Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 24

Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 DÆGRADVÖL24 Jakobína Valdís Jakobsdóttir, skíðakona og ólympíufari – 90 ára Brautryðjandi á skíðum J akobína Valdís Jakobsdóttir er fædd 21. nóvember 1932 í Mjósundum á Ísafirði og ólst þar upp þar til fjölskyldan flutti í Hraunprýði þegar Jakobína var 6 ára. „Það var þá efsta húsið á Ísafirði og þangað lá bara götuslóði. Á þessum tíma var svo mikill snjór á veturna að ég skreið í sköflunum til að komast í skólann, en þá voru engin tæki til að moka. Við fórum á milli á skíðum, en það er fyrst þegar við flytjum í Hraunprýði sem ég fer á skíði. Þegar ég átti heima í Mjósundum varð ég lömuð á fæti vegna kíghósta í heilt ár og læknarnir töldu að ég myndi ekki fá máttinn í fótinn. Systir mín dó úr kíghósta og við urðum öll mikið veik. En svo dröslaðist ég á fætur og fékk þennan góða fót.“ Jakobína gekk í Barnaskóla Ísa- fjarðar og Gagnfræðaskóla Ísafjarðar. Hún var tvö sumur barnapía í sveit í Bolungarvík. Hún var í skíðaskólan- um á Ísafirði 1951 og 1952 og æfði síð- an og keppti á skíðum fyrir Ísafjörð og síðar ÍR í Reykjavík. Hún var í Åre í Svíþjóð 1953-54 við skíðaæfingar ásamt hópi Ísfirðinga og þar var einnig Steinþór bróðir hennar. Ekki fékkst nægur gjaldeyrir fyrir uppihaldi svo þau unnu fyrir sér meðfram æfingum og keppni. Jak- obína vann á Hótel Granen við afleys- ingar. Í Åre sá hún fyrst skíðalyftu. Jakobína keppti á Holmenkollen móti í Opdal í Noregi í janúar 1954 og síðar á heimsmeistaramóti í skíðum í Åre 28.2.-7.3. 1954, fyrst íslenskra kvenna. Hún keppti í svigi, stórsvigi og bruni. Veturinn 1955-56 æfði Jakobína í Austurríki. Til stóð að hún æfði með austurríska kvennalandsliðinu, en þar sem lítill snjór var í Austurríki átti Jakobína ekki gjaldeyri til að fara með liðinu til Júgóslavíu til æfinga. Hún æfði því hátt uppi í fjöllum í Weissee í Austurríki. Þar voru ekki neinar skíðalyftur til að auðvelda æfingar. Þess má geta að þar var Toni Sailer einnig við æfingar en hann varð ferfaldur Ólympíumeistari 1956. Jakobína keppti síðan á Ólympíu- leikunum í Cortina d’Ampezzo á Ítalíu 26.1.-5.2. 1956, fyrst íslenskra kvenna, og tók þátt í svigi, stórsvigi og bruni. „Þetta var skemmtilegt ævintýri að fara út fyrir landsteinana til að keppa á þessum stórmótum. Ég man að ég þurfti sjálf að borga búninginn minn þegar ég keppti á Ólympíuleikunum. Ég á reikninginn ennþá.“ Jakobína varð Íslandsmeistari 19 sinnum frá 1953-63, en hætti þá keppni. „Það var miklu erfiðara að æfa skíði hér fyrir sunnan en fyrir vestan, miklu lengra að fara.” Jakobína vann í verslun á Ísafirði í frystihúsi og rækjuvinnslu og varð síðan heimavinnandi húsmóðir með- an börnin voru lítil. Hún vann síðar hjá G. Ólafsson, Sól-smjörlíkisgerð og Félagsþjónustu Reykjavíkurborgar. Helsta áhugamál fjölskyldunnar hefur verið skíði og útivera og var skíðasvæðið í Hamragili annað heimili þar til það var lagt niður og flutt í Bláfjöll. Jakobína hefur verið fastagestur í Laugardalslauginni undanfarna áratugi, ræður krossgátur af mikilli snilld og er það heilög stund þegar Helgarblað Morgunblaðsins berst, að setjast niður og ráða í gátuna. Síðast- liðin ár hefur Jakobína svo skellt sér á sumrin á púttvöllinn við Árskóga. Hún er heldur ekki hætt að fara á skíði. „Ég fór einu sinni á skíði í fyrra, ég verð að hafa gott veður. Svo verð ég að ná að fara einu sinni á skíði nú þegar ég er orðin níræð.“ Fjölskylda Eiginmaður Jakobínu var Rúnar Geir Steindórsson, f. 29.10. 1925, d. 30.9. 2012, prentari og ökukennari í Reykjavík. Þau fluttu í Breiðholt 1968 og býr Jakobína enn í því hverfi. Foreldrar Rúnars voru Steindór Björnsson frá Gröf, f. 3.5. 1885, d. 14.2. 1972, íþróttakennari og skrautritari, og kona hans Guðrún Guðnadóttir, f. 13.10. 1891, d. 1.11. 1925, húsmóðir. Stórfjölskyldan Bína og Rúnar 2008 með afkomendum sem þá voru fæddir. Nöfnurnar Jakobína Valdís og Valdís Björk, sonardóttir hennar, á uppáhaldsskíðasvæðinu, Ísafirði, árið 2015. Cortina d’Ampezzo 1956 Jakobína með lukkudýri Ólympíuleikanna. Til hamingju með daginn Stjörnuspá Sigríður Thorlacius 40 ÁRA Sigríður er Reykvíkingur, ólst upp í Hlíðunum og Laugarneshverfinu en býr í Miðbænum. Hún er með burtfararpróf í söng frá FÍH og starfar sem söngkona. Hún situr í stjórn STEFs og er nýhætt sem stjórnarmaður hjá UNICEF á Íslandi. Áhugamálin eru tónlist, listir og menning, labbitúrar og ferðalög. Sigríður og Sigurður Guðmundsson verða með árlega jólatónleika 21. og 22. desember í Hörpu. FJÖLSKYLDA Sambýlismaður Sigríðar er Anton Björn Markússon, f. 1971, lögmaður. Sonur þeirra er Markús Thorlacius Antons- son, f. 9.9. 2021. Foreldrar Sigríðar eru hjónin Kristján Thorlacius, f. 1941, kennari og fv. áfangastjóri, og Ásdís Kristins- dóttir, f. 1939, kennari. Þau eru búsett í Reykjavík. Nýr borgari Hafnarfjörður Katla Sól Krist- jánsdóttir fæddist 15. febrúar 2022 kl. 11.02. Hún vó 3.064 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Kristján S. Guðjónsson og Andrea Sól Kristjánsdóttir. 21. mars - 19. apríl A Hrútur Hafðu stjórn á tilfinningum þínum þótt eitthvað verði til að róta upp í þeim. Þú kemst til botns í gömlu máli sem hefur valdið þér miklu hugarangri. 20. apríl - 20. maí B Naut Þú þolir ekki að láta þér leiðast. Stundum verður maður að bíta í það súra epli að geta ekki gert allt semmann langar. 21. maí - 20. júní C Tvíburar Einhver kemur þér skemmtilega á óvart í dag og færir þér jafnvel eitthvað að gjöf sem þig hefur lengi langað í. Ná- kominn einstaklingur sýnir sitt rétta andlit. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Það er mikill kraftur í þér en það skiptir öllu máli að beina honum í rétta átt. Ekki láta undan þrýstingi. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Vilji er allt sem þarf. Legðu blessun þína yfir ástarsamband vinar. Þú hefur komið ár þinni vel fyrir borð. 23. ágúst - 22. september F Meyja Það er kominn tími til að leysa frá skjóðunni og opinbera leyndarmálin fyrir vinunum. Láttu þér standa á sama um álit annarra. 23. september - 22. október G Vog Þú veist af manneskju sem þarf á hjálp þinni að halda en er of óframfærin til þess að biðja um hana. Láttu hverjum degi nægja sína þjáningu. 23. október - 21. nóvember H Sporðdreki Þótt þér þyki eitthvað gott og blessað er ekki þar með sagt að nágranni þinn sé sama sinnis. Farðu samningaleiðina. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Þú ættir að líta yfir farinn veg í dag og velta því fyrir þér hvar þú vilt verða eftir tíu ár. Komdu til dyranna eins og þú ert klædd/ur. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Þú þarft að gæta þess vel að fá nægan svefn því of miklar vökur fara illa með heilsuna. Þú vefur makanum um fingur þér í dag. 20. janúar - 18. febrúar K Vatnsberi Hrintu áætlunum um endur- bætur í framkvæmd. Það er eitt og annað á heimilinu sem kallar á athygli þína og þarfnast úrlausnar. Eitthvað spennandi gerist í kvöld. 19. febrúar - 20. mars L Fiskar Það er engin ástæða fyrir þig að bæta á þig annarra áhyggjum. Hugsaðu um það sem til þíns friðar heyrir og láttu aðra um sitt. Þú ert í sjöunda himni með makann þessa dagana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.