Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 22

Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 22
Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Byrjum daginn á opnri vinnustofu - Endilega komið að prófa vinnustofuna okkar - frítt kaffi til 11 og alltaf hægt að finna sér eitthvað skemmtilegt til að skapa úr. - 10:30 er það svo Kraftur í KR - Hér er alltaf dúndur mæting, hvetjum þig til að koma prófa - 13. Félagsvist - hér vantar okkur leikmenn svo endilega komið og prófið félagsvist á mánudögum - 13:15 Skák með leiðbeinanda - opið öllum Árskógar 4 Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Boccia kl. 10. Heil- sumæling kl.10.30. Handavinna kl. 12.30-16. Félagsvist kl. 12:45. Glervinnustofa kl. 13 - 16. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Boðinn Mánudagur 21. nóvember: Pílukast kl. 9. Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13. Sundlaugin opin til kl. 16. Dalbraut 18-20 Brids kl.13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11. Postulínsmálun kl. 9-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RUV kl. 9:45- 10. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13:10.Tálgað með Valdóri kl. 12:30-15:30. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Laugardaginn 26. nóvember verður jólamarkaður í Hæðargarði kl. 13-17.Til sölu verður handverk eftir þátttakendur í félagsstarfinu. Kaffihúsastemning, selt verður súkkulaði með rjóma og smákökur Garðabær 9. Pool-hópur í Jónshúsi 10. Ganga frá Jónshúsi 11. Stólajóga í Kirkjuhv. 12.30-15.40 Bridds 12.40 Bónusrúta frá Jónsh. 13. Gönguhópur frá Smiðju 13-16. Glernámskeið í Smiðju 13.45-15.15 Kaffiveitingar í Jónsh. 15.00 / 15.40 / 16.20 Vatnsleikf. í Sjálandssk. 16.30 Zumba Gold í Kirkjuhv. Gjábakki Námskeið íTÆKNILÆSI og SNJALLTÆKJANOTKUN kl. 13 til 15. Gjábakki Boccia kl. 9 til 10.30. Postulínsmálun kl. 9 til 11.30. Jóga kl. 10.50 til 12.10. LOGI fataverslun mætir í Gjábakka og verður kl. 11 til 13! Opin handavinnustofa kl. 13 til 16. Canasta kl. 13.15 til 15. Kóræfing hjá Söngvinum kl. 16.30 til 18.30. Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 22. nóvember verður opið hús í Grafarvogskirkju. Opna hús dagsins verður heimsókn til Hjálpræðishersins. Munum skoða nýja glæsilega húsið þeirra, þiggja kaffi og kruðerí. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 13. Heimkoma rétt fyrir kl. 16. Umsjón hefur Kristín Kristjánsdóttir. Kyrrðarstund er kl. 12. Að kyrrðarstund lokinni eru léttar veitingar gegn vægu gjaldi. Gullsmári Mánudagur: Handavinna frá kl. 9-16. Bridge kl. 13. Jóga kl. 17. Félagsvist kl. 20. Hraunsel Mánudaga: Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9. Stóla yoga kl. 10. Félagsvist kl. 13. Gaflarakórinn: Kl. 11. Korpúlfar Borgum Mánudagur: Hugleiðsla og létt yoga kl. 8:30. Gönguhópar frá Borgum og inni í Egilshöll.Tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna göngu við sitt hæfi kl. 10. Félagsvist í Borgum kl. 12:30. Prjónað til góðs kl.13.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13. Kóræfing Korpusystkina kl. 16. Gleðin býr í Borgum. Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9. Leir á Skólabraut kl. 9. Billjard í Selinu kl. 10. Jóga/leikfimi á Skólabraut kl. 11. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Á mor- gun þriðjudag verður pútt á Nesvöllum kl. 10.30. Vantar þig fagmann? FINNA.is alltaf alstaðar mbl.is Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Sá vinsælasti. MMC Eclipse Cross phev Intense +. Árgerð 2022. Nýtt ökutæki Bensín/Rafmagn, sjálfskiptur. Forhitun á miðstöð. Verð 6.590.000. Rnr. 140471. Aukahlutapakki að upphæð kr. 360.000,- fylgir með, sem inniheldur: Dráttarkrók, gúmmí- mottur, sumar- og vetrardekk. Gráir og svartir í boði. Seljandi skoðar skipti á ódýrari. Nánari upplýsingar veita Höfðabílar ehf. í síma 577-4747 Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 ✝ Sigurlaug Gísla- dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 12. janúar 1946 og ólst þar upp. Hún lést á Landspítal- anum við Hring- braut 9. nóvember 2022. Foreldrar Sigur- laugar voru Gísli Gíslason, f. 13. nóv- ember 1902, d. 24. desember 1972, og Ásdís Guð- mundsdóttir, f. 10. ágúst 1913, d. 9. október 1995. Sigurlaug var ein af 15 systk- inum og var hún 10. í röðinni af þeim. Hin eru í aldursröð: Unnur, Andrea Karen. Börn þeirra eru Aron Ingi, Steinar Sindri og Tóm- as Orri. Barnabörnin eru sex. 3) Þórunn Helga, f. 1972. Gift Jó- hanni Böðvarssyni. Börn þeirra eru Þorvaldur Helgi, Hrafnhildur Kristín og Haukur Ingi og eitt barnabarn. 4) Guðmundur Stefán, f. 1977. Unnusta hans Jóhanna G. Þórisdóttir. Frá fyrra hjónabandi á hann Guðrúnu Sögu. Börn Jó- hönnu eru Nikulás, Gígja Kristín og Ari Grímur. Sigurlaug gegndi ýmsum störf- um á lífsleiðinni. Byrjaði ung að árum að starfa í fiski í Vest- mannaeyjum og seinna í Reykja- vík. Hún vann einnig margvísleg verslunar- og umönnunarstörf. Síðustu starfsárin vann hún sem skólaliði í Lindaskóla í Kópavogi. Útför Sigurlaugar fer fram í Seljakirkju í dag, 21. nóvember 2022, kl. 13. Streymt verður frá athöfninni, https.//www.mbl.is/andlat Haukur, Garðar, Sig- ríður, Guðrún, Gísli, Þóra, Guðmundur, Halldóra, Stefán, Ólafur, Kristrún, Halldóra og Þóra. Eftirlifandi eig- inmaður Sigur- laugar er Þorvaldur Helgi Benediktsson, f. 28. júlí 1945. Börn þeirra eru: 1) Hall- dóra, f. 1965. Gift Ronny Thorød. Börn hennar af fyrra hjónabandi eru Sigríður Heiða, Dagný Ýr og Brynjar Gauti og á hún eitt barnabarn. 2) Matt- hildur, f. 1966. Gift Agnari Stein- arssyni. Barn hennar fyrir er Elsku mamma er búin að fá hvíldina. Undanfarna mánuði í veikindum hennar hafa margar minningar komið upp í hugann og hefur þakklæti verið okkur ofar- lega í huga. Mamma var mikil fjöl- skyldukona og leið aldrei eins vel og þegar hún var umkringd fólkinu sínu. Það leyndi sér ekki hversu stolt hún var af afkomendum sínum þegar hún talaði um þá. Mamma vildi hafa gleðina við völd eins og sannur Vestmannaey- ingur. Hún elskaði að halda veislur og eiga samverustundir með fólk- inu sínu. Hún hafði sérstaklega gaman af því að spila en því hafði hún gert mikið af allt frá barnsaldri í stórum systkinahópi. Mamma var stolt af uppruna sín- um og var dugleg að fara með fjöl- skylduna til Vestmannaeyja eftir gos. Þá urðu þjóðhátíðirnar gjarn- an fyrir valinu sem voru sveipaðar ævintýraljóma í augum okkar systra. Mamma hafði mjög gaman af því að ferðast. Þau pabbi drösluðust með okkur systkinin í tjaldútilegur, á alls konar misstórum bílum og stundum frekar bílveikum krökk- um. Fyrst í A-tjaldi og síðan í for- láta hústjaldi sem þau fjárfestu í og voru ein af þeim fyrstu á tjaldstæð- um landsins í þannig tjaldi. Eftir að við systkinin flugum úr hreiðrinu létu þau loks eftir sér að kaupa hús- bíl sem þau notuðu mikið. Þá byrj- uðu þau einnig að ferðast til útlanda og fóru víða, bæði í borgar- og sól- arlandaferðir. Mamma bjó yfir mörgum hæfi- leikum sem hún nýtti sér í móður- og húsmóðurhlutverkinu. Hún var einstaklega dugleg í því sem hún tók sér fyrir hendur og það var aldrei neitt hálfkák í verkum henn- ar, sama hvað það var. Hún var mikil handavinnukona og saumaði t.d. öll föt á okkur systkinin lengi vel. Hún prjónaði talsvert og í seinni tíð seldi hún lopapeysur og hosur, auk þess fengu afkomendur að njóta afurðanna í afmælis- og jólapökkunum. Matreiðsla var henni hugleikin. Hún og pabbi fjöldaframleiddu alls kyns kökur til að eiga með kaffinu, þau bjuggu til kindakæfu og rab- arbarasultu í stórum stíl og að sjálf- sögðu voru börn og barnabörn leyst út með krukkum af því eðalgóssi. Brauðtertan hennar mömmu var alveg hreint himnesk en hún var með leynitrix í pokahorninu sem hún deildi með okkur systkinum. Svo voru auðvitað heitu sósurnar hennar, jólabúðingurinn og steikti fiskurinn í raspi alveg í sérflokki. Barnabörnin hringdu sérstaklega í hana og báðu hana að bjóða sér í uppáhaldsömmufiskinn. Það er gott að eiga góðar minn- ingar til að ylja sér við. Við verðum alltaf þakklát fyrir fallegu, duglegu og ósérhlífnu mömmu okkar. Miss- ir okkar er mikill og við munum sakna hennar óendanlega. Ein af síðustu óskum hennar var að við systkinin og fjölskyldur myndum passa upp á pabba og það munum við gera. Við stöndum saman og hjálpum honum að lina sársaukann sem er mikill eftir nær sextíu ára samband. Við trúum því að amma og afi í Eyjum hafi tekið á móti henni með hlýja faðminn sinn ásamt systkin- um hennar sex sem eru látin. Takk fyrir allt elsku mamma. Minning þín er ljós í lífi okkar. Halldóra, Matthildur, Þórunn Helga og Guðmundur Stefán. Elsku Lauga. Ég ávarpa þig í fyrstu persónu því að ég veit að þú vaknar alltaf klukkutíma á undan Valda til þess að lesa Moggann. Krossgátan var alltaf í uppáhaldi og auðvitað minn- ingargreinarnar. Því að líf, ástir og örlög fólks voru alltaf þitt hjartans mál. Rétt eins og í Rauðu ástarsög- unum sem þú last þér til ánægju áratugum saman. Fjölskyldan stóð alltaf hjarta þínu næst og í Fjalla- lindinni byggðuð þið hjónin upp un- aðsreit sem allir elskuðu að heim- sækja. Þið voruð alltaf höfðingjar heim að sækja og hjálpsemin með algjörum eindæmum. Í Fjallalind- inni var alltaf hægt að ganga að því vísu að fá hjartanlegar móttökur, nægan tíma, góðan kaffisopa og heimabakað bakkelsi að hætti hússins. Ég sakna þess að sjá þig ekki lengur með przjónana í hæginda- stólnum. Ég sakna allra ferðalag- anna sem við fórum saman, ég og Matta með hjólhýsið og þið á hús- bílnum. Ég sakna þess að spila með þér félagsvist á sex borðum á jól- unum. Ég þakka fyrir samfylgdina í 35 ár og fyrir að vera svona góð amma fyrir börnin mín. Þú munt lifa áfram í gegnum börn, barna- börn og barnabarnabörn. Minning- in um góða konu mun lifa í hjörtum okkar sem eftir lifa. Þinn tengdasonur, Agnar. Elsku ljúfa amma mín, minning- arnar eru margar og ég veit hrein- lega ekki hvar ég á að byrja. Það er svo tómlegt hérna án þín og hugs- unin um að ég eigi aldrei eftir að sjá þig aftur er svo óraunveruleg. Það sem er mér efst í huga þegar ég hugsa um þig er hvað þú varst mik- ill klettur í lífi mínu. Vandamál stór eða smá leystir þú alltaf með mér. Við vorum miklar vinkonur og þú sagðir það svo oft við mig síðustu árin. Mér þykir svo vænt um þessa vináttu sem við áttum. Amma var einhvern veginn þannig að við gát- um alltaf sagt allt hvor við aðra án þess að móðgast eða misskilja. Svo áttir þú það oft til að segja pabbi þinn við mig þegar þú áttir við afi. Okkur afa fannst það alltaf jafn fyndið og gerðum við mikið grín að þér. Þú hristir bara hausinn yfir ruglinu í þér. Ætli það hafi ekki verið af því að þú varst alltaf að passa upp á mig. Lést mig alltaf finna það að ég ætti þig og afa að alveg frá því ég fæddist. Það lýsir þér svo vel hvað þú hugsaðir vel um þá sem þú elskaðir. Fórnfús og alltaf mætt ef það var eitthvað. Ég lærði svo margt af þér og er svo þakklát að hafa átt ömmu eins og þig. Þú varst snillingur að elda góðan mat og alltaf tilbúin að kenna okkur öllum afkomendum þínum þá töfra. Þú kenndir mér að baka pönnukökur, en þú notaðir tvær og jafnvel þrjár pönnur við það. Mér fannst það nú fullmikið af því góða en þá sagðir þú mér bara að þegar maður væri með marga munna eins og var í Héðó þá þyrfti að hafa hraðar hendur. Það var aldrei neitt mál hjá þér, þú bara gerðir hlutina ósérhlífin. Þú varst svo sannarlega nýtin. Þú sagðir að það væri sko alveg hægt að nýta fisk sem væri ekki glænýr og bjuggum við einu sinni til 150 fiskibollur saman. Ég gæti talið endalaust upp svona hluti sem þú kenndir mér og fólkinu þínu. Þú varst algjör ofurkona sama hvað þú tókst þér fyrir hendur og kenndir mér svo margt sem ég bý svo vel að í dag. Þegar ég hugsa um hvað þú varst hreinskilin brosi ég, því það var eiginleiki sem ég elskaði við þig. Þú sagðir hlutina bara eins og þeir nákvæmlega voru, líka þegar þú varst mjög veik á spítalanum og fékkst okkur öll til að hlæja með þér. Ég á eftir að sakna þess mikið og það sem ég gat hlegið mikið með þér, elsku amma mín. Þú varst svo mikil Héðókona eins og við stór- fjölskyldan segjum alltaf, það lýsir þér vel. Þú varst mikil Eyjamær, sem hafði sterk áhrif á mig. Ég ólst upp við að hlusta á sögur um líf þitt í Eyjum og hvernig hlutirnir voru þegar þú varst að alast upp, Eyja- tónlistina þína, hvernig gosið var, hvernig þið afi kynntust og hvernig ykkar líf var saman. Ég elskaði það. Allar þessar sögur hafa kennt mér svo margt og ég bý að þeim alla tíð. Það er gott að geta hugsað um þær á þessum erfiða tíma. Ég var svo sannarlega ekki tilbúin að þú færir og að þurfa að kveðja þig strax. Mér finnst svo erfitt að hugsa til þess að ég á aldr- ei eftir að tala við þig aftur, hlæja með þér eða knúsa þig. En ég mun svo sannarlega hugsa vel um afa eins og ég lofaði þér. Takk fyrir allt, elsku amma mín. Ég elska þig. Þín Andrea. Elsku amma Lauga. Amma var umhyggjusöm, sem sýndi sig best þegar hún annaðist mig fyrstu mánuðina þegar móðir mín lá veik á spítala. Hún var ekki há í loftinu en stór í sniðum og mik- ill klettur í fjölskyldunni. Amma var dugleg í bakstri og matargerð, nýtti matinn vel. Minnisstætt er þegar amma og afi tóku mig með í Spánarferð, mína fyrstu utan- landsferð og nutum við samver- unnar þar vel, hvort sem það var við að þeysa á safaríjeppa í fjöll- unum eða labba á ströndinni. Fyrst og fremst var hún fjöl- skyldumanneskja, umhyggjusöm um barnabörnin og vildi vera um- vafin ástvinum sínum. Amma fylgdist þó nokkuð með íþróttum, og við áttum góðar stundir saman yfir enska boltanum. Hún má vera stolt af því lífi sem hún lifði og því sem hún skilur eftir sig. Það verður mikill missir að geta ekki kíkt í kaffi og heimabak- aða köku til hennar lengur og sýnt henni hvað langömmubörnin vaxa og dafna. Söknuðurinn er mikill, en eftir standa minningarnar að eilífu. Farðu í friði, elsku amma mín. Þorvaldur Helgi Jóhannsson. Sigurlaug Gísladóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGIMAR EINARSSON leigubílstjóri, áður til heimilis á Laugarnesvegi 87, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 12. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 24. nóvember klukkan 15. Guðrún Katrín Ingimarsdóttir Ásgeir Helgason Jóhanna S. Ingimarsdóttir Marinó Flóvent barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, mamma, tengdamamma, amma, langamma, systir og mágkona, SIGRÍÐUR KRISTINSDÓTTIR Sirrý, fv. leikskólakennari Dalbraut 18 í Reykjavík áður Tunguseli 5, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 12. nóvember. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 23. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Torfi Þorsteinsson Þorsteinn Torfason Guðrún Jóhannesdóttir Ívar Torfason Guðbjörg Helga Jóhannesd. Hlynur Torfi Torfason Aline Andrade Grippi Þór Þorsteinsson Samira Djidjeh Ástríður Jónsdóttir Una Þorsteinsdóttir Óðinn Ívarsson Embla Ísól Ívarsdóttir Valentína Andrade Hlynsd. Klara Rán Andrade Hlynsdóttir Erik Þórsson Margrét Guðmundsdóttir Ásmundur Karlsson Konráð Guðmundsson Rósa Björg Ólafsdóttir Eyjólfur Óskar Eyjólfsson Kolbrún Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.