Morgunblaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 32
Í lausasölu 822 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími 569 1100
Ritstjórn ritstjorn@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is
Áskrift askrift@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 336. DAGUR ÁRSINS 2022
MENNING
Skúli Sverrisson og félagar leika
nýja tónlist hans í Mengi í kvöld
Bassaleikarinn og tónskáldið Skúli Sverrisson
kemur fram á tónleikum í menningarhúsinu Mengi
við Óðinsgötu í kvöld klukkan 21, ásamt Davíð Þór
Jónssyni, Þorleifi Gauki Davíðssyni og Ólöfu Arnalds.
Á efnisskránni er ný tónlist eftir Skúla sem vinnur nú
að framhaldi hinna rómuðu Seríuplatna sinna, sem
hafa að geyma tónsmíðar eftir hann, leiknar af honum
sjálfum og listamönnum í innsta hring. Skúli starfaði
um langt árabil í Bandaríkjunum og
ki
og
hefur unnið með ólíku listafól
á borð við Ryuichi Sakamoto,
Bill Frisell, Laurie Anderson
Wadada Leo Smith.
ÍÞRÓTTIR
KR fjórum stigum frá öruggu sæti
Stórveldið KR er í miklum vandræðum í Subway-deild
karla í körfubolta eftir 88:95-tap fyrir ÍR í fallslag í
deildinni í gær. Fyrir vikið er KR fjórum stigum frá
öruggu sæti og aðeins með einn sigur í fyrstu átta um-
ferðunum. Haukar unnu glæsilegan endurkomusigur á
Tindastóli, 80:75, á heimavelli, eftir að hafa verið mest
18 stigum undir. Þá vann Njarðvík öruggan sigur á Þór
frá Þorlákshöfn á útivelli, 119:88, og Grindavík gerði
góða ferð á Egilsstaði og vann 91:87-sigur á Hetti. » 27
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
VANDAÐAR
SÆNGUR OG
KODDAR Í
ÚRVALI
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
SOFÐU VEL
UM JÓLIN
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
Árlegur jólamarkaður Ásgarðs
handverkstæðis í Álafosskvosinni
í Mosfellsbæ verður á Álafossvegi
14 og 22 klukkan 12 til 17 á morgun.
Sem fyrr verður mikið úrval af
handsmíðuðum vörum starfsmanna
til sölu sem og heitir drykkir og
meðlæti.
Þór Ingi Daníelsson stofnaði
verndaða vinnustaðinn 1993 og var
Óskar Albertsson fyrsti starfsmað-
urinn. Starfsemin hófst í litlum skúr
í Lækjarbotnum, Simmasjoppu,
sem var áður á Suðurgötu í
Reykjavík. Síðan bættust við fleiri
skúrar og starfsmönnum fjölgaði.
„Við byrjuðum þrír með Þór Inga,
ég, Steindór Jónsson, sem vinnur
enn með mér, og Sigurður Ragnar
Kristjánsson, sem dó í fyrra,“ segir
Óskar. Fyrsti jólamarkaðurinn hafi
verið skömmu fyrir aldamót, en
verkstæðið brunnið til grunna árið
2000. „Þá vorum við eiginlega á
hrakhólum í tvö ár, en höfðum að-
stöðu í Kópavogshælinu, þar til við
fengum varanlegt húsnæði hérna í
Álafosskvosinni.“
Fjölbreytt úrval
Nú starfa 34 þroskahamlaðir
einstaklingar frá Mosfellsbæ,
Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og
Hafnarfirði á verkstæðinu ásamt
níu leiðbeinendum, að sögn Heimis
Þórs Tryggvasonar forstöðumanns
Ásgarðs. Helstu framleiðsluvörur
séu barnaleikföng úr tré, skart-
gripir, leðurvörur og vefnaður og
öll framleiðslan sé úr náttúrulegum
efnum. Viðurinn komi frá skógrækt-
inni og nágrönnum í Mosfellsbæ,
steinar og skeljar úr Hvalfirðinum,
horn frá bændum og hreindýrahorn
frá veiðifélögum fyrir austan.
„Allar töskur og allur vefnaður er
úr íslensku ullinni,“ bendir hann á.
Aðeins séu notaðir CE-vottaðir litir
og því sé hætttulaust að sleikja eða
naga leikföngin. „Markaðurinn er
gleðidagur fyrir okkur,“ segir hann
og leggur áherslu á að Ásgarður
sé óhagnaðardrifið rekstrarfélag.
„Hver einasta króna sem kemur inn
fer í starfsmennina og starfið og
stjórnarmenn þurfa meira að segja
að borga fyrir veitingar á stjórnar-
fundum.“
Vöruúrvalið á jólamarkaðnum
hefur margfaldast frá því sá fyrsti
var fyrir um aldarfjórðungi. „Það
er mun rýmra um okkur hérna
enda erum við eiginlega með
fjórar starfsstöðvar í kvosinni,“
segir Óskar. „Jólamarkaðurinn er
í bröggunum og svo erum við með
veitingasöluna í kaffisalnum. Ég vil
nota tækifærið og þakka bökurum
landsins fyrir að styðja við bakið
á okkur með því að gefa okkur
góðgæti á kaffihlaðborðið. Með því
bjóðum við upp á heitt súkkulaði
með rjóma, ekkert sull.“
Markaðurinn féll niður í tvö ár
vegna veirunnar og því er birgða-
staðan góð. „Ætli við séum ekki
með um 40 mismunandi vöru-
tegundir,“ segir Óskar. Stöðugt sé
reynt að gera betur til að mæta
óskum viðskiptavina en þær breyt-
ist frá ári til árs. „Þegar við vorum
í Kringlunni á dögunum voru vöru-
bílarnir vinsælastir og allar þrjár
stærðirnar seldust eins og heitar
lummur. Fyrsti laugardagur í des-
ember er okkar helsti söludagur og
við bjóðum alla velkomna að njóta
aðventunnar með okkur.“
lJólamarkaðurÁsgarðs handverkstæðis íÁlafosskvosinni
Vörubílarnir seljast
eins og heitar lummur
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Í Álafosskvosinni Óskar Albertsson og Heimir Þór Tryggvason.
Vöruúrval Víða er leitað fanga og framleiðslan er unnin í höndum.