Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 12

Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 12
FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 Stílhrein og nett sorptunnuskýli fyrir allar gerðir sorptunna KOMDU TUNNUNUM Í SKJÓL Bakó Ísberg, sem sérhæfir sig í þjón- ustu við veitingageirann og rekur verslun á Höfðabakka 9 í Reykjavík, hefur fest kaup á þjónustufyrirtækinu Bakaratækni. Kaupverð er trúnað- armál. Bjarni Ákason, stærsti eigandi Bakó Ísberg, segir að með kaupunum sé fyrirtækið að styrkja stöðu sína á bakaramarkaðnum þar sem það hefur verið með aðra tána um langa hríð eins og Bjarni orðar það í samtali við Morgunblaðið. Gengið vel í ár „Það hefur gengið mjög vel hjá okk- ur í ár og aukningin í sölu milli ára er um 50%. Því fannst okkur tímabært að stækka við okkur. Við höfum lengi verið að þjónusta bakarí en nú ætlum við að setja í annan gír. Við búum vel að því að vera með tæknideild sem er með mikla þekkingu á bakaratækni og -tækjum,“ segir Bjarni. Hann segir að Bakaratækni sérhæfi sig í sölu á tækjum til bakara, sem það flytur sjálft inn. „Velta Bakaratækni hefur verið hátt í eitt hundrað milljónir króna á ári. Samhliða kaupunum kemur annar eigandinn í vinnu til okkar,“ segir Bjarni. „Svo erum við nú í fyrsta sinn búin að ráða til okkar bakara- meistara til að sjá um baksturshluta starfseminnar.“ Ætla sér alla leið Spurður um frekari ástæður kaupanna og hvort fyrirtækið ætli sér enn stærri hluti á bakaramark- aðnum segir Bjarni að Bakó Ísberg ætli sér „alla leið“ eins og hann orðar það. „Það er rými á markaðnum fyrir betri þjónustu. Það eru ekki margir að sinna þessum markaði.“ Spurður hvort Bakó Ísberg hyggist koma með einhverjar nýjungar inn á markaðinn á næstunni segir Bjarni, sem áður vann í tæknigeiranum og flutti m.a. inn Apple-vörur, að hann fylgist alla jafna vel með því sem sé nýjast að gerast. „Maður hefur séð í Bandaríkjun- um að þar eru menn farnir að nota bakararóbóta. Þeir eru settir inn í stórmarkaði og baka tuttugu brauð á klukkustund. Slík tækni mun einn daginn ryðja sér til rúms hér á landi.“ Veitingahús baka líka Með kaupunum á Bakaratækni get- ur Bakó Ísberg líka aukið þjónustu sína gagnvart veitingahúsunum, en þar eru einnig bökuð brauð í tals- verðum mæli. Félagið þjónustar nú þegar mörg stórfyrirtæki, stofnanir, skóla, hótel og fleiri fyrirtæki. Alltaf á útkikkinu Bjarni keypti meirihlutann í Bakó Ísberg árið 2019 en tekjur félags- ins námu í fyrra um 500 milljónum króna. Spurður um frekari fyrir- tækjakaup í þessum geira segir Bjarni að hann sé alltaf á útkikkinu eftir nýjum tækifærum. „Þetta er ekki stór markaður en menn eru alltaf að reyna að ná fram meiri hagkvæmni,“ segir Bjarni. lBakó Ísberg hefur lengi þjónustað bakarílSetja í annan gírlRými fyrir betri þjónustu á markaðnumlBakararóbótar væntanlegir 50% tekjuvöxtur á milli ára KaupirBakaratækniÁ.G. ehf. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Ljósmynd/Bakó Ísberg Bakstur Bjarni Ákason, Guðmundur Hlynur Guðmundsson, Árni KristinnMagnússon og Þröstur Heiðar Líndal. Veitingageiri »Tekjur Bakó Ísberg voru um 500 milljónir króna á síðasta ári. »Hagnaður Bakaratækni 2021 var átta milljónir króna. »Stærstu viðskiptavinir Bakó Ísberg eru umsvifamikil ferðaþjónustufyrirtæki eins og Bláa lónið og stór hótel, ásamt mötuneytum skóla og stórra vinnustaða. 6. desember 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 141.11 Sterlingspund 173.2 Kanadadalur 105.01 Dönsk króna 19.994 Norsk króna 14.491 Sænsk króna 13.64 Svissn. franki 151.21 Japanskt jen 1.0522 SDR 187.56 Evra 148.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 181.5265 Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, tekur við stöðu aðstoðarfor- stjóra Kviku banka af Ármanni Þorvaldssyni sem hyggst einbeita sér að því að byggja upp starf- semi Kviku í Bretlandi. Ármann, sem var forstjóri Kviku þar til hann ogMarinó Örn Tryggva- son höfðu stólaskipti árið 2019, heldur áfram sem stjórnarfor- maður í dótturfélögum bankans í Bretlandi ásamt því að sinna afmörkuðum verkefnum fyrir Kviku. Þá hefur Eiríkur Magnús Jensson, sem áður starfaði hjá Arion banka, verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs hjá Kviku en Ragnar Páll Dyer, fjármálastjóri Kviku, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Í gærmorgun var greint frá því að stjórn Kviku hefði sam- þykkt tillögu forstjóra um breytt skipurit og að markmið þess sé að gera félagið betur í stakk búið til þess að halda áfram að ná árangri í rekstri. Eftir breytingarnar verða tvö tekjusvið rekin í Kviku banka, viðskiptabanki annars vegar og fyrirtæki og mark- aðir hins vegar. Þá verða þrjú tekjusvið rekin í dótturfélögum: TM, Kvika eignastýring og Kvika Securites í Bretlandi. Framkvæmdastjóri fyrir- tækja og markaða verður Bjarni Eyvinds Þrastarson en aðstoðar- framkvæmdastjóri sviðsins og forstöðumaður fyrirtækjalána verðurMagnús Guðmundsson. Þá hefur Erlendur Davíðsson verið ráðinn í stöðu forstöðumanns fyr- irtækjaráðgjafar en Baldur Stef- ánsson, sem gegndi starfinu áður, lætur af störfum á næstu vikum og hefur eigin rekstur. Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Kviku Securities, kemur nýr inn í framkvæmdastjórn. lRekstri skipt upp í tvö tekjusvið Mikil uppstokkun hjá Kviku banka Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Kvika Sigurður Viðarsson, áður forstjóri TM, er nýr aðstoðarforstj. STUTT l Samhentir-Kassagerð hagnaðist í fyrra um tæpar 339 milljónir króna, en tapið á árínu á undan nam rúmum 106 milljónum króna. Samstæð- an skilaði tapi á rekstrarárunum 2017-2020. Tekjur samstæðunnar námu í fyrra um 5,5 milljörðum króna og drógust saman um tæpar 380 milljónir króna á milli ára. Rekstrargjöld drógust þó saman um rúmar 600 millj- ónir og námu um 5,2 milljörðum króna. Eigið fé félagsins var um 572 milljónir króna í árslok og eiginfjárhlutfall 21,2%. Samhentir keyptu árið 2020 hluta reksturs Kassagerðar Reykjavíkur og hafa helstu verkefni síðustu tveggja ára verið að vinna úr þeim kaupum. Sam- legðaráhrifin skila sér meðal annars í sparnaði á 3.000 fermetra húsnæði og að starfsmannafjöldi félagsins er nú hinn sami og hann var fyrir kaupin. „Það er mjög ánægjulegt að sjá afrakstur þeirrar miklu vinnu sem unnin hefur verið við að snúa rekstri félagsins. Sterkir innviðir, náið samstarf við okkar birgja og öflugt starfsfólk hafa skilað okkur þessum árangri, þó við eigum enn talsvert í land með að vinna upp uppsafnað tap síðustu ára, en þetta horfir allt til betri vegar,“ segir Jóhann Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Sam- hentra, í uppgjörstilkynningunni. Jákvæður viðsnúningur hjá Samhentum Jóhann Oddgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.