Morgunblaðið - 21.11.2022, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
produced by REPOSADO, THE MEDIAPRO STUDIO and BÁSCULAS BLANCO, A.I.E.
Funded by the Spanish Government through INSTITUTO DE LA CINEMATOGRAFÍA Y DE LAS ARTES AUDIOVISUALES with the participation of Crea SGR, RTVE and Orange in collaboration with the TV3 and MK2 partnership.
Assistant Director ANTONIO ORDÓÑEZ casting by LUIS SAN NARCISO make-up and hairstyling by ALMUDENA FONSECA, MANOLO GARCÍA costume design by FERNANDO GARCÍA special effects’supervisor by MIRIAM PIQUER direct sound by IVÁN MARÍN
sound design by PELAYO GUTIÉRREZ mixing by VALERIA ARCIERI editing by VANESSA MARIMBERT production director LUIS GUTIÉRREZ art director CESAR MACARRÓN original music by ZELTIA MONTES photography by PAU ESTEVE BIRBA
executive production PATRICIA DE MUNS, PILAR DE HERAS, LAURA FDEZ. ESPESO, EVA GARRIDO, MARISA FDEZ. ARMENTEROS producers FERNANDO LEÓN DE ARANOA, JAUME ROURES, JAVIER MÉNDEZ
written and directed by FERNANDO LEÓN DE ARANOA
a film by
FERNANDO
LEÓN DE ARANOA
MANOLO SOLO ALMUDENA AMOR ÓSCAR DE LA FUENTE SONIA ALMARCHA FERNANDO ALBIZU TARIK RMILI RAFA CASTEJÓN CELSO BUGALLO
Película Pendiente de
Calificaciónreposadoproducc ionesc inematográ ficas
uccionescinematográficas
prod
producci
“JAVIER BARDEM GIVES A
POWERHOUSE PERFORMANCE”
THE AUSTRALIAN
“SLICKLY ENTERTAINING”
THE HOLLYWOOD REPORTER
(EL BUEN PATRÓN)
THE RECORD BREAKING 20 TIME
GOYA AWARD NOMINEE
INCLUDING WINS FOR
BEST FILM, BEST DIRECTOR,
BEST LEAD ACTOR &
BEST ORIGINAL SCREENPLAY
USA TODAY ENTERTAINMENT
WEEKLY
EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post
84%
RALPH
FIENNES
NICHOLAS
HOULT
ANYA
TAYLOR-JOY
Painstakingly Prepared.
Brilliantly Executed.
SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD
REPORTER
91%
86%
S
varti pardusinn, þ.e. ekki sá í
dýraríkinu heldur ofurhetjan
í Marvel, er snúinn aftur
en þó aðeins að nafninu til.
Chadwick Boseman, leikarinn sem
lék hann í hinni mjög svo vinsælu
kvikmynd frá árinu 2018, lést nefni-
lega árið 2020 og sem betur fer var
ekki fenginn annar karl í hlutverkið.
Pardusinn er hvergi sjáanlegur fyrr
en í lokahluta þessarar framhalds-
myndar og þá heldur ólíkur þeim
upprunalega.
Bosemans er minnst fallega strax
í byrjun myndar. Brot úr kvik-
myndum með honum í hlutverki
pardussins (hann hefur komið við
sögu í nokkrum Marvel-myndum,
Avengers-myndunum, Captain
America: Civil War auk Black
Panther) sjást í stöfum Marvel í
stað hinna ýmsu hetja útgáfunn-
ar og engin tónlist er leikin með.
Undir lok myndar er Boseman
aftur minnst og myndin tileinkuð
honum. Þetta er smekklega gert hjá
Marvel og eflaust tár á hvarmi hjá
mörgum bíógestinum. Boseman
var hæfileikaríkur leikari eins og
sjá má af myndum á borð við Ma
Rainey’s Black Bottom þar sem hann
á leiksigur og Da 5 Bloods, að Svarta
pardusnum ólöstuðum auðvitað.
Pardusinn var hin ofurmannlega
hetja í ríkinu Wakanda, því vold-
ugasta í heimi vegna þess að það
býr yfir mikilli auðlind, málminum
víbraníum sem gert hefur þjóðinni
kleift að verða háþróaðri en nokkur
önnur.
Boseman fór með hlutverk
konungsins T’Challa sem í upp-
hafi þessarar myndar er látinn. Á
hann að hafa veikst af ókunnum
sjúkdómi og systir hans, Shuri
(Letitia Wright), sem er jafnframt
fremsti vísindamaður þjóðarinnar,
nær ekki að lækna hann. Hún er
harmi slegin líkt og móðir hennar,
drottningin Ramonda (Angela Bass-
ett) sem reynir að hugga hana og
hughreysta. Wakanda-búar syrgja
konung sinn en fá þó ekki að gera
það lengi því ný ógn steðjar að
landinu og í raun öllum heiminum,
Namor heitir sá þrjótur, leikinn af
Tenoch Huerta og er þar á ferðinni
aldagamall konungur og guð Maja,
upprunninn á Yucatan-skaga.
Namor býr yfir miklum kröftum,
getur bæði andað í vatni og á landi
og á ökklunum er hann með litla
vængi sem gera honum kleift að
fljúga.
Namor er konungur neðansjáv-
arþjóðar sem er blá að lit og nær
ósigrandi í bardögum. Þjóð hans
hefur einnig aðgengi að víbraníumi
á hafsbotni og kemur það ráða-
mönnum i Wakanda í opna skjöldu
þegar upp um það kemst. Hefur
djúpsjávarkönnunarfar á vegum
Bandaríkjanna fundið málminn en
farið er hönnun ungrar konu og
háskólanema sem er álíka snjöll og
Shuri. Namor er afar ósáttur við
þessa þróun mála, uppfinninguna
og vísindakonuna og vill hana feiga.
Hann er líka ósáttur við ráðamenn
Wakanda, að þeir hafi sagt heim-
inum frá þessum magnaða málmi
og eiginleikum hans. Setur hann
Wakanda afarkosti; annað hvort
aðstoði ríkið hann við að drepa hina
ungu vísindakonu og gangi til liðs
við hann og hans ríki eða hann fari í
stríð við Wakanda og allan heiminn
um leið. Undarlegt ráðabrugg það
og illskiljanlegt og eins og búast
mátti við taka í þriðja hluta myndar-
innar við miklir og fjölmennir bar-
dagar sem eru tölvuteiknaðir nær
út í eitt.
Sterkar konur
Svarti pardusinn: Wakanda að
eilífu á sér marga kosti og galla.
Byrjum á kostunum. Leikarahópur-
inn er góður og fara konur þar
fremstar í flokki. Bassett er að
vanda tilkomumikil í hlutverki
drottningar og Wright er blæbrigða-
rík í túlkun sinni á hinni syrgjandi
Shuri. Danai Gurira leikur hershöfð-
ingjann og bardagakvendið Okoye
og er ákaflega vígaleg og flott í
hlutverki sem reynir líka á dramat-
ískari leik sem hún leysir vel. Helstu
persónur myndarinnar eru nær
allar konur og það sterkar konur
leiknar af afbragðsleikkonum. Líkt
og í fyrri mynd eru stríðskonur í
fararbroddi, stórglæsilegar með
rökuð höfuð og búningar þeirra
geggjaðir, verður að segjast, líkt og
búningar myndarinnar almennt.
Myndin er líka mikið augnayndi á
heildina litið, ekki síst þegar farið
er í undirdjúpin í ríki Namors sem
annars er fullkjánaleg persóna.
Og þar komum við að helsta galla
myndarinnar, þ.e. andstæðingnum
sem erfitt er að taka alvarlega með
sína litlu vængi á ökklum og grænu
mittisháu sundskýlu. Hann er líka
með oddmjó eyru eins og álfur.
Reyndar er hér komin mjög gömul
persóna úr heimi Marvels en þær
eru svo margar að einhverja betri
og meira ógnvekjandi hefði örugg-
lega mátt finna.
Halda mætti að hér hefði tveimur
kvikmyndum verið splæst saman í
eina því annars vegar er það sorgin
sem er til umfjöllunar og hvernig
fjölskylda tekst á við hana, mjög svo
raunverulegt og raunsætt umfjöll-
unarefni, og hins vegar furðulegt
ævintýri með bláu fólki í sjónum
og konungi þeirra með vængjaða
ökkla. Furðulegt nokk þá var líka
blátt fólk í sjó í stiklu sem sýnd var
á undan myndinni, fyrir framhald
Avatar. Hvað er málið með blátt fólk
í sjónum og Hollywood?
Þessi árekstur raunsæis og kjána-
skapar virkar ekki nógu vel, verður
að segjast, þó auðvitað viðurkenni
ég að ofurhetjumyndir séu í eðli
sínu fantasíur og kjánaskapur.
Engu að síður felst galdurinn í góðu
jafnvægi sem tókst afar vel að ná í
fyrri mynd. Þar var ógnin trúanlegri
innan um alla fantasíuna. Og svo er
það lengdin, 160 mínútur. Myndin er
alltof löng og sumir kaflar teygðir
svo rækilega að maður dæsir og
lítur á úrið. Hæglega hefði mátt
stytta myndina niður í tvær klukku-
stundir og klippa burt alls konar
óþarfa.
Wakanda í heila eilífð
Glæsilegar Búningarnir í Black Panther: Wakanda
Forever, eru glæsilegir. Hér má sjá Danai Gurira og
Angelu Bassett í hlutverkum Okoye og Ramondu.
KVIKMYNDIR
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
Smárabíó, Sambíóin, Háskólabíó
og Laugarásbíó
Black Panther: Wakanda Forever/
Svarti pardusinn: Wakanda að eilífu
Leikstjórn: Ryan Coogler. Handrit: Ryan
Coogler og Joe Albert Cole. Aðalleik-
arar: Letitia Wright, Lupita Nyong’o,
Danai Gurira, Winston Duke, Florence
Kasumba, Dominique Thorne, Michaela
Coel, Tenoch Huerta Mejia, Julia Lou-
is-Dreyfus, Martin Freeman og Angela
Bassett. Bandaríkin, 2022. 161 mín.