Morgunblaðið - 02.12.2022, Qupperneq 27
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
Porto – Magdeburg ............................... 31:31
Ómar Ingi Magnússon skoraði 7 mörk
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 6.
PPD Zagreb – Veszprém..................... 29:26
Bjarki Már Elísson skoraði ekki fyrir
Veszprém.
Wisla Plock – Dinamo Búkarest........... 26:28
Staðan:
París SG 14, Veszprém 13, Magdeburg 10,
Dinamo Búkarest 9, GOG 7, Wisla Plock 5,
PPD Zagreb 5, Porto 0.
B-RIÐILL:
Nantes - Aalborg................................... 35:28
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 14 skot í
marki Nantes.
Aron Pálmarsson skoraði 4 mörk fyrir
Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari
liðsins.
Staðan:
Barcelona 15, Kielce 14, Nantes 12, Aalborg
7, Kiel 6, Pick Szeged 6, Celje Lasko 2,
Elverum 2.
Þýskaland
Gummersbach – RN Löwen ............... 29:32
Hákon Daði Styrmisson skoraði 5 mörk
fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðars-
son 1. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið.
Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir
Löwen.
Danmörk
SönderjyskE – Ringköbing ................ 30:26
Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 5 skot í
marki Ringköbing.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022
Mun betri byrjun
hjá Guðmundi
Atvinnukylfingurinn Guðmundur
Ágúst Kristjánsson fór ágætlega
af stað á Investec South African-
mótinu á Evrópumótaröðinni í
golfi, en leikið er í Jóhannesar-
borg, höfuðborg Suður-Afríku.
Guðmundur lék fyrsta hringinn í
gær á 72 höggum, eða á pari.
Mótið er númer tvö á móta-
röðinni á tímabilinu. Byrjunin
er mun betri hjá Guðmundi en á
fyrsta mótinu, er hann lék fyrsta
hringinn á sex höggum yfir pari.
Íslenski kylfingurinn er í 89. sæti.
Ljósmynd/Kristján Ágústsson
Betri Guðmundur Ágúst byrjaði
mun betur í gær en á síðasta móti.
Martínez hættur
með Belga
Spánverjinn Roberto Martínez er
hættur þjálfun karlaliðs Belgíu í
fótbolta, eftir að liðinu mistókst
að komast í 16-liða úrslit HM í
Katar í gær. Belgía vann aðeins
einn leik í Katar og skoraði eitt
mark. Hinn 49 ára gamli Martí-
nez tók við belgíska liðinu árið
2016. Undir hans stjórn varð
Belgía í þriðja sæti á HM í Rúss-
landi fyrir fjórum árum og þá var
liðið í efsta sæti styrkleikalista
FIFA frá september 2018 og allt
til marsmánaðar á þessu ári.
AFP/Gabriel Bouys
Hættur Roberto Martínez stýrði
Belgíu í síðasta skipti í gær.
KR er í vondummálum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilþrif ÍR-ingurinn Taylor Johns sýndi áhugaverða varnartakta er hann
stökk yfir liðsfélaga sinn og reyndi að stöðva Aapeli Alanen í leiðinni.
l ÍR vann fallslaginnlHaukar neituðu
að gefast upplAuðvelt hjá Njarðvík
KÖRFUBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsso
johanningi@mbl.is
n
Körfuboltastórveldið KR er í
miklum vandræðum eftir 88:95-tap
gegn ÍR í 8. umferð Subway-deild-
ar karla í körfubolta í gærkvöldi.
KR hefur aðeins unnið einn leik af
fyrstu átta og er nú fjórum stigum
frá öruggu sæti í deildinni. Þá hefur
KR tapað öllum fimm leikjum sín-
um á heimavelli á leiktíðinni. Sigur-
inn var sætur fyrir ÍR, sem komst
frá mesta fallsvæðinu, í staðinn
fyrir að vera jafnt KR að stigum.
Það verður spennandi að sjá hvað
forráðamenn KR gera eftir leikinn
í gær. Einhverju þarf að breyta til
að koma í veg fyrir fall. Kannski
þarf að skipta um þjálfara. Einn
sigur í átta leikjum og tap í fallslag
er mikið áhyggjuefni. Leikmanna-
hópur KR er auðvitað langt frá því
að vera eins góður og þegar liðið
varð Íslandsmeistari sex ár í röð á
árunum 2014 til 2019.
Til að fylla í skarð þeirra sem
horfið hafa á braut undanfarin
ár, hefur KR fengið til liðs við sig
nokkra erlenda leikmenn, sem eru
einfaldlega langt frá því að vera
nógu góðir. Elbert Matthews reyndi
ellefu þriggja stiga skot í gær og
hitti ekki úr einu einasta. Lítið sem
ekkert kom frá Roberts Freimanis
og Aapeli Alanen leit ekki vel út í
sínum fyrsta leik. Það er mikið að
hjá KR og breytingar eru þarfar, ef
ekki á illa að fara.
Taylor Johns átti stærstan þátt í
sigri ÍR í gær. Bandaríkjamaðurinn
skoraði 24 stig, tók 18 fráköst og gaf
sjö stoðsendingar. Martin Paasoja
gerði 22 stig. KR mætti taka ÍR
sér til fyrirmyndar þegar kemur
að því að finna erlenda leikmenn.
Þá á hinn kornungi Ísak Máni
Wium hrós skilið fyrir að mæta
með ÍR-liðið sitt í svona stóran leik
og fagna sigri. Hann er aðeins 22
ára og greinilega ýmislegt í hann
spunnið.
Endurkomusigur Hauka
Haukar unnu 80:75-heimasigur
á Tindastóli. Um endurkomusigur
var að ræða, því Tindastóll náði
mest 18 stiga forskoti. Haukar
neituðu hins vegar að gefast upp
og með glæsilegum seinni hálfleik
sneru heimamenn taflinu við og
unnu sterkan sigur.
Má segja að Haukar hafi unnið
Tindastól tvisvar í gær, því Hauk-
um var endanlega úrskurðaður
sigur á Tindastóli í bikarleik lið-
anna í gær. Tindastóll vann leikinn
88:71, en vegna minni háttar brots
Skagfirðinga á reglum um erlenda
leikmenn var Haukum að lokum úr-
skurðaður sigur, þrátt fyrir áfrýjun
Tindastóls.
Darwin Davis skoraði 21 stig fyrir
Hauka og var afar mikilvægur á
lokakaflanum. Taiwo Badmus skor-
aði 21 stig fyrir Tindastól. Haukar
eru í fimmta sæti deildarinnar með
tíu stig, tveimur stigum og einu
sæti fyrir ofan Tindastól.
Sannfærandi Njarðvíkingar
Njarðvík átti ekki í neinum vand-
ræðum með að vinna botnlið Þórs
frá Þorlákshöfn á útivelli. Urðu
lokatölur 119:88 og voru Njarðvík-
ingar með undirtökin frá fyrstu
mínútu til þeirrar síðustu. Rétt
eins og KR, þá hefur Þór aðeins
unnið einn leik á tímabilinu og er
í miklum vandræðum. Fáir hefðu
spáð því að KR og Þór yrðu föst við
botninn eftir átta umferðir, en sú
er raunin. Njarðvík hefur nú unnið
tvo leiki í röð, eftir tvö töp í röð þar
á undan.
Dedrick Basile skoraði 28
stig fyrir Njarðvík og gaf tólf
stoðsendingar. Vincent Shahid
skoraði 30 stig fyrir Þór.
Grindavík aftur á sigurbraut
Eftir tvö töp í röð vann Grindavík
91:87-útisigur á Hetti. Tapið var
það þriðja í röð hjá Austfirðingum,
eftir gott gengi þar á undan.
Damier Pitts var stigahæstur hjá
Grindavík með 29 stig og Timothy
Guers var með 29 stig fyrir Hött.
Liðin virðast ætla að berjast um
síðustu sætin í úrslitakeppninni
en eftir sigurinn er Grindavík í
áttunda sæti með átta stig. Höttur
er í níunda sætinu, með tveimur
stigum færra.
Töframaðurinn sem hætti við að hætta
Hakim Ziyech, skærasta stjarna
marokkóska landsliðsins í fót-
bolta, skoraði sitt fyrsta mark
á lokamóti HM er hann kom
Marokkó yfir gegn Kanada í
2:1-sigri liðsins í gær. Með sigrin-
um settist Marokkó í toppsæti
F-riðils og fékk þar með sæti í
16-liða úrslitum.
Ziyech, sem stuðningsmenn
hollenska liðsins Ajax kalla
töframanninn, hefur verið í auka-
hlutverki hjá enska stórliðinu
Chelsea undanfarna mánuði og
aðeins spilað fimm leiki í ensku
úrvalsdeildinni á leiktíðinni.
Hann sló í gegn með Ajax og
var í 29. sæti á lista The Guardi-
an yfir bestu knattspyrnumenn
heims árið 2019. Átti hann stóran
þátt í að Ajax fór alla leið í undan-
úrslit Meistaradeildar Evrópu
tímabilið 2018/’19. Honum hefur
hins vegar gengið illa að vinna sér
inn fast sæti hjá Chelsea.
Þá hefur hegðun hans utan
vallar verið í sviðsljósinu.
Ziyech tilkynnti á síðasta ári að
hann hefði lagt landsliðsskóna
á hilluna vegna ágreinings
við landsliðsþjálfarann Vahid
Halilhodzic. Bosníski þjálfarinn
sakaði Ziyech um að þykjast vera
meiddur, til að sleppa landsleik,
og var leikmaðurinn allt annað en
sáttur við þau ummæli. Var hann
því ekki í marokkóska hópnum á
Afríkumótinu á síðasta ári.
Vahid Halilhodzic var hins
vegar látinn taka pokann sinn
skömmu fyrir heimsmeistara-
mótið, meðal annars vegna
ósættisins við stjörnuleikmann
þjóðarinnar. Annað hvort færi
Halilhodzic eða Ziyech á HM
og forráðamenn marokkóska
knattspyrnusambandsins stóðu
með leikmanninum, frekar en
þjálfaranum. Walid Regragui tók
við og var snöggur að hringja í
Ziyech, sem hætti við að hætta
með landsliðinu.
Með Ziyech í aðalhlutverki hef-
ur Marokkó komið skemmtilega á
óvart á HM og að vinna riðil með
silfur- og bronsliðinu frá því á síð-
asta heimsmeistaramóti er mikið
afrek. Það sem meira er, Marokkó
tapaði ekki leik í riðlinum og fékk
aðeins á sig eitt mark.
Fjölskylda Ziyechs er frá
Marokkó en hann er fæddur og
uppalinn í Hollandi. Hann lék
með yngri landsliðum Hollands,
en ákvað að lokum að leika fyrir
Marokkó.
AFP/Miguel Medina
Innlifun Hakim Ziyech fagnar
marki sínu í gær vel og innilega.
Handknattleiksmaðurinn Þorsteinn
Gauti Hjálmarsson hefur verið valinn
í finnska landsliðið og mun leika með
því á æfingamóti í upphafi næsta árs.
Amma Þorsteins í föðurætt var finnsk
og var því hægt að sækja um tvöfalt
ríkisfang fyrir leikmanninn þegar hann
var barn.
Lionel Messi sló leikjamet argent-
ínska karlalandsliðsins í knattspyrnu
á heimsmeistarmóti, er hann lék í
2:0-sigri Argentínu á Póllandi á HM í
Katar. Leikurinn var 22. leikur Messi
á heimsmeistaramóti, en Diego
Maradona lék á sínum tíma 21 leik
fyrir Argentínu á HM.
Körfuknattleiksdeild KR hefur sagt
upp samningi sínum við Saimon Sutt
og leikur hann því ekki fleiri leiki fyrir
karlalið félagsins. Sutt gekk ekki vel í
treyju Vesturbæjarfélagsins þar sem
hann skilaði aðeins 1,5 stigum, 1,8
fráköstum og 1,5 stoðsendingum að
meðaltali í leikjunum fjórum sem hann
lék fyrir liðið á tímabilinu.
Kenýubúinn Eliud Kipchoge,
heimsmethafi og besti maraþon-
hlaupari heims, ætlar að taka þátt í
Boston-maraþoninu í Bandaríkjunum,
í fyrsta sinn á ferlinum, 17. apríl á
næsta ári. Kipchoge, sem hefur unnið
ólympíugull í maraþoni á síðustu
tvennum Ólympíuleikum og unnið
flest stærstu maraþonhlaup heims,
hefur ekki keppt í greininni í Banda-
ríkjunum í tæpan áratug.
Óvíst er hvort Cristiano Ronaldo,
fyrirliði karlaliðs Portúgals í knatt-
spyrnu, getur tekið þátt í leik liðsins
gegn Suður-Kóreu í lokaumferð
H-riðils HM í
Ka
Ro
he
að
m
m
af
m
da
tar í dag.
naldo
fur verið
glíma við
eiðsli og
issti t.a.m.
æfingu á
iðviku-
g.