Morgunblaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
RALPH
FIENNES
NICHOLAS
HOULT
ANYA
TAYLOR-JOY
Painstakingly Prepared.
Brilliantly Executed.
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO
KOMIN Í BÍÓ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI USA TODAY ENTERTAINMENT
WEEKLY
EMPIRETHE PLAYLISTNEW york post
84%
SCREENDAILY IGN VANITYFAIR THEHOLLYWOOD
REPORTER
91%
71%
Tilnefningar til Kraumsverðlauna kynntar
Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun Auroru
velgerðarsjóðs, verða afhent í fimmtánda sinn síðar
í þessummánuði fyrir þær íslensku hljómplötur
er þykja skara fram úr hvað varðar gæði, metnað
og frumleika. Dómnefnd hefur nú valið þær plötur
er hljóta tilnefningar, svokallaðan Kraumslista.
Það sem einkennir tilnefningarnar í ár er sá fjöldi
listamanna sem kemur fram á sjónarsviðið með
sínum fyrstu breiðskífum. Tilnefnd eru (flytjandi
og verk): Alfreð Drexler – Drexler’s Lab; Ari Árelíus
– Hiatus Terræ; Ástþór Örn – Amachine that runs
on blood; Final Boss Type ZER – 1000 Cuts; Fríða
Dís Guðmundsdóttir – Lipstick On; Guðir hins nýja
tíma – Ég er ekki pervert, ég er spæjari; gugusar – 12:48; Kraftgalli –
Kúlomb; Kruklið – SAMHERJI: The musical; KUSK – Skvaldur; Kvelja
– Andþrot; Kvikindi – Ungfrú Ísland; Lilja María Ásmundsdóttir & Ines
Zinho – Internal Human; OhMama – Hamraborg; Óskar Kjartansson
– Gork; Ronja – 00000; Siggi Olafsson (Berglind Ágústsdóttir) – Lost
at war; Skurken – Dagur; Stirnir – Beautiful Summer, Big Stjarna;
Ultraflex – InfiniteWellness og Una Torfa – Flækt og týnd og einmana.
Gugusar er meðal
hinna tilnefndu
Doomcember-rokkhátíðin á Gauknum
Tónlistarhátíðin Doomcember fer
fram á Gauknum í kvöld, föstudags-
kvöld, og á morgun. Er hún tileink-
uð hljómsveitum sem spila svokall-
aðan dómsmálm (doommetal) sem
og öðrum sveitummeð sambærilega
hugmyndafræði í tónsköpun. Tón-
list sem, eins og segir í tilkynningu,
„skapar tómhyggju, er hávær án
þess að vera skerandi. Tónlist sem
krefst þolinmæði, umhyggju fyrir
smáatriðum og tilraunastarfsemi.“
Þá segir: „Með nógu mikið af
mögnurum, trommum og stilla það
allt upp í 11 mun tónleikastaðurinn
anga af hljóðþunga sem yfirþyrma eyrun sem ogmeðvitund.“
Bresku hljómsveitirnar Conan, Slomatics og Kurokuma koma fram og
einnig ellefu íslenskar, þar á meðal Dead Coyote, Mondernte, Godchilla,
Morpholith, Núll, Pthumulhu ogWeMade God.
Ljósmynd/Eydís Klara Þorleifsdóttir
Málmur Hin sænska Saturnalia
Temple hefur leikið á hátíðinni.
Christine McVie í Fleetwood Mac látin
Söngkonan og lagahöfundurinn
Christine McVie, einn fimmmeð-
lima hinnar vinsælu bresk-banda-
rísku hljómsveitar FleetwoodMac,
er látin 79 ára að aldri. Hún lést á
sjúkrahúsi eftir stutt veikindi.
FleetwoodMac var stofnuð í
London árið 1967 og hafa plötur
sveitarinnar selst í yfir 100 millj-
ónum eintaka. Ein platnanna,
Rumours, er meðal söluhæstu
dægurlagaplatna allra tíma. Aðrir
meðlimir hljómsveitarinnar eru
Mick Fleetwood, Lindsey Bucking-
ham, Stevie Nicks og JohnMcVie en þau Christine voru gift til ársins
1976 en störfuðu áfram í hljómsveitinni.
AFP/Steven Ferdman
Vinsæl Christine McVie á tónleik-
ummeð FleetwoodMac árið 2018.
ReykjavíkGrapevine
hlautLítinn fugl
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fugl Jón Trausti Sigurðarson, ritstjóri Reykjavík Grapevine, í fremri röð
fyrir miðju. Hann tók við Litlum fugli og með honum voru tveir fv. blaða-
menn Reykjavík Grapevine, þeir John Rogers (aftari röð) og Sindri Eldon,
og tveir núverandi, Josie Gaitens (aftari röð) og KimWagenaar.
lLaufey, KÍTÓN og Hljómahöll einnig verðlaunuð á Degi
íslenskrar tónlistar sem haldinn var hátíðlegur í gær
Dagur íslenskrar tónlistar var
haldinn hátíðlegur í gær og að vanda
var íslensk tónlist og tónlistarfólk
í öndvegi. Í Hörpu voru veittar
viðurkenningar í tilefni dagsins og
heiðursverðlaunin Lítill fugl. Hlaut
þau að þessu sinni fjölmiðillinn
Reykjavík Grapevine fyrir öfluga
tónlistar- og menningarumfjöllun allt
frá stofnun blaðsins 2003, eins og því
er lýst í tilkynningu. „Reykjavík Gra-
pevine er íslenskt tímarit á ensku og
er markhópur blaðsins ferðamenn og
nýir Íslendingar. Markmið blaðsins
er að endurspegla samfélagið og
skoðanir sem brenna á vörum fólks.
Jafnan hefur íslenskt samfélag verið
skoðað utan frá, og hefur blaðið verið
skemmtilega gagnýnið í gegnum tíð-
ina,“ segir þar og að tónlistarrýni hafi
verið afar metnaðarfull til margra
ára, umfjöllun um tónlist og útgáfu
verið mjög sterk og starfsfólk miðils-
ins haldið úti tónleikum og hvers kon-
ar viðburðahaldi með sóma. „Helsti
styrkleiki blaðsins er þó tvímælalaust
öflug menningarumfjöllun sem nú-
verandi ritstjórn ætlar sér að efla
enn frekar, enda besta leiðin fyrir
ferðamenn og aðra til þess að kynnast
landi og þjóð að sögn aðstandenda
blaðsins,“ segir enn fremur í tilkynn-
ingu og tók núverandi ritstjóri og
einn stofnenda blaðsins, Jón Trausti
Sigurðarson, við verðlaununum.
Hvatning fyrir KÍTÓN
Verðlaun og viðurkenningar Dags
íslenskrar tónlistar hafa verið veitt
þeim sem hafa fjallað, skrifað og
skráð sögu íslenskrar tónlistar.
Hvatningarverðlaun Dags íslenskr-
ar tónlistar hlaut í ár félag kvenna
í tónlist, KÍTÓN, sem var stofnað
árið 2013 og hefur að markmiði að
auka þátt kvenna í tónlist hvort
heldur er í almennri spilun eða tón-
leikaframkomu. Tónlistarkonurnar
Védís Hervör, sem er einn stofnandi
og fyrsti formaður félagsins, og Sóley
Stefánsdóttir, núverandi formaður,
tóku við viðurkenningunni fyrir hönd
KÍTÓN. Nýsköpunarverðlaun hlutu
aðstandendur smáforritsins Gjugg
sem safnar saman upplýsingum um
hvers konar viðburði í tónlist og
menningu á öllum sviðum og auð-
veldar aðgengi fólks að þeim um
allt land. Gluggann, verðlaun veitt
þeim verkefnum sem þykja sýna ís-
lenskri tónlist sérstakt atfylgi, hlaut
Hljómahöllin og tók Tómas Young
framkvæmdastjóri Hljómahallar við
viðurkenningunni.
Loks voru veitt Útflutningsverð-
laun og hlaut þau Laufey Lín Jóns-
dóttir sem vakið hefur mikla athygli
og náð til milljóna hlustenda á sam-
félagsmiðlum.