Morgunblaðið - 21.11.2022, Page 19

Morgunblaðið - 21.11.2022, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Tökum á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt húsnæði og nýir glæsilegir bílar. Sjá nánari upplýsingar á utfor.is Útfararþjónusta Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina – Þjónusta um allt land og erlendis – Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum í yfir 70 ár Guðný Hildur Kristinsdóttir Framkvæmdastjóri Ellert Ingason Sálmaskrár, útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjöf, útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Helga Guðmundsdóttir Útfararþjónusta Hinrik Norðfjörð Útfararþjónusta Helena Björk Magnúsdóttir Útfararþjónusta ✝ Jónatan Jóhann Stefánsson frá Sólheimum í Garði fæddist 15.2. 1943. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu í Víði- hlíð í Grindavík 29. október 2022. Foreldrar hans voru Stefán Ólafur Sveinbjörnsson frá Eiði í Gerðahreppi, f. 14.7. 1909, d. 29.11. 1956, og Guðbjörg Ragn- hildur Jóhannsdóttir frá Skálum á Langanesi, f. 13.4. 1908, d. 15.1. 1983. Jónatan Jóhann átti eina syst- ur, Halldóru Stefánsdóttur, f. 14.12. 1947, d. 17.12. 2011 á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja. Börn Halldóru voru: 1) Guðbjörn Már Hjálmarsson, f. 26.10. 1982, d. bátum frá Suðurnesjum en átti sinn besta tíma á Patreksfirði þeg- ar hann var vélstjóri hjá Jóni Magnússyni, skipstjóra á Garðari BA 64, síðustu árin sem hann var gerður út. Tani fór sinn síðasta formlega róður á Njáli GK árið 2011. Tani þótti góður vélstjóri, naskur í viðgerðum og sótti sjald- an smiðjumann um borð. Hann stundaði leigubílaakstur frá árinu 1977 til 2019 ásamt sjómennsku í 55 ár. Tani bjó yfir sterku minni og hafði ánægju af því að rifja upp ýmsan fróðleik og sögur af sjónum og gat rakið framfarir í tækjavæð- ingu bátaflotans frá því að hann fór fyrst á sjó 14 ára gamall. Tani var vinstrimaður og stofnandi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 6. júní 1999. Jónatan var einnig í talsverðum samskiptum við Færeyinga og sótti samfélag þeirra í Færeyska sjómannaheim- ilinu í Reykjavík. Síðustu æviárin bjó hann í Miðhúsum í Sandgerði og hjúkrunarheimilinu Víðihlíð. Útför Jónatans fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 21. nóv- ember 2022, klukkan 15. 10.9. 1995. 2) Stefán Hjálmarsson, f. 4.7. 1979. Eiginkona hans er Victoría Nu- nez Cavazos, f. 1.8. 1976. Börn þeirra eru Azúl Björt, f. 14.6. 2012, og Máni Kai, f. 2.7. 2012. Jónatan Jóhann eða Tani eins og flestir þekkja hann bjó á Sólheimum í húsi foreldra sinna í Garði. Hann var aðeins 13 ára þegar faðir hans lést og 14 ára fór hann til sjós til að afla tekna og létta undir með rekstri heimilis móður sinnar og systur. Hann sýndi frænda sínum Guðbirni sem lést 13 ára gamall mikla athygli og ástúð. Þann kær- leik sýndi hann ávallt öllum börn- um í vanda. Tani var á ýmsum Síðasta sagan úr bakaríinu: Já ég á bara eftir að setja upp í mig tennurnar, var svarið þegar ég spurði hvort hann væri klár í bak- aríið og klukkan bara 6. Þar rædd- um við pólitík og vinstrisinnaða lífsskoðun sem hann tók fram yfir æskuástina. Bettý vann í Píexinu og yfirmaður hennar sá Tana drekka kakó heima hjá komman- um í Slippnum. Það var brott- rekstrarsök á Vellinum að vera í slagtogi við komma og Tani valdi þá fram yfir æskuástina sem var draumur hans. Djúpstæð vinátta Tana við stofnfélaga VG var bak- land einstæðings til síðasta dags. Hann var stoltur af því að hafa ekki gefist upp þó skoðanakann- anir hafi verið svartar. Hann lagði til fundargerðarbók og var skráð- ur félagi #7 og fannst hann bera ábyrgð á þingmönnum, ráðherr- um og forseta sem komu frá hon- um og VG. Tani lét prjóna VG- peysu fyrir sig og Katrínu. Peys- una fékk hún afhenta á ógleymanlegri stund í forsætis- ráðuneytinu. Hann var minnugur og mundi tímasetningar allra skip- ana sýslumanna og bæjarfógeta á landinu frá fyrstu konungsskipun. Og mundi símanúmer með því að breyta þeim í bílnúmer og nöfn eigenda. Þegar hann var spurður um símanúmerið mitt 8943900, þá var svarið. Emil Ö898 og Maggi Þorsteins Ö39. Hjá Bergþóri Óla- syni, 8989007, Reyni Gísla Ö898, Sverri bróður Magga El Ö90 og 07 var númer á sjókæli á Lister-báta- vél. Leit að kúplingsdiski hjá Kistufelli með tommu gati og 10 rílum fékk magnaðan endi. Slíkur diskur hafði ekki verið til í landinu í mörg ár. En Tani mundi að hjá vini hans í Garðinum var Rabel Clacik-diskur búinn að hanga ryk- fallinn uppi á vegg í 15 ár og hann bjargaði málinu. Tani hóf sjó- mennsku sína á Hólmsteini GK 15 ára gamall og var síðar vélstjóri á mörgum bátum. Árin með Jóni Magnússyni á Garðari BA 64 og veran á Patreksfirði reis hæst í lífi hans. Þar fann hann traust og virðingu sem hann hafði þráð alla tíð. Í fjögur ár hélt hann 70 ára vélinni og kraminu í Garðari gang- andi og fékk aldrei smiðjumann um borð. Hann fór ekki í land fyrr en allt var klárt fyrir næsta róður. Þeir rótfiskuðu og eina vertíðina hafði Tani ekki farið frá borði í 9 vikur og þeir komnir með 1.000 tonn. Jón gaf körlunum stutt frí til að fara heim og halda upp á tíma- mótin. Lilja kona Jóns bauð Tana að koma heim til þeirra og fara í bað og borða saltkjöt. Tani lét til- leiðast að fara í bað og Lilja henti nærbuxunum með níu vikna bremsuförum. Þetta er þjóðsaga á Patró og Tani í metum hjá fólkinu þar. Lífið var VG, sjórinn, díselvél- ar, líkön og sögur af bátum, tækj- um og veiðum. Tani gekk álútur og kjagandi einstíg í lífinu sam- kvæmt eigin reglum og þanka- gangi. Hann hringdi, kom og fór án þess að heilsa eða kveðja. Tani var vinur vina sinna á sinn sér- staka hátt, góður við börn og grét vegna erfiðleika þeirra en reiddist þegar æsku hans sjálfs bar á góma. Tani leysti landfestar í síð- asta sinn og sagði síðustu söguna í Sigurjónsbakaríi í VG-peysunni. Það rymur í honum eins og í Völ- undar-vél þegar hann siglir með böggum hildar inn í móðurskautið og birtuna. Hann náði að fyrirgefa og sættast og fór frjáls með friði. Ásmundur Friðriksson alþingismaður. Ég sat við eldhúsborðið og fékk mér morgunkaffi. Skyndilega heyrist bílflaut fyrir utan, þrjú flaut í röð. Ég gekk að glugganum. Á miðju hlaðinu stóð bifreið með bílnúmerinu H. Betty. Bílrúðan var skrúfuð niður og það var kall- að: „Er þingmaðurinn ekki vakn- aður, þetta er nú meiri lúxusinn hjá þessum þingmönnum.“ Út úr bílnum steig Tani vinur minn, kominn í kaffi. Jæja, nú er ég með fréttir, sagði hann. Svo hófst ræð- an. Mér fannst ég vera kominn á pólitískan framboðsfund. Ræðan bar þess vel merki að sá sem hana flutti hafði pólitískt nef, eins og sagt er. Pólitíska hjartað sló hjá Vinstri grænum, enda maðurinn einn stofnenda flokksins, númer sjö. Tani var nátengdur stjórn- málamönnum úr flestöllum flokk- um. Sjómaður, vélstjóri og leigu- bifreiðarstjóri. Hafði brennandi áhuga á stjórnmálum og var í beinu sambandi við forsætisráð- herra, forseta Alþingis og þing- menn. „Sestu, þrjár mínútur í við- bót, svo er ég farinn“ og ræðan hélt áfram. Rúmum klukkutíma síðar kvaddi hann. Síðdegis hringdi hann svo og þá tók við önnur pólitísk ræða: „Jæja, nú er ég með fréttir úr pólitíkinni, ég hitti mann.“ Við Tani áttum dagleg símtöl um árabil og enduðu þau öll á sama veg. Hann lagði símtólið á án þess að kveðja. Allra síðustu ár sagði hann þó einstöku sinnum: „Ég þakka fyrir“ og lagði svo á. Það var að sjálfsögðu ég sem átti að þakka fyrir þessar sögustundir, sem voru í raun list. Tilsvörin gátu verið eftirminnileg. Eins og túrinn með Garðari frá Patró sem stóð í rúmar þrjár vikur. Þegar í land var komið bauð skipstjórinn Tana að fara í bað heima hjá sér enda þrjár vikur langur tími baðleysis. Tani afþakkaði kurteisilega og sagði: „Það tekur því nú ekki, það eru bara tvær vikur eftir af túrn- um.“ Leiðir okkar Tana lágu fyrst saman þegar ég var unglingur. Kynnin voru eftirminnileg, ég sá þennan fyrirferðarmikla og hrausta mann í fyrsta sinn á hlýra- bol með axlabönd að gera að stórum steinbít á miðju eldhús- borðinu. Ég og faðir minn vorum komnir í matarboð. Honum lá hátt rómur og sagði: „Borðaðu meira maður, þú ert að vaxa.“ Ég þorði ekki að leifa soðnum steinbít og af- þakkaði ábótina. Tani hafði dálæti á hefðbundnum íslenskum mat. Eitt sinn hringdi ég í hann og bauð honum í gúllas. Hann vildi þá fá að vita hvers konar gúllas það væri, ég lýsti þá matargerðinni fyrir honum í stuttu máli. Þegar því var lokið lagði hann símtólið á. Hann lét síðan ekki sjá sig í gúllasið, enda rétturinn með austurlensku ívafi. Ókvæntur og barnlaus með stórt hjarta. Æskuástin H. Betty. Hann þekkti marga, greindur, minnugur, sagði margar sögur og eldaði sér kjötsúpu á jólum. Horfði á Alþingisrásina og fékk jólakort frá Bessastöðum á hverju ári í 20 ár. Eitt sinn ók Tani á leigubílnum niður Laugarveginn, sá þá Ólaf Ragnar og frú á gangi. Sveigði bílnum að gangstéttinni, í áttina að þeim hjónum, skrúfaði niður bílrúðuna og kallaði: „Ólafur, nú ferð þú í forsetann.“ Nei, Tani minn, sagði frúin, það verður aldr- ei, hann er svo óvinsæll. Tani hafði hins vegar á réttu að standa eins og svo oft áður í pólitíkinni. Ólafur varð forseti og Tani fékk jólakort- in góðu. Að endingu sat ég við rúm- stokkinn hjá þessum góða og trygga vini. Það var komið að leið- arlokum. Handabandið sem eitt sinn var þétt og ákveðið var orðið veikt. Ég bað fyrir Guðs blessun. Hann lagði aftur augun í hinsta sinn. Sáttur og hvíldinni feginn. Þögnin var djúp og friðurinn sæll. Hafðu þökk fyrir allt og allt, kæri vinur. Ég mun sakna þín. Guð blessi minningu Tana. Birgir Þórarinsson. Jónatan Jóhann Stefánsson - Fleiri minningargreinar um Jónatan Jóhann Stefáns- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.