Morgunblaðið - 02.12.2022, Síða 11
FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022
11
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
VIÐ erumRÆKTENDUR BREYTINGA
Töfrandi dekurmolar í jólapakkann
með gjöfumnáttúrunnar
Nýsköpunarfyrirtækið HorseDay
hefur kynnt nýja uppfærslu af
hestamannaappi sínu þar sem
smáforrit í símanum greinir allar
gangtegundir íslenska hestsins, auk
annarra upplýsinga um reiðtúrinn.
Er þetta fyrsta smáforritið með
þessa virkni sem þróað hefur verið.
Framkvæmdastjóri HorseDay
hyggst nota reynsluna af notkun
forritsins til landvinninga hjá öðr-
um hestakynjum í framtíðinni.
Hestamannaappið Hestadagur
var kynnt opinberlega á Landsmóti
hestamanna á Hellu í sumar. Fyrsta
virkni þess var að skrá reiðtúra
og æfingar, svo sem vegalengd og
tíma, svipað og hlaupa-, hjóla- og
gönguforrit gera. En þetta forrit er
sérstaklega þróað fyrir hestafólk
og því eru í því atriði sem tengjast
hirðingu hestanna, til dæmis járn-
ingar og heimsóknir til dýralækna.
Geta deilt reiðtúrnum
Oddur Ólafsson framkvæmda-
stjóri HorseDay segir að nú séu um
sex þúsund hestamenn með aðgang
að smáforritinu. Notendurnir séu
dreifðir, um 40% þeirra eru bú-
settir á Íslandi og 60% erlendis en
íslenski hesturinn hefur náð mikilli
útbreiðslu erlendis, sérstaklega í
Evrópu. Starfsmenn HorseDay líta
til allra eigenda og notenda íslenska
hestsins, hvar sem þeir eru búsettir.
Nú hefur rafræn gangtegunda-
greining fyrir allar fimm gang-
tegundir íslenska hestsins bæst við,
eins og fyrr segir, og fleiri nýjungar,
eins og spjallvefur. Voru nýjungarn-
ir kynntar við athöfn í Reiðhöllinni í
Víðidal. Gangtegundagreiningin er
sjálfvirk, eftir að smáforritið hefur
verið virkjað og hesturinn valinn
við upphaf reiðtúrs eða æfingar.
Smáforritið tengist World Feng,
ættbók íslenska hestsins. Síminn
getur verið í vasa knapans og ekki
þarf að hafa skynjara á fótum eða
skrokki hestsins.
Notendur smáforritsins geta síð-
an deilt upplýsingum um reiðtúrinn
á samfélagsmiðlum eða persónu-
lega sín í milli í spjalli eða með
smáskilaboðum. Oddur segir að
atvinnumenn geti nýtt sér forritið
til að skrá stafrænt upplýsingar
um allt sem þeir eru að vinna með
hestunum og sleppt því að færa það
inn á töflur eða bækur í hesthús-
unum.
Starfsmenn HorseDay horfa til
enn stærri markaða í framtíðinni.
Oddur segir að hugbúnaðurinn
geti nýst hestafólki sem notar öll
hestakyn. Horft sé til þess að gera
markaðskönnun í framtíðinni.
„Við byrjum á íslenska hestinum,
ætlum að vera staðurinn fyrir alla
sem tengjast honum á heimsvísu,
og sækja þaðan lengra út,“ segir
Oddur Ólafsson
lNýsköpunarfyrirtæki kynnir hestamannaappmeðnýrri virknilVísindagrein skrifuð
lÆtlunin er að nota reynsluna hér til að útbúa fleiri smáforrit fyrir notkun annarra hestakynja
Greinir allar fimm gangtegundirnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
KynningÁsta Björk Friðjónsdóttir knapi sýndi notkun appsins í Reiðhöllinni. Oddur Ólafsson kynnti nýjungar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is GANGTEGUNDIR
Mælt með
94% vissu
Starfsmenn HorseDay og
tölvunarfræðideildar Háskóla
Íslands vinna að vísindagrein
um greiningu gangtegunda ís-
lenska hestsins með snjallsíma
sem knapinn ber á sér.
Fram kom í kynningu Haf-
steins Einarssonar lektors að
með símatækninni sé nú hægt
að mæla gangtegundir rétt í
94% tilfella, sem hann segir að
sé gott.
Hægt sé að mæla með 99%
vissu með því að setja nema á
fætur hestsins.
Tillaga um
minni hrein-
dýrakvóta
Náttúrustofa Austurlands leggur
til að hreindýraveiðikvóti ársins
2023 verði 901 hreindýr. Drög að
kvóta upp á 938 dýr voru kynnt 1.
nóvember síðastliðinn og sett í opið
samráð. Þar gafst öllum tækifæri til
að gera rökstuddar athugasemdir
við kvótatilllöguna. Samráðinu lauk
25. nóvember og þá höfðu borist
fjórar athugasemdir.
Félag leiðsögumanna með hrein-
dýraveiðum taldi að á bak við
tillöguna lægju nánast engar taln-
ingar og lagði m.a. til að gefinn yrði
út lágmarkskvóti á öllum svæðum
sem hægt væri að bæta við, gæfu
talningar í mars/apríl ástæðu til.
Náttúrustofan brást við og skýrði
út hvernig fjöldi hreindýra væri
metinn og sagði að hreindýrin væru
talin oftar og nákvæmar en aðrir
dýrastofnar hérlendis.
Jóhann G. Gunnarsson, starfs-
maður Umhverfisstofnunar, sem
m.a. er í stöðugum samskiptum
við leiðsögumenn á veiðitíma,
gerði athugasemdir við kvóta á
einstökum veiðisvæðum á grund-
velli hugleiðinga sinna frá síðasta
veiðitímabili.
Ólafur Pétursson frá Skálanesi
lagði til að tarfaleyfum, m.a. á
svæði 4, yrði fækkað til að ná
upp meðalaldri tarfa á svæðinu.
Þá gerði Björgvin Már Hansson
á Fáskrúðsfirði athugasemd við
tillögu að kvóta til veiða á kúm á
svæði 6 og taldi m.a. að takmarka
þyrfti veiðar úr hjörð sem er á milli
Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.
Nánar má lesa um málið á na.is.
gudni@mbl.is
Tarfur Lagður var til minni kvóti.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson