Morgunblaðið - 06.12.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.12.2022, Qupperneq 4
FRÉTTIR Innlent4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 þarf að framleiða rafmagn í landinu og sinna grunnþörfum heimila og atvinnulífs. Það er eins og það megi ekki sjást og ekkert megi gera, en samt vilja þeir fá rafmagn. Þetta er smá skrítin staða,“ segir Mart- einn Óli. Ekki er gefinn upp ákveðinn kaupandi að raforkunni, aðeins að m.a. sé verið að bregðast við aukinni orkuþörf á Íslandi. Meðal verkefna sem verið er að undirbúa á Austurlandi er rafeldsneytisfram- leiðsla á Reyðarfirði og hún mun þurfa mikla raforku. Áformin á Fljótsdalsheiði eru nokkuð mikil, miðað við önnur áform um vind- orkugarða. Rétt er að taka fram að fyrirhugað er að áfangaskipta uppbyggingunni. Í upphafi verði að lágmarki 50 MW uppsett afl til að hámarki 350 MW en að möguleik- ar séu á stækkun upp í 500 MW. Til samanburðar má geta þess að Kárahnjúkavirkjun, sem er í næsta nágrenni við fyrirhugaða Klausturselsvirkjun, er 690 MW. helgi@mbl.is Matsáætlun fyrir vindorkugarð á Fljótsdalsheiði, í landi Klaust- ursels, gerir ráð fyrir að þar geti risið allt að 500 MW virkjun, ef far- ið verður í stærstu útfærslu. Reikn- að er með að byrjað verði á smærri áfanga. Þörf er á 70 til 100 og allt að 200 metra háum vindmyllum fyrir 500 MW í uppsettu afli. Zephyr Iceland stendur fyrir framkvæmdinni. Fram kemur í skýrslu um matsáætlun sem kynnt hefur verið að Fljótsdalsheiði er talin tilvalinn staður fyrir vind- orkugarð. Á svæðinu eru hagstæð veðurskilyrði, tiltölulega einfalt að tengjast raforkuflutningskerfi Landsnets og góðir innviðir vegna undirbúnings og aðflutninga. Þarf að framleiða rafmagn Klaustursel er stór jörð og Mart- einn Óli Aðalsteinsson, bóndi og landeigandi, segir að sér lítist vel á áform Zephyr. Spurður um við- brögð fólks segir hann að margir sem hafi frétt af þessu séu neikvæð- ir. „Ég skil samt ekki af hverju. Það lZephyr Iceland kynnir matsáætlun fyrir allt að 500MW vindorkugarð á Fljótsdalsheiði, í landi Klaustursels á JökuldallBóndinn í Klausturseli skilur ekki neikvæðnina gagnvart nýtingu vindorku Risavindorkugarðurundirbúinn Orka 70 -100 vindmyllur gætu risið. Tillaga um að smokkar verði að- gengilegir fyrir unglinga í öllum félagsmiðstöðvum Reykjavíkur frá ársbyrjun 2023 var samþykkt í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar á dögunum. Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs segir að þessi útfærsla sé byggð á tilraunaverkefni og hafi gefið góða raun. „Nú verða allir öruggari,“ segir Helgi. Í minnisblaði skóla- og frístunda- sviðs er rakið að í Reykjavík hafi tilraunaverkefni varðandi alhliða kynfræðslu verið í gangi í þrjú ár. „Verkefnið byrjaði í Foldaskóla og Seljaskóla en nýlega bættust Norð- lingaskóli, Réttarholtsskóli, Haga- skóli og Ingunnarskóli við. Verkefnið byggist á hugmyndum um alhliða kyn- fræðslu og er kynfræðsluteymi skipað kennurum, skólahjúkrunarfræðingi og starfsfólki félagsmiðstöðvar (í flestum tilvikum forstöðumaður og aðstoðarforstöðumaður) sem kem- ur inn í bekkina með fræðslu. Þeir árgangar sem fá fræðslu fá a.m.k 12 kennslustundir yfir veturinn sem fag- aðilarnir skipta á milli sín,“ segir þar. Þá segir að gefist hafi vel að bjóða upp á aðgengi að smokkum, rétt eins og tíðavörum. „Áhyggjur af því að smokkar og tíðavörur yrðu uppi um alla veggi skólanna hafa ekki raun- gerst. Flestar félagsmiðstöðvar borg- arinnar hafa boðið unglingum upp á smokka þeim að kostnaðarlausu af og til og mætti vel skoða að festa það í sessi. … Lagt er til að keyptir verði smokkar og þeir gerðir aðgengilegir í öllum félagsmiðstöðvum borgarinnar. Áætlaður kostnaður er um 350.000 krónur á ári.“ lTilraunaverkefni gefið góða raun Bjóða smokka í félagsmiðstöðvum Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Ungmenni Smokkar og tíðavörur fáist í félagsmiðstöðvum á nýju ári. Aron Snær á Árlandi í Þingeyjarsveit taðreykir jólahangikjötið á aðventunni Ilmurinn er indæll á Árlandi Það er matarlegt í reykhúsinu á bænumÁrlandi í Þingeyjarsveit þessa dagna. Aron Snær Krist- jánsson er að verða búinn að reykja og um næstu helgi verður jólahangikjötið tilbúið. Hann reykir framparta, læri, nautatungur, rúllupylsur og sperðla. Hann kyndir tvisvar á dag til þess að viðhalda reyknum en til þess notar hann tvær gerðir af taði. Aron Snær raðar tað- flögunum eftir ákveðnum reglum þegar hann bætir á eldinn, en það er samkvæmt gömlum aðferðum sem fylgt hafa fjölskyldunni frá ómunatíð. Aron Snær segir að það sé gam- an að fást við þetta og hlakkar til þegar kræsingar þessar verða tilbúnar. Tvíreyktu hangilærin hans eru að margra mati mikið hnossgæti og ómissandi þegar nær dregur jólahátíðinni. Eitt er víst að ilmurinn er indæll í reykhúsinu og kjötmetið á eftir að kitla bragðlaukana. Morgunblaðið/Atli Vigfússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.