Morgunblaðið - 02.12.2022, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 02.12.2022, Qupperneq 25
2016-2020. Hafliði varð formaður Rannsóknarráðs Íslands árið 2000. Þetta ráð var uppnefnt „bylting- arráðið“ því það lagði sjálft sig niður og hóf vinnu við stofnun Vísinda- og tækniráðs sem tók til starfa árið 2003 undir forsæti forsætisráðherra. Í því hlutverki samdi Hafliði með öðrum frumvarp til laga um Vísinda- og tækniráð og tengd frumvörp um sjóðina sem undir það heyra. „Nú eru allir sammála um að þetta hafi verið rétt ákvörðun, sjóðirnir og ráðstöfun þeirra tók á sig betri mynd, en við stóðum í stríði við suma áður en við náðum þessu í gegn.“ Hann var formaður vís- indanefndar ráðsins og formaður stjórnar Rannsóknasjóðs (Rannís) árin 2003-2006. Einnig sat Hafliði í stjórn NordForsk og evrópsku vís- indastofnunarinnar ESF, siðanefnd HÍ og fleiri nefndum. Hafliði hefur alltaf haft mikinn áhuga á myndlist. „Ég var í mynd- listarskóla þegar ég var í Banda- ríkjunum og Frakklandi og hef verið í Myndlistaskóla Reykjavíkur og Myndlistarskóla Kópavogs. Ég hef dvalið í 20 ár á Rauða- sandi, það er minn lífselexír að fara þangað á hverju sumri. Vinur minn á búgarð þar og ég hjálpaði honum við hann og hef fengið að vera þar.“ Fjölskylda Hafliði var kvæntur Guðnýju Ásu Sveinsdóttur, f. 1952, lækni. Þau skildu og er hún búsett í Svíþjóð. Bræður Hafliða eru Guðmundur Gíslason, f. 9.4. 1954, fyrrverandi forstöðumaður fangelsa á höfuð- borgarsvæðinu, og Ingólfur Gísla- son, f. 1.4. 1958, rafeindavirki, Foreldrar Hafliða: Hjónin Gísli Hafliðason, f. 17.8. 1925 á Bragagötu 27 í Reykjavík, d. 26.2. 2013, vél- stjóri í Reykjavík, og Þórunn Sig- ríður Guðmundsdóttir, f. 13.1. 1927 á Sjávargötu í Garði, húsfreyja og fv. stuðningsfulltrúi í Hlíðaskóla. Hún er búsett í Reykjavík. Hafliði Pétur Gíslason Vilborg Gunnarsdóttir húsfreyja í Nesi Jón Jasonarson bóndi í Nesi í Selvogi Sesselja Jónsdóttir húsfreyja í Sjávargötu Guðmundur Einarsson útvegsbóndi í Sjávargötu í Garði Þórunn Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík og fv. stuðningsfulltrúi í Hlíðaskóla Kristín Finnsdóttir húsfreyja á Ísafirði, Bolungarvík og síðast á Akranesi Einar Guðmundsson sjómaður á Ísafirði og í Bolungarvík Þuríður Kristjánsdóttir húsfreyja á Öskubrekku Helgi Arason bóndi á Öskubrekku í Ketildölum,Arnarfirði Halldóra Kristín Helgadóttir húsfreyja í Reykjavík Hafliði Jónsson vélstjóri í Reykjavík Kristín Guðrún Daníelsdóttir húsfreyja í Skógum Jón Þórðarson bóndi í Skógum í Þorskafirði Ætt Hafliða Péturs Gíslasonar Gísli Hafliðason vélstjóri í Reykjavík MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022 DÆGRADVÖL 25 • Olíulitir • Akrýllitir • Vatnslitir • Trélitir • Trönur • Blindrammar • Strigi • Penslar • Spreybrúsar • Teikniborð • Gjafasett • Teikniborð • Ljósaborð • Skissubækur ... og margt fleira Þess vegna leggjum við mikinn metnað í myndlistarvörurnar okkar. Listin er eilíf SLIPPFÉLAGIÐ Fellsmúla 26 og Skútuvogi 2, Reykjavík, S: 588 8000 Dalshrauni 11, Hafnarfirði, S: 588 8000 Hafnargötu 54, Reykjanesbæ, S: 421 2720 Austurvegi 58, Selfossi, S: 482 1250 Gleráreyrum 2, Akureyri, S: 461 2760 Opið: 8-18 virka daga / 10-14 laugardaga slippfelagid.is Vísnahorn Ófarir og aftur ófarir Hér verður áfram haldið með limrurnar Ófarir eftir Braga V. Bergmann. Um „Ófarir III“ skrifar hann: „Ein helsta dyggð mannsins er hófsemin. „Hóf er á hverju best,“ segir máltækið. „Hóf er best í hverjum leik,“ segir annað og „allt kann sá er hófið kann,“ er boðskap- ur þess þriðja. „Hóf er best í hófi,“ reyndi einhver að malda í móinn en án árangurs. Óhófið er náskylt græðginni og hún hefur oft haft skelfilegar afleiðingar í för með sér á ýmsum sviðum. Hér segir af dauðdaga Friðjóns bónda á Mæri: Sorglegar fréttir ég færi af Friðjóni bónda á Mæri: Að sér ei uggði, of lítið tuggði og kafnað' á kjúklingalæri. Um „Ófarir IV“ segir Bragi V. Bergmann: „Íslensk vetrar- veðrátta er ekkert lamb að leika sér við. Fannfergið er oft ótrú- lega mikið og þá skapast ýmsar hættur sem við sjáum ekki fyrir. Hér segir af sviplegu dauðsfalli Guðfinnu húsfreyju að vetrarlagi í dreifbýlinu.“: ÁGrímsstöðum Guðfinna bjó. Hún gekk fram á hengju af snjó. Áhöfuðið skall, valt og skildi að fallvalt er lífið – um leið og hún dó. Hér eru tvær stökur eftir Pál Jónasson í Hlíð: Aulanum stökk aldrei bros úrillur og þybbinn, ráðskaðist með ríkistros rosalega sybbinn. Og „Tíminn og lygin“: Töltir áfram tíminn hratt tæmast þorp og sveitir, það sem áður sagt var satt sá í lygi breytir. Veðrið hreyfir alltaf við hag- yrðingum og skáldum. Ólafur Stefánsson yrkir: Það veltur hreinlega á veðurspánni, hvort verkurinn aukist í stórutánni, – þeir halda það heldrimanns gigt – Þá er bara að bíða, vona að blíðan haldist barasta svona eins gegnum þunnt og þykkt. Guðmundur skáld á Sandi orti: Málgar konur, brekótt börn bændur gera feiga, þó er nóttin þrautagjörn þeim sem hvorugt eiga. Eiður Arngrímsson svaraði: Oft á jöfnu verður völ, veitist lækning sorgar. Dimmrar nætur dapra kvöl dagsins friður borgar. VANDRÆÐALEGA AUGNABLIKIÐ EFTIR AÐ ÞÚ GREIPST ÓVART Í RANGAN LÍKAMSPART Á MÓTHERJANUM. „ÞETTA ER DRAUMA-DELUXE EXTRA BÓLSTRAÐA ÚTGÁFAN OKKAR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... stundum upp, stundum niður. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VARA LÍSU VIÐ ÞEGAR LÍSA KEMUR VIL ÉG VERA EINN MEÐ HENNI ÞÚ VEIST HVAÐ ÞÚ ÁTT AÐ GERA JÁ OG ÉG SEM EYDDI FORMÚU Í ILMVATN! NUS NUS AHHH! ÞAÐ ILMAR EKKERT JAFNVEL OG VORBLÓMIN! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.