Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Skora áborgina aðhætta við
lSamfés mótmælir harðlega boðaðri
styttri opnun félagsmiðstöðva
Samfés, landssamtök félagsmið-
stöðva og ungmennahúsa, Ung-
mennaráð Samfés og fulltrúaráð
Samfés skora á Reykjavíkurborg að
endurskoða ákvörðun um að stytta
þjónustutíma félagsmiðstöðva. Á
sama tíma eru sveitarfélög hvött til að
setja hagsmuni barna og ungmenna
í forgang og efla vandað og faglegt
frítímastarf barna og ungmenna.
Í yfirlýsingu frá Samfés segir m.a.
að það sé „algjörlega óskiljanlegt“ að
borgin ætli að stytta tímann, á sama
tíma og kynnt sé verkefnið „Betri
borg fyrir börn“, sem eigi að miða að
því að auka nærþjónustu við börn,
ungmenni og fjölskyldur þeirra í
skóla- og frístundastarfi.
„Á þessum tímapunkti að hefja
niðurskurðarhnífinn á loft og fara
beint í að skerða mikilvæga þjónustu
við börn og unglinga er grátlegt á
sama tíma og allar viðvörunarbjöllur
eru í gangi og rauð viðvörun sýnileg
þegar kemur að aukinni áhættuhegð-
un, ofbeldisdýrkun og hópamyndun
barna og ungmenna úti eftir lok-
un. Við vitum öll að hinn eini sanni
sparnaður felst í því að halda áfram og
auka frekar við það öfluga og faglega
forvarnarstarf sem fer fram í starfi
félagsmiðstöðva Reykjavíkurborgar,“
segir m.a. í yfirlýsingu Samfés.
Varað er við því að styttri þjón-
ustutími og minni þjónusta geti leitt
til aukins kostnaðar fyrir borgina á
næstu misserum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samfés Frá árshátíð félagsmið-
stöðvanna í Laugardalshöll 2016.
Eitrun vegna
jarðvegsbakteríu
lMælt gegn sprautun ormalyfs
Rannsókn á orsökum hópsýkingar
í hrossastóði á Suðurlandi og hest-
húsi sömu eigenda á höfuðborgar-
svæðinu benda til þess að sýkingin
sé af völdum eiturmyndandi
jarðvegsbakteríu, Clostridium spp.,
en rannsókn er ekki lokið. Talið
er að bakterían hafi komist í gegn
um húð hrossanna við sprautun
með ormalyfi og í kjölfarið vaknað
til lífsins, fjölgað sér og myndað
umrætt eiturefni.
Hrossin voru haldin í tveimur
aðskildum hópum þar til þau voru
rekin saman og sprautuð með
ormalyfi 21. nóvember. Þrettán
hross veiktust nokkrum dögum
síðar, dagana 23. til 25. nóvember,
en aðeins hross úr öðru hólfinu.
Fram kom í tilkynningu MAST í lok
nóvember að sex hrossanna hefðu
drepist en önnur væru að ná sér.
Finnst í umhverfinu
Fram kemur í tilkynningu MAST
í gær að ekki sé vitað til að sam-
bærileg hópsýking hafi komið upp
hér á landi áður en þó er ekki talið
að um nýtt smitefni sé að ræða í
landinu. Það sé hluti af umhverfi
okkar en í lágum styrk. Gróin
finnist bæði í meltingarvegi og á
húð en séu alla jafna hættulaus
þar sem súrefni leikur um og þau
komist ekki í gegnum órofna húð
eða slímhúð.
Ekki er vitað hvernig umrætt
hrossahólf mengaðist umfram það
sem er við hliðina. MAST telur
mögulegt að veðurfarið hafi haft
þar áhrif.
Matvælastofnun telur hættu á
að sambærilegar hópsýkingar geti
komið víðar upp og varar við því að
hross séu sprautuð með ormalyfi
undir húð. Hestamönnum er ráð-
lagt að nýta ormalyf sem gefin eru
í munn, í samráði við dýralækni.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Orð í eyraHrossin fengu eitrunina
eftir sprautun með ormalyfi.
STAKSTEINAR
Má ekki lengur
hlífa jólum?
Hitler litli hlakkar til jóla, sé
lesið rétt í sniðugheit Gísla
Marteins Lúters, sem er ekki
einfalt.
Páll Vilhjálms-
son sér glöggt
„að jólaskapið
kemur með
„laufléttum
svipmyndum“
af „ævintýrum“
Hitlers og þriðja
ríkisins í Pól-
landi, segir Gísli
Marteinn þegar
hann kynnir jóla-
dagskrá þjóðar-
miðilsins.
ÁÍslandi búa
nokkrar þús-
undir Pólverja.
Af þeirri ástæðu einni ættu Gísli
Marteinn og RÚV að biðjast
afsökunar.
ÁGlæpaleiti er yfirmaður
sakborningur í alvarlegu
glæpamáli.
Yfirmaðurinn býr til dag-
skrárefni eins og ekkert hafi
í skorist.
Það sendir þau skilaboð til
annarra starfsmanna að allt
sé leyfilegt.
Til dæmis má nota barnaefni
til að koma höggi á þá sem
stofnunin segir „vont fólk“.
Fjölmiðill sem lítur á lög og
siðferði sem hvern annan
brandara er til alls vís. Vinnu-
staðamenning á Glæpaleiti er
einfaldlega ekki í lagi.“ Og er þá
ekki mikið sagt.
Páll Vilhjálmsson
Gísli Marteinn
Baldursson