) Kristján Aðalsteinsson, f. 29. desember 1948, d. 28. ágúst 2018, maki Guðrún Péturs- dóttir, eiga þau þrjú börn. 2) Sigrún Edda Aðalsteinsdóttir Crowe, f. 14. mars 1955, maki Alan Roy Crowe, eiga þau eina dóttur. Þórhallur kvæntist 1. apríl 1967 Svanhildi Sigurjónsdóttur, f. 1. apríl 1944. Foreldrar henn- ar voru Jóhanna Katrín Krist- jánsdóttir húsfreyja, f. 5. janúar 1906, d. 14. febrúar 1991, og Sigurjón Guðjónsson bifreiða- stjóri, f. 12. júní 1904, d. 29. sinnti hann húsasmíði, bygg- ingastjórn og mannvirkjahönn- un í áratugi. Þórhallur fékk ungur áhuga á ferðalögum og stundaði þau gjarnan í félagsskap Farfugla. Þar kynntist hann Svanhildi. Hann sat um árabil í stjórn Reykjavíkurdeildar Bandalags íslenskra farfugla og sinnti húsasmíði og stýrði ýmsum framkvæmdum. Þar á meðal byggingu Farfuglaheimilisins í Laugardal og brúarsmíði og uppbyggingu aðstöðu Farfugla í Slyppugili í Þórsmörk. Hann var gerður að heiðursfélaga Farfugla 2019. Þau Svanhildur byggðu sér raðhús í Selbrekku í Kópavogi 1971-1973 og fluttu 2012 í Rjúpnasali. Þórhallur flutti á Hrafnistu í Boðaþingi undir lok árs 2018. Á starfsferli sínum vann Þór- hallur t.d. við byggingu álvers- ins í Straumsvík, stýrði hann framkvæmdum við tilteknar byggingar Landspítalans og fleira atvinnuhúsnæðis. All- mörg einbýlishús og sumarbú- staðir nutu handverks hans og reynslu varðandi hönnun og smíðar. Þórhallur lauk starfs- ævi sinni við afgreiðslustörf í timbursölu Byko á Granda. Útför Þórhalls fer fram frá Lindakirkju í dag, 21. nóvem- ber 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. september 1986. Börn Þórhalls og Svanhildar eru: 1) Aðalsteinn, f. 30. október 1968, kvæntur Gyðu Þ. Guttormsdóttur, f. 1972. Börn þeirra eru Almar, f. 2002, Unnar, f. 2004, og Steinar, f. 2007. 2) Sigurjón, f. 15. apr- íl 1973, var í sam- búð með Evu Sigurbjörns- dóttur. Dóttir þeirra er Svanhildur Ýr, f. 2002. 3) Jó- hanna Katrín, f. 4. maí 1978, í sambúð með Davíð Örvari Hanssyni, f. 1982. Börn þeirra eru Þórhildur Jökla, f. 2012, og Halla Bergrún, f. 2016. Þórhallur gekk í Melaskóla og síðan í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. Að því loknu hóf hann nám í húsasmíði við Iðn- skólann í Reykjavík og var á samningi hjá Kristni Sveinssyni húsasmíðameistara. Þá hélt Þórhallur til Kaupmannahafnar í framhaldsnám og útskrifaðist þaðan sem byggingafræðingur 1968 og fékk réttindi sem húsa- smíðameistari. Í starfi sínu Elsku pabbi minn. Hann kenndi mér. Að elska. Fólk og fjöllin öll, fugla og mýs og lykt af góðu sagi. Hefill. Kúbein. Trekvart- tomma. Ein-fjórar tvær og fjörutíu. Ekki spara úreþan og kíttið „det er skide godt!“ Burt með flötu þökin. Það voru engin takmörk á smíðatengdum um- ræðum við eldhúsborðið. Torx- byltingin og gifsið og álið. Kall- inn skaust í félagsmiðstöðina kennda við Byggingavöruversl- un Kópavogs. Tígul tía. Vinnuherbergið. Stimplarnir, grái yddarinn og öll skapalónin fyrir stelpu til að teikna draumahúsið, aftur og aftur. Vindlalykt þarna í gamla daga, en svo bara neftóbakið. Alltaf víbruðu græjurnar. Tenórarnir eða Diddú. Gat tekið á aðra en fallegt í sjálfu sér. Og flautað með. Laufa fimma. Laugavegur. Hrafntinnusker. Tindfjöll. Skaftafell. Skíðaferðir og allskyns hringferðir. Gljúfr- in. Herðubreið og Askja. Heja Sverige. Myndirnar ylja. Breyti í hjarta. Ringluð unglingsstúlka. Pass. En pabbinn renndi með hana í Brennholt. Í þægilegri þögninni rétti hann henni hamar eða heftibyssu. Kakó á eftir. „Réttu borvélina betur af! Jáh svona já… já, já, þetta er flott, elsk- an“. Það var gaman að vinna saman. Hjarta tvistur. Engin smáatriði, ekkert röfl. Engan æsing þó gestirnir fái „bara“ kaffi, aðalatriðið er sam- komst og að finna tengingar og vera kammó. Þó það sé vissu- lega, ef út í það fer, reglulega hyggeligt að hafa eitthvað með kaffinu. Hjarta drottning græj- ar það. „Lestu söguna, gerðu það, lestu. Svo helvítis viðbjóður heimsstyrjaldarinnar endurtaki sig ekki.“ Prump. Pass. Sumur og páskar, kojurnar og laugin í Langholti. Og seinna réttir með góðum vinum. Laufa fjarki. Endalaust stoltur af öllum barnabörnunum. Grímsstaða- stundir. Afi las fyrir litlu stúlk- urnar. Gaf þeim graut. Spilaði, líka rommý og lagði kapal. Og þau grétu úr hlátri yfir Steina og Olla. Hjarta fjarki. Útsala, útsala – fáum helst fjögur eintök, eða höfum þau fimm, gæti verið gott að eiga. Smá ropi. Skúrinn pakkfullur; „Morgunblaðið, góðan daginn!“. Tígul fjarki. Tryggur sínum, en ekki til að hreykja sér. Hjarta kóngur. „Gaspur“ og smjatt um fólk; ekki til að tala um, takk. Pass. Hnetutoppur eða ís úr vél – „ég splæsi“. Breyti í tígul. Bjór er svo sem drekkandi, en förum ekki að flytja vatn milli landa. Laufa þristur. „Hvað segirðu, hvernig er veðrið hjá ykkur?“ Tígull fyrir, en breytist svo í kröftugt lauf – en við erum búin að koma öllu í var. „Lægge sig“. Í skrýtinni birtu skinu skapgæska og æðruleysi skært, þótt harðnaði á dalnum. Smíðar og ferðalögin kveiktu neistann og danskan eða tack så mycket. Ég uni honum hvíldarinnar. Þakklát fyrir góðar stundir allt til enda, ofsa góðum pabba og hjarta fullu af minningum. Myndirnar hans – og svo mynd- irnar mínar. Sálin hans er nú orðin ein af skærustu stjörn- unum á himninum eins og eitt af hans uppáhöldum orðaði það. Óendanleikinn og átturnar sem breyta í allt; Ólsen, Ólsen-Ól- sen. Jóhanna Katrín (Hanna Kata). Pabbi farinn. Já, hann er far- inn. Pabbi, sem lagði grunninn að lausn margra þeirra verk- efna sem fyrir okkur hafa legið á lífsleiðinni. Hann var góður leiðbeinandi og byrjaði snemma að treysta okkur systkinunum fyrir ýmsum verkefnum sem táningar fengu sjaldan að spreyta sig á. Traustið og trúin á getu okkar var mikil. Afi farinn, sem hafði mikla unun af barnabörnunum og oft tilbúinn í Ólsen með hæfilegum skammti af svindli, þó þrekið hafi ekki verið mikið síðustu ár- in. Pabbi gekk einna fyrstur manna Laugaveginn, milli Landmannalauga og Þórsmerk- ur, með góðum félögum. Reim- aðir gúmmíklossar, þríhyrn- ingslagaðir bakpokar og seglagerðartjald komu þar við sögu. Ferðalög og gönguferðir áttu hug hans allan á fyrri hlutan- um. Farfuglar spiluðu þar stórt hlutverk og þar kynntist hann vinum og besta lífsförunautnum sem hugsast gat, mömmu. Hann var þó víst ekki alveg tilbúinn í sambandið til að byrja með en sá fljótt að sér og heill- aði dömuna sem flutti til hans til Kaupmannahafnar nokkrum mánuðum síðar. Minning um miðnæturgöngu með tjaldlausri gistingu á gljúf- urbakka Stóru-Laxár mun lifa með mér áfram. Einhverjum þótti það víst heldur djörf hug- mynd. Við gengum tveir saman í gljúfrinu um mitt sumar frá því seint um kvöld fram undir morgun í blíðskaparveðri og nutum. Já, hugmyndir pabba um upplifanir voru djarfar og spennandi. Þau mamma skelltu sér á fimmtugsafmælinu í heimsókn til Eddu systur á Nýja Sjálandi sem þá var ekki alveg eins mik- ið í alfaraleið og nú er orðið. Það var töff. Pabbi kom víða við á starfs- ferlinum og helgaði Farfuglum stóran hluta hans, þar sem hæst ber bygging fyrstu áfanga Farfuglaheimilisins í Laugardal þar sem hann mánuðum og ár- um saman vann myrkranna á milli og skilaði góðu verki. Framlag hans var einnig mikið í uppbyggingu Farfugla í Slyppugili í Þórsmörk, sem hann dáði mjög. Hann stýrði framkvæmdum við nokkrar stórbyggingar og atvinnuhús- næði og mörg einbýlishús og sumarbústaðir nutu handverks hans og reynslu. Þá eru ófá og ótalin hand- tökin sem umbreyttu gömlu sumarhúsunum í Brennholti og Syðra-Langholti í notalegar vistarverur þar sem fjölskyld- urnar komu saman og áttu margar ógleymanlegar stundir. Ekki var að spyrja að þegar við, fjölskyldan hans á Egils- stöðum, byggðum yfir okkur í tvígang, hann var boðinn og bú- inn að mæta og leggja sitt af mörkum. Pabbi var nærri daglegur gestur í Byko og fór vel á því að þar lauk hann starfsævinni, þar sem þjónustulundin var í fyrirrúmi og ánægjan af því að blanda geði við fólk fékk notið sín. Allra síðustu árin voru held- ur dapurleg. Pabbi lenti í þeirri stöðu sem enginn óskar sér, að vera upp á aðra kominn. En aldrei kom það fyrir að hann kvartaði hið minnsta, tók öllu sem á dundi með miklu jafn- aðargeði. Mamma á svo inni- legar þakkir skildar fyrir óþrjótandi umhyggju og seiglu, sem og Hanna Kata og Sig- urjón. Pabbi sá örugglega fyrir sér að geta notið mömmu, barnabarnanna, íslensku nátt- úrunnar og annarra undra ver- aldar mun lengur. Far vel. Vadjú maður! Minn- ingin mun lifa. Aðalsteinn. Út úr grænum Saab stígur Þórhallur í köflóttri skyrtu, gallabuxum og úlpu með teikn- ingar og fleira undir hendinni og heilsar krakkahernum með brosi. Hann er mættur heim til sín í Selbrekkuna, þar vorum við krakkarnir annaðhvort í heimsókn eða u.þ.b. að fara að gista í góðu atlæti enda þau hjónin höfðingjar heim að sækja. Við fjölskyldan áttum marg- ar góðar stundir í Selbrekk- unni. Í matarboðum myndaðist alltaf góð stemning. Þórhalli fannst gaman að stuða fólk og gat verið smá hrekkjalómur. Þegar sest var að spili setti Þórhallur oft tóninn með sprelli eða hljóðum svo hlátrasköll fóru í gang sem héldu svo áfram út kvöldið. Þetta voru okkar uppá- haldsspilakvöld. Á jólunum stóð spilamennskan nær alltaf fram á rauðanótt og meðal annars farið í spilið Sequence. Oftar en ekki gleymdi Þórhallur að draga spil svo möguleikum hans fækkaði óðum sem uppskar mikinn hlátur. Fjölskyldurnar sameinuðust í stóran bíl í skíðaferð til Ak- ureyrar sem reyndist ævintýri og geymir góðar minningar. Á leiðinni gerði hríðarbyl svo ef- laust hefðu einhverjir stoppað og beðið það af sér. Þórhallur ákvað hins vegar að vippa sér út og ganga á undan bílnum. Hann nefndi að hann ætlaði ekki að hafa það á samviskunni að fjölskyldurnar yltu niður fjallshlíðina. Þórhallur gerði svo smá grín að því eins og væri verið að tilkynna það í útvarp- inu að við hefðum farist á leið- inni niður fjallið í hríðarbylnum, áður en hann dreif sig út aftur og aftur. Þórhalli fannst gaman að hlusta á tónlist, þá helst fal- legar sinfóníur og þá þurfti að athuga hvort græjurnar virk- uðu vel með því að stilla í hæstu hæðir svo nágrannar og aðrir góðir gestir fengju að njóta. Þórhallur var liðtækur smið- ur, sem við fengum að njóta góðs af. Oftar en ekki heyrðust nokkrar dönskuslettur við smíð- ina sem áttu vel við og fram- kölluðu bros hjá þeim sem voru í kring. Þegar bústaður okkar beggja fjölskyldna í Brennholti var endurnýjaður hafði Þórhall- ur veg og vanda af því og hafði undirbúið verkefnið vel. Ungir aðstoðarmenn fengu leiðsögn í smíðinni og höfðu bæði gagn og gaman af. Hjá Þórhalli var ekki verið að ana að neinu, hann var vandvirkur og horfði frekar til áratuga enda mikilvægast að hlutirnir væru vel gerðir, frekar en að þá tæki fljótt af. Oft var tekið blað, þar sem hlutirnir voru rissaðir upp og við tók út- skýring á verkinu. Það má segja að hann hafi tekið kenn- arahlutverkið alvarlega þar sem hann vildi miðla af reynslunni. Kaffipásurnar léku að sama skapi stórt hlutverk enda oft ekki í styttri kantinum og mögulega var ein kría tekin í leiðinni þar sem það var nauð- synlegt að „lægge sig“. Hann undi sér einstaklega vel í Brennholti og lagði leið sína oft þangað enda mikið náttúru- barn. Elsku Svanhildur, Aðal- steinn, Sigurjón, Hanna Kata og fjölskyldur, um leið og við kveðjum góðan frænda sem lifir í hjörtum okkar, vottum við okkar dýpstu samúð vegna frá- falls hans. Georg Pétur, Silla Þóra og Anna. Kær vinur og mágur hefur kvatt. Við höfum haft meira og minna saman að sælda í meira en fimmtíu ár, eftir að hann sameinaðist fjölskyldunni, þegar þau Svanhildur systir gengu í hjónaband. Þórhallur lærði tré- smíði og bætti við sig námi í byggingafræði í Danmörku. Það var því sjálfsagt að leita til hans um öll slík verkefni sem til féllu. Þau Svanhildur byggðu sér hús í Selbrekku 25, en við þá fram- kvæmd kom ég lítillega til að- stoðar öðru hvoru, það var fyrsta samvinnan okkar í bygg- ingamálum. Hann var alltaf tilbúinn til framkvæmda, athug- ull og úrræðagóður. Við áttum marga góða vinnustund saman í Langholti, ásamt Braga og Tryggva og seinna með næstu kynslóð við ýmsar lagfæringar og endurbætur, málningu, pípu- lagnir og múrverk svo nokkuð sé nefnt. Seinna var hann bygg- ingarstjóri þegar nýr bústaður var reistur í Dísarhöll. Þar vor- um við samherjar, hann sem fagmaðurinn, ég handlangarinn. Ávallt kom okkur vel saman, stutt var í grínið. Stundum var brugðið fyrir sig prentsmiðju- dönsku til hátíðabrigða. Hann var afar vandvirkur í sinni vinnu, vel heima í hinum ýmsu byggingarefnum, hafði tamið sér ákveðnar aðferðir, en var alltaf tilbúinn að hlusta á og rökræða nýjar hugmyndir. Á yngri árum hafði hann mik- inn áhuga á útivist og göngu- ferðum, var lengi virkur félagi í Farfuglum, vann líka fyrir fé- lagið í Þórsmörk og kom mikið að byggingu Farfuglaheimilisins í Laugardal. Seinna fórum við Unnur ásamt þeim hjónum í gönguferðir með Ferðafélaginu um Víknaslóðir og í Lónsöræfi okkur til mikillar ánægju. Með- an börn okkar Þórhalls voru ung kom hann gjarna með hug- mynd um styttri bílferðir og tók þá allan barnaskarann með, allt- af pláss í Volvo station. Einnig fórum við saman til Austurríkis og Þýskalands. Þau Svanhildur höfðu áður ferðast kringum jörðina, farið í heimsreisu. Í þeirri ferð heimsóttu þau skyld- menni, bæði í Ameríku og á Nýja-Sjálandi. Seinna rakti hann oft atburði úr þessari ferð á sinn fjöruga hátt. Hann naut greinilega ánægjunnar af ferð- inni í mörg ár. Þórhallur var ágætur sögu- maður, hafði næmt auga fyrir hinu spaugilega. Hann var alls ófeiminn og gaf sig gjarna á tal við fólk sem hann hitti fyrir til- viljun á förnum vegi. Heyrðu, varst þú ekki í Melaskólanum? Hann var minnugur á andlit, þannig að þetta reyndist oft rétt. Ef viðkomandi hafði ekki verið í Melaskóla breytti það engu. Það varð úr samtal, sem hann sagði síðar frá, lítið æv- intýri varð til af svona tilefni. Á síðustu árum fór heilsa Þórhalls að bila. Smám saman fór líkamleg færni minnkandi og síðan andleg. Þar kom að hann gat ekki lengur búið heima. Var hann síðustu árin vistmaður á Hrafnistu í Boðaþingi við ágæt- an aðbúnað. Ég heimsótti hann oft framan af og við tókum í spil. Það var ótrúlegt hvað hann var lunkinn spilamaður, hann vann oftast. Svanhildur og fjöl- skylda studdu hann og hlúðu að eftir mætti til hins síðasta. Góðs vinar er sárt saknað. Við sendum Svanhildi og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveðj- ur. Kristján Sigurjónsson. Þórhallur Aðalsteinsson - Fleiri minningargreinar um Þórhall Aðalsteins- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Elí Zenia Margrethe Kristinsson fæddist í Hobro í Dan- mörku 23. janúar 1925. Hún lést á heimili sínu 9. nóv- ember 1922. Foreldrar henn- ar voru Hans Jak- obsen konditor- meistari og kaup- maður og Anne Marie Jakobsen húsmóðir. Bræður Margrethar voru Lars, Mogens og Kai og eru þeir allir látnir. Margreth giftist 24.11. 1956 Sigurbirni Ó. Kristinssyni mál- arameistara, f. 5.3. 1924, d. 24.12. 2011. Börn þeirra eru: Björn Uffe, f. 1954, sjómaður, sambýliskona Bjargey Einars- dóttir. Björn á einn son. Anna Gréta, f. 1956, skrifstofumaður, maki Sævari G. Jónsson, þau eiga þrjú börn og fjögur barna- börn. Edda Bára, f. 1957, hjúkrunarfræðingur, maki Ei- ríkur Benediktsson, þau eiga tvö börn og eitt barnabarn Helga Stella, f. 1960, skrif- stofumaður, maki Rúnar J. Guð- mundsson, þau eiga tvö börn. Langömmubörnin eru orðin fimm. Margrethe ólst upp á Amager í Danmörku. Hún lauk grunn- skólanámi og fór svo í húsmæðra- skóla. Hún starfaði um tíma í verslun föður síns. Hún kom fyrst til Íslands í árs- byrjun 1946 og starfaði sem „pige í huset“, fyrst um sinn hjá Agnari Kofoed Hansen og svo síðar hjá öðrum fjöl- skyldum, t.d. Guido Bernhöft. Hélt hún sambandi við þá fjöl- skyldu meðan þau lifðu. Eftir að börnin fæddust var hún heimavinnandi. Síðar starfaði hún í þvottahúsi á St. Jósephs spítala í Hafnarfirði. Margrethe tók virkan þátt í félagsstarfi , bæði í Dansk kvindeklubb og Inner Wheel í Hafnarfirði. Útför Margrethar fer fram frá Garðakirkju í dag, 21.11. 2022, klukkan 13. Kveðja frá Inner Wheel Hafn- arfjörður Látin er okkar ágæti félagi Margrethe Kristinsson, heiðurs- félagi klúbbsins. Hún var ein af stofnfélögunum árið 1976 og starfaði í klúbbnum alla tíð síð- an. Hún var trúr og góður félagi og mætti á alla fundi og í öll ferðalög og lét ekki háan aldur aftra sér frá því. Markmið Inner Wheel eru m.a. að auka sanna vináttu og efla mannleg sam- skipti. Margrethe átti mjög vel heima í félagsskap með slík markmið. Hún var dagfarsprúð og kom vel fyrir og eigum við ljúfar minningar um þessa hæg- látu og elskulegu konu. Sérstak- lega minnumst við þess er hún stóð upp á fundum og las fyrir okkur, stundum á íslensku og stundum á dönsku, brandara sem hún hafði klippt út úr dönsku blöðunum. Við þökkum henni af heilum hug fyrir störf hennar, fyrir að hafa notið vináttu hennar á liðn- um árum og fyrir að hafa getað átt með henni góðar stundir. Fjölskyldu hennar biðjum við blessunar og minnumst þess að góðar minningar eru fjársjóður til framtíðar. Blessuð sé minning hennar. Valdís B. Guðjóns- dóttir, forseti Inner Wheel Hafnarfjörður. Margrethe Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.