Morgunblaðið - 06.12.2022, Qupperneq 1
BRASILÍU-
MENNÁFRAM
Í ÁTTA-LIÐA
HM Í KATAR 26
ÞORRAÞRÖSTUR SÁST
LANGTAÐ KOMNIR 10
FER TIL
FENEYJA FYRIR
HÖND ÍSLANDS
HILDIGUNNUR BIRGISDÓTTIR 28
• Stofnað 1913 • 286. tölublað • 110. árgangur •
ÞR IÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022
18
dagar til jóla
Jólaleikir eru á
jolamjolk.is
Morgunblaðið/Eggert
Margt býr í þokunni
Þoku lagði yfir Reykjavíkurborg í gær og varð úr stillt
og fallegt vetrarveður. Vetrarsólin lét á sér kræla þó að
skammdegið sé nærri hámarki. Um tíma var í senn þoka,
sólarroði og tunglsljós. Enn er þó ekki hægt að segja að
snjókoma sé farin að gera vart við sig svo teljandi sé. Kalt
loftið stöðvar ekki hlaupara við að stunda iðju sína.
70 til 100 vindmyll-
ur gætu risið brátt
Matsáætlun fyrir vindorkugarð á
Fljótsdalsheiði hefur verið kynnt
og gerir ráð fyrir að þar geti risið
allt að 500 MW virkjun. Það sam-
svarar 70 til 100 og allt að 200
metra háum vindmyllum. Zephyr
Iceland stendur fyrir fyrirhug-
aðri framkvæmd.» 4Rukka gjald
fyrir rafskútur
�Eitt brýnasta úrlausnarefnið við
innleiðingu rafskúta í samgöngu-
kerfið er að koma upp svokölluð-
um skútustæðum, en með tilkomu
þeirra megi vænta þess að minna
verði um að skúturnar séu skildar
eftir eins og hráviði á göngustíg-
um. Æskilegt væri að fara bland-
aða leið; að á dreifðari svæðum
verði áfram leyfilegt að leggja
skútum ef þær eru ekki fyrir öðr-
um vegfarendum. Þar sem byggð
er þéttust ætti hins vegar að hafa
skútustæði með reglulegu milli-
bili. Þetta er meðal niðurstaðna í
rannsóknarverkefninu Frágangur
rafskúta í borgarlandi sem kynnt
var á vef Vegagerðarinnar nýlega.
Þar kemur jafnframt fram að
víða erlendis er tekið gjald til að
standa straum af kostnaði sem
fellur á sveitarfélög vegna innviða
á borð við skútustæði. Slíkt gjald
er allt frá 7-19 þúsund krónur á ári
á hverja leiguskútu.» 11
Morgunblaðið/Eggert
Stæði Víða er pláss fyrir skútur.
„Eins og kom fram þegar ríkisstjórn-
in kynnti sínar tillögur er stærsta
útgjaldaaukningin til heilbrigðis-
mála,“ segir Bjarkey Olsen Gunnars-
dóttir, formaður fjárlaganefndar Al-
þingis, í samtali við Morgunblaðið
um breytingatillögur meirihluta
fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarp
næsta árs er lagðar voru fram á Al-
þingi í gær.
Mannúðarmál vegna stríðs
Ásamt heilbrigðismálum séu fé-
lagsmálin stór póstur í breytinga-
tillögunum „og svo erum við líka að
bæta talsvert í ívilnanir til hreinorku-
bíla og stærri hreinorkubíla auk þess
sem bæði lögreglan og Landhelgis-
gæslan eru að fá mjög mikla styrk-
ingu og ákæruvaldið og Fangelsis-
málastofnun“, heldur formaðurinn
áfram og nefnir enn fremur mann-
úðarmál vegna Úkraínustríðsins sem
málaflokk er aukins stuðnings njóti.
Aukning til heilbrigðismála nemur
12 milljörðum auk þess sem vaxta-
gjöld eru einnig fyrirferðarmikil en
þar bætast 13 milljarðar króna við á
milli umræðna. Hækkun framlaga til
félags-, húsnæðis- og tryggingamála
nemur 3,7milljörðum og gert ráð fyrir
að þar af fari 1,1 milljarður í að hækka
frítekjumark atvinnutekna öryrkja.
Framlög til lögreglu aukast um 900
milljónir með hliðsjón af markmiðum
um viðbragðstíma hennar, málsmeð-
ferðarhraða og öryggisstig auk þess
sem 500 milljóna hækkun er eyrna-
merkt aðgerðum gegn skipulagðri
brotastarfsemi.
Baldur leystur af hólmi
Miðað við breytingatillögurnar
mun halli ríkissjóðs árið 2023 aukast
úr 89 milljörðum, sem fjárlagafrum-
varp gerði ráð fyrir, í tæpa 119 millj-
arða. Hækkar tekjuáætlunin um 23,7
milljarða en útgjöld um 53 milljarða.
Aukinheldur er lagt til að 210 millj-
ónum króna verði varið til að tryggja
ferjurekstur um Breiðafjörð þar sem
rekstraraðili ferjunnar Baldurs mun
hætta siglingum. Hreyfir frumvarp-
ið því að önnur ferja verði leigð eða
keypt til að fylla skarð Baldurs og er
þar litið til ferjunnar Rastar sem er
í siglingum í Norður-Noregi.
lGert ráð fyrir að halli ríkissjóðs aukist um 30milljarða
Löggæslan efld í
fjárlagabreytingum
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is Breytingatillögur
»Tólf milljarða króna aukning
til heilbrigðismála
»Við vaxtagjöld bætast 13
milljarðar króna
»1,1 milljarður króna til hækk-
unar frítekjumarks atvinnu-
tekna öryrkja
»500 milljónir króna gegn
skipulagðri brotastarfsemi
»Vilji til að ýta nýrri Breiða-
fjarðarferju úr vör