Morgunblaðið - 06.12.2022, Síða 10
FRÉTTIR
Innlent10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022
Sími 555 2992 / 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Kletthálsi 11 - Sími 511 0000 - bilalind.is
Ver
n 4 þ.km,
ng, dísel,
kabúnaði
LAND ROVER DEFENDER SE TD6
Gjafaaskja frá Ferðaeyjunni
„Gisting og konfekt“ fylgir með
ð 19.800.000
08/2022, ekin
sjálfskipti
hlaðinn au
gráþröstum og skógarþröstum frá
meginlandi Evrópu. Eins kom tals-
verður fjöldi hettusöngvara og fáeinar
silkitoppur. „Hellumáfur sem sást í
Þvottárskriðum var sjaldgæfasta
tegundin sem austanáttir nóvember
færðu okkur. Það var 2. tilfellið fyrir
Ísland og að ég held 10. tilfellið fyr-
ir Evrópu,“ segir Yann. Heimkynni
hellumáfsins eru í Japan og austast
með ströndumRússlands. Yann fann
fyrsta hellumáfinn á Íslandi á Húsavík
í maí 2012.
Þorraþröstur sást á Höfn seint í
nóvember og annar á Stöðvarfirði.
Það voru 4. og 5. þorraþrösturinn sem
sést hafa hér á landi. Þeir verpa um
miðbik Rússlands og nyrst í Mongólíu
og hafa vetursetu í sunnan- og suð-
vestanverðri Asíu. Þeir hafa verið
árlegir flækingar í Vestur-Evrópu.
Brúðandarkolla kom með lægð frá
Ameríku en lenti svo í austanáttinni
sem bar hana til Vestmannaeyja. Það
var 10. fuglinn af þeirri tegund sem
hér hefur sést. gudni@mbl.is
Guðmundur Björgvin Helgason
ríkisendurskoðandi var mjög
harðorður í garð Bankasýslu rík-
isins á opnum fundi stjórnskipun-
ar- og eftirlitsnefndar Alþingis í
gær þar sem hann ræddi um skýr-
slu Ríkisendurskoðunar um sölu
á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Sakaði hann Lárus Blöndal
stjórnarformann Bankasýsl-
unnar meðal annars um að hafa
talað gegn betri vitund þegar
Bankasýslan kom fyrir nefndina
á föstudag og ræddi svokallað
Excel-klúður við framkvæmd
útboðsins.
Guðmundur sagði málið ekki
ganga út á það að Ríkisendur-
skoðun hefði hengt sig í vitlaust
skjal, líkt og haldið hefði verið
fram, skýrslan hefði verið unnin
út frá öllum gögnum sem lágu fyr-
ir. Meðal annars tilboðabókinni
eins og hún þróaðist að kvöldi
útboðsdags. Bankasýslan hefði
sjálf sent umrætt skjal til Ríkis-
endurskoðunar og rökstutt sínar
ákvarðanir út frá skjalinu með
villunum í.
„Þetta er eins og að fara með
rangt barn heim af róló. Og halda
svo áfram að kynna það fyrir
fjölskyldu og vinum sem sitt eigið.
Þetta er alvarlegt mál. Ég veit
ekki hvað vakir fyrir Bankasýsl-
unni þegar hún gerir þetta en ég
segi bara hér, sem trúnaðarmað-
ur Alþingis og ríkisendurskoð-
andi, að málflutningur Banka-
sýslunnar um þetta atriði er bara
alls ekki við hæfi og eingöngu til
þess fallinn að skapa upplýsinga-
óreiðu og afvegaleiða umræðu
þings og almennings um hvað það
var sem þetta mál snerist um,“
sagði Guðmundur.
lTil þess fallinn
að afvegaleiða
umræðu
Gagnrýndi mál-
flutning Bankasýslu
Morgunblaðið/Eggert
Harðorður Guðmundur Björgvin
Helgason á nefndarfundi í gær.
ar reglulegri tegundir spörfugla að
vestan í október voru heiðatittlingur
í Grímsey, sá fyrsti sem finnst norðan
heiða, græningi á Selfossi og krúnu-
skríkja vestur á Mýrum.
Austanáttirnar undir lok nóvember
færðu okkur mikið af svartþröstum,
„Heilt yfir hefur ekki verið mikið um
flækingsfugla í haust þótt hingað hafi
komið sjaldgæfir fuglar,“ segir Yann
Kolbeinsson líffræðingur hjá Nátt-
úrustofu Norðausturlands. Ástæðan
er sú að nær engar austanáttir voru
framan af hausti fyrr en í nóvember.
Gott skot fárra en mjög sjaldgæfra
fugla kom um mánaðamót ágúst og
september. Það skilaði nýrri tegund
fyrir landið, grástelk, sem sást áMel-
rakkasléttu. Heimkynni hans eru í
Austur-Asíu og vetrarstöðvar í SA-
Asíu og Ástralíu. Þetta var 6. tilfellið
fyrir Evrópu. Um leið var relluhegri
á Melrakkasléttu. Það var annað til-
fellið fyrir landið en það fyrsta var í
Surtsey vorið 1969. Þessi hegrategund
er að mestu í sunnanverðri Evrópu,
umhverfis Miðjarðarhafið, en einnig
austur um Svartahaf og Kaspíahaf. Á
vetrum heldur relluhegrinn sig í Afr-
íku, að mestu sunnan Sahara. Það var
mjög óvæntur fundur. Þá fannst ung-
ur lónamáfur á Þórshöfn, sá fimmti
sem hingað kemur.
Nokkrir Ameríkufuglar sáust í
byrjun október, en spörfuglar þaðan
vekja ætíð lukku hjá fuglaskoðurum
í Evrópu. Þeirra sjaldgæfastur var
rauðkollur sem sást á Stokkseyri og
er skyldur glókolli. Það var í þriðja
sinn sem rauðkollur sást hér og það
sjötta í Evrópu. Þá var grímuskríkja á
Stokkseyri og var það í fimmta skipti
sem hún sást hér. Tígultáti af kardí-
nálaætt sást í Flóanum, sá fjórði sem
hingað hefur komið. Enginn íslenskur
fugl er skyldur tígultáta en þeir eru
skordýra-, berja- og fræætur. Aðr-
lVeðrið í haust ýtti ekki undir komur flækingalGrástelkur sást hér í fyrsta sinn í haustlNokkuð um
flækinga frá Austur-AsíulRelluhegri sást í annað skiptið á ÍslandilHellumáfur og þorraþröstur sáust
Fáséðir og langt að komnir fuglar
Ljósmynd/Ingvar Atli Sigurðsson
Hellumáfur Sást í Þvottárskriðum. Máfurinn er frá
A-Asíu. Þetta var í 2. skiptið sem hann sást á Íslandi.
Ljósmynd/Brynjúlfur Brynjólfsson
Þorraþröstur Þessi sást á Höfn og annar á Stöðvarfirði.
Fuglinn verpir í Rússlandi og nyrst í Mongólíu.