Morgunblaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 28
MENNING28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022 Tilnefningar til Íslensku glæpa- sagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 voru kynntar í gær á Kjarvals- stöðum. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin á nýju ári. Formenn dómnefnd- anna fjögurra munu koma saman ásamt forsetaskipuðum formanni, Gísla Sigurðssyni, og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verk, sem Félag íslenskra bókaútgefenda kostar. Félag íslenskra bókaútgefenda gerði fyrr á þessu ári samkomulag við Íslenska glæpafélagið um að taka yfir verklega framkvæmd Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans ásamt því að kosta verðlaunin með sama hætti og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Umsagnir dómnefnda í heild má finna á vefnum mbl.is. Tilnefningar til Blóðdropans Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir til Íslensku glæpasagna- verðlaunanna Blóðdropans: Eva Björg Ægisdóttir fyrir Strák- ar sem meiða sem Veröld gefur út. „Áhugaverð sakamálasaga sem tekur á ljótum samfélagslegum vandamálum. […] Höfundur skapar raunsæja mynd þar sem auðvelt er að tengjast persónum og atburð- um.“ Lilja Sigurðardóttir fyrir Drep- svart hraun sem JPV útgáfa gefur út. „Æsispennandi og skemmtileg saga sem heldur lesandanum í gíslingu. Höfundur dansar fína línu á milli raunveruleikans, vísinda- skáldskapar og spennusögu.“ Ragnar Jónasson og Katrín Jakobsdóttir fyrir Reykjavík sem Veröld gefur út. „Spennandi söguleg glæpasaga með óvæntum útspilum. Flæði bókarinnar er gott og samstarf höf- undanna gengur mjög vel upp.“ Skúli Sigurðsson fyrir Stóri bróðir sem Drápa gefur út. „Ný rödd hefur kvatt sér hljóðs í heimi íslenskra glæpasagna og það af fullum krafti. Margslungin bók þar sem fjölmargar sögur fléttast saman frá ólíkum sjónarhornum. […]“ Stefán Máni fyrir Hungur sem Sögur útgáfa gefur út. „Hrottaleg glæpasaga sem fær lesandann til að staldra við og hugleiða hvort hann eigi að lesa áfram. Breyskleikar og áskoranir sögupersóna tvinnast saman við spennandi söguþráðinn.“ Dómnefnd skipuðu Sigríður Kristjánsdóttir, formaður dóm- nefndar, Áslaug Óttarsdóttir og Einar Eysteinsson. Tilnefningar í flokki barna- og ungmennabóka Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki barna- og ung- mennabóka: Arndís Þórarinsdóttir fyrir Koll- hnís sem Mál og menning gefur út. „Áhugaverð, þörf og marglaga saga. Aðalpersónan tekst á við flóknar áskoranir og lesandinn er vakinn til umhugsunar um mikil- væg málefni á borð við einhverfu, einelti og ósætti innan fjölskyldu. […]“ Elísabet Thoroddsen fyrir Allt er svart í myrkrinu sem Bókabeitan gefur út. „Vel skrifuð frásögn sem fjall- ar um hinsegin ástir, dulræn öfl, andaglas og drauga. Atburðarásin er spennandi og söguþráðurinn úthugsaður. […] Sagan er glæsileg frumraun höfundar.“ Eiríkur Örn Norðdahl og Elías Rúni myndhöfundur fyrir Frankensleikir sem Mál og menning gefur út. „Áhugaverð og nýstárleg saga sem sýnir jólasveinana í nýju og óvæntu ljósi. […] Í verkinu fléttast listavel saman kímni, fantasía og hrollvekja þannig að úr verður frásögn sem er allt í senn fyndin, óhugnanleg og grípandi.“ Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir fyrir Héragerði sem Salka gefur út. „Kostuleg saga þar sem hvers- dagurinn er gerður að ævintýri. Með gamansemi og næmi fyrir mannlegum tilfinningum er varpað ljósi á flókin fjölskyldubönd, vand- ræðalegar uppákomur og ríkulega sköpunarhæfni barna. Vandaðar myndlýsingar styðja vel við frá- sögnina […].“ Sigrún Eldjárn fyrir Ófreskjan í mýrinni sem Mál og menning gefur út. „Stórskemmtileg frásögn sem markast af spennu, dulúð og kátínu. […] Textinn vísar jafnt í fortíð og nútíð, heimsbókmenntir og dægurmenningu þannig að úr verður snjöll og velheppnuð blanda. Ríkulegar og fallegar myndlýs- ingar auðga söguna og sveipa hana töfraljóma.“ Dómnefnd skipuðu Guðrún Stein- þórsdóttir, formaður dómnefndar, Gunnar Björn Melsted og Helga Ósk Hreinsdóttir. Tilnefningar í flokki fræði- bóka og rita almenns efnis Eftirfarandi höfundar eru til- nefndir í flokki fræðibóka og rita almenns efnis: Árni Snævarr fyrir Ísland Ba- býlon: Dýrafjarðarmálið og sjálfstæð- isbaráttan í nýju ljósi sem Mál og menning gefur út. „Skemmtileg frásögn um lítt þekktan kafla í sögunni sem sýnir sjálfstæðisbaráttuna frá nýju sjónarhorni. […] Þetta er vandlega unnið verk sem fær lesendur til að endurmeta stöðu Íslands í umheim- inum.“ Kristín Svava Tómasdóttir fyrir Farsótt: Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 sem Sögufélag gefur út. „Vandað verk sem veitir innsýn í þróun heilbrigðis- og velferðarmála á Íslandi. Sagan er vel skrifuð, út frá sjónarhorni húss sem gegndi ólíkum en mikilvægum hlutverk- um í þróun nútíma samfélags. […] Falleg og fróðleg bók.“ Ragnar Stefánsson fyrir Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarð- skjálfta sem Skrudda gefur út. „Stórfróðlegt yfirlitsrit um jarð- skjálfta sem lærðir og leikir munu hafa gagn og gaman af. […] Með vönduðum texta og lýsandi skýr- ingarmyndum auðveldar höfundur almenningi skilning á jarðskjálft- um.“ Stefán Ólafsson fyrir Baráttan um bjargirnar: Stjórnmál og stéttabar- átta í mótun íslensks samfélags sem Háskólaútgáfan gefur út. „Í bókinni greinir höfundur efnahagslíf, völd og stjórnmál á Íslandi með vandlega rökstuddum málflutningi. Greiningin byggist á umfangsmiklum gögnum sem sett eru fram í skýrum og lýsandi myndritum […]. [N]auðsynlegt fyrir stjórnmálaumræðu á Íslandi.“ Þorsteinn Gunnarsson fyrir Nesstofa við Seltjörn: Saga hússins, endurreisn og byggingarlist sem Þjóðminjasafn Íslands gefur út. „[…] Ritið á erindi til allra sem er umhugað um húsverndun og varð- veislu menningararfsins. Líkt og við byggingu og endurgerð Nesstofu hefur höfundur verksins nostrað við hvert smáatriði. […]“ Dómnefnd skipuðu Skúli Pálsson, formaður dómnefndar, Margrét Auðunsdóttir og Sara Hrund Helgudóttir. Tilnefningar í flokki skáldverka Eftirfarandi fimm höfundar eru tilnefndir í flokki skáldverka: Auður Ava Ólafsdóttir fyrir Eden sem Benedikt bókaútgáfa gefur út. „Grípandi samtímasaga um lífið, áskoranir þess en ekki síður fegurð hversdagsleikans. […] Höfundur fangar grósku mannlegs eðlis af einstakri næmni. […] Frásögn sem vekur hughrif og samkennd lesandans en skilur jafnframt eftir áleitnar spurningar.“ Dagur Hjartarson fyrir Ljósa- gangur sem JPV útgáfa gefur út. „Höfundur nær á einstakan hátt að skapa verk sveipað eiginleikum ljóðs og skáldsögu. Í reykvískum veruleika fléttast lögmál eðlis- fræðinnar og ástarinnar saman á óvenjulegan hátt […]. Spennan rís taktfast með framvindu sögunnar og heldur lesandanum hugföngnum og fullum eftirvæntingar. […]“ Kristín Eiríksdóttir fyrir Tól sem JPV útgáfa gefur út. „Áhrifamikið samtímaverk um napran raunveruleika sem mörg- um er hulinn. Framsetningin er frumleg og tekst að vera nærgætin en stuðandi á sama tíma. Les- anda er gefin innsýn í breyskleika einstaklingsins í samfélagi sem oft er vanbúið til þess að bregðast við. […] Marglaga verk sem lætur engan ósnortinn.“ Pedro Gunnlaugur Garcia fyrir skáldsöguna Lungu sem Bjartur gefur út. „Töfrandi og vel fléttað verk sem teygir anga sína vítt og breitt í tíma; fullt af frásagnargleði og fjöl- skrúðugum persónum. Sagan rýnir í samfélagið á frumlegan hátt þar sem framvinda verksins og afdrif persóna kemur sífellt á óvart. […] Verk sem spyr áleitinna spurninga og dvelur lengi hjá lesandanum.“ Sigríður Hagalín Björnsdóttir fyr- ir Hamingja þessa heims: Riddara- saga sem Benedikt bókaútgáfa gefur út. „Höfundur fetar nýja slóð frá fyrri verkum sínum og freistar þess að fylla upp í tímabil Íslands- sögunnar sem lítið er vitað um. […] [M]etnaðarfullt verk sem skrifað er af virðingu fyrir því liðna, jafnt persónum sem tíðaranda. Það flétt- ast sömuleiðis saman við málefni samtímans á frumlegan hátt. […]“ Dómnefnd skipuðu Kamilla Guð- mundsdóttir, formaður dómnefndar, Andri Yrkill Valsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. lTilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Íslensku glæpasagnaverðlaunanna 2022 kynntarlFÍB samdi við Íslenska glæpafélagið fyrr á þessu ári um sameiginlega framkvæmd Tuttugu bækur tilnefndar Morgunblaðið/Árni Sæberg Tilnefnd Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans voru kynntar í gær. Hér eru höfundarnir með ráðherra og formanni FÍBÚT. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Skólar & námskeið fylgir Morgunblaðinu mánudaginn 2. janúar 2023 SÉRBLAÐ Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á frekara nám. –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1108 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir fimmtudaginn 22. desember.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.