Morgunblaðið - 21.11.2022, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 21.11.2022, Qupperneq 27
en Benzema, sem er 34 ára gamall, hlaut Gullknöttinn og nafnbótina besti knattspyrnumaður heims árið 2022 í lok október. Alls á hann að baki 97 A-landsleiki þar sem hann hefur skorað 37 mörk en Frakkar eiga titil að verja á HM. „Knattspyrnumaðurinn Atli Arnarson hefur framlengt samning sinn við HK. Atli, sem er 28 ára gamall, hefur verið lykilmaður hjá Kópavogsliðinu undan- farin ár en hann skoraði fimmmörk í 18 leikjum í 1. deildinni á síðustu leiktíð þegar HK-ingar höfnuðu í öðru sæti deildarinnar og tryggðu sér um leið sæti í Bestu deildinni að ári. Hann er uppalinn hjá Tindastóli og á að baki 103 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað 10 mörk. „Valgarð Reinhardsson hafnaði í öðru sæti í stökki og á svifrá á Norður- Evrópumótinu í áhaldafimleik- um sem fram fór í Finnlandi um helgina. Þá hafnaði íslenska karlalandsliðið í þriðja sæti á mótinu og þetta í fyrsta sinn sem íslenskt karlalandslið endar á verðlaunapalli á stórmóti í áhaldafimleikum.Atli Snær Valgeirsson,Ágúst Ingi Davíðsson, Dagur Kári Ólafsson, Jónas Ingi Þórisson,Martin Bjarni Guðmunds- son ásamt Valgarði skipuðu íslenska liðið og þá voru þeir Róbert Krist- mannsson og Viktor Kristmannsson þjálfarar liðsins „Sundkon Sól Jórunn mikinn um bikarmóti sem hún va armeistari Aalborg. Þá lítið fyrir o landsmetið skriðsundi Á laugar- daginn bætti hún 12 ára gamalt Íslands- met í greininni þegar hún kom í mark á tím- anum 53 88 sekúndum og bætti hún arsdóttur um sekúndu. Í gið met um a úr sekúndu rk á tímanum ömu grein. nig í 100m ksundi á m fyrst í báðum grein- næfríður Sól ur á meðal ppenda á HM 22 sem fram r í Melbourne Ástralíu og hefst 13. desember. . an Snæfríður ardóttir fór helgina á í Danmörku þar rð danskur bik- með liðinu sínu, gerði hún sér g tvíbætti Ís- í 100m . , met Ragnheiðar Ragn 56 hundraðshluta úr gær bætti hún svo ei fimm hundraðshlut þegar hún kom í ma 53,75 sekúndum í s Snæfríður keppti ein fjórsundi og 200m ba mótinu og ko mark í um. S verð ke 20 fe í KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: Grindavík: Grindavík – Tindastóll ........ 18.15 Þorlákshöfn: Þór Þ. – Keflavík.............. 20.15 Egilsstaðir: Höttur – Stjarnan.............. 20.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Kaplakriki: FH – ÍR................................. 19.30 Varmá: Afturelding – Selfoss................ 19.30 Olísdeild karla Fram – KA ................................................ 30:31 Haukar – ÍBV ........................................... 38:28 Grótta – Hörður....................................... 27:27 Staðan: Valur 10 9 0 1 332:281 18 Fram 10 5 3 2 299:292 13 Afturelding 9 5 2 2 263:244 12 FH 9 5 2 2 258:255 12 Stjarnan 10 4 3 3 295:285 11 ÍBV 9 4 2 3 304:275 10 Selfoss 9 4 1 4 270:273 9 KA1 0 3 2 5 283:297 8 Haukar 9 3 1 5 266:259 7 Grótta 8 2 2 4 226:225 6 ÍR 9 2 1 6 251:309 5 Hörður 10 0 1 9 289:341 1 Olísdeild kvenna Fram – ÍBV ............................................... 25:27 Selfoss – Stjarnan ................................... 24:33 Valur – KA/Þór........................................ 28:26 Haukar – HK ............................................ 35:27 Staðan: Valur 7 7 0 0 203:157 14 Stjarnan 7 6 0 1 212:166 12 ÍBV 7 5 0 2 190:175 10 Fram 7 4 0 3 192:162 8 KA/Þór 7 2 0 5 170:195 4 Haukar 7 2 0 5 192:204 4 Selfoss 7 1 0 6 183:213 2 HK 7 1 0 6 158:228 2 Grill 66-deild kvenna Fram U – Víkingur.................................. 37:32 HK U – Fjölnir/Fylkir ............................. 31:29 EM kvenna Úrslitaleikur: Noregur – Danmörk.......................... 27:25  Þórir Hergeirsson er þjálfari Noregs. Leikur um 3. sætið: Frakkland – Svartfjallaland ......... (frl.) 25:27 Þýskaland Magdeburg – Kiel ................................. 33:34  Ómar Ingi Magnússon skoraði 9 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjáns- son fjögur. Erlangen – RN Löwen.......................... 30:33  Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyrir Löwen. Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari Erlangen. Melsungen – Flensburg ...................... 25:25  Elvar Örn Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Melsungen og Arnar Freyr Arnarsson tvö. Teitur Örn Einarsson skoraði tvö mörk fyrir Flensburg. Hamm – Bergischer .............................. 27:31  Arnór Þór Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Bergischer. Stuttgart – Leipzig 26:33  Viggó Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir Leipzig. Rúnar Sigtryggsson þjálfar liðið. Danmörk Kolding – Aalborg.................................. 27:25  Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. Skjern – GOG ......................................... 32:32  Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir Skjern. Nordsjælland – Fredericia ................ 28:28  Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði ekki fyrir Fredericia. Guðmundur Þ. Guðmunds- son þjálfar liðið. Lemvig – Midtjylland .......................... 30:27  Daníel Freyr Ágústsson varði ekki skot í marki Lemvig. B-deild: Ejstrup – EH Aalborg.......................... 23:28  Andrea Jacobsen skoraði þrjú mörk fyrir Aalborg. Frakkland Nantes – Istres ...................................... 40:32  Viktor Gísli Hallgrímsson varði 10 skot í marki Nantes. Pólland Zabrze – Kielce...................................... 24:40  Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk fyrir Kielce. Noregur Kristiansand – Elverum ..................... 27:29  Orri Freyr Þorkelsson skoraði ekki fyrir Elverum. Sandnes – Kolstad ................................ 23:32  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú mörk fyrir Kolstad og Janus Daði Smára- son þrjú. Runar – Haslum .................................... 29:26  Örn Vésteinsson skoraði tvö mörk fyrir Haslum. Svíþjóð Bikarkeppnin, 8-liða úrslit, seinni leikur: Skövde – Kristianstad......................... 30:34  Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði fjög- ur mörk fyrir Skövde. sem tapaði einvíginu, samanlagt 63:74. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022 Valencia skoraði fyrstamarkið áHM Heimsmeistaramót karla í knattspyrnu hófst í Katar í gær þegar heimamenn í Katar tóku á móti Ekvador í upphafsleik keppninnar í A-riðlinum í Al Khor í Katar. Enner Valencia, fyrirliði Ekvador, fór mikinn fyrir sína menn í leikn- um en hann skallaði boltann í netið eftir þriggja mínútna leik. Markið fékk hins vegar ekki að standa þar sem rangstæða var dæmd og staðan því áfram markalaus. Valencia kom Ekvador hins vegar 1:0 yfir á 16. mínútu með marki úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur eftir samstuð við Saad Al Sheeb í marki Katars. Hann var svo aftur á ferðinni á 31. mínútu þegar hann skallaði fyrirgjöf Angelo Preciado í markið af stuttu færi og lokatölur því 2:0. Ekvador tyllti sér á toppinn í A-riðlinum með sigrinum og er með 3 stig en í dag mætast Senegal og Holland í Doha í hinum leik fyrstu umferðar A-riðilsins. AFP/Raul Arboleda Enner Valencia fór mikinn í upphafsleiknum og skoraði tvívegis. Breiðablik ogValur jöfn á toppnum Jeremy Smith átti sannkallaðan stórleik fyrir Breiðablik þegar liðið gerði sér lítið fyrir og lagði Njarðvík að velli í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, Subway- deildinni, í Smáranum í Kópavogi í 6. umferð deildarinnar í gær. Smith skoraði 32 stig, tók sjö frá- köst og gaf þrjár stoðsendingar en leiknum lauk með 91:88-sigri Blika. Nicolas Richotti var stiga- hæstur í liði Njarðvíkur með 18 stig, tók átta fráköst og gaf sex stoðsendingar. Þetta var þriðji sigur Blika í röð en liðið er í öðru sætinu með jafnmörg stig og topp- lið Vals en Njarðvík var að tapa sínum þriðja leik í deildinni.  Callum Lawson var stiga- hæstur hjá Val þegar liðið vann stórsigur gegn KR á Meistara- völlum í Vesturbæ. Leiknum lauk með 110:77-sigri Vals en Lawson skoraði 21 stig í leiknum, tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu. Elbert Matthes var stigahæstur KR-inga með 24 stig. Þetta var fimmti sigur Vals í röð sem hefur aðeins tapað einum leik í deildinni, gegn Stjörnunni í 1. um- ferðinni en KR er komið í fallsæti og hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu til þessa.  Hilmar Smári Henningsson fór mikinn fyrir Hauka þegar liðið vann 93:73-sigur gegn ÍR í Ólafs- sal á Ásvöllum. Hilmar Smári skoraði 27 stig, tók fjögur fráköst og gaf þrjár stoðsendingar en Haukar voru sterkara liðið allan tímann og leiddu 49:40 í hálfleik. Taylor Johns var stigahæstur ÍR- inga með 26 stig og þrettán frá- köst. Þetta var fyrsti sigur Hauka eftir tvö töp í röð gegn Keflavík og Val en ÍR hefur aðeins unnið einn leik í deildinni á tímabilinu, gegn Njarðvík í 1. umferðinni. Morgunblaðið/Óttar Geirsson 32 Jeremy Smith átti stórleik fyrir Breiðablik gegn Njarðvík í gær. Níundu gullverðlaun Þóris AFP/Jure Makovec Evrópumeistarar Noregur varð Evrópumeistari kvenna í handknattleik í níunda sinn eftir frábæran endurkomusigur gegn Danmörku í úrslitum. lÓtrúlegur viðsnúningur norska liðsins gegn því danska á lokamínútunum EM2022 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Noregur, undir stjórn Þóris Hergeirssonar, er Evrópumeistari kvenna í handknattleik árið 2022 eftir ótrúlegan sigur gegn Dan- mörku í úrslitaleik í Ljubljana í Slóveníu í gær. Leiknum lauk með 27:25-sigri norska liðsins en það var danska liðið sem byrjaði betur og skoraði fyrstu tvö mörk leiksins. Danir voru sterkari framan af og náðu mest fimm marka forskoti í fyrri hálfleik, 10:5. Norska liðinu tókst hins vegar að laga stöðuna undir lok fyrri hálfleiks og var stað- an 15:12, Danmörku í vil, í hálfleik. Mörkin létu á sér standa í upphafi síðari hálfleiks og Stine Oftedal skoraði fyrsta mark síðari hálfleiks eftir fimm mínútna leik og minnk- aði forskot danska liðsins aftur í tvö mörk, 13:15. Danir voru samt sem áður áfram með frumkvæðið í leiknum og þeir náðu fjögurra marka forskoti á nýj- an leik, 22:18, þegar átján mínútur voru til leiksloka. Þá kom ótrúlegur leikkafli hjá norska liðinu sem tókst að jafna metin í 22:22 og Kristine Breistöl kom Noregi yfir í fyrsta skiptið í leiknum, 24:23, þegar sex mínútur voru til leiksloka. Danmörku tókst að jafna metin en eftir það skoraði Noregur tvö mörk í röð og Dönum tókst ekki að snúa leiknum sér í vil eftir það. Nora Mörk fór á kostum fyrir norska liðið, skoraði átta mörk úr níu skotum, og þá skoraði Kristine Breistöl fjögur mörk. Louise Vinter Burgaard var markahæst hjá Dön- um með sex mörk. Reynslan skein í gegn Reynslan í norska liðinu skein í gegn á lokamínútum leiksins og liðið sýndi og sannaði af hverju það er ríkjandi heims- og Evrópumeist- ari. Þegar mest lá við í leiknum þorðu leikmenn norska liðsins að taka af skarið á meðan leikmenn danska liðsins virkuðu of spenntir og hræddir við að gera mistök. Það mætti því segja að reynslan hafi siglt sigrinum í höfn hjá norska liðinu enda margir lykilmenn liðsins búnir að gera þetta allt saman áður á meðan Danir tefldu fram talsvert yngra og óreyndara liði. Þetta voru níundu gullverðlaun Þóris Hergeirssonar frá því hann tók við þjálfun norska liðsins árið 2009. Fimm sinnum hefur hann gert liðið að Evrópumeisturum; 2010 í Danmörku og Noregi, 2014 í Ungverjalandi og Króatíu, 2016 í Svíþjóð, 2020 í Danmörku og nú 2022 í Slóveníu, Svartfjallalandi og Norður-Makedóníu. Þrívegis hefur hann gert liðið að heimsmeisturum; síðast árið 2021 á Spáni og er liðið því áfram ríkjandi heims- og Evrópumeistari, 2015 í Danmörku og 2011 í Brasilíu. Þá stýrði hann liðinu til sigurs á Ólympíuleikunum í Lundúnum árið 2012. Frá því að Þórir tók við þjálfun liðsins hefur liðið unnið til verð- launa á öllum stórmótum sem það hefur tekið þátt í nema á HM 2013 í Serbíu þegar liðið hafnaði í fimmta sæti, EM 2018 í Frakklandi þegar liðið hafnaði fimmta sæti og loks HM 2019 í Suður-Kóreu þegar Nor- egur hafnaði í fjórða sæti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.