Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 11

Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 11
FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 11 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Einstök minning „Viti menn! Hárlosið minnkaði áður en flaskan tæmdist“. - Tinna Miljevic RENEW 1 msk á dag fyrir hár, húð og neglur KLAPPARSTÍG 29 ÍSLENSK HÖNNUN Í JÓLAPAKKANN Tryggja þarf viðeigandi innviði fyrir rafskútur hér á landi á næstu árum. Eitt brýnasta úrlausnarefnið við innleiðingu rafskúta í samgöngu- kerfið er að koma upp svokölluðum skútustæðum en með tilkomu þeirra megi vænta þess að minna verði um að skúturnar séu skildar eftir eins og hráviði á göngustígum. Þetta er meðal niðurstaðna í rannsóknarver- kefninu Frágangur rafskúta í borgar- landi sem var styrkt af rannsóknar- sjóði Vegagerðarinnar og birt á vef hennar nýlega. Verkefnið var unnið af Ragnari Þór Þrastarsyni hjá VSÓ Ráðgjöf en honum til ráðgjafar voru fulltrúar frá umhverfis- og skipulags- sviði Reykjavíkurborgar, Samgöngu- stofu og Vegagerðinni. Verkefni þetta er unnið í framhaldi af öðru sambærilegu verkefni sem VSÓ gerði fyrir Vegagerðina í fyrra, Rafskútur og umferðaröryggi. Þegar unnið var að gerð fyrra verkefnisins, í maí 2021, voru rafskútur í útleigu á höfuðborgarsvæðinu að nálgast tvö þúsund. Síðastliðið sumar, rúmu ári síðar, voru þær að nálgast fjögur þús- und. Mörgum þykir því tímabært að setja reglur um frágang og notkun rafskútanna. Í skýrslunni er rakið að það sé ekki séríslenskt fyrirbæri að raf- skútum sé illa lagt. Þar segir að erlendar rannsóknir sýni að helstu ástæður þess séu að notandi þekki ekki hvernig eigi að ganga frá raf- skútum eftir notkun eða hann hafi misskilið reglurnar því þær voru illa skilgreindar. Þá hafi norsk rannsókn sýnt að aðeins í tveimur tilvikum af 150 hafi notendur skilið við leigu- skútur liggjandi en ítrekað hafi hins vegar aðrir vegfarendur fært þær til og jafnvel velt þeim um koll. Mismunandi er hvernig reglum er háttað um frágang rafskúta í öðrum löndum. Víða í Bandaríkjunum má til að mynda leggja þeim á grasi. Í Noregi er leyfilegt að leggja rafskút- um þar sem notandanum hentar en þó ekki þannig að hún hindri aðra vegfarendur. Svíar krefjast þess að skútum sé lagt í skútustæði nema sveitarstjórnir ákveði annað. Í Par- ís og Kaupmannahöfn skal skútum lagt í skútustæði og í Kaupmanna- höfn eru engin slík í miðborginni. Í mörgum borgum er tekið gjald til að standa undir kostnaði sem fellur á sveitarfélög vegna innviða á borð við skútustæði. Slíkt gjald er allt frá 7-19 þúsund krónur á ári á hverja leigu- skútu. Athygli vekur að í Stokkhólmi ákváðu stærstu leigufyrirtækin engu að síður að borga fyrir framleiðslu og uppsetningu á skútustæðum sem allir geta notað. Ragnar Þór Þrastarson, höfundur skýrslunnar, segir að í Noregi hafi innleiðing skútustæða gefist vel og mikill hvati hafi reynst að gefa not- endum afslátt af ferðum til að koma þeim í gagnið. Mikilvægt sé að reglur verði settar um lagningu rafskúta, þá verði þær samræmdar milli sveitarfé- laga. Ragnar kveðst telja að æskilegt sé að fara blandaða leið, að á dreifðari svæðum sé leyfilegt að leggja skútum ef þær eru ekki fyrir öðrum vegfar- endum. Þar sem byggð er þéttust ætti hins vegar að hafa skútustæði með reglulegu millibili, til dæmis í 80-120 metra fjarlægð á milli. Þannig gæti eitt verið við Ingólfstorg, annað við Lækjartorg og hið þriðja við Bæj- arins bestu í Tryggvagötu. Miðað er við að eitt hefðbundið bílastæði geti rúmað allt að 14 rafskútur í senn. lNý skýrsla um frágang rafskúta og tillögur um skútustæðilEkki séríslenskt fyrirbæri að rafskútum sé illa lagtlVíða erlendis greiða rafskútuleigur gjald til sveitarfélaga vegna uppbyggingar innviða Skútustæði á fjölförnumstöðum Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Stæði Reykjavíkurborg útbjó fimm skútustæði í miðborginni í sumar. Eitt þeirra er við Hlemm. Þá hefur Hopp sett upp stæði á nokkrum stöðum. Fasteignagjöld af íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði lækka með lægri vatns- og fráveitugjöldum sem nemur hækkun fasteignamats umfram verðlag. Heildarálagning fasteignagjalda fer úr 0,744% í 0,704% sem svarar til 312 milljóna króna lægri gjalda. Kemur þetta fram í orðsendingu Rósu Guð- bjartsdóttur bæjarstjóra vegna birtingar á samantekt á breyting- um á álagningarprósentu fasteignaskatta sl. laugardag. Þar kom fram að skattprósentan hefði ekki breyst í Hafnarfirði, þrátt fyrir hækkun fasteignamats, og það hefði haft í för með sér hækk- un fasteignaskatta. Rósa bendir á að fasteignagjöldin séu samsett úr fleiri gjöldum. Lækkuðu önnur fasteignagjöld

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.