Morgunblaðið - 02.12.2022, Page 28
MENNING28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022
Tilnefningar til Íslensku glæpa-
sagnaverðlaunanna Blóðdropans og
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
2022 voru kynntar í gær á Kjarvals-
stöðum.
Forseti Íslands, Guðni Th.
Jóhannesson, afhendir verðlaunin
á nýju ári. Formenn dómnefnd-
anna fjögurra munu koma saman
ásamt forsetaskipuðum formanni,
Gísla Sigurðssyni, og velja einn
verðlaunahafa úr hverjum flokki.
Verðlaunaupphæðin er ein milljón
króna fyrir hvert verk, sem Félag
íslenskra bókaútgefenda kostar.
Félag íslenskra bókaútgefenda
gerði fyrr á þessu ári samkomulag
við Íslenska glæpafélagið um að
taka yfir verklega framkvæmd
Íslensku glæpasagnaverðlaunanna
Blóðdropans ásamt því að kosta
verðlaunin með sama hætti og
Íslensku bókmenntaverðlaunin.
Umsagnir dómnefnda í heild má
finna á vefnum mbl.is.
Tilnefningar til Blóðdropans
Eftirfarandi höfundar eru
tilnefndir til Íslensku glæpasagna-
verðlaunanna Blóðdropans:
Eva Björg Ægisdóttir fyrir Strák-
ar sem meiða sem Veröld gefur út.
„Áhugaverð sakamálasaga sem
tekur á ljótum samfélagslegum
vandamálum. […] Höfundur skapar
raunsæja mynd þar sem auðvelt er
að tengjast persónum og atburð-
um.“
Lilja Sigurðardóttir fyrir Drep-
svart hraun sem JPV útgáfa gefur
út.
„Æsispennandi og skemmtileg
saga sem heldur lesandanum í
gíslingu. Höfundur dansar fína línu
á milli raunveruleikans, vísinda-
skáldskapar og spennusögu.“
Ragnar Jónasson og Katrín
Jakobsdóttir fyrir Reykjavík sem
Veröld gefur út.
„Spennandi söguleg glæpasaga
með óvæntum útspilum. Flæði
bókarinnar er gott og samstarf höf-
undanna gengur mjög vel upp.“
Skúli Sigurðsson fyrir Stóri bróðir
sem Drápa gefur út.
„Ný rödd hefur kvatt sér hljóðs í
heimi íslenskra glæpasagna og það
af fullum krafti. Margslungin bók
þar sem fjölmargar sögur fléttast
saman frá ólíkum sjónarhornum.
[…]“
Stefán Máni fyrir Hungur sem
Sögur útgáfa gefur út.
„Hrottaleg glæpasaga sem fær
lesandann til að staldra við og
hugleiða hvort hann eigi að lesa
áfram. Breyskleikar og áskoranir
sögupersóna tvinnast saman við
spennandi söguþráðinn.“
Dómnefnd skipuðu Sigríður
Kristjánsdóttir, formaður dóm-
nefndar, Áslaug Óttarsdóttir og
Einar Eysteinsson.
Tilnefningar í flokki
barna- og ungmennabóka
Eftirfarandi höfundar eru
tilnefndir í flokki barna- og ung-
mennabóka:
Arndís Þórarinsdóttir fyrir Koll-
hnís sem Mál og menning gefur út.
„Áhugaverð, þörf og marglaga
saga. Aðalpersónan tekst á við
flóknar áskoranir og lesandinn er
vakinn til umhugsunar um mikil-
væg málefni á borð við einhverfu,
einelti og ósætti innan fjölskyldu.
[…]“
Elísabet Thoroddsen fyrir Allt
er svart í myrkrinu sem Bókabeitan
gefur út.
„Vel skrifuð frásögn sem fjall-
ar um hinsegin ástir, dulræn öfl,
andaglas og drauga. Atburðarásin
er spennandi og söguþráðurinn
úthugsaður. […] Sagan er glæsileg
frumraun höfundar.“
Eiríkur Örn Norðdahl og
Elías Rúni myndhöfundur fyrir
Frankensleikir sem Mál og menning
gefur út.
„Áhugaverð og nýstárleg saga
sem sýnir jólasveinana í nýju og
óvæntu ljósi. […] Í verkinu fléttast
listavel saman kímni, fantasía og
hrollvekja þannig að úr verður
frásögn sem er allt í senn fyndin,
óhugnanleg og grípandi.“
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir fyrir
Héragerði sem Salka gefur út.
„Kostuleg saga þar sem hvers-
dagurinn er gerður að ævintýri.
Með gamansemi og næmi fyrir
mannlegum tilfinningum er varpað
ljósi á flókin fjölskyldubönd, vand-
ræðalegar uppákomur og ríkulega
sköpunarhæfni barna. Vandaðar
myndlýsingar styðja vel við frá-
sögnina […].“
Sigrún Eldjárn fyrir Ófreskjan í
mýrinni sem Mál og menning gefur
út.
„Stórskemmtileg frásögn sem
markast af spennu, dulúð og
kátínu. […] Textinn vísar jafnt í
fortíð og nútíð, heimsbókmenntir
og dægurmenningu þannig að úr
verður snjöll og velheppnuð blanda.
Ríkulegar og fallegar myndlýs-
ingar auðga söguna og sveipa hana
töfraljóma.“
Dómnefnd skipuðu Guðrún Stein-
þórsdóttir, formaður dómnefndar,
Gunnar Björn Melsted og Helga
Ósk Hreinsdóttir.
Tilnefningar í flokki fræði-
bóka og rita almenns efnis
Eftirfarandi höfundar eru til-
nefndir í flokki fræðibóka og rita
almenns efnis:
Árni Snævarr fyrir Ísland Ba-
býlon: Dýrafjarðarmálið og sjálfstæð-
isbaráttan í nýju ljósi sem Mál og
menning gefur út.
„Skemmtileg frásögn um lítt
þekktan kafla í sögunni sem
sýnir sjálfstæðisbaráttuna frá nýju
sjónarhorni. […] Þetta er vandlega
unnið verk sem fær lesendur til að
endurmeta stöðu Íslands í umheim-
inum.“
Kristín Svava Tómasdóttir fyrir
Farsótt: Hundrað ár í Þingholtsstræti
25 sem Sögufélag gefur út.
„Vandað verk sem veitir innsýn í
þróun heilbrigðis- og velferðarmála
á Íslandi. Sagan er vel skrifuð, út
frá sjónarhorni húss sem gegndi
ólíkum en mikilvægum hlutverk-
um í þróun nútíma samfélags. […]
Falleg og fróðleg bók.“
Ragnar Stefánsson fyrir Hvenær
kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarð-
skjálfta sem Skrudda gefur út.
„Stórfróðlegt yfirlitsrit um jarð-
skjálfta sem lærðir og leikir munu
hafa gagn og gaman af. […] Með
vönduðum texta og lýsandi skýr-
ingarmyndum auðveldar höfundur
almenningi skilning á jarðskjálft-
um.“
Stefán Ólafsson fyrir Baráttan um
bjargirnar: Stjórnmál og stéttabar-
átta í mótun íslensks samfélags sem
Háskólaútgáfan gefur út.
„Í bókinni greinir höfundur
efnahagslíf, völd og stjórnmál á
Íslandi með vandlega rökstuddum
málflutningi. Greiningin byggist
á umfangsmiklum gögnum sem
sett eru fram í skýrum og lýsandi
myndritum […]. [N]auðsynlegt fyrir
stjórnmálaumræðu á Íslandi.“
Þorsteinn Gunnarsson fyrir
Nesstofa við Seltjörn: Saga hússins,
endurreisn og byggingarlist sem
Þjóðminjasafn Íslands gefur út.
„[…] Ritið á erindi til allra sem er
umhugað um húsverndun og varð-
veislu menningararfsins. Líkt og við
byggingu og endurgerð Nesstofu
hefur höfundur verksins nostrað við
hvert smáatriði. […]“
Dómnefnd skipuðu Skúli Pálsson,
formaður dómnefndar, Margrét
Auðunsdóttir og Sara Hrund
Helgudóttir.
Tilnefningar í flokki
skáldverka
Eftirfarandi fimm höfundar eru
tilnefndir í flokki skáldverka:
Auður Ava Ólafsdóttir fyrir Eden
sem Benedikt bókaútgáfa gefur út.
„Grípandi samtímasaga um lífið,
áskoranir þess en ekki síður fegurð
hversdagsleikans. […] Höfundur
fangar grósku mannlegs eðlis af
einstakri næmni. […] Frásögn
sem vekur hughrif og samkennd
lesandans en skilur jafnframt eftir
áleitnar spurningar.“
Dagur Hjartarson fyrir Ljósa-
gangur sem JPV útgáfa gefur út.
„Höfundur nær á einstakan hátt
að skapa verk sveipað eiginleikum
ljóðs og skáldsögu. Í reykvískum
veruleika fléttast lögmál eðlis-
fræðinnar og ástarinnar saman á
óvenjulegan hátt […]. Spennan rís
taktfast með framvindu sögunnar
og heldur lesandanum hugföngnum
og fullum eftirvæntingar. […]“
Kristín Eiríksdóttir fyrir Tól sem
JPV útgáfa gefur út.
„Áhrifamikið samtímaverk um
napran raunveruleika sem mörg-
um er hulinn. Framsetningin er
frumleg og tekst að vera nærgætin
en stuðandi á sama tíma. Les-
anda er gefin innsýn í breyskleika
einstaklingsins í samfélagi sem oft
er vanbúið til þess að bregðast við.
[…] Marglaga verk sem lætur engan
ósnortinn.“
Pedro Gunnlaugur Garcia fyrir
skáldsöguna Lungu sem Bjartur
gefur út.
„Töfrandi og vel fléttað verk sem
teygir anga sína vítt og breitt í
tíma; fullt af frásagnargleði og fjöl-
skrúðugum persónum. Sagan rýnir
í samfélagið á frumlegan hátt þar
sem framvinda verksins og afdrif
persóna kemur sífellt á óvart. […]
Verk sem spyr áleitinna spurninga
og dvelur lengi hjá lesandanum.“
Sigríður Hagalín Björnsdóttir fyr-
ir Hamingja þessa heims: Riddara-
saga sem Benedikt bókaútgáfa
gefur út.
„Höfundur fetar nýja slóð frá
fyrri verkum sínum og freistar
þess að fylla upp í tímabil Íslands-
sögunnar sem lítið er vitað um. […]
[M]etnaðarfullt verk sem skrifað
er af virðingu fyrir því liðna, jafnt
persónum sem tíðaranda. Það flétt-
ast sömuleiðis saman við málefni
samtímans á frumlegan hátt. […]“
Dómnefnd skipuðu Kamilla Guð-
mundsdóttir, formaður dómnefndar,
Andri Yrkill Valsson og Þorvaldur
Davíð Kristjánsson.
lTilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Íslensku glæpasagnaverðlaunanna 2022
kynntarlFÍB samdi við Íslenska glæpafélagið fyrr á þessu ári um sameiginlega framkvæmd
Tuttugu bækur tilnefndar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilnefnd Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans voru kynntar í gær. Hér eru höfundarnir með ráðherra og formanni FÍBÚT.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Skólar & námskeið
fylgir Morgunblaðinu
mánudaginn 2. janúar 2023
SÉRBLAÐ
Í blaðinu verður fjallað um
þá fjölbreyttu flóru sem í boði
er fyrir þá sem stefna á
frekara nám.
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1108 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir fimmtudaginn 22. desember.