Morgunblaðið - 06.12.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.12.2022, Blaðsíða 6
FRÉTTIR Innlent6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 Neytendastofu barst 21 ábending vegna 17 fyrirtækja í tengslum við þrjá stóra netsöludaga í síðasta mánuði, þ.e. svartan föstudag, dag einhleypra og netmánudag. Tvær ábendingar voru byggðar á misskilningi en Neytendastofa er að kanna hvort tilefni sé til aðgerða vegna hinna málanna. Þetta upplýsir Matthildur Sveinsdóttir, sviðsstjóri hjá Neyt- endastofu, í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins. Þetta eru lítið eitt færri ábendingar en stofnun- inni bárust á síðasta ári. „Okkar upplifun er sú að neytendur séu meðvitaðir um verð og margir undirbúa sig vel fyrir þessa föstu afsláttardaga með því að skoða vörur og verð þeirra í aðdraganda tilboðanna. Í einhverjum tilvikum verða neytendur varir við að tilgreint fyrra verð á tilboði er ekki sama verð og varan var boðin á áður og senda Neytendastofu ábendingu þar um. Þegar stofnunin leitar skýringa frá fyrirtækjunum eru í sumum tilvikum eðlilegar skýringar á verðbreytingum og í öðrum tilvikum hafa orðið mistök en svo eru því miður tilvik þar sem ekki er hægt að skýra verð- breytinguna,“ segir Matthildur. Hún segir að í dag séu ekki fastar reglur um það hversu lengi vara þarf að hafa verið til sölu á fyrra verðinu. Metið sé í hverju tilviki fyrir sig hvort viðskiptahættir teljist villandi og þar með óréttmætir. „Væntanleg er breyting á þessum reglum þar sem kveðið verður á um það að fyrra verð á tilboði sé lægsta verð sem varan hefur verið boðin á síðustu 30 daga. Þegar þar að kemur verður þessi breyting kynnt rækilega því við sjáum að mjög margir seljendur þurfa að breyta fyrirkomulagi tilboða sinna þegar breytingarnar ganga í gegn.“ hdm@mbl.is lNeytendastofa kannar ábendingar Fimmtán fyrir- tæki til skoðunar Morgunblaðið/Árni Sæberg Netverslun Annir voru í nóvember. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson KönnunNær allir félagsmenn í RSÍ eða 96% eru í fullu starfi. 22,7% segjast ósátt við launin lNærallir svarendur eru í vinnu Grunnlaun eða dagvinnulaun félagsmanna í Rafiðnaðarsambandi Íslands hafa hækkað um 6% frá því í fyrra og heildarlaun þeirra einnig um 6% en á sama tíma hækkaði launavísitalan um 8%. Tæpur fjórðungur félagsmanna, 22,7%, segist óánægður með launakjör sín en rúm 44% segjast frekar eða mjög sátt við launin. Mest ánægja er í upplýsingatækni af atvinnugreinun- um en óánægja mest í byggingar- iðnaði. Ánægja með launin hefur staðið í stað frá því á síðasta ári. Þetta er meðal þess sem fram kem- ur í niðurstöðum kjarakönnunar Rafiðnaðarsambandsins en ríflega tvö þúsund félagsmenn tóku þátt í henni. Rafiðnaðarsambandið er í sam- floti iðn- og tæknigreina í yfirstand- andi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins og um helgina var greint frá því að VR og Landssam- band íslenskra verslunarmanna hefðu ákveðið að taka höndum saman við samflot iðn- og tækni- fólks í kjaraviðræðunum. Mörg stéttarfélög og sambönd létu gera launakannanir í haust og vetur vegna undirbúnings fyrir kjaraviðræðurnar. RSÍ hefur nú birt niðurstöður könnunarinnar meðal rafiðnaðarmanna og tæknifólks. Skv. þeim voru nær allir svarend- urnir í vinnu og aðeins rúmt 1% atvinnulaust að fullu eða að hluta. Nær allir eru í fullu starfi og unnu þeir að meðaltali 178 tíma í septem- ber. Grunnlaun félagsmanna voru að meðaltali 720 þúsund krónur á mánuði í september og heildarlaun- in 875 þúsund. Fram kemur að um fimmtungur þátttakenda í könnuninni segir að vinnutímastytting hafi ekki farið fram á vinnustað þeirra en um sex af hverjum tíu segjast ánægðir með vinnutímastyttinguna. Einnig var spurt hvort félagsmenn könnuðust við brot á kjarasamningum á vinnu- stöðum. 15% þeirra sögðust þekkja dæmi um brot á kjarasamingum á síðustu tólf mánuðum. Svörin leiða enn fremur í ljós að tíðni fjarvinnu er svipuð og fyrir ári, en ástæður fjarvinnu eru gerbreyttar frá því sem var á árinu 2020. „Nú eru lang- flestir sem vinna fjarvinnu að eigin ósk. Það hefur t.d. áhrif á viðhorf þeirra til að halda áfram að vinna fjarvinnu.“ omfr@mbl.is Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar segir fyrir neðan allar hell- ur hvernig forystumenn í verkalýðs- hreyfingunni hafa vegið að Vilhjálmi Birgissyni formanni Starfsgreina- sambandins (SGS) eftir undirritun kjarasamninga SGS og Samtaka at- vinnulífsins á laugardaginn. „Mér finnst ómaklega vegið að for- manni Starfsgreinasambandsins, og ekki bara honum heldur líka að öllum formönnunum sem að þessu komu og að þeim þúsundum félagsmanna sem komu að því að móta kröfugerðina. Þetta er svo ósanngarnt að það hálfa væri nóg, enda er mörgum misboð- ið yfir svona athygli sem menn eru að sækja sér með því að gera lítið úr öðrum,“ segir Aðalsteinn. Framsýn er eitt þeirra 17 SGS-fé- laga sem standa að kjarasamningn- um. Aðalsteini líst vel á samninginn. Hann sé gerður til skamms tíma á mjög sérstökum tímum verðbólgu og óvissu í umheiminum sem hafi áhrif hér á landi og þar er kveðið á um hækkanir sem menn hafa ekki séð í öðrum samningum að sögn hans. Mikill og góður undirbúningur „Ég held að menn hafi gert þarna góða hluti miðað við aðstæður,“ seg- ir hann en kveðst hins vegar vera rasandi yfir framkomu forystumanna Eflingar. Hann segir að 17 af 19 að- ildarfélögumSGS hafi farið í mikla og góða undirbúningsvinnu á sínum tíma viðmótun kröfugerðarinnar og haldið fundi úti um allt með félagsmönnum. SGS lagði því næst kröfugerðina fram fyrst allra í launþegahreyfingunni. „Að þessari kröfugerð komu þús- undir félagsmanna en Efling ákvað að vera sér. Seint og um síðir náðu þau að búa til kröfugerð en það var þeirra val að standa utan þessa bandalags. Þess vegna finnstmér það fyrir neðan allar hellur að forystumenn Eflingar skuli stíga fram núna og reka hnífa í bakið á formanni Starfsgreinasam- bandsins sem á það alls ekki skilið. Það standa spjótin í bakinu á honum og mér finnst það fyrir neðan allar hellur að þetta skuli koma úr þessari átt. Þau neituðu samstarfi og voru ekki í neinu samstarfi. Við hverju bjuggust þau?“ segir hann. „Þetta er ekkert búið“ Spurður um þennan klofning sem kominn er upp ámilli róttækra verka- lýðsforingja segir Aðalsteinn að fær- ustu sagnfræðingar verði örugglega í vandræðum með að skrifa sögu átakanna í verkalýðshreyfingunni í ljósi þess hversu góðu samstarfi Vilhjálmur hafi verið í með Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar og Ragnari Þór Ingólfssyni formanni VR, sem hafi ásamt Aðalsteini og Verkalýðsfélagi Grindavíkurmyndað ákveðið bandalag í átökunum sem átt hafa sér stað innan hreyfingarinnar. Nú sé sú staða hins vegar komin upp að formenn aðildarfélaga í SGS standi þétt að baki formanni sambandsins „á meðan Vilhjálmur hefur þurft að taka við alveg ótrúlega óforskömmuðum yfirlýsingum frá svokölluðum félögum sínum, þannig að þetta eru tíðindi og þetta er ekkert búið“. Spurður segir hann að enginn hafi reynt að hafa þau áhrif á Framsýn að skrifa ekki undir samninginn. Hafinn er undirbúningur fyrir kynn- ingar og atkvæðagreiðslur í félögun- um um samninginn, sem gildir frá 1. nóvember síðastliðnum til 31. janúar 2024. Aðalsteinn á ekki von á öðru en að hann verði samþykktur „en það er alveg ljóst að öll svona umræða er bara gerð til að reyna að skapa úlfúð og vantraust á þeim sem komu að því að gera þennan samning. Þetta er bara þannig. Menn hafa oft talað niður samninga.“ Aðalsteinn undirritaði kjarasamn- inginn í gær á Húsavík en hann átti ekki heimangengt á laugardaginn vegna fjölmenningardags og sýningar á vegum Framsýnar þann sama dag. Í gær kom Ragnar Árnason for- stöðumaður vinnumarkaðssviðs SA til Húsavíkur til að hefja viðræður við Framsýn og Þingiðn um endurnýjun á sérkjarasamningi stéttarfélaganna við PCC á Bakka. Greint er frá því á vef Framsýnar að við það tækifæri kom Ragnar með kjarasamninginn norður svo formaður Framsýnar gæti skrifað formlega undir. Að sögn Aðalsteins eru viðræðurn- ar við PCC í fullum gangi en um 150 starfsmenn eru í verksmiðjunni. lSegir gagnrýnina á Vilhjálm fyrir neðan allar hellur „Ómaklega vegið að formanni SGS“ Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ljósmynd/Framsýn Skrifað undirAðalsteinnÁ. Baldursson skrifaði í gær undir kjarasamning SGS og SA áHúsavík. Við hlið hans er RagnarÁrnason forstöðumaður hjá SA. Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Vefverslun selena.is Glæsilegar jólagjafir Undirföt Náttföt Náttkjólar Sloppar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.